Morgunblaðið - 22.05.2021, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. MAÍ 2021 7
Raðauglýsingar 569 1100
Tilboð/útboð
Borgartúni 7c, 105 Reykjavík
Sími 530 1400
www.rikiskaup.is
NÝR LANDSPÍTALI
VIÐ HRINGBRAUT
JARÐVINNA RANNSÓKNAHÚS
ÚTBOÐ NR. 21357
Ríkiskaup fyrir hönd verkkaupa sem er Nýr Landspítali ohf.
(NLSH) óskar eftir tilboðum í verkið „Nýr Landspítali við
Hringbraut – Jarðvinna Rannsóknahús“
Verkið er á suðurhluta lóðar Landspítala við Hringbraut,
vestan við Læknagarð, hús Háskóla Íslands.
Verkefni þetta nær til þess að grafa fyrir nýju Rannsókna-
húsi við Burknagötu. Til verkefnisins heyrir einnig vinna
við undirbúning uppgraftrarins í húsgrunni, s.s. rif á
malbikuðu bílastæði, rif á gasgeymsluskýli, förgun lagna
og rafstrengja o.fl. Helstu magntölur eru:
Upprif og förgun á malbiki 3.725 m2
Laus jarðvegur, óburðarhæfur 8.250 m3
Uppgröftur og brottakstur á losaðri klöpp 13.300 m3
Bergklipping (presplitt) 1.000 m2
Bergskering klappar 9.500 m3
Verkinu skal vera að fullu lokið 31. desember 2021.
Nánari upplýsingar er að finna í rafrænu útboðskerfi
Ríkiskaupa, https://tendsign.is/.
Leiðbeiningar: https://www.rikiskaup.is/is/
utbodsthjonusta/ leidbeiningar-fyrir-tendsign
ÚTBOÐ
Tilkynningar
Reykjavíkurborg
Innkaupaskrifstofa
Borgartún 12-14, 105 Reykjavík
Sími 411 1042 / 411 1043
Bréfsími 411 1048
Netfang: utbod@reykjavik.is
Ný útboð í auglýsingu hjá Reykjavíkurborg:
• Svarthöfði – stígagerð, útboð nr. 15221
• Stekkjarbakki – breyting. Gatnagerð, lagnir og
stígar. For- og verkhönnun, útboð nr. 15213
• Hamraskóli – Ný loftræsing fyrir kennslustofur,
útboð 15142
• Umferðaröryggisaðgerðir 2021, útboð 15215
Nánari upplýsingar er að finna á
www.reykjavik.is/utbod
ÚTBOÐ
Tillaga að breytingum á
Stjórnunar- og verndaráætlun
Vatnajökulsþjóðgarðs 2021
Stjórn Vatnajökulsþjóðgarðs auglýsir til kynningar
tillögu að breytingum á Stjórnunar- og verndar-
áætlun þjóðgarðsins, á grundvelli 12. gr. laga um
Vatnajökulsþjóðgarð nr. 60/2007.
Breytingatillagan nær til ákvæða um loftför, tjöldun,
þjónustusvæði, vegi, gönguleiðir, smávirkjanir,
verndarsvæði og nýmyndanir. Einnig eru texti og
kort í einstökum köflum uppfærð vegna lagabreyt-
inga eða stækkunar þjóðgarðsins. Við tillögugerðina
var lögð áhersla á að fjalla einungis um afmörkuð
atriði, þar sem heildarendurskoðun á stjórnunar- og
verndaráætlun stendur fyrir dyrum.
Tillagan er aðgengileg á vef þjóðgarðsins,
www.vjp.is frá 21. maí til og með 9. ágúst 2021 og
eru áhugasamir hvattir til að kynna sér efni hennar.
Athugasemdir skulu sendar eigi síðar en 9. ágúst
2021 í gegnum hlekk á vef þjóðgarðsins
(www.vjp.is) eða í bréfpósti á skrifstofu Vatnajökuls-
þjóðgarðs Urriðaholtsstræti 6-8, 210 Garðabæ.
Tillagan verður kynnt á eftirfarandi veffundum og má
nálgast tengla á þá fundi á vef og Facebook-síðu
Vatnajökulsþjóðgarðs:
• Vestursvæði: Mánudagurinn 31. maí kl. 17.
• Þjóðgarðurinn í heild-almenn ákvæði:
Þriðjudagurinn 1. júní kl. 17.
• Austursvæði: Miðvikudagurinn 2. júní kl. 17.
• Norðursvæði: Fimmtudagurinn 3. júní kl. 17.
• Suðursvæði: Mánudagurinn 7. júní kl. 17.
Upptökur frá kynningarfundum verða aðgengilegar
á vef þjóðgarðsins á kynningartíma tillögunnar.
