Fréttablaðið - 16.06.2020, Blaðsíða 19
Meðferðirnar
frá Jan Marini
og Perfect
Derma minnka
fínar og djúpar
andlitslínur,
minnka bólgur
í húð og vinna
meðal annars á
bólum, þurrki
og litabreyting-
um. Þær örva
endurnýjun
ysta húðlagsins,
þétta húðina
og minnka
slappleika, gefa
góðan raka og
minnka sólar-
skemmdir.
Jan Marini-húðlínan frá Kísildalnum er sú sem lýta- og húðlæknar í Kaliforníu velja á
sínar stofur en nú fæst hún í fyrsta
sinn á Íslandi hjá Húðinni.
„Vörurnar frá Jan Marini eru
byggðar á ítarlegum rannsóknum
og innihalda virk efni sem vinna
meðal annars á bólum, þurrki,
andlitslínum og litabreytingum,“
segir Lára G. Sigurðardóttir, læknir
og annar eigandi Húðarinnar, en
meðeigandi hennar er Sigríður
Arna Sigurðardóttir, hjúkrunar- og
förðunarfræðingur.
Lára nefnir sem dæmi virku
innihaldsefnin í Jan Marini-húð-
línunni, meðal annars glycolic-
sýru (AHA) sem örvar endurnýjun
ysta húðlagsins, vinnur á litabreyt-
ingum og minnkar fílapensla og
salicylic-sýru (BHA) sem minnkar
olíumyndun og bólguviðbrögð í
húðinni og vinnur þar af leiðandi á
svitaholum.
„Í Jan Marini-vörunum er einn-
ig azeilaic-sýra sem hemur vöxt
baktería í hársekkjum og minnkar
sólarskemmdir, C-ESTA(C-víta-
mín) sem ýtir undir kollagen-
framleiðslu og er eins og PacMan
á sindurefni. Það þéttir húðina,
minnkar slappleika og andlits-
línur, gefur góðan raka og minnkar
sólarskemmdir,“ upplýsir Sigríður
Arna.
Retinól eru líka mikið notuð í
Jan Marini-húðvörurnar því þau
hafa reynst gefa árangur á innan
við tveimur til fjórum vikum og
á því tímabili tóku 97 prósent
þátttakenda í rannsókn einni eftir
fækkun andlitslína.
„Þar sem efnin í kremunum eru
virk er mikilvægt að ráðfæra sig
við heilbrigðisstarfsmann áður en
byrjað er að nota kremin og má til
að mynda ekki nota ávaxtasýrur
ef kona er þunguð eða með barn á
brjósti. Við bjóðum einnig upp á
ávaxtasýrumeðferð frá Jan Marini
sem gefið hefur góðan árangur
samhliða kremunum,“ segir Lára.
Perfect Derma ávaxtasýrur
frá Beverly Hills
Hin nýjungin sem Húðin hefur
nú tekið inn eru Perfect Derma-
ávaxtasýrur sem notið hafa
gríðarlegra vinsælda í Bretlandi og
Bandaríkjunum.
„Segja má að ávaxtasýrurnar
blási nýju lífi í húð sem er farin að
eldast, auki ljóma og minnki sólar-
skemmdir. Allt að 90 prósent af
öldrun húðar eru tilkomin vegna
sólarskemmda. Ávaxtasýrurnar
minnka fínar og djúpar andlits-
línur ásamt því að minnka bólgu
í húð og svitaholur. Kosturinn við
meðferðina er sá að hún inni-
heldur frábæra blöndu af sýrum
sem hver og ein vinnur gegn
ákveðnu húðvandamáli og þetta er
eina mið-dýptar ávaxtasýran sem
inniheldur glútaþíón sem gjarnan
er nefnt meistari andoxunarefn-
anna,“ upplýsir Lára.
Hún segir Perfect Derma örva
frumuskiptingu og framleiðslu
á kollageni og elastíni, ásamt því
að hafa bólgueyðandi eiginleika,
hjálpa húðinni að hreinsa sig og
hafa bakteríuhamlandi eiginleika.
„Perfect Derma-ávaxtasýrurnar
þolast oftast vel og í mörgum til-
fellum er hægt að skilja þær eftir
á húðinni fram á næsta morgun
þegar þær eru þvegnar af. Á
þriðja degi byrjar húðin að flagna
en ávaxtasýrunum fylgir bæði
hreinsi klútur og krem sem hjálpar
til við endurnýjun húðarinnar og
að ná sem mestum árangri. Mælt
er með að taka þrjár meðferðir
með 30 daga millibili til að sjá
hámarksárangur en hver og ein
meðferð skilar sínu,“ segir Sigríður
Arna.
