Morgunblaðið - 30.10.2021, Side 26
26 UMRÆÐAN
Messur á morgun
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. OKTÓBER 2021
AKUREYRARKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11.
Prestur er Þorgrímur Daníelsson. Félagar úr
Kór Akureyrarkirkju syngja. Organisti er Sigrún
Magna Þórsteinsdóttir.
Sunnudagaskóli í Safnaðarheimilinu kl. 11.
Umsjón Sonja Kro og Hólmfríður Her-
mannsdóttir.
ÁRBÆJARKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11.
Kór Árbæjarkirkju syngur undir stjórn Hrafnkels
Karlssonar organista. Sr. Þór Hauksson prédik-
ar og þjónar fyrir altari. Hrekkjavaka í sunnu-
dagaskólanum í Árbæjarkirkju, sunnudag kl.
11. Það mega allir koma í búningi. Andrea og
Thelma halda uppi fjörinu eins og þeim er ein-
um lagið.
ÁSKIRKJA | Guðsþjónusta og sunnudaga-
skóli kl. 13. Jóhanna María Eyjólfsdóttir djákni
sér um samverustund barnanna í sunnudaga-
skólanum. Séra Jón Ragnarsson prédikar og
þjónar fyrir altari. Hljómfélagið leiðir messu-
sönginn. Stjórnandi kórsins er Fjóla Kristín
Runólfsdóttir. Magnús Ragnarsson leikur á
orgelið. Heitt á könnunni í Ási á eftir.
ÁSTJARNARKIRKJA | Siðbótardagurinn.
Guðsþjónusta kl. 17. Davíð Sigurgeirsson leið-
ir tónlistina en sr. Kjartan Jónsson þjónar fyrir
altari og mun í prédikun m.a. fjalla um Martin
Lúther og áhrif hans. Á eftir guðsþjónustu verð-
ur boðið upp á ókeypis heitan mat.
BESSASTAÐASÓKN | Sunnudagaskóli í
safnaðarheimilinu Brekkuskógum 1 kl 11. Um-
sjón með stundinni hafa Sigrún Ósk, Pétur og
Þórarinn.
BREIÐHOLTSKIRKJA | Sameiginleg fjöl-
skylduguðsþjónusta Breiðholtsprestakalls í
Fella- og Hólakirkju kl. 11. Sr. Pétur Ragnhild-
arson leiðir stundina ásamt Ástu Guðrúnu Guð-
mundsdóttur og Arnhildur organisti leikur und-
ir. Það verður mikið sungið, hlustað á sögu úr
Biblíunni og svo mætir brúðan Viktoría með
grín og glens. Eftir stundina verður boðið upp á
pylsur og hoppukastala. Allar fjölskyldur vel-
komnar. Tómasarmessa í Breiðholtkirkju kl.
20. Fyrirbæn og fjölbreytt tónlist.
BÚSTAÐAKIRKJA | Barnamessa í búningum
kl. 11. Sóley og Katrín sjá um fjörið. Gosp-
elguðsþjónusta kl. 13 með Vox Gospel, Matt-
híasi Baldurssyni og Jónasi Þóri. Prestur er
María G. Ágústsdóttir.
DIGRANESKIRKJA | Halloween-fjölskyldu-
messa kl. 11. Börn og fullorðnir hvött til þess
að mæta í búningi. Sr. Helga og sr. Karen Lind
ásamt Höllu æskulýðsfulltrúa og leiðtogum
sunnudagaskólans sjá um stundina sem er
með hrekkjavökuþema. Ásdís Magdalena spil-
ar undir. Léttur hádegisverður í safnaðarheimili
að lokinni messu.
Rokkmessa í Hjallakirkju kl. 17. Sr. Gunnar
Sigurjónsson. Tónlist Matthías V. Baldursson
ásamt Rokkkór Íslands. Matur að messu lok-
inni.
DÓMKIRKJAN | Messa klukkan 11. Prestur
er Elínborg Sturludóttir. Dómkórinn og Kári Þor-
mar dómorganisti.
EGILSSTAÐAKIRKJA | Sunnudagaskólinn kl.
10.30. Jól í skókassa: Móttaka skókassa verð-
ur í safnaðarheimilinu laugardaginn 30. okt.
milli 10 og 14. Sjá nánar um verkefnið: sko-
kassar.net.
