Morgunblaðið - 11.03.2021, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 11.03.2021, Blaðsíða 3
Crayon á Íslandi leitar að öflugum sérfræðingum til starfa. Ef þú hefur ástríðu fyrir upplýsingatækni, vilt starfa í síkviku umhverfi, vinna að fjölbreyttum og krefjandi verkefnum sem felast í ráðgjöf í skýjavegferð og sjálfvirknivæðingu fyrir leiðandi fyrirtæki á markaði og samstarfsaðila, þá viljum við þig í okkar lið! Viltu móta stafræna framtíð með okkur? Þjónustu- og viðskiptastjóri Hefur eftirlit með og tryggir arðsemi þjónustusamninga og verkefna. Stýrir þróun þjónustulausna sem mæta þörfum viðskiptavina og stuðlar að verðmætasköpun þeirra. Starf fyrir einstakling með ríka skipulags- og samskiptaleikni sem tekur ábyrgð á og fylgir verkefnum eftir frá upphafi til enda. Junior Microsoft skýjaráðgjafi Vinnur með og aðstoðar senior ráðgjafa í skýjavegferð og verðmætasköpun fyrir stærstu viðskiptavini og samstarfsaðila Crayon. Þjónustar og viðheldur innleiddum verkefnum. Starf fyrir einstakling með brennandi áhuga á skýjalausnum og löngun til að læra og þróast í krefjandi umhverfi. Senior Microsoft skýjaráðgjafi Tekur þátt í hönnun og uppsetningu tæknilegra innviða fyrir hybrid skýjalausnir. Veitir ráðgjöf um nútíma rekstrar- og þróunarumhverfi í skýinu með áherslu á hagkvæmni, gagnaöryggi og regluheldni. Starf fyrir reyndan ráðgjafa í að skapa ný tækifæri í skýjalausnum fyrir kröfuharða viðskiptavini og samstarfsaðila. Senior AWS skýjaráðgjafi Leiðbeinir fyrirtækjum í stafrænni vegferð inniviða og þróunar. Ráðleggur viðskiptavinum og samstarfsaðilum um hönnun, innleiðingu og rekstur á AWS hybrid skýjalausnum. Starf fyrir einstakling með fjölbreytta reynslu og ástríðu fyrir AWS skýjalausnum. ISV alþjóðlegur sölustjóri Vinnur með Crayon fyrirtækjum út um allan heim við að fá nýja ISV þróunaraðila til samstarfs við Crayon. Staðsetur Crayon sem stefnumótandi samstarfsaðila í skýjavegferð og umbreytingu ISV þróunaraðila. Starf fyrir einstakling með alþjóðlega reynslu í að afla nýrra viðskiptavina og samstarfsaðila með metnað fyrir stöðugri framþróun þeirra. Nánari upplýsingar um störfin og ráðningaferli er að finna á: www.crayon.com/is/atvinna Umsóknarfrestur er til 21. mars. Fyrirspurnir má senda með tölvupósti á contact.is@crayon.com Crayon á Íslandi er hluti af Crayon Group sem er alþjóðlegt upplýsingatæknifyrirtæki með rúmlega 2000 starfsmenn. Viðskiptavinir okkar hérlendis eru stærstu fyrirtæki og stofnanir landsins ásamt framsæknum samstarfsaðilum. crayon.com Við erum leiðandi í þróun og ráðgjöf stafrænna lausna og nýtum nýjustu þekkingu og fjölþætta reynslu liðsmanna okkar til að hámarka virði til viðskiptavina. Við bjóðum upp á frábæra vinnustaðstöðu í lifandi umhverfi með skemmtilegum vinnufélögum. Það er skoðun okkar hjá Crayon að fjöl- breytileiki sé leiðandi afl í nýsköpun og því hvetjum við fólk af ólíkum bakgrunni, aldri og kynjum til að sækja um.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.