Bæjarins besta - 12.02.1992, Blaðsíða 10
10
BÆJARINSBBIA ■ Miðvikudagur 12. febrúar 1992
SMÁ
mausausmíWim
Til sölu er Polaris Indy 400 classic vélsleði '88. Mjög vel með farinn með rafstarti og hita í handföngum. Upplýs- ingar í 0 3850.
Til leigu er 3ja herb. íbúð. Laus fljótlega. Upplýsingar í 0 4794 á kvöldin.
D.S.S. 310922-2011
Til sölu er Toyota Carina 1800 GL '82, ekinn 100.000. km. í mjög góðu ástandi. Upplýsingar í 0 7694.
Til sölu er 3ja herb. íbúð að Hlíðarvegi 35, efri hæð, ásamt bílskúr. Upplýsingar i 0 3571 &4691 ákvöldin.
Til sölu er Arctic cat Panther vélsleði '91. Ekinn aðeins 400 milur, sem nýr. Upplýs- ingar gefur Óli í 0 96-27155 eða 96-26076.
Til sölu eru snjókeðjur 165x13”. Passa t.d. á Lada Lux. Upplýsingar i 0 7418 eftir kl. 19.
Til leigu er 2ja herb. íbúð á Eyrinni. Laus. Upplýsingar gefur Björn í 0 4560 og 4792.
Til sölu er baðborð undan einu barni. Uppl. í 0 4667.
Karlmanns giftingarhringur fannst á planinu milli Hamra- borgar og Blómabúðarinnar Elísu. Uppl. í 0 4482.
Til sölu er vegna flutnings Gram ísskápur. Upplýsingar í 0 3074.
Til leigu ereinbýlishús i Bol- ungarvík. Upplýsingar (091- 670165.
Til sölu er dökkblár Silver Cross barnavagn. Upplýs- ingar í 0 3852.
Óska eftir að kaupa raf- magnstúbu, 12-15 kW. Upp- lýsingar gefur Jón Eðvald í 0 7242 eftir kl. 19.
Til sölu er Suzuki Swift '87,5 dyra. Ek. 100.000 km. ( toppstandi. Góð kjör. Uppl. gefur Hermann í 0 4061.
Óske eftir að taka á leigu bílskúr á ísafirði. Upplýsing- ar gefur Hermann í 0 4061.
Til sölu er Nissan Sunny '85. Mjög góður bill. Á sama stað fæst ársgamalt vatnsrúm. Upplýsingar í 0 3699 á kvöldin.
Til sölu er Toyota Land Cru- iser '87, stuttur. Ekinn 80.000 km. Skipti á dýrari Toyota jeppa koma til greina. Upplýs- ingar í 0 6219 á kvöldin.
Til sölu er Ijósabekkur. Upp- lýsingar i 0 4997 á kvöldin.
Til sölu er Subaru sedan '87. Hvítur, ekinn 59.000 km. Mjög vel með farinn. Upplýs- ingar í 0 4015.
Slysavarnarkonur. Föndur í Sigurðarbúð á laugardag. Nefndin.
Til sölu er Polaris Indy sport GT vélsleði, langur '91. Ek. 1.300 milur. Með ýmsum aukabúnaði. Upplýsingar gefur Rúnar í 0 96-41432 & 96-41144.
• Ratsjárstöðin á Bolafjalli.
Oðinn ráðinn
framkvæmda-
stjóri Freyju
Rekstur ratsjár-
stöðvarinnar hafinn
BIFREIÐASKOÐUN
ISLANDS HF.
OÐINN Gestsson,
fyrrnm útgerðar-
stjóri Hlaðsvíkur hf. og
Freyju hf. hefur verið ráð-
inn sem framkvæmda-
stjóri Freyju hf. Oðinn
tekur við starfinu af
Baldri Jónssyni sem hætti
störfum eftir að Frosti hf.
og Hraðfrystihúsið Norð-
urtangi hf. festu kaup á
meirihlutaeign í fyrirtæk-
inu.
Óðinn er 32ja ára gam-
all Súgfirðingur. Hann
hefur lengst starfað sem
stýrimaður og skipstjóri á
togara, en síðasta ár starf-
aði hann sem útgerðar-
stjóri ofangreindra fyrir-
tækja. Óðinn hefur séð
um daglegan rekstur
Freyju hf. frá því að kaup-
in áttu sér stað.
Að sögn Ingimars Hall-
dórssonar, framkvædma-
stjóra Frosta hf. eins af
eigendum Freyju eru
menn bjartsýnir á rekstur
fyrirtækisins. „Næg at-
vinna hefur verið að und-
anförnu og ef við
komumst yfir fortíðar-
vandann, þá er framtíðin
björt“ sagði Ingimar í
samtali við blaðið. -s.
• Fiskiðjan Freyja.
tæki sem ætlað er að vera í
stöðinni í dag eru komin á
sinn stað og í notkun. Stöðv-
arstjóri ratsjárinnar er Við-
ar Emir Axelsson frá Bol-
ungarvík og vinna alls í
stöðinni 11 manns.
Guðjón Sigurðsson,
deildarstjóri hjá Ratsjár-
stofnun, sagði í viðtali við
blaðið, að í október og nóv-
ember sl. hefðu farið fram
flugprófanir til þess að sjá
hvernig merkin frá ratsjánni
kæmu út. Þeim prófunum
lauk í nóvember og komu
vel út. Síðan hafa verið
gerðar ýmsar prófanir á
sjálfum ratsjárbúnaðinum.
Merkin fara síðan til Kefla-
víkurflugvallar og er verið
að athuga núna hvernig þau
koma út.
Aðspurður um hvort
ratsárstöðin nýttist sjó-
mönnum á Vestfjarðamið-
um eins og talað var um í
upphafi, sagði Guðjón:
„Þann möguleika er verið
að kanna í dag.“
Ratsjárstöðin á Bolafjalli
verður formlega opnuð síð-
ar á árinu og hefur ekki ver-
ið dagsett enn. Stöðin þjón-
ar sínu hlutverki þrátt fyrir
hrun ríkjanna austan við
járntjaldið, svo sem al-
mennri flugumferð yfir
svæðið sem hefur aukist
stórlega. Merkin munu
koma til með að nýtast Flug-
málastjórn í framtíðinni við
að stjórna flugumferð á
svæði hennar. Stöðin mun
ekki eingöngu þjóna varnar-
hlutverki. Allir starfsmenn
eru íslenskir og hafa verið í
starfsþjálfun í Bandaríkjun-
um,“ sagði Guðjón að lok-
um.
-GHj.
hreint
umferiinni!
' :
Hjá Bifreiðaskoðun íslands leggjum við okkar
af mörkum til hreinna umhverfis.
Allar bifreiðar eru nú mengunarmældar við
skoðun. Það þýðir að við mælum nákvæmlega
magn kolsýrlings í útblæstri þeirra. Sé magnið
of mikið má oftast ráða á því bót með einfaldri
vélarstillingu.
Með því vinnst tvennt:
• Eldsneytissparnaður um 2% að
meðaltali
• Umhverfismengun minnkar
Stuðlum öll að hreinna lofti - í umferðinni
sem annarsstaðar!
REKSTUR ratsjár-
stöðvarinnar á Bola-
fjalli var hafinn um miðjan
janúar sl. Stöðinni er sinnt
allan sólarhringinn og öll
BÆlARINSBm
Blaðburðarfólk
vantar í Hnífsdal.
Upplýsingar
gefur Sigurjón
í síma 4560.
Suðureyri:
Bolafjall: