Bæjarins besta - 22.01.1997, Qupperneq 12
CLINIQUE
Töskutilboð
kr. 984,-
CLINIQUE
Töskutilboð
kr. 984,-
Fyllum Jakann!Fyllum
Jaka
nn!
Bæjarins besta
ÓHÁÐ Á VESTFJÖRÐUMFRÉTTABLAÐ
Stofnað 14. nóvember 1984 Sími 456 4560 Fax 456 4564 Netfang: hprent@snerpa.is Verð kr. 170 m/vsk
KFÍ - ÍR
Sunnudaginn 26. janúar kl. 20:00
Fyrrum framkvæmdastjóri Útgerðarfélags Bílddælinga hf.
Dæmdur til fangelsisvist-
ar fyrir skattalagabrot
Fyrrum framkvæmdastjóri
Útgerðarfélags Bíldælinga hf.,
á Bíldudal, hefur fyrir héraðs-
dómi Vestfjarða, verið dæmdur
til 10 mánaða fangelsisvistar
fyrir brot á skattalögum. Fyrr-
um stjórnarformaður fyrirtæk-
isins var sýknaður af kröfum
ákæruvalds í málinu. Í dóms-
orði segir að fresta skuli full-
nustu 8 mánaða af refsivist
framkvæmdastjórans fyrrver-
andi og að hún skuli niður falla
að liðnum tveimur árum frá
dómsbirtingu, haldi ákærði
almennt skilorð 57. gr. al-
mennra hegningarlaga. Þá var
framkvæmdastjóranum gert að
greiða 1.500.000 króna sekt til
ríkissjóðs innan fjögurra vikna
frá birtingu dómsins, ella sæta
varðhaldi í 3 mánuði. Fram-
kvæmdastjóranum var einnig
gert að greiða 100.000 kr.
saksóknaralaun til ríkissjóðs
auk þess sem honum var gert
að greiða 2/3 hluta annars
sakarkostnaðs. Málsvarnarlaun
verjanda stjórnarformannsins,
kr. 150.000, greiðast af ríkis-
sjóði.
Málið var höfðað með ákæru
ríkissaksóknara, dags. 30. apríl
1996, á hendur fyrrum fram-
kvæmdastjóra Útgerðarfélags
Bílddælinga hf., og fyrrum
stjórnarformanni fyrirtækisins,
fyrir fjárdrátt og brot á skatta-
lögum, framin á árunum 1992
og 1993 í rekstri Útgerðarfélags
Bílddælinga hf., sem úrskurðað
var gjaldþrota 20. ágúst 1993.
Ákærðu var gefið að sök að
hafa á árunum 1992 og 1993
vanrækt að standa ríkissjóði
skil á virðisaukaskatti að
fjárhæð kr. 10.985.285, sem
innheimtur var af félaginu. Þá
var ákærðu gefið að sök að
hafa, á árinu 1993 vanrækt að
standa ríkissjóði skil á kr.
764.502, sem þeir héldu eftir
af launum starfsmanna félags-
ins samkvæmt ákvæðum laga
um staðgreiðslu opinberra
gjalda.
Þá var ákærðu gefið að sök
að hafa á árunum 1992 og 1993,
við útborgun launa til starfs-
manna félagsins, haldið eftir
af launum samtals kr. 769.773,
sem ganga átti til greiðslu á
iðgjöldum starfsmanna til
lífeyrissjóða og stéttarfélaga,
en eigi staðið skil á því fé eins
og skylt var samkvæmt 2.
málslið 2. gr. og 2. mgr. 6. gr.
laga um starfskjör launafólks
og skyldutryggingu lífeyris-
réttinda nr. 55/1980, heldur
dregið félaginu fé og notað í
rekstur þess.
Í niðurstöðu dómsins segir
að annar ákærðu hafi verið
framkvæmdastjóri Útgerðar-
félags Bílddælinga hf., frá
upphafi og beri því ábyrgð á
daglegum rekstri félagsins, þar
á meðal fjárreiðum. Hinn
aðilinn var á sama tíma for-
maður stjórnar, en lét af störf-
um á skrifstofu félagsins, 15.
júlí 1992 og hafði eftir það
engin afskipti af daglegum
rekstri þess. Sá framkvæmda-
stjórinn þannig um innheimtu
og skil á virðisaukaskatti og
afdreginni staðgreiðslu opin-
berra gjalda á því tímabili, sem
1. og 2. kafli ákæru lúta að og
bar ábyrgð á að haldið væri
eftir af launum starfsmanna
félagsins iðgjöldum til þeirra
lífeyrissjóða og stéttarfélaga,
sem tilgreind eru í ákæru.
Þá segir í niðurstöðu dóms-
ins að hvorki verði ráðið af
framburði ákærðu, vitna, né
framlögðum gögnum, að fram-
kvæmdastjórinn hafi rætt sér-
staklega á stjórnarfundum eða
upplýst stjórn með öðrum
hætti, að félagið stæði ekki skil
á framangreindum gjöldum. Er
þannig ósannað, gegn neitun
ákærða, fyrrum formanns
stjórnar, að hann hafi vitað eða
mátt vita um þau vanskil fél-
agsins. ,,Ber því að sýkna hann
af ákæru í málinu,” eins og
segir í dómsniðurstöðu.
Verjandi stjórnarformanns-
ins fyrrverandi var Ágúst Sindri
Karlsson, hdl. Verjandi fram-
kvæmdastjórans var Gunnar
Jakobsson hdl. Gunnar lýsti því
yfir á málflutningsdegi, að
hann krefðist ekki greiðslu
málsvarnarlaun. Dóminn kvað
upp Jónas Jóhannsson.
Rúmlega helmingur
rækjukvótans í Ísafjarð-
ardjúpi var kominn á
land fyrir rúmri viku, eða
1.156 tonn af 2.300
tonna kvóta. Stærstur
hluti aflans, rúm 712
tonn höfðu farið til
vinnslu hjá Básafelli hf.,
á Ísafirði og tæp 159
tonn höfðu verið lögð
upp til vinnslu hjá Bakka
í Bolungarvík.
Rúm 175 tonn hafa
farið til vinnslu hjá
Bakka í Hnífsdal og
109,4 tonn til vinnslu hjá
Ísafjarðardjúp
Helmingur
rækjukvót-
ans veiddur
Frosta hf., í Súðavík.
Aflahæsti rækjubáturinn til
þessa er Aldan ÍS 47 frá
Ísafirði með 90,4 tonn, þá
kemur Halldór Sigurðsson
ÍS-14 með 77,5 tonn, þá
Örn ÍS-18 með 76,8 tonn,
þá Gunnvör ÍS-53 með
72,7 tonn og fimmti
aflahæsti rækjubáturinn
er Stundvís ÍS-883 með
62,8 tonn. Framangreind-
ar tölur eru fengnar frá
Hafrannsóknastofnun á
Ísafirði og miðast við 10.
janúar síðastliðinn.
Rækjubátar sem stunda veiðar í Ísafjarðardjúpi höfðu veitt rúmlega helming kvótans þann 10. janúar sl.
Vestfirðir
Kaupir
Ísafjarð-
arleið
keppi-
nautinn?
Samkvæmt upplýsing-
um blaðsins munu samn-
ingaviðræður um kaup Ísa-
fjarðarleiðar hf., á bifreið-
um Vöruflutninga Ár-
manns Leifssonar í Bol-
ungarvík, vera á lokastigi.
Ekki mun vera um að
ræða kaup á fyrirtæki Ár-
manns Leifssonar í heild,
heldur einungis kaup á bif-
reiðum og búnaði þeim
tengdum. Á síðasta ári
keypti Eimskip 60% hluta-
bréfa í Ísafjarðarleið og
munu þessir aðilar, sam-
kvæmt upplýsingum blaðs-
ins, hafa átt í viðræðum
við nokkra flutningsaðila.
Framangreindar upplýs-
ingar fengust ekki staðfest-
ar hjá framangreindum.