Morgunblaðið - 22.05.2021, Síða 1

Morgunblaðið - 22.05.2021, Síða 1
Stjórnarráð Íslands Utanríkisráðuneytið Sérfræðingur í fjárlaga- og áætlanagerð Utanríkisráðuneytið óskar eftir að ráða sérfræðing til starfa við deild fjárlagagerðar og umsýslu sem heyrir undir rekstrar- og þjónustuskrifstofu í Reykjavík. Starfið felur í sér vinnu við fjárlagagerð og gerð fjármálaáætlunar utanríkisþjónustunnar, greiningarvinnu og efnisöflun vegna skýrslu- gerðar, samskipti við helstu hagsmunaaðila o.fl. Leitað er að framsýnum einstaklingi með mjög góða þekkingu á nýtingu stafrænna lausna við úrvinnslu og framsetningu á talnaefni. Í boði er áhugavert starf í krefjandi starfsumhverfi ráðuneytisins þar sem reynir á öguð vinnubrögð, aðlögunarhæfni, sjálfstæði og lipurð í samskiptum. Um er að ræða fullt starf. Ekki er um flutningsskylda stöðu að ræða. Helstu verkefni og ábyrgð • Fjárlagagerð. • Vinna við fjármálaáætlun og stefnumótun ráðuneytisins. • Efnisöflun og vinna við gerð skýrslna og kynningarefnis um fjárreiður og rekstur. • Þátttaka í þróun verkferla vegna fjárlagagerðar og umsýslu. • Þátttaka í þróun stafrænna lausna í tengslum við fjárlagagerð, skýrslugerð og umsýslu. • Aðkoma að rekstraráætlanagerð, efnisöflun, forsendur og kostnaðarmat. • Önnur tilfallandi verkefni. Hæfniskröfur • Háskólamenntun á framhaldsstigi sem nýtist í starfi. • Reynsla af fjármálaumsýslu og áætlanagerð er skilyrði. Reynsla af slíkum störfum innan stjórnsýslu ríkis eða sveitarfélaga er kostur. • Þekking á fjárlagagerð og helstu tölvukerfum Fjársýslu ríkisins er kostur. • Góð þekking á nýtingu stafrænna lausna (s.s. Power BI, Power Apps) við úrvinnslu, greiningu og framsetningu talna og upplýsinga sem varða rekstur er kostur. • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum. • Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti. • Greiningarhæfni, þ.e. geta til að greina og vinna úr gögnum og upplýsingum er skilyrði. • Frumkvæði, góð framkoma og aðlögunarhæfni. • Sjálfstæð vinnubrögð og hæfni í að forgangsraða verkefnum. Frekari upplýsingar um starfið Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólamenntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins hafa gert. Umsækjendur skulu senda inn ferilskrá að hámarki 2 bls. ásamt mynd og kynningarbréfi sem er að hámarki 1 bls. á íslensku. Ef kynningarbréf eða ferilskrá, eða hvorttveggja vantar, eða eru á erlendum tungumálum, verða umsóknir ekki teknar til greina. Við ákvörðun um boðun í starfsviðtal verður litið sérstaklega til gæða umsóknargagna. Við ákvörðun um ráðningu verður, auk framangreindra hæfnisviðmiða, tekið mið af frammistöðu í starfsviðtali og umsagna sem aflað er. Vakin skal athygli á því að umsækjendur sem boðaðir verða í starfsviðtal þurfa að gera grein fyrir tungumálakunnáttu sinni. Um er að ræða ótímabundna ráðningu með sex mánaða reynslutíma. Umsóknarfrestur er til og með 31. maí 2021. Aðeins er tekið við umsóknum rafrænt í gegnum vefgátt Stjórnarráðsins. Hægt er að sækja um starfið á Starfatorgi. Áhugasamir einstaklingar án tillits til kyns eru hvattir til að sækja um starfið. Litið verður svo á að umsóknir gildi í sex mánuði frá því að umsóknarfresti lýkur. Öllum umsóknum verður svarað eftir að ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Nánari upplýsingar veitir Jón Einar Sverrisson - jon.sverrisson@utn.stjr.is Anna Ósk Kolbeinsdóttir - anna.osk.kolbeinsdottir@utn.stjr.is Síðumúla 5 • 108 Reykjavík • 511 1225 • intellecta.is RÁÐGJÖF RÁÐNINGAR RANNSÓKNIR

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.