Splæsingur - 12.06.1936, Page 2

Splæsingur - 12.06.1936, Page 2
2 SPLÆSINGUR Siglufjarðar- pankar. Sælt er að lifa á Siglufirði, Sósarnir hafa æðstu ráð. Par er ei Framsókn þvengsins virði Þormóður sviftar allri náð. Gunna kvalin af gremju *g sút. Gvendur af *Kleppi“ drifinn út. S gurðsson Jón og Sósabroddar siðlega passa móralinn: Útreknir ailir íhaldsgroddar, ágætir Kratar leiddir inn. Fyrir sitt eðla innrætið Erlendur komst í Samlagið. Gengur úr hófi Krata kæti er köstuðu burtu Pormóði. Finnur kominn í formannsæti í fabrikkustjórnarnefndintii, eflaust fer það á eina hlið eins og samvinnufélagið. Verkstjórinn má nú sjálfsagt sofa sætlega, þar í „Ríkinu". Eflanst það honum ætti að lofa ef það tilheyrir starfinu. Gísli er varla sem Gunnarsson grályndur, — þess er engin von. Kommarnir daprir dóminn hræðast, dæmdir í arrestshús og bann, af unnum verkum þeir illa mæðast, en Aðalbjörn skammar fógetann og angrar sárlasinn óforþént, _ hvað alls ekki neinum þykir pent. Helvíti er að heyra og lesa hvað Hólsbúið er nú drifið klént: ósvífinn Snorri angrar Drésa á allskonar veitur hefir bent, svo hendir Drési, af hyggindum, á heyrnatólið símanum. íhaldið er nú illa farið áþreifanlega völdum sneitt, af Socialista sólum marið situr það nú við ekki neitt. Pess er síðasta sigurvon Sheakespeare Islandus Björgólfsson. S ■ MíSlb; Svartidauði er ei drukkinn lengur. Dauft er hjá Bjarna í „Ríkinu", verzlunin afar illa gengur ekkert selst nú af víninu. Öllum bissnessi eyða þar óforbetraðir Templarar. Haraldur vor, með hendi þinni hlífðu nú þínum breyska lýð, hvort sem að hann er úti eða inni umvefji hann þín forsjón blíð. Til dýrðar þér allir drekki vin svo daglega gildni buddan þín. 5. m. i Sþlœsingi. Úr þeim apokryfisku Kronikubókum. . . . Á þeirri nóttu, sem Hann lá í sinni koju hafði Hann eina draumvitran. Og sjá: Hann var hrifinn af Héðins anda og krafti og fluttur fram fyrir Héðins há^ hvar Héðinn trónar í sinni dý. Og Hann sá hirðina sitja utn- hverfis.skrýdda rauðskjóttum skrúða. syngjandi Lenin, Marx og Jónasi lof og dýrð. Og Hann undraðist dýrð Héðins, skelfdist og féll fram á sína ásjónu, biðjandi náðar. Og Héðinn stóð upp af sínu há- sæti, gekk til Hans, reisti Hann upp og mælti: „Ottastu ekki! Eg vil upphefja þig til valda meðal vor öreiganna og senda þig til Vest- mannaeyja, þar skalt þú uppbyrja eina mission fyrir vora sönnu trú og hnekkja valdi hinna guðlausu, íhalds og Komma. Vertu staðfastur og eg mun gefa þér trúrra þjóna verkkaup.” Og jafnskjótt varð Hann fullur af Héðins anda. Og andinn flutti Hann til Vest- mannaeyja, hvar Hann skyldi pre- dika fyrir íýðnum, sem þverskall- aðist í sinni vonzku. Og Hann gekk um kring og fræddi lýðinn, en óvinir Hans forhertust í sínum hjörtum og svívirtu Hann. Og Hann taalði við þeirra kvinnur og kvinn- urnar söfnuðust um HannogHann boðaði þeim sitt evangelíum segj- andi: „Takjð sinnaskiftum, því að vort ríki er í nálægð. Afneitið yð- ar illa iifnaði og eg mun gefa yður menn af vorum flokki“. Sem þæróforsjálu kvinnur heyrðu þetta, skárust þær í sínum hjörtum, umkringdu Hann, yfirféllu Hann og flettu Hann sínum klæðum, en Hann komst nakinn úr höndum kvennanna. Og Hann flaug með krafti andans burt úr þeirri svívirð- ingarinnar Babylon. Og andinn flaug með Hann til höfuðstaðarins, og sjá: Hann sá Pinghúsið opið og sjálfan sig sitj- andi í sæti Jóns Baldvinssonar. Og Hann sá hersveitir hinna rauð- skjóttu lúta sér. Og hersveitirnar vegsömuðu Hann án afláts segjandi: „Dýrð og þökk sé Honum.semí Vestmanna- eyjum píndist fyrir oss. Honum, sem Jóni Gunnarssyni og Pormóði útvarpaði frá voru augliti“. Og sem Hann miklaðist af sinni upphefð. skreið ein auðvirð'leg lús á kvið Honum og beit Hann, svo Hann uppvaknaði i sinni óhreinu koju . . . Stjórnaróður. Islsnds lítill ábate ætla eg sé að Iýðræðe. Kornin erglópska, hvinnska á fé og kollubani i forsæte. (Vísa frá A. D. 1934.) O, þú vor riktug ríkisstjórn Ráðin bruggandi klók! Mörg þér til dýrðar færð er fórn, Fráskákað ýmsum hróp. Svo þínum börnum vegni vel Veitir þú allmörg hnoss Meðal útvaldra í Israel. — Óvinum býrð til kross. Ó, þú staðfasta stjórn vor góð Stabíl í móralnum, Sérhvert sprúttsala hlerar hljóð * Hjá Hlíðdal í símanum. Thorsara einnig tryggast er Að taka á sömu lund. Ef að þeir vilja eignast hér Óleyfilegann hund,

x

Splæsingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Splæsingur
https://timarit.is/publication/1608

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.