FELLA- og Hólakirkja | Fjölskylduguðsþjón-
usta kl. 11 í samstarfi við Breiðholtskirkju. Sr.
Pétur Ragnhildarsson leiðir stundina ásamt
Ástu Guðrúnu Guðmundsdóttur. Hoppukastali
og pylsur í boði.
FRÍKIRKJAN Reykjavík | Guðsþjónusta
sunnudag kl. 14. Séra Hjörtur Magni Jóhanns-
son safnaðarprestur leiðir stundina. Hljóm-
sveitin Mantra og Sönghópurinn við Tjörnina
leiða sönginn ásamt Gunnari Gunnarssyni.
Fjölskyldur fermingarbarna eru hvattar til að
mæta.
GRAFARVOGSKIRKJA | Guðsþjónusta kl.
11. Sr. Sigurður Grétar Helgason þjónar. Kór
Grafarvogskirkju leiðir söng. Organisti er Há-
kon Leifsson. Sunnudagaskóli er á sama tíma
á neðri hæð kirkjunnar. Umsjón hafa sr. Magn-
ús Erlingsson, Ásta Jóhanna Harðardóttir og
Valbjörn Snær Lilliendahl. Undirleikari er Stef-
án Birkisson.
GRENSÁSKIRKJA | Messa kl. 11. Efni:
Sjálfsmynd og siðbót. Prestur er María G.
Ágústsdóttir og með henni þjónar messuhópur
ásamt Ástu Haraldsdóttur kantor og Kirkjukór
Grensáskirkju. Þriðjudagur: Kyrrðarstund kl.
12. Fimmtudagur: Núvitundarstund kl. 18.15-
18.45, einnig á netinu.
GUÐRÍÐARKIRKJA í Grafarholti | Guðs-
þjónusta og barnastarf sunnudag kl. 11. Prest-
ur er Leifur Ragnar Jónsson sem prédikar og
þjónar fyrir altari.
Kirkjukór Guðríðarkirkju syngur undir stjórn
Hrannar Helgadóttur organista.
Hvetjum fermingarbörn og foreldra þeirra til að
koma í messuna.
Sunnudagaskóli í safnaðarheimili í umsjá
Tinnu Steinsdóttur. Kirkjuvörður er Guðný Ara-
dóttir. Kaffi og djús eftir messuna.
HAFNARFJARÐARKIRKJA | Ljóð og ljúfir
tónar í kvöldguðsþjónustu kl. 20. Sr. Jónína
Ólafsdóttir þjónar. Margrét Eir Hjartardóttir
syngur og tríó Andrésar Þórs leikur. Einar Már
Guðmundsson les ljóð úr nýkominni skáldsögu
sinni í kaffinu á eftir.
Sunnudagaskóli á sínum stað kl. 11.
Nánar: www.hafnarfjardarkirkja.is.
HALLGRÍMSKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. Eirík-
ur Jóhannsson prédikar og þjónar fyrir altari.
Messuþjónar aðstoða. Organisti er Björn Stein-
ar Sólbergsson. Karlakór Reykjavíkur syngur í
messunni undir stjórn Friðriks S. Kristinsson-
ar. Barnarstarf í kórkjallara í umsjón Rósu
Hrannar Árnadóttur. Ensk messa kl. 14. Séra
Bjarni Þór Bjarnason prédikar og þjónar fyrir alt-
ari. Heiðurstónleikar kl. 17. Haukur Guðlaugs-
son níræður: Organisti er Björn Steinar Sól-
bergsson. Sópran er Ásta Marý Stefánsdóttir.
Kammerkór Seltjarnarneskirkju syngur undir
stjórn Friðriks Vignis Stefánssonar. Kór Akra-
neskirkju og Söngfélagið syngja undir stjórn
Hilmars Arnar Agnarsonar.
HÁTEIGSKIRKJA | Fjölskylduguðsþjónusta
kl. 11. Sr. Jón Ásgeir Sigurvinsson flytur hug-
leiðingu og þjónar fyrir altari. Kór Ísaksskóla
syngur undir stjórn Bjargar Þórsdóttur. Björk
Sigurðardóttir leikur undir.
