Morgunblaðið - 11.03.2021, Síða 2

Morgunblaðið - 11.03.2021, Síða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. MARS 2021 Landsnet | Gylfaflöt 9 | 112 Reykjavík | Sími 563 9300 | landsnet@landsnet.is | www.landsnet.is Verkefnastjóri undirbúnings framkvæmda hjá Landsneti leiðir verkefni í gegnum undirbúningsferli. Starfið felur meðal annars í sér utanumhald verkefna, umsjón með hönnun, umhverfismatsvinnu og skipulagsmálum, samskipti við ráðgjafa, áætlanagerð og þátttöku í samráði við hagsmunaaðila. Umsóknarfrestur er til 21. mars 2021. Sótt er um starfið á landsnet.is. Með umsókn þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda sem nýtist í starf. Nánari upplýsingar veitir Ólafur Kári Júlíusson, mannauðssérfræðingur, mannaudur@landsnet.is. Við leitum að verkefnastjóra undirbúnings framkvæmda. Menntunar- og hæfniskröfur • Háskólapróf í verk- eða tæknifræði eða önnur menntun sem nýtist í starfi • Þekking og reynsla af verkefnastjórnun er æskileg • Reynsla af framkvæmdum er æskileg • Framúrskarandi samskipta- og skipulagsfærni • Frumkvæði, drifkraftur og sjálfstæði í starfi METNAÐARFULLUR VERKEFNASTJÓRI ÓSKAST Starfið felur í sér spennandi og krefjandi verkefni á umbótasinnuðum og metnaðarfullum vinnustað þar sem áhersla er lögð á vellíðan og ánægju alls starfsfólks. Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu er nútímaleg og framsækin þjónustustofnun sem er til staðar fyrir alla alltaf. Megin áhersla er lögð á jafnrétti, starfsánægju, heilbrigðan starfsanda, traust og gagnsæi í samskiptum og að starfsfólk búi yfir þekkingu og hæfni til að takast á við fjölbreytileg verkefni. Starfsfólk embættisins er um 430 á fjórum megin starfsstöðvum. Gildi embættis lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu eru TRAUST, FAGMENNSKA og ÖRYGGI. Mannauðsstjóri Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar eftir drífandi og framsýnum einstaklingi í starf mannauðsstjóra embættisins. Um spennandi, krefjandi og fjölbreytt starf er að ræða sem heyrir undir lögreglustjóra. Helstu verkefni og ábyrgð • Fagleg forysta í mannauðsmálum embættisins • Þróun mannauðsstefnu og eftirfylgni hennar • Þróun starfsumhverfis í anda stefnu embættisins • Ráðgjöf og stuðningur við stjórnendur og starfsfólk • Umsjón, undirbúningur og eftirfylgni starfsmannasamtala • Ábyrgð á helstu mannauðsferlum, gerð starfagreininga og starfslýsinga • Yfirumsjón með ráðningum, móttaka nýs starfsfólks, þjálfun, starfsþróun og starfslokum • Túlkun kjara- og stofnanasamninga, launasetning og yfirumsjón launavinnslu • Samskipti við stéttarfélög, framkvæmd kjarasamninga, réttindamál og aðbúnaður • Jafnlaunavottun og gæðamál á mannauðssviði • Seta í yfirstjórn embættisins og þátttaka í stefnumótun Hæfniskröfur • Háskólagráða sem nýtist í starfi auk framhaldsmenntunar á sviði mannauðsstjórnunar eða sambærilegrar menntunar • Yfirgripsmikil þekking og reynsla af mannauðsmálum • Þekking eða reynsla af opinberri stjórnsýslu og vinnurétti • Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni • Mjög góð þjónustulund, jákvætt og sveigjanlegt viðhorf • Leiðtogahæfni, frumkvæði og sjálfstæði í starfi • Árangurs- og lausnamiðuð hugsun • Þekking og reynsla af að leiða breytingar • Skipulagshæfni, nákvæmni og öguð vinnubrögð • Gott vald á íslensku og hæfni til að miðla upplýsingum í rituðu og töluðu máli Þess er vænst að umsækjandi hafi reynslu af störfum þar sem reynt hefur á þessa eiginleika. Umsókn skal fylgja ferilskrá, kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda í starfið, auk afrita af prófskírteinum. Við ráðningar hjá LRH er tekið mið af jafnréttisáætlun embættisins. Vakin er athygli á því að engan má ráða til starfa hjá lögreglu sem hlotið hefur fangelsisdóm fyrir refsiverðan verknað sem framinn var eftir hann varð fullra 18 ára eða sýnt af sér háttsemi sem getur rýrt það traust sem starfsmenn lögreglu verða almennt að njóta. Til þess að staðreyna þetta er lögreglu heimilt að afla upplýsinga úr sakaskrá og málaskrám lögreglu, sbr. 28. gr. a. lögreglulaga nr. 90/1996. Frekari upplýsingar um starfið Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og hafa gert. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf við fyrsta tækifæri eða eftir nánara samkomulagi. Umsóknir sem berast eftir að umsóknarfresti lýkur verða ekki teknar til greina. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir munu gilda í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, með vísan til 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar á lausum störfum, sem settar eru samkvæmt heimild í 3. mgr. 7. gr. laga nr. 70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Starfshlutfall er 100% Umsóknarfrestur er til og með 16.03.2021 Nánari upplýsingar veitir Emma Ásudóttir Árnadóttir - emma@lrh.is - 444-1000 Eygló Huld Jónsdóttir - eyglo.huld@lrh.is - 444-1000 Sækja skal um stöðuna með rafrænum hætti á vef Starfatorgs, www.starfatorg.is.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.