Morgunblaðið - 11.03.2021, Page 1

Morgunblaðið - 11.03.2021, Page 1
Framkvæmdastjóri Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu eru hagsmunasamtök fyrirtækja sem starfa við velferðarþjónustu og eru sjálfseignarstofnanir, í eigu félaga- samtaka, einkaaðila eða opinberra aðila. Aðildarfélög SFV eru 48 talsins. Mörg aðildarfélaganna eru öldrunarstofnanir, en einnig fyrirtæki með aðra starfsemi eins og dagþjálfun, áfengismeðferð, endurhæfingu o.fl. Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu samtakanna: www.samtok.is Menntunar- og hæfniskröfur: Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu (SFV) auglýsa starf framkvæmdastjóra samtakanna laust til umsóknar. Leitað er að faglegum stjórnanda og leiðtoga sem hefur áhuga á heilbrigðisþjónustu. Áhersla er lögð á stjórnunar- og skipulagshæfileika, faglegan metnað og hæfileika til að vinna sjálfstætt. Framkvæmdastjóri vinnur í nánu samstarfi með stjórn samtakanna að fjölbreyttum verkefnum. Nánari upplýsingar veita Thelma Kristín Kvaran (thelma@intellecta.is) og Hafdís Ósk Pétursdóttir (hafdis@intellecta.is) í síma 511 1225. • Dagleg stjórnun og ábyrgð á rekstri skrifstofu samtakanna • Framkvæmd ákvarðana stjórnar og þátttaka í stefnumótun • Yfirumsjón með gerð samninga og annarra verkefna á vegum samtakanna • Hagsmunagæsla fyrir samtökin og aðildarfélög þeirra • Utanumhald og skipulag viðburða og vinnuhópa á vegum samtakanna • Miðlun upplýsinga til aðildarfélaga og samstarf við ýmsa aðila Helstu verkefni og ábyrgð: Umsóknarfrestur er til og með 21. mars 2021. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf að fylgja starfsferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda í starfið. Farið verður með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál og þeim svarað. • Háskólamenntun sem nýtist í starfi • Reynsla af rekstri og áætlanagerð • Reynsla af samningagerð skilyrði • Þekking eða reynsla af opinberri stjórnsýslu kostur • Mjög gott vald á íslensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti • Góð hæfni í mannlegum samskiptum • Sjálfstæð og fagleg vinnubrögð Helstu verkefni og ábyrgð: • Veita faglega forystu og leiða þróun skólastarfs til framtíðar í samræmi við skólastefnu sveitarfélaganna sem standa að byggðasamlaginu Odda bs, aðalnámskrá grunnskóla og lög um grunnskóla. • Stýra og bera ábyrgð á rekstri og daglegri starfsemi skólans. • Bera ábyrgð á starfsmannamálum, s.s. ráðningum, starfsþróun og vinnutilhögun. • Bera ábyrgð á samstarfi við aðila skólasamfélagins. Menntunar- og hæfnikröfur: • Leyfisbréf sem grunnskólakennari og farsæl kennslureynsla í grunnskóla. • Framhaldsmenntun á sviði stjórnunar eða uppeldis- og menntunarfræða og/eða farsæl stjórnunarreynsla. • Færni og reynsla í starfsmannastjórnun, stefnumótun og áætlanagerð. • Hæfni í samskiptum og metnaður til árangurs. • Reynsla í fjármálastjórnun kostur. Skólastjóri Laugalandsskóla Á Laugalandi í Rangárþingi ytra er auk grunnskólans, leikskóli og íþróttahús auk sundlaugar og útileiksvæða. Þá eru á staðnum nokkrar íbúðir. Nemendur í Laugalandsskóla búa flestir í dreifbýlinu og koma með skólabílum á staðinn. Næsta þéttbýli er á Hellu en þar er margvísleg þjónusta og kraftmikil uppbygging m.a. hvað varðar fjölbreytt íbúðahúsnæði. Á svæðinu eru ótal möguleikar til að sinna áhugamálum og útiveru af öllu tagi. Í Rangárþingi er gott mannlíf og þar er tekið vel á móti fólki. Byggðasamlagið Oddi bs óskar eftir að ráða skólastjóra við grunnskólann á Laugalandi í Rangárþingi ytra - Laugalandsskóla. Leitað er eftir einstaklingi sem er tilbúinn til að ganga glaður til verka og leiða af dugnaði öflugt skólasamfélag með samstöðu og árangur að leiðarljósi. Mikilvægt er að skólastjóri sé tilbúinn að viðhalda þeim góða skólabrag sem einkennt hefur starf Laugalandsskóla. Á starfssvæði byggðasamlagsins búa um 2.000 íbúar en það eru sveitarfélögin Rangárþing ytra og Ásahreppur sem standa að Odda bs. Laugalandsskóli er heildstæður grunnskóli með um 80 nemendur. Nánari upplýsingar um skólann má finna á www.laugalandsskoli.is. Einkunnarorð Laugalandsskóla eru: Samvinna, traust og vellíðan í leik og starfi. Ráðið verður í stöðuna frá 1. ágúst næstkomandi eða fyrr eftir samkomulagi. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Samninganefndar sveitarfélaga (SNS) og Skólastjórafélags Íslands (SÍ). Næsti yfirmaður er framkvæmdastjóri byggðasamlagsins Odda bs. Umsóknarfrestur er til 9. apríl nk. Umsóknum skal skila á netfangið agust@ry.is. Með umsókn skal skila starfsferilskrá, nöfnum 2 umsagnaraðila, stuttri kynningu á umsækjanda og greinargerð þar sem umsækjandi gerir grein fyrir sýn sinni á skólamál og faglegri reynslu og getu sem nýtist í starfi. Frekari upplýsingar um starfið veitir Ágúst Sigurðsson sveitarstjóri í gegnum netfangið agust@ry.is eða í síma 4887000. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Réttur er áskilinn til að hætta við ráðningu og/eða auglýsa stöðuna að nýju.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.