Fréttablaðið - 06.04.2020, Síða 9
OPNUNARTÍMAR UM
PÁSKANA
Páskaopnun allra Vínbúða á vinbudin.is
Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU,
AKUREYRI, SELFOSSI OG REYKJANESBÆ
VÍNBÚÐIRNAR
SKÍRDAGUR 9. APRÍL LOKAÐ
FÖSTUDAGURINN LANGI 10. APRÍL LOKAÐ
LAUGARDAGUR 11. APRÍL 11-18
PÁSKADAGUR 12. APRÍL LOKAÐ
ANNAR Í PÁSKUM 13. APRÍL LOKAÐ
MIÐVIKUDAGUR 8. APRÍL 11-19
DALVEGUR, SKEIFAN OG SKÚTUVOGUR 10-20
ÞRIÐJUDAGUR 7. APRÍL 11-18
DALVEGUR, SKEIFAN OG SKÚTUVOGUR 10-20
MÁNUDAGUR 6. APRÍL 11-18
DALVEGUR, SKEIFAN OG SKÚTUVOGUR 10-20
Við hvetjum viðskiptavini til að sýna aðgát
og draga úr smithættu eins og kostur er.
· Verslum utan annatíma
· Munum 2ja metra regluna
· Nýtum snertilausar greiðslur
SÝNUM SKYNSEMI
OG FYRIRHYGGJU
Guðmundur
Steingrímsson
Í DAG
Á ferðalagi mínu innan-húss á pálmasunnu-dagsmorgni hef ég viðkomu í stólnum v ið g lug gann og slaka á með kólumb-
ískt kaffi og horfi út í íslensku snjó-
mugguna. Ég er á leið inn í búr. Þar
ríkir mikið ófremdarástand sem
þarfnast skipulagningar. Að þeirri
vinnuferð lokinni, ef af verður – en
hún hefur staðið til í nokkra daga
– verður stefnan tekin á sjónvarps-
sófann þar sem við fjölskyldan
ætlum í frí.
Konan mín kemur við hjá mér á
ferðalagi sínu frá baðherberginu
að eldhúseyjunni og sýnir mér nýtt
innlegg á samfélagsmiðlum frá NRK
Kultur, þar sem norskir hljóðfæra-
leikarar – hver og einn heima hjá sér
á náttfötunum – spila kórónaútgáfu
á Zoom af bandarísku ballöðunni
All By Myself. Giska skemmti-
legt. Frá Noregi liggur leiðin aftur
heim. Ég sé frostbitið fólk bisa við
að hlýða Víði og ganga með tveggja
metra millibili með fram sjónum
kappklætt í rokinu. Getur maður
smitast í skafrenningi? Á sænska
tónlistarappinu Spotify spilar Vík-
ingur Heiðar franska píanótónlist.
Ég skottast í tölvunni inn á breska
netmiðla.
Engin án annarra
Kólumbía, Noregur, Bretland,
Ísland, Bandaríkin, Svíþjóð, Frakk-
land. Um þessar lendur ferðast ég
innanhúss á andartaki. Ég býst
við að allir tímar séu þversagnar-
kenndir en á tímum sem þessum
geta þversagnirnar orðið æpandi.
Ein er þessi: Ár og dagur er síðan að
við höfum séð landamærum lokað
í Evrópu. Leit er að þeim sem bjóst
á nokkurn hátt við því að mann-
kynið myndi upplifa þjóðir draga
sig svona rosalega inn í skeljar sínar
eins og nú, þótt suma hafi vissulega
dreymt um það. Ástandinu er líkt
við stríð. Óprúttnir stjórnmála-
menn sums staðar nýta sér kring-
umstæðurnar til þess að auka völd
sín og blása til einræðis. Það væri
auðvelt að spá því að upp úr þessu
öllu saman risi sundraður heimur.
Þjóðir gegn þjóðum.
