Bæjarins besta - 30.09.1986, Side 2
2
BÆ[ARINS BESTA
BÆJARINS BESTA kemur út á þriðjudögum. Útgefandi: H-PRENT sf., Suður- tangi 2,400 ísafjörður, sími 94-4560. Ritstjórar og ábyrgðarmenn: Sigurjón J. Sigurðsson, Stórholt 7, sími 4277 og Halldór Sveinbjörnsson, Aðalstræti 20, sími 4101. Blaðamaður: Hlynur Þór Magnússon, símar 4560 og 4446 Prentun: H-Prent sf. Pósthólf 201. Efnis- og auglýsinga móttaka í ofangreindum símum.
BÆjARINS BESIA
Leiðari
V________________________________________________________________________________________/
Leikur að eldi....
Öðlingur einn og sannur íhaldsmaður fyrr á árum
sagði eitt sinn, að það tæki því ekki að karpa um
innanlandsmál. Utanríkismálin skiptu sköpum. Hug-
sjónum og baráttu fyrir fegurra og betra mannlífi á
eylandinu okkar verður þó ekki hér og nú kastað fyrir
róða. En tilvitnuð ummæli komu á yfirborðið í umróti
síðustu daga og vikna. Valdatafl stórveldanna og
innræti birtist stöðugt i nýju Ijósi.
Austur i Rússiá sitja tveir þarlendir og skáka til
trémönnum á svörtum og hvítum reitum. Handtak
þeirra er kalt. Kurteisislegt yfirbragðið nær ekki að
dylja ólguna sem undir kraumar.
í austri og vestri tróna leiðtogar stórveldanna. Þeir
sitja einnig að tafli. Leikföng þeirra eru ekki úr tré.
Taflborðið ekki 64 svartir og hvítir reitir, heldur lönd
og álfur, heimsbyggðin. Taflmennirnir gereyðingar-
vopn. Milli þess er þessir taflmenn tortímingarinnar
skáka til eldflaugum og kjarnaoddum með tilliti til
afkastagetu, lygna þeir augum og láta sig dreyma
um einveldi i himingeimnum. Stjörnustríð er ekki
lengur einungis meinlaus teiknimyndasaga. Það er
orðið draumur vitfirringar mannssálarinnar.
Sjónvarpsþættirnir um kjarnorkuvána hljóta að hafa
valdið sérhverjum hugsandi manni áhyggjum.
„Aldrei aftur“ sögðu menn að lokinni síðari heims-
styrjöldinni. En ,,kalda stríðið“ varð ekki umflúið.
Hen/æðingin varó meiri en nokkru sinni. í varnar-
skyni, segja taflmeistararnir um leið og þeir setja upp
velferðargrímuna og skáka til fáeinum kjarnaoddum.
En nú er svo komið aó óttinn er þeirra eina von.
Skákmeistararnir með trémennina bíða færis. Báðir
bíða þeir eftir afleik hins. Afleikur annars og sigur
hins boðar ekki ragnarök. Brosandi tekur annar við
lárviðarsveignum en hinn reynir að bera sig karl-
mannlega. En um afleik stórmeistara óttans verður
enginn til frásagnar.
En á meðan á öllu þessu gengur, dundum við smáir
og fáir okkur við prófkjör og náungakryt. Látum okkur
fátt um finnast og leysum hvert þrætumálið á eftir
öðru við stórveldi eins og ekkert sé. Og í barnslegri
gleði fögnum við auknu framlagi okkar til heims-
friðarins með því að fá á ný að annast flutninga á
nautakjöti til verndaranna á Miðnesheiði.
Fimmtudagskvöld
Opið frá kl. 21:00—01:00
Föstudagskvöld
Opið frá kl. 23:00 — 03:00
Stebbi í diskótekinu
Laugardagskvöld
Opið frá kl. 19:00 — 03:00
Þríréttaður matseðill
Pantið tímanlega, í síðasta
lagi kl. 20:00 á föstudögum
Símar 3985 & 3803
Húsið opnað kl. 19:00
fyrir matargesti
Hljómsveitin DOLBY
skemmtir til kl. 03:00
UPPSALIR
Veitinga- og skemmtistaður í hjarta bæjarins
SÍMI3985
Aldurstakmark 18 ár
MUNIÐ NAFNSKÍRTEININ
s.h.