Bæjarins besta

Ataaseq assigiiaat ilaat

Bæjarins besta - 26.02.1992, Qupperneq 12

Bæjarins besta - 26.02.1992, Qupperneq 12
— klorfrir ★ Launaseðlar fyrir öll algengustu launaforritin Lítið inn eða hringið, áður en þið leitið annað ■PRENT H SÓLGÖTU 9 ÍSAFIRÐI F S 4560 ® 4570 Pöbbinn opinn föstudagskvöld kl. 23-03. Lokað laugardagskvöld vegna árshátíðar kvenfélagsins. Verið velkomin Víkurbær Skemmtistaður BolungarvíkS7130 ísafjarðardjúp: Hafna ferjubryggju á Nauteyri — hreppsnefnd Nauteyrarhrepps vill bryggjuna á Melgraseyri AMGÖNGURÁÐ- HERRA skipaði nefnd sl. sumar til þess að velja stað fyrir ferjubryggju í Isa- fjarðardjúpi fyrir bílaferj- una m/s Fagranes. Nefndin hefur metið fimm staði fyrir bryggjuna.þ.e. við Melgras- eyri, við Hamar á Langa- dalsströnd, á Nauteyri og síðan tvo staði við Arngerð- areyri. Nefndin varð sam- mála um að mæla með því að bryggjan yrði á Nauteyri. Engilbert Ingvarsson for- maður stjórnar Djúpbátsins hf. hefur sent bréf til hreppsnefndar Nauteyrar- hrepps þar sem óskað er eft- ir samþykki við staðsetningu bryggjunar og hvort hún væri tilbúin að láta af hendi land og efni við fram- kvæmdirnar. Hreppsnefnd fundaði svo í fyrrakvöld þar sem tekin var afstaða til erindis stjórn- ar Djúpbátsins hf. ítarlegar umræður urðu um málið á fundinum. Eftirfarandi til- laga var borin fram af Snæv- ari Guðmundssyni og var hún samþykkt með fjórum atkvæðum: „Hreppsnefnd Nauteyrarhrepps harmar að Staðarvalsnefnd ekju- bryggju skuli ekki hafa haft nein samráð við hrepps- nefnd um þetta efni. Hreppsnefndin telur að Melgraseyri sé raunhæfasti kosturinn fyrir ferjubryggju vegna þess að munur á kostnaði við bygginguna borgi sig á fáum árum með lægri rekstrarkostnaði á skipinu sem nemur 1,5 milj. á ári. Einnig verður það mun fýsilegri kostur fyrir þá sem fara með ferjunni að bryggjan verði á Melgras- eyri því þá eru farþegar farnir að spara á tíma í ferð- um milli ísafjarðar og Reykjavíkur. Ferjustaður á Melgraseyri er á landi ríkis- sjóðs og mun því kostnaður vegna lands og aðstöðu við ferjuna vera hverfandi. Þjónusta á landi gæti verið á Ármúla. Góður sumarvegur er að Melgraseyri og ekki er kostnaðarsamt að moka hann á vetrum. Því mælir hreppsnefnd með Melgras- eyri.“ Ástþór Ágústsson oddviti sat hjá og styður að ferju- bryggjan verði á Nauteyri. Ástþór á sæti í stjórn Djúp- bátsins hf. Snævar Guð- mundsson hreppsnefndar- maður og bóndi á Melgras- eyri sagði í viðtali við BB, að ef bryggjan yrði á Melgras- eyri yrði það mikilvæg lyfti- stöng undir samgöngur í hreppnum að umferðin í Fagranesið yrði svo að segja eftir endilöngum hreppnum. „Við erum eini hreppurinn í Djúpinu sem ekki er á snjó- mokstursreglum og við erum meira og minna lokuð af hér,“ sagði Snævar. -GHj. Hnífsdalur: Mæðgur lentu und- ir strætisvagni AÐ slys varð við versl- unina Búð í Hnífsdal á fimmta tímanum í gærdag að mæðgur lentu undir strætisvagni með þeim af- leiðingum að móðirin fót- brotnaði og og dóttir hennar handleggsbrotnaði. Mæðgurnar höfðu komið með strætisvagninum frá ísafirði og voru að fara út úr er snörp vindhviða feykti þeim og vagninum yfir á hinn vegarhelminginn. Þar urðu þær undir vagninum, rétt fyrir aftan hægra fram- hjólið. Starfsmaður rækju- verksmiðjunnar Bakka hf. sem var vitni að slysinu ók strax á lyftara sem hann var á, að vagninum og lyfti hon- um upp að framan og gátu nærstaddir þá náð mæðgun- um undan vagninum. Er talið að snarræði þessa manns hafi bjargað því að ekki fór verr. Mæðgurnar voru fluttar á sjúkrahúsið á ísafirði og er líðan þeirra eftir atvikum góð. Mjög hvasst var víða um Vestfirði í gærdag og varaði lögreglan ökumenn við að aka um Hnífsdalsveg. Eftir slysið komu starfs- menn ísafjarðarkaupstaðar og sandbáru svæðið. Svipað var uppi á teningnum á Skutulsfjarðarbraut fyrir stuttu. Þar þurfti tvö um- ferðaróhöpp til þess að brautin væri hefluð eftir að rásir höfðu myndast í veg- inn. Er það miður ef ekki er hægt að gera viðeigandi ráð- stafanir áður en alvarleg slys verða. -s. • Frá slysstað. Mæðgurnar lentu undir vagninum rétt fyrir aftan hægra framhjólið. VESMORÐIM Jökulfirðir: Ægir tók niðri LAUST fyrir kl. 18 á miðvikudagskvöld í síðustu viku tók varðskipið Ægir niðri þegar skipið var statt í Jökulfjörðum við at- huganir á veiðarfærum rækjubáts sem þar var staddur. Á meðan varðskips- menn voru um borð í rækjubátnum var Ægir lát- inn reka og þegar setja átti á ferð á ný tók skipið niðri. Ægir sigldi síðan til Reykjavíkur þar sem skip- ið var tekið í slipp og skemmdir kannaðar en þær munu ekki hafa orðið miklar. ísafjörður: Sprautuðu slökkvi- dufti Aðfararnótt síðastliðins sunnu- dags voru fimm ungir menn færðir á lögreglu- stöðina á ísafirði eftir að kæra hafði borist á hendur þeim vegna stulds á slökkvitæki og ómann- eskjulegrar notkunar á því. Mennirnir fóru inn í fjölbýlishús við Hlíðarveg á ísafirði, stálu þaðan duft- slökkvitæki og gerðu sér það að leik að sprauta úr því inn um bréfalúgur íbúða í nágrenninu og nær- liggjandi bíla. Ljótur leik- ur og óskiljanlegur. Skíðatilboð! Tilboðsverð á R öllum skíðavörum. RAFSJÁ - Stendur í eina viku. HÓLASTÍG 6 S 7326 Viðgerðir á öllum tegundum vélsleða SÍL- AR-vélaþjónusta og öðrum smávélum. HUSI RITSTJÓRN s 4560 • FAX S 4564 • AUGLÝSINGAR OG ÁSKRIFT S 4560

x

Bæjarins besta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.