En svo er það hitt. Agnarstutt
íhugunarstund í stólnum, á ferða-
lagi innanhúss, færir manni heim-
inn allan inn í stofu, samofinn og
landamæralausan. Þótt sérhags-
munaöf l, innblásin af þjóðernis-
kennd, vilji gjarnan finna einhvern
f löt á þessu ástandi sem réttlætir
upphrópun með hástöfum á öllum
síðum samfélagsmiðla samtímis um
að þau hafi nú aldeilis sagt okkur
öllum fyrir fram að við yrðum að
styðja við íslenska lambakjötið að
eilífu, út af mikilvægi innlendra
kótilettna í heimsfaraldri, þá blasir
samt við að um allir þjóðir gildir
hið fornkveðna, nú sem endranær,
að engin er eyland. Ekki einu sinni
Íslendingar. Engin þjóð getur án
annarra verið.
Kraftaverkaveröld
Menningin er eitt. Á pálmasunnu-
dagsmorgni breytist ég heima hjá
mér í reglulegan Frímann Gunn-
arsson, lesandi breska pressu með,
gott ef ekki, indverskan silkiklút
um háls. Þótt maður sæki vissulega
kraft til þjóðar sinnar, sögu hennar
og menningar, og njóti hæfileika
Helga Bjöss og Bubba, þá er auð-
velt að ímynda sér hvernig maður
myndi smám saman mygla í sjálf-
skipaðri sóttkví ef maður hefði
Heimurinn innanhúss
ekki aðgang úr lófanum að svo til
allri menningu heimsins. Tígur-
temjarinn í Flórída hefur ekki enn
lagt leið sína inn á heimilið okkar,
þótt við finnum hann nálgast, en
Frú Maisel nokkur, grínisti í New
York, er hér daglegur gestur. Apple
TV er ferðaskrifstofa innanhúss.
Betra dæmi eru þó vísindin.
Sumir þjóðarleiðtogar hafa reynt
að segja þegnum sínum þá sögu að
lausnin við krísunni muni verða sú
að mögnuð innlend lyfjaþróunar-
fyrirtæki muni finna bóluefni á
grunni innlendrar yfirburðaþekk-
ingar. Reynt er að hólfa vísindin
í þjóðir í þágu annarlegra stjórn-
málamarkmiða. Trump talar svona.
Freistingin er til staðar hér líka.
En svona virka einmitt vísindin
alls ekki. Magnaður vitnisburður
birtist heimsbyggðinni um þessar
mundir um það hvernig vísindin
þekkja engin landamæri.
Vísindamenn í öllum skúmaskot-
um ferðast nú um heiminn innan-
húss og deila þekkingu sinni í ótrú-
legu alheimsátaki. Allir leggjast á
eitt. Þjóðerni skiptir engu. Vísinda-
fólk við Pittsburghháskóla, í sam-
starfi við Pasteur stofnunina í París
og ástralska líftæknifyrirtækið
Themis setur niðurstöður sínar um
mögulegt bólefni við COVID beint á
netið fyrir alla aðra – Breta, Japani,
Kínverja – að nýta sér í sínum rann-
sóknum. Og Íslensk erfðagreining
okkar er dótturfyrirtæki fjölþjóð-
lega lyfjafyrirtækisins Amgen sem
er staðsett í Kaliforníu og Kári er í
bandarísku vísindaakademíunni.
Heimurinn innanhúss er landa-
mæralaus kraftaverkaveröld iðandi
af menningu og vísindum. Sama
hvað þjóðernishyggjulið hyggst
belgja sig mikið að kórónavánni
yfirstaðinni, þá verður enginn múr
reistur þarna. Þessum lendum verð-
ur ekki lokað. Þarna verður mann-
kyni bjargað.
Ekki af mér samt. Nú hef ég hugs-
að mér að færa mig úr stólnum við
gluggann og fara að eldhúseyjunni.
Þaðan inn á bað. Kannski. Svo í
sófann.
Ég ætla að sleppa búrinu.
S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 9M Á N U D A G U R 6 . A P R Í L 2 0 2 0