Messa kl. 17. Sr. Jón Ásgeir Sigurvinsson pré-
dikar og þjónar fyrir altari. Kór Menntaskólans
við Hamrahlíð og nýstofnaður kór útskrifaðra
menntaskólanema flytja íslensk kórverk undir
stjórn Hreiðars Inga Þorsteinssonar. Organisti
er Guðný Einarsdóttir.
HJALLAKIRKJA Kópavogi | Rokkmessa
sunnudag kl. 17 í umsjón sr. Gunnars Sigur-
jónssonar. Matti sax leiðir tónlistina ásamt
Rokkkór Íslands. Matur á vægu verði í safn-
arsal að lokinni stundinni.
Klukkan 11 sama dag verður halloween-fjöl-
skyldumessa í Digraneskirkju. Börn og full-
orðnir hvött til þess að mæta í búningi!
ÍSLENSKA Kristskirkjan | Almenn sam-
koma með lofgjörð, fyrirbænum og barnastarfi
kl. 13. Kristbjörg Kía Gísladóttir prédikar. Safn-
aðarprestur þjónar fyrir altari. Kaffi að
samverustund lokinni.
KEFLAVÍKURKIRKJA | Sunnudagaskóli og
guðsþjónusta kl. 11.
Séra Fritz Már Jörgensson þjónar fyrir altari og
kór Keflavíkurkirkju ásamt Arnóri Viðbergssyni
organista leiðir stundina í tónlist og sálma-
söng. Sunnudagaskólinn verður á saman tíma,
krakkarnir byrja í kirkjunni en flytja sig síðan í
Kirkjulund.
KIRKJUSELIÐ í Spöng | Messa kl. 13. Sr.
Magnús Erlingsson þjónar. Vox Populi leiðir
söng. Undirleikari er Gísli Magna Sigríðarson.
LANGHOLTSKIRKJA | Sunnudagaskóli og
messa kl. 11. Guðbjörg Jóhannesdóttir sókn-
arprestur þjónar og Sara Gríms tekur á móti
börnunum í sunnudagaskólanum. Graduale-
kórinn syngur við messuna undir stjórn Lilju
Daggar Gunnarsdóttur og undirleik Magnúsar
Ragnarssonar organista. Léttur hádegisverður
í safnaðarheimilinu að messu lokinni.
LÁGAFELLSKIRKJA | Hrekkjavöku- og náttfa-
tasunnudagaskóli kl. 13. Söngur, biblíusaga,
brúðuleikrit og appelsínugular gjafir. Velkomið
að mæta í búningi eða í náttfötum.
LINDAKIRKJA í Kópavogi | Sunnudagaskóli
kl. 11. Guðsþjónusta kl. 20, eru fermingarbörn
og fjölskyldur sérstaklega boðin velkomin. Reg-
ína Ósk og Svenni Þór sjá um tónlistina og sr.
Dís Gylfadóttir þjónar.
MOSFELLSKIRKJA | Siðbótardagurinn.
Sunnudag kl. 11. Guðsþjónusta. Prestur er
Ragnheiður Jónsdóttir, organisti er Þórður Sig-
urðarson. Við fáum heimsókn frá Kammerkór
Mosfellsbæjar sem syngur og leiðir safnaðar-
söng. Bryndís Böðvarsdóttir sinnir kirkjuvörslu.
NESKIRKJA | Guðsþjónusta og sunnudaga-
skóli kl. 11 á Allra heilagra messu. Kirkjugestir
tendra kerti til minningar um látna ástvini. Sig-
urbjörg Telma Sveinsdóttir syngur einsöng. Fé-
lagar úr kór Neskirkju syngja og leiða söng und-
ir stjórn Láru Bryndísar Eggertsdóttur
organista. Prestur er Steinunn Arnþrúður
Björnsdóttir. Sunnudagaskólinn er í safnaðar-
heimilinu. Söngur, sögur og gleði undir stjórn
Hrafnhildar Guðmundsdóttur og Ara Agnars-
sonar. Hressing eftir stundirnar.
SELJAKIRKJA | Sunnudagaskóli kl. 11 með
halloween-þema, engir hrekkir, allir vinir. Gam-
an að mæta í búningi eða einhverju appels-
ínugulu. Biblíusagan verður á sínum stað og
Mýsla kemur í heimsókn.
Guðsþjónusta kl. 13, prestur er Bryndís Malla
Elídóttir. Kór Seljakirkju syngur undir stjórn
Tómasar Guðna