Morgunblaðið - 05.06.2021, Qupperneq 5

Morgunblaðið - 05.06.2021, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. JÚNÍ 2021 5 Aðstoðarmaður dómara í Landsrétti Landsréttur auglýsir laust til umsóknar starf löglærðs aðstoðarmanns dómara við Landsrétt. Löglærðir aðstoðarmenn dómara sinna lögfræðilegum verkefnum og aðstoða dómara réttarins í störfum þeirra í samræmi við ákvörðun forseta réttarins, sbr. 3. mgr. 23. gr. laga nr. 50/2016. Meðal helstu verkefna er auk aðstoðar við dómara, vinna við dómareifanir, úrvinnsla kærumála sem og lögfræðileg greining mála sem til úrlausnar eru fyrir réttinum. Menntunar- og hæfniskröfur: • Embættispróf í lögfræði eða grunnnám ásamt meistaraprófi í lögum. • Góð íslenskukunnátta og færni í rituðu máli er nauðsynleg. • Góðir skipulagshæfileikar, hæfni til að vinna sjálfstætt og færni í mannlegum samskiptum. • Þekking og reynsla á sviði réttarfars er æskileg. • Reynsla af greiningu og úrlausn lögfræðilegra álitaefna er æskileg. Starfskjör eru í samræmi við kjarasamning ríkisins og viðkomandi stéttarfélags. Þeir sem áhuga hafa á starfinu eru hvattir til að sækja um óháð kyni. Með umsókn skal fylgja ítarleg starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðum umsóknar og hvernig viðkomandi uppfyllir hæfniskröfur. Áskilið er að umsóknir og fylgigögn berist rafrænt á netfangið landsrettur@landsrettur.is. Umsóknir gilda í allt að sex mánuði. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu í starfið liggur fyrir. Nánari upplýsingar veitir Gunnar Viðar, skrifstofustjóri Landsréttar, gunnar.vidar@landsrettur.is eða í síma 432-5300. Umsóknarfrestur er til og með 28. júní 2021. HJÓLBARÐAVERKSTÆÐI VÖRUBÍLA Óskum eftir að ráða vanan starfsmann á hjólbarðaverkstæði Kletts. Menntunar- og hæfniskröfur • Reynsla af vinnu á hjólbarðaverkstæði skilyrði • Reynsla af vinnu við hjólbarða vörubifreiða er kostur • Nákvæmni og öguð vinnubrögð • Geta til að vinna undir álagi og að vinna í teymi • Stundvísi og snyrtimennska Umsóknir og fyrirspurnir sendist á Andra Ellertsson rekstrarstjóra hjólbarða á ae@klettur.is Stjórnarráð Íslands Heilbrigðisráðuneytið Embætti skrifstofustjóra á skrifstofu innviða heilbrigðisþjónustu Heilbrigðisráðuneytið auglýsir laust til umsóknar embætti skrifstofustjóra á skrifstofu innviða heilbrigðisþjónustu. Um er að ræða aðra af tveimur stoðskrifstofum ráðuneytisins. Helstu verkefni skrifstofunnar eru; samningar, innkaup á vöru og þjónustu í heilbrigðiskerfinu, sjúkratryggingar, lyf og lækningatæki, byggingaframkvæmdir, mönnun heilbrigðisþjónustu, úrvinnsla tölfræðiupplýsinga auk þess að framkvæma stefnu stjórnvalda og fylgja henni eftir með gerð lagafrumvarpa og reglugerða. Heilbrigðisráðherra skipar í stöðuna til fimm ára í senn frá 1. ágúst 2021 Helstu verkefni og ábyrgð • Undirbyggja stefnumarkandi ákvarðanir ráðherra og móta stefnu stjórnvalda á sviði innviða heilbrigðisþjónustu. • Stýra daglegum verkefnum og starfsfólki skrifstofunnar. • Yfirumsjón með verkefnum er varða innviði heilbrigðisþjónustu. • Fylgja stefnu stjórnvalda eftir gagnvart þjónustuveitendum. • Þátttaka í nefndarstörfum og innlendu og erlendu samstarfi. • Samstarf við stofnanir og hagsmunaaðila. Menntunar- og hæfniskröfur: Skilyrði er að umsækjandi hafi; • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, framhaldsmenntun er áskilin. • Þekkingu á fjármálum hins opinbera. • Þekkingu og reynslu á sviði opinberrar stjórnsýslu. • Hæfni og reynslu til stefnumótunar. • Þekkingu og reynslu á sviði rekstrar og stjórnunar. • Mjög góða hæfni í mannlegum samskiptum. • Metnað og vilja til að ná árangri. • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum ásamt hæfni í verkefnastjórnun. • Gott vald á íslensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti. • Góða kunnáttu í ensku og kunnáttu í a.m.k. einu Norðurlandamáli. Þá er æskilegt að umsækjandi hafi þekkingu og reynslu á sviði heilbrigðismála. Sérstök hæfnisnefnd, skipuð þremur einstaklingum, mun meta hæfni umsækjenda og skila greinargerð til heilbrigðisráðherra, sem skipar í embættið. Nefndin starfar skv. reglum nr. 393/2012 um ráðgefandi nefndir er meta hæfni umsækjenda um embætti við Stjórnarráð Íslands og lög nr. 70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Áhugasamir einstaklingar, eru hvattir til að sækja um starfið óháð kyni. Með umsókn skal fylgja ítarleg starfsferilsskrá ásamt kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðum umsóknar og hvernig viðkomandi uppfyllir hæfniskröfur. Umsókn skal skila rafrænt á netfangið hrn@hrn.is Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um skipun í embættið liggur fyrir. Tekið skal fram að umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. reglur nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum, með síðari breytingum. Starfshlutfall er 100% Umsóknarfrestur er til og með 21. júní 2021. Upplýsingar um embættið veitir Ásta Valdimarsdóttir ráðuneytisstjóri (asta.valdimarsdottir@hrn.is) sími 545 8700.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.