Fréttablaðið - 06.04.2020, Page 10
Sem fámenn þjóð björgum
við kannski ekki heiminum
ein og sér, en við getum lagt
okkar lóð á þá vogarskál.
Árneshreppur og Borgarfjörður eystri eru lítil samfélög sem eiga undir högg að
sækja. Þau eru um margt dæmigerð
fyrir samfélög sem hafa verið tekin
inn í verkefnið Brothættar byggðir
sem Byggðastofnun hefur staðið
fyrir undanfarin ár.
Í slíkum samfélögum eru oft
svipuð vandamál, það er lítil endur
nýjun meðal íbúa, erfitt er að halda
Mikilvægi verslunar í brothættum byggðum sannast í veirufaraldri
Gréta Thunberg er orðin heimsþekkt, sænska stúlkan, sem greind var ein
hverf og talaði ekki, nema þegar
henni þótti nauðsyn til, en fór svo
skyndilega að tala. Og talaði þá, svo
að eftir var tekið. Hún fór í skóla
verkfall til að vekja athygli á lofts
lagsvanda heimsins, hrikalegasta
verkefni, sem mannkynið hefur
staðið frammi fyrir. Nú er þessi
áður fátalaða stúlka orðin ræðu
maður á öllum helstu loftslagsráð
stefnum heims og brýnir ráðamenn
til aðgerða í loftslagsmálum.
Nú fyrir jólin kom út bókin Húsið
okkar brennur, baráttusaga Grétu
og fjölskyldu hennar, rituð af móð
urinni, áhrifamikil lesning. Gréta
krefst aðgerða í loftslagsmálum,
aðgerða í stað orða. Hún segir allar
staðreyndir um loftslagsvandann
liggja fyrir og lausnirnar einnig,
hvað þurfi að gera. Vísindamenn
eru nær sammála um, að hlýnun
andrúmsloftsins sé af manna
völdum og loftslagsbreytingar séu
farnar að hafa áhrif á veðurfar og líf
fólks um allan heim.
Við þurfum að vakna og gera
breytingar, draga úr losun gróður
húsalofttegunda strax, því verði
ekkert að gert á næstu árum, fer
af stað keðjuverkun sem enginn
mannlegur máttur fær stöðvað.
Þetta er neyðarkall, segir hún.
Gréta vill að við tökum loftslags
ógnina alvarlega, því annars gerist
ekkert. „Fullorðna fólkið er alltaf
að segja: „Við verðum að gefa unga
fólkinu von. En ég vil ekki vonina
ykkar. Ég vil að þið hagið ykkur
eins og líf ykkar sé í hættu. Ég vil
að þið hagið ykkur eins og það sé
kviknað í húsinu ykkar. Af því að
það er kviknað í því.“ Þannig talaði
Gréta á alþjóðaefnahagsþinginu
í Davos í janúar 2019. Samt boðar
hún ekkert vonleysi eða uppgjöf,
öðru nær, því enn þá er möguleiki
á að breyta, en þá verðum við að
bregðast skjótt við.
Gréta hefur staðið í baráttu. Hún
hefur fengið á sig gagnrýni fyrir að
vera ung og óreynd, einhverf eða
einfalda hlutina um of. Hún gerir
sér þó grein fyrir því að hér er ekki
um einfalt verkefni að ræða, að
minnka losun á heimsvísu, þar sem
í hlut eiga allar þjóðir heims sem
búa við afar misjafnar aðstæður.
Ríku iðnþjóðirnar eins og hennar
eigið land, Svíþjóð, verða að ganga
á undan, segir hún, og draga úr
losun um 50 prósent næstu árin, á
meðan þróunarríkin svonefndu fá
afslátt og ráðrúm til að byggja upp
innviði sína.
Staðan hjá okkur Íslendingum
er víst ekki sérlega góð um þessar
mundir. Við erum ofarlega í losun af
Norðurlandaþjóðunum. Við erum
ekki að draga úr losun, heldur auka,
þrátt fyrir metnaðarfulla aðgerða
áætlun núverandi ríkisstjórnar
Katrínar Jakobsdóttur í umhverf
ismálum til ársins 2030, sem enn á
eftir að sýna sig hvort reynist raun
hæf. Víst er að við þurfum að gera
betur í loftslagsmálum, ætlum við
að standa við skuldbindingar okkar
gagnvart Parísarsamkomulaginu.
Bók Grétu Thunberg er vissulega
áminning til okkar Íslendinga. Sem
fámenn þjóð björgum við kannski
ekki heiminum ein og sér, en við
getum lagt okkar lóð á þá vogarskál.
Saga Grétu sýnir okkur, svo ekki
verður um villst, hversu miklu ein
staklingurinn fær áorkað ef hann
beitir sér. Gréta er farin að hafa
áhrif vítt um heim með rödd sinni,
líka hér á landi. Á hverjum föstudegi
kemur nú saman hópur ungs fólks
á Austurvelli með mótmælaspjöld
og krefst aðgerða í loftslagsmálum
að hætti Grétu Thunberg. Unga
fólkið gerir sér ljóst, að það á mest í
húfi, því þess er framtíðin. Þetta allt
vekur vonir.
Við þur fum að endurskoða
margt, byrja hvert í sínum ranni,
breyta hugsanagangi, lífsmáta og
gildismati, temja okkur meiri auð
mýkt og einfaldari lífsmáta, hætta
að líta á peninga og hagvöxt sem
hið eina er máli skipti, en íhuga
lífsgildin, sem vísa til framtíðar.
Því eins og Gréta segir. Nú verða
allir að tala skýrt. Við höfum enn
lausnir í hendi okkar, en tíminn
er naumur, af því það er kviknað í
húsinu okkar. Húsið okkar brennur.
Húsið okkar brennur
Loftlagsmálin – hvert stefnir?
Sú fullyrðing Gunnlaugs
í greininni að meðalhiti
jarðar, sem er í dag 15
gráður, hafi ekki breyst frá
árinu 1960 er ekki rétt.
Verslanir skipta höfuðmáli
í litlum samfélögum. Ekki
aðeins til að gera íbúum
auðveldara að nálgast að-
föng, heldur verða verslanir
oft á vissan hátt hjarta sam-
félagsins.
Gunnlaugur H. Jónsson reiknar út í grein sinni „Þróun hitastigs í eina öld“ í Frétta
blaðinu 13. febrúar að í Reykjavík
muni ekki hlýna næstu hundrað
árin nema um 0,6°C. Hann segir það
leiða af mælingum Veðurstofunnar.
Þar komi í ljós að síðustu hundrað
ár hafi meðalhiti í Reykjavík aðeins
hækkað um 0,36°C. Þetta sé óveru
leg hlýnun og rúmist – að hans mati
– innan staðalfráviks á hitastigs
sveiflum síðustu hundrað árin.
Umhverfis og auðlindaráðu
neyti birti viðamikla skýrslu (yfir
200 síður) árið 2018 um loftslags
breytingar. Skýrslan var gerð undir
handleiðslu Veðurstofu af sérstakri
vísindanefnd – hópi fræðimanna á
ýmsum sviðum, sjá (https://www.
vedur.is/media/loftslag/Skyrsla
loftslagsbreytingar2018VefurNY.
pdf ). Þar er skýrt frá því hvernig
manngerð hækkun á styrk gróður
húsalofttegundar, einkum koltví
sýrings og vatnsgufu, valdi smám
saman greinilegri hlýnun jarðar
og hvernig hún birtist á Íslandi í
ýmsum myndum í náttúrunni.
Skýrslan byggir á tiltækum gögnum
á Íslandi, þá einkum Veðurstofunn
ar, en styðst einnig við niðurstöður
skýrslna Milliríkjanefndar SÞ um
loftslagsbreytingar, IPCC, árin 2013
og 2014.
Rétt er að benda á, að í ágripi
skýrslunnar kemst Veðurstofan
að allt annari niðurstöðu um
veðurfarsbreytingar á Íslandi en
Gunnlaugur: „Fram að miðbiki
aldarinnar er líklegt að hlýni á
landinu og umhverfis það og að
árin 20462055 verði að meðaltali
1,3°C – 2,3°C hærri en árin 1986
2005. Umfang hlý nunar innar
ræðst aðallega af losun gróður
húsalofttegunda. Ef losunin verður
mikil gæti hlýnunin í lok aldar
innar (meðaltal áranna 20912100)
numið meira en 4°C með ríf legum
óvissumörkum þó.“
Sú fullyrðing Gunnlaugs í grein
inni að meðalhiti jarðar, sem er í
dag 15 gráður, hafi ekki breyst frá
árinu 1960 er ekki rétt. Samkvæmt
tölum IPCC var meðalhitinn 13,9°C
árið 1960 og hefur þá aukist um
1,1°C á 60 árum.
Þorsteinn J.
Halldórsson
eðlisfræðingur
Ólafur
Hallgrímsson
fyrrverandi
sóknarprestur
Skúli Gautason
Alda Marín
Kristinsdóttir
uppi skólastarfi og verslunarrekstri.
Á báðum stöðum hafa nýlega verið
endurreistar verslanir, en það var
gert kleift með styrk úr byggða
áætlun.
Verslanir skipta höfuðmáli í
litlum samfélögum. Ekki aðeins til
að gera íbúum auðveldara að nálg
ast aðföng, heldur verða verslanir
oft á vissan hátt hjarta samfélagsins.
Í Árneshreppi á Ströndum var
nýlega endurreist verslun eftir að
Kaupfélag Steingrímsfjarðar hafði
lokað útibúi sínu þar. Stofnað var
einkahlutafélag um reksturinn
og urðu hluthafar alls 139, mun
fleiri en íbúarnir í sveitarfélaginu.
Einkum komu þar að brottf luttir
íbúar úr Árneshreppi sem hafa
sterkar taugar norður á Strandir
og vilja samfélaginu allt hið besta.
Félagið hlaut nafnið Verzlunarfjelag
Árneshrepps og opnaði Sigurður
Ingi Jóhannsson sveitarstjórnar
ráðherra verslunina með pompi og
prakt 26. júní á síðasta ári. Aðstæð
ur í Árneshreppi eru mjög sérstakar
vegna erfiðleika í samgöngum
yfir vetrartímann. Engu að síður
var ákveðið að halda versluninni
opinni allt árið um kring, þó vissu
lega sé styttur opnunartími yfir
háveturinn.
Einstaklega vel hefur tekist til við
endurreisn verslunarinnar. Vel var
hugsað fyrir því hlutverki verslun
arinnar að vera staður þar sem fólk
gæti hist og spjallað. Útbúið var
kaffihorn þar sem hægt er að tylla
sér og Thomas verslunarmaður er
óþreytandi við að bjóða upp á
nýbakað brauð og kökur og sinna
öllum óskum viðskiptavinanna.
Þannig hefur verslunin í Árnes
hreppi aukið lífsgæði íbúanna og
fest sig í sessi sem miðpunktur
sveitarfélagsins.
Á Borgarfirði eystri hafði verið
samfelldur verslunarrekstur allt
frá árinu 1918 svo ljóst var að mikil
þjónustuskerðing var í vændum
þegar matvöruverslun þorpsins
lokaði dyrum sínum árið 2017. Frá
Borgarfirði eystri eru 70 km í næsta
þéttbýli, Egilsstaði, yfir fjallveg og
um malarvegi að fara svo það er
meira en að segja það að skjótast í
búðina ef eitthvað vantar. Það er því
ekki síst öryggisráðstöfun fólgin í
því að verslun sé staðsett í byggðar
laginu. Í kjölfar íbúaþings sem
markaði upphaf sveitarfélagsins í
verkefninu Brothættum byggðum
veturinn 2018, tóku nokkrir íbúar
og velunnarar staðarins sig saman
og hófu undirbúning stofnunar
félags um verslunarrekstur í firð
inum. Verslunin var opnuð svo
um mitt sumar 2018 en þá höfðu
rúmlega 70 manns fest sér hlut í
versluninni. Óhætt er að segja að
reksturinn hafi gengið vel og íbúar
og ferðamenn sem heimsækja þenn
an magnaða stað hafa verið duglegir
að nýta sér þá þjónustu sem versl
unin veitir. Þar er jafnframt upplýs
ingamiðstöð fyrir ferðamenn sem
eru fjölmargir ár hvert enda Borgar
fjörður eystri og nágrenni einstök
útivistar og náttúruparadís.
Yfir vetrartímann, þegar um hæg
ist, er verslunin einnig kærkominn
staður til að hittast, fá sér kaffisopa
og ræða heimsmálin við samferða
fólkið og fá nýjustu fréttir úr bæjar
lífinu.
Mikilvægi verslunar í þessum
fámennu og tiltölulega afskekktu
byggðarlögum verður ekki síst ljóst
við þær aðstæður sem nú eru uppi.
Íbúar sem mögulega hafa keyrt
til stærri staða til að sækja aðföng
veigra sér nú við ferðalögum sem
eðlilegt er. Þá eru dæmi um það
að íbúar í sóttkví hafi fengið vörur
afgreiddar heim á tröppur og jafn
vel að verslunarstjóri hafi komið
og fært viðkomandi súkkulaði til
að gera sóttkvína bærilegri. Þó svo
að í þessari umfjöllun hafi einkum
verið nefndar tvær verslanir til
sögu á þetta við um fleiri brothætt
byggðarlög og því hafa styrkir til
verslunarreksturs m.a. í tengslum
við potta byggðaáætlunar og frum
kvæðisstyrki úr sjóði Brothættra
byggða verið ómetanlegir fyrir
íbúa byggðarlaganna, sérstaklega á
síðustu misserum.
6 . A P R Í L 2 0 2 0 M Á N U D A G U R10 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð