Morgunblaðið - 17.10.2019, Page 1
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið auglýsir laust embætti forstjóra Umhverfisstofnunar
Leitað er eftir leiðtoga með kraft og metnað til að vinna að markmiðum stofnunarinnar og veita framúrskarandi
þjónustu í þágu náttúru, almennings og atvinnulífs. Embættið felur í sér tækifæri til að vinna að framtíðar-
stefnumótun á sviði umhverfismála.
Umhverfis- og auðlindaráðherra skipar forstjóra Umhverfisstofnunar til fimm ára. Hann stýrir stofnuninni, mótar
stefnu í störfum hennar og ber ábyrgð á fjárhagslegum rekstri hennar. Hjá stofnuninni starfa um 120 starfsmenn.
Hlutverk Umhverfisstofnunar er lögum samkvæmt að stuðla að velferð almennings með því að beita sér fyrir
heilnæmu umhverfi, öruggum neysluvörum, náttúruvernd og sjálfbærri nýtingu náttúruauðlinda.
Helstu verkefni stofnunarinnar eru:
• Loftslagsmál og loftgæði.
• Verndun hafs og vatns.
• Málefni hringrásarhagkerfisins.
• Náttúruvernd og umsjón og rekstur friðlýstra svæða.
• Verndun og stjórnun veiða á villtum fuglum og dýrum.
• Eftirlit og leyfisveitingar, m.a. vegna mengandi starfsemi.
• Söfnun og miðlun upplýsinga um umhverfismál.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólamenntun á meistarastigi sem nýtist í starfi.
• Víðtæk stjórnunarreynsla og reynsla af vinnu
við stefnumótun og áætlanagerð.
• Leiðtogahæfileikar.
• Hæfni til að leiða fólk til samvinnu og árangurs.
• Reynsla af opinberri stjórnsýslu er kostur.
• Gott vald á íslensku og góð kunnátta í ensku
og einu Norðurlandamáli.
Umsókn skal fylgja ítarleg starfsferilskrá og stutt kynningarbréf um ástæðu umsóknar auk upplýsinga um árangur
sem viðkomandi hefur náð í starfi og telur að nýtist í embættið. Þriggja manna valnefnd skipuð af umhverfis- og
auðlindaráðherra metur hæfni og hæfi umsækjenda og skilar greinargerð til ráðherra.
Umsóknarfrestur er til og með 28. október nk.
Umsóknum skal skila rafrænt á netfangið uar@uar.is.
Nánari upplýsingar um starfið eru á Starfatorgi – starfatorg.is.
Upplýsingar um embættið veitir Sigríður Auður Arnardóttir, ráðuneytisstjóri
í umhverfis- og auðlindaráðuneytinu (sigridur.arnardottir@uar.is).
Forstjóri Umhverfisstofnunar
atvinna@mbl.is • Sölufulltrúi • Richard Richardsson, richard@mbl.is, 569 1391
Okkur vantar pípara
Svein/meistara með mikla reynslu í
fyrirtækjþjónustu
(viðgerðir, smærri breytingar og þjónustusamningar)
Helst lokið námskeiði um eftirlit með vatnsúðakerfum
og einhverja reynslu af sundlaugakerfum.
Góð íslenska er skilyrði – í boði eru góð laun, bíll og sími.
Upplýsingar í síma 693 2601, 693 2609 og
566 7001 á skrifstofutíma.
IceTugs ehf óskar eftir
vélstjóra til starfa á
báta félagsins.
Við óskum eftir Vélfræðing til starfa
á báta félagsins og önnur tilfalandi
störf. Til greina kemur að viðkomandi
sé með VS1 Réttindi. Fjölbreitt og
spennandi vinna..
Icetugs hefur yfir að ráða fjórum öflugum
dráttarbátum, ásamt olíuflutningapramma
sem þjónustar skip á svæðinu.
Áhugasamir sendi upplýsingar
á bragi@icetugs.is
Fullum trúnaði er heitið.
VÉLSTJÓRI
ÓSKAST
atvinna@mbl.is
Pantaðu pláss fyrir þína atvinnuauglýsingu á