Viðurkenndar húðmeðferðir
sem bæta hver aðra
Kosturinn við húðmeðferðirnar
sem Húðin býður upp á er sá að
þær vinna allar vel saman.
„Við blöndum óhikað saman
meðferðum enda virka sumar
meira á ysta húðlagið á meðan
aðrar styrkja miðlag húðarinnar.
Eitt sinn fóru þeir sem vildu halda
sér vel við í skurðaðgerð en með
öllum þessum nýju meðferðar-
möguleikum er hægt að halda
húðinni hraustlegri og fallegri
fram eftir öllum aldri, svo framar-
lega sem hugsað er vel um að verja
húðina gegn skaðlegum umhverf-
isþáttum eins og sólböðum og
reykingum,“ segir Sigríður Arna.
„Vissar húðmeðferðir, eins og
laserlyfting (oft betur þekkt sem
andlitslyfting án skurðaðgerðar),
örnálameðferð (einnig nefnd
dermapen), húðslípun, ávaxta-
sýrumeðferð og Restylane-fylliefni
eru allt meðferðir sem hafa sannað
gildi sitt í áraraðir og eru ávallt
vinsælar.“
Við tökum vel á móti þér
Ef þig langar að fríska upp á útlitið
en ert ekki viss um hvar þú átt að
byrja er alltaf hægt að panta tíma í
ráðgjöf hjá Húðinni.
„Margir eru hræddir um að
ganga út frá okkur óþekkjanlegir
en líklega hafa samfélagsmiðlar
eitthvað að gera með þá staðal-
ímynd. Við hjá Húðinni leggjum
áherslu á að meðferðirnar viðhaldi
húð á heilbrigðan hátt án þess að
breyta útliti. Þó svo að húðmeð-
ferðir eigi ekki að vera feimnismál,
og vera jafn sjálfsagðar og að fara í
ræktina, eru viðskiptavinir okkar
á þeirri línu að vilja sjá breyting-
arnar koma fram smám saman
enda er árangur margra meðferða
að koma fram í hálft ár eftir hverja
meðferð,“ útskýrir Lára.
„Okkar markmið er að fólk fari
frá okkur sátt og fái athugasemdir
um hversu vel það líti út eða sé
úthvílt. Eins og með allt annað
er mikilvægt að muna að því fyrr
sem maður byrjar að hugsa vel um
húðina, því betur eldist hún.“
Á vandaðri heimasíðu
Húðarinnar, hudin.is, er að finna
ítarlegar upplýsingar um allar
meðferðir.
Húðmeðferðarstöðin HÚÐIN
skin clinic býður upp á fjölbreyttar
húðmeðferðir, faglega þjónustu og
notalegt andrúmsloft.
Þar starfa dr. Lára G. Sigurðar-
dóttir læknir, Sigríður Arna
Sigurðardóttir, hjúkrunar- og
förðunarfræðingur, Drífa Ísa-
bella Davíðsdóttir hjúkrunar-
fræðingur, Arndís Ágústsdóttir
hjúkrunarfræðingur, Margrét
Pálmadóttir, móttökuritari og
snyrtifræðingur, og Esther Helga
Ólafsdóttir, móttökuritari og
snyrtifræðingur.
Facebook: Húðin.is
Instagram: Húðin.is
Einnig eru veittar upplýsingar í
síma 519 3223 eða timi@hudin.is.
HÚÐIN skin clinic er í Hátúni 6b,
105 Reykjavík
Húðlína sem
blæs nýju lífi í
húðina
Það eru spennandi tímar á HÚÐINNI.
Þar bjóðast nú nýjar ávaxtasýrur og
húðlína frá einu virtasta merki meðal
fagfólks í húðmeðferðargeiranum.
Báðar vörurnar koma frá Kaliforníu.
Dr. Lára G. Sigurðardóttir og Sigríður Arna Sigurðardóttir eru eigendur Húðarinnar Skin Clinic. MYND/SAGA SIG
KYNNINGARBLAÐ 5 Þ R I ÐJ U DAG U R 1 6 . J Ú N Í 2 0 2 0 HÚÐ OG HÁR