Bæjarins besta - 22.01.1997, Blaðsíða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 22. JANÚAR 1997
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
3 SPÓLAN10TOPP
http://www.bryanadams.
com
Söngvarinn Bryan Adams
hefur sett upp heimasíðu. Á
henni er hægt að nálgast
fréttir af kappa og upp-
lýsingar um tónleikaferðir
og margt fleira.
http://www.passport2.com
Hefur þú prufað að spila
brids yfir Netið. Á þessari
heimasíðu eru allar upplýs-
ingar um hvernig er hægt að
spila brids heimshorna á
milli.
http://www.britannica.
com
Encyclopaedia Britannica er
fyrsta alfræðiorðabókin sem
kemur á Netið.
1. The Rock
2. Down Periscope
3. From Dusk till Dawn
4. Trainspotting
5. Cable Guy
6. The Juror
7. Primal Fear
8. Kingpin
9. Mullholland Falls
10. Agnes
í
TÆKINU
HELGAR
veðrið
góðará
NETINUht
tp
:
ókeypis smáauglýsingar
kaup & sala
Horfur á fimmtudag,
föstudag og laugar-
dag: Suðlæg átt, all-
hvöss um vestanvert
landið en annars heldur
hægari. Súld um sunn-
an- og vestanvert land-
ið enn annars þurrt.
Hægt hlýnandi veður,
hiti víða 3-6 stig á
föstudag og laugar-
dag.
Horfur á sunnudag
og mánudag: Suð-
vestan stinningskaldi
og él um vestanvert
landið en þurrt og víð-
ast léttskýjað sunnan
til. Hiti nálægt frost-
marki.
The Cable Guy
Hann er kominn aftur
maðurinn með gúmmí
andlitið. Að þessu sinni
leikur hann kapalmann
sem enga ósk heitari en
að eignast vin. Bráð-
skemmtileg og marg-
slungin mynd sem þú ættir
ekki að láta fram hjá þér
fara.
MYNDBÖND
HJÁ
VÍDEÓHÖLLINNI
Súðavík -
Hagkvæmni
stærðarinnar!
Í útvarpi 16. janúar, í síðastu viku, þegar liðin voru
2 ár frá snjóflóðinu í Súðavík, var talað við Ágúst Kr.
Björnsson sveitarstjóra Súðavíkurhrepps. Meginefni
útvarpsviðtalsins reyndist fjalla um erfiðleika
Súðavíkurhrepps vegna kaupa á húsum á hættusvæð-
inu í eldri hluta Súðavíkur.
Eins og kunnugt er, sameinuðust Súðavíkurhreppur
eldri, Ögurhreppur og Reykjarfjarðarhreppur í einn
stærri hrepp, Súðavíkurhrepp hinn nýja með liðlega
300 íbúa, þar af um 230 í þorpinu Súðavík. Sameiningin
tók gildi 1. janúar 1995. Rúmum hálfum mánuði síðar
féll snjóflóðið, 14 manns létu lífið, fjöldi húsa skemmdist
og tekin var um það ákvörðun í framhaldinu, að reisa
nýtt þorp í landi Eyrardals, hins forna höfuðbóls.
Öll málefni varðandi snjóflóðavarnir á Íslandi hafa
verið til endurskoðunar í rúmt ár. Tvennt er einkum til
ráða, annars vegar að byggja snjóflóðavarnir og hins
vegar að kaupa hús, sem standa á
snjóflóðasvæðum, af eigendum þeirra.
Kallast það uppkaup á máli þeirra, sem
tamast er að ræða snjóflóðavarnir.
Enn er tvennt til varðandi gerð
snjóflóðavarna og skal vikið að
þeim kostum síðar.
Uppkaup fast-
eigna í Súðavík
- snjóflóðavarn-
ir á Flateyri
Sú leið var farin á Flateyri
að byggja snjóflóðavarn-
argarða ofan byggðar á
eyrinni. Auk þess voru
reyndar keyptir grunnar
þeirra húsa, sem
skemmdust á Flateyri. Í
Súðavík voru keyptar
fasteignir fyrir 370 millj-
ónir króna. Hlutur Súðavíkurhrepps af þeirri fjárhæð
nemur 10% eða 37 milljónum króna og gjaldféll
upphæðin um nýliðin áramót. Sem fyrr segir ræddi
sveitarstjórinn vanda hreppsfélagsins við að greiða
hluta sinn af þessum snjóflóðavörnum. Mun það reynast
með öllu ómögulegt án lántöku. Engan skyldi undra að
326 íbúum Súðavíkurhrepps reynist erfitt að greiða
upphæð sem svarar til 113.500 krónum á hvern íbúa
sveitarfélagsins.
Nú er verið að byggja nýtt þorp, nýlega er risinn nýr
leikskóli og sveitarfélagið tekið við rekstri grunnskóla
að öllu leyti. Þau eru mörg járnin í eldinum þetta árið.
Sveitarstjórinn hefur farið fram á það við ofanflóðasjóð
að fá lánað fyrir 10% hlut hreppsins. Jafnframt gat
hann þess að samið hefði verið frumvarp sem hnigi að
þessari lausn. Gott og vel, vonandi tekst að greiða úr
þessu máli á farsælan hátt.
Fram hjá því verður ekki litið að svo örsmátt
sveitarfélag sem Súðavíkurhreppur er, getur ekki
aðstoðarlaust tekist á við nein þau áföll, sem meiri
háttar teljast. Ekki er heldur hægt að gleyma því að
atvinnulíf í Súðavíkurþorpi er einhæft og hvílir á einu
fyrirtæki, Frosta h.f., sem nýlega hefur verið í fréttum
vegna vandkvæða aðaleigandans Togs h.f. að greiða
Súðavíkurhreppi söluverð hlutar síns.
Reyndar var atvinnulíf í Súðavík ekki meginefni
þessara skrifa.
Fasteignir keyptar í Hnífsdal
Og þá að Ísafjarðarbæ, sem einnig er nýtt sameinað
sveitarfélag og tók sú sameining gildi 1. júní 1996.
Innan marka þess eru Flateyri, en þar féll snjóflóð, er
kostaði 20 manns lífið 26. október 1995, og Hnífsdalur,
en byggð norðan til í honum er á snjóflóðahættusvæði.
Fyrr er getið um snjóflóðavarnir á Flateyri, stóra
garða, risaveggi, sem leiða eiga snjóinn fram hjá byggð.
Álit sérfræðinga, innlendra jafnt og erlendra er að þær
muni reynast fullnægjandi. Í Hnífsdal hefur stundum
verið rætt um girðingar á upptakasvæðum snjóflóða
efst í fjallinu ofan byggðar. Þetta er hinn kosturinn og
var notaður á Siglufirði, þar sem 39 manns urðu að
yfirgefa heimili sín í síðustu viku.
Uppkaup reyndust leiðin í Hnífsdal. Fasteignir voru
keyptar af íbúum í Smárateig og Fitjateig og næsta
nágrenni. Íbúatölur bera þess merki, íbúum hefur
fækkað þar um 69 milli áranna 1995 og 1996.
Væntanlega kemur því ekki til rýmingar húsa þar í
bráð.
Ekki hefur heyrst í bæjarstjóra kvarta undan 10%
hluta Ísafjarðarbæjar í uppkaupum og öðrum
snjóflóðavörnum, og er þó í mörg horn að líta.
Þar nýtur sín væntanlega hagkvæmni stærðarinnar,
fjölda íbúanna. Byrðarnar dreifast þá víðar. Hér eru
kominn enn ein rökin fyrir sameiningu Ísafjarðarbæjar,
Súðavíkur og reyndar Bolungarvíkur.
Stakkur
Hjólaskófla
til sölu
Til sölu er
Fiat Allis 645B
hjólaskófla.
Árgerð 1970.
Nánari upplýsing-
ar í síma 566 6313
Til sölu
Til sölu er
Suzuki Swift ár-
gerð 1984 óskoð-
aður. Einnig til
sölu kuldagalli nr.
54, eins og nýr.
Upplýsingar í
síma 897 6778
Til sölu sjálfskiptur Mitsubishi
Pajero árg. 1995 upplýsingar í síma
456 3906 á kvöldin.
Til sölu tölvuborð. Upplýsingar í
síma 456 4338
Til sölu Artic Cat Cougar vélsleði
árg. ´87. Skipti á tölvu koma til
greina. Uppýsingar í síma 456 7507,
eftir kl. 17.
Gamall Bosch ísskápur til sölu á
kr. 4000. Upplýsingar eru gefnar í
síma 456 3421
Til sölu 2ja ára, lítið notað, Samsung
vídeótæki. Upplýsingar í síma 898
5616
Óska eftir notuðum búðarkassa.
Upplýsingar í síma 456 3417
Til sölu Mitsubishi Lancer 4x4
Station árg. ´88 og Toyota Carina
árg. ´88. Upplýsingar í síma 456
3052
Til sölu Artic Cat Special vélsleði
árg. ́ 92. Góð greiðslukjör. Upplýs-
ingar eru veittar í síma 456 4244 og
vs. 456 4566
Sófi til sölu. Allar nánari upplýs-
ingar í síma 456 5053
Til sölu eða leigu einbýlishúsið að
Hjallabyggð 9 Suðureyri sem er 132m²
ásamt 70m² bílskúr. Laust 1. febrúar.
Söluverð 5 millj. Leiga 28 þús. á mán.
Upplýsingar í síma 567 6217 eftir kl.
20.
Volvo 340 DL árg. ´85 til sölu. Selst
ódýrt. Upplýsingar í síma 456 4030 á
kvöldin.
Til sölu 143m² einbýlishús ásamt 40m²
bílskúr að Fagraholti 3. Ásett verð kr.
11,8 millj. Upplýsingar í síma 456
3928 eða 456 4323. Erlingur Tryggva-
son.
Til sölu vel með farinn ungbarnastóll
á kr. 4000,- Einnig lítið skiptiborð á
kr. 1000,- Upplýsingar í síma 456
4727
Toyota Cressida skutbíll, árg. ́ 82, til
sölu. Bíllin er í góðu lagi og hjá sömu
fjölskyldu í 9 ár. Verð kr. 100 þús.
Upplýsingar í síma 456 4057
Til sölu sófasett með leður áklæði
ásamt 2 borðum, 2 svefnbekkjum og
litlum ísskáp. Upplýsingar í síma 456
4075
Til sölu Weider lyftingarbekkur ásamt
lóðum. Verð kr. 17 þús. Upplýsingar í
síma 456 3727
Til sölu Hyundai Elantra ´96, sjálf-
skiptur ekinn 18 þús. Sumar og
vetrardekk, góð kjör. Upplýsingar í
síma 456 7467, vs. 854 0959
Óska eftir að kaupa hamstra og búr.
Upplýsingar í síma 456 6216, Ester.
3ja herb. íbúð til sölu í Þverholti,
Reykjavík. Góð staðsetning og gott
útsýni. Upplýsingar í síma 456 4682
eftir kl. 19.
Grunnvíkingar! Þorrablót Grunn-
víkinga verður haldið í Hnífsdal
laugardaginn 8. febrúar. Nánar auglýst
síðar. Nefndin.
Óska eftir góðum fjölskyldubíl á
verðinu 700-800 þús. Er með vel með
farinn Isuzu Trooper árg. ´82. Stað-
lítinn pening. Upplýsingar í síma
456 7418
Til leigu 4 herbergja íbúð á eyrinni.
Upplýsingar í síma 551 3774
Til sölu BMW 316 árg. ́ 82. Góður
bíll, nagladekk og sumardekk fylgja.
Upplýsingar í síma 456 3564 og
853 6618
Til sölu önnur og þriðja hæð að
Aðalstræti 22b. Seljast saman eða
sín í hvoru lagi. Upplýsingar í síma
456 3257 eftir kl. 19.
Til sölu fasteignin Seljalandsvegur
68, sem er 198m² bjart og rúmgott
einbýlishús. Skipti á minni eign á
Ísafirði eða á höfuðborgarsvæðinu
koma til greina. Upplýsingar í síma
456 4786
Bonni gælukanína fæst gefins. Hann
er barngóður og kassavanur. Upp-
lýsingar í síma 456 4975, Helga.
Til sölu eða leigu 4 herbergja íbúð
að Stórholti 13. Skipti á minni eign
eða leiga, koma til greina. Upp-
lýsingar í síma 564 1623
Til sölu Motorola 2000 farsími með
ferðaeiningu. NMT kerfi, stofngjald
og númer fylgja ásamt hleðslu-
rafhlöðu og snúru. Upplýsingar í
síma 456 6244
greiðsla. Upplýsingar í síma 456 5323
og vs. 456 4500
Skotmót í loftskammbyssu verður
haldið í íþróttahúsinu við Austurveg
sunnudaginn 26. janúar kl. 15-18.
Vegleg verðlaun og viðurkenningar.
Öllum frjálst að mæta. Gjald kr. 500,-
Skotfélag Ísafjarðar.
Grunnskóla- og framhaldsskóla-
nemar! Tek að mér aukatíma í íslensku,
ensku, þýsku, frönsku og stærðfræði.
Upplýsingar í síma 456 4775 á kvöldin.
Hrafnhildur.
Get bætt við mig verkefnum. Maggi
múrari í síma 456 7120
Til sölu Polaris Indy vélsleði árg. 1992,
ekinn 5.500 mílur. Upplýsingar í síma
456 4015 eftir kl 17.
Óska eftir gömlum húsgögnum fyrir