Frekari upplýsingar um tillöguna má nálgast hjá
verkefnastjóra: johanna.k.thorhallsdottir@vjp.is.
Verið velkomin í Vatnajökulsþjóðgarð!
Borgartúni 7c, 105 Reykjavík
Sími 530 1400
www.rikiskaup.is
VINNUEFTIRLITIÐ REYKJANESBÆ
HÚSNÆÐISÖFLUN - LEIGUHÚSNÆÐI
21437 - Ríkiskaup f.h. Ríkiseigna óska eftir að taka á leigu
skrifstofuhúsnæði fyrir Vinnueftirlitið í Reykjanesbæ. Um er
að ræða hefðbundið skrifstofuhúsnæði. Umsjónaraðili er
Framkvæmdasýsla ríkisins.
Miðað er við að húsnæðið verði tekið á leigu til 10 ára með
möguleika á að framlengja samninginn um 5 ár í senn, full-
búið til notkunar, án lauss búnaðar. Gerð er krafa um gott
aðgengi þ.m.t. fyrir hreyfihamlaða, hjólandi og gangandi
og næg bílastæði. Gerð er krafa um að húsnæðið sé
staðsett í Reykjanesbæ.
Húsrýmisþörf stofnunarinnar er áætluð um 70-90
fermetrar.
Frekari upplýsingar um þær kröfur sem húsnæðið verður
að uppfylla verða aðgengilegar í rafræna útboðskerfinu
TendSign, á vefslóðinni https://tendsign.is/.
Við mat á hagkvæmni tilboða verður m.a. tekið tillit til
leiguverðs, stærð húss og skipulag þess út frá fyrirhugaðri
starfsemi, afhendingatíma, staðsetningu, aðkomu og
bílastæðum.
Fyrirspurnir varðandi verkefni 21437 skulu sendar rafrænt í
gegnum útboðskerfið TendSign og verða svör birt þar.
Fyrirspurnarfrestur rennur út fimmtudaginn 10. júní en
svarfrestur er til og með 14. júní 2021.
Leigutilboðum skal skila rafrænt í útboðskerfinu, eigi síðar
en kl. 12:00, miðvikudaginn 16. júní 2021. Tilboð verða
opnuð kl. 13:00 sama dag.
Leiga á grundvelli þessarar auglýsingar er undanskilin
lögum um opinber innkaup nr. 120/2016, sbr. a-liður,
1. mgr. 11. gr. laganna.
Sjá nánar á www.utbodsvefur.is
ÚTBOÐ
Stjórnarráð Íslands
Dómsmálaráðuneytið
Framlagning kjörskráa
Kjörskrár vegna kosningar um samein-
ingu sveitarfélaganna Blönduósbæjar,
Húnavatnshrepps, Skagabyggðar og
Sveitarfélagsins Skagastrandar, sem
haldnar verða laugardaginn 5. júní
2021, skulu lagðar fram eigi síðar en
26. maí 2021.
Kjörskrár skal leggja fram á skrifstofu
sveitarstjórna eða á öðrum hentugum
stað sem sveitarstjórn ákveður.
Þeim sem vilja koma að athuga-
semdum er bent á að senda þær
hlutaðeigandi sveitarstjórn.
Dómsmálaráðuneytinu,
21. maí 2021.
Borgartúni 7c, 105 Reykjavík
Sími 530 1400
www.rikiskaup.is
URÐARVEGUR 16, ÍSAFJÖRÐUR
TIL SÖLU
Ríkiskaup kynna eignina Urðarvegur 16,
400 Ísafjörður, ásamt öllu því sem eigninni
fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Stórt og rúmgott endaraðhús á tveimur hæðum með
innbyggðum bílskúr og fallegu útsýni. Stærð 240,2 m2.
Verð 34,9 mkr.
Eignin verður sýnd þriðjudaginn 25. maí nk.
kl. 16:00 – 16:30.
Nánari upplýsingar á heimasíðu Ríkiskaupa:
www.rikiskaup.is
Stjórnarráð Íslands
Dómsmálaráðuneytið
Framlagning kjörskráa
Kjörskrár vegna kosningar um
sameiningu sveitarfélaganna
Skútustaðahrepps og Þingeyjarsveitar,
sem haldnar verða laugardaginn 5. júní
2021, skulu lagðar fram eigi síðar en
26. maí 2021.
Kjörskrár skal leggja fram á skrifstofu
sveitarstjórna eða á öðrum hentugum
stað sem sveitarstjórn ákveður.
Þeim sem vilja koma að athuga-
semdum er bent á að senda þær
hlutaðeigandi sveitarstjórn.
Dómsmálaráðuneytinu,
21. maí 2021.
Vantar þig
fagmann?
FINNA.is
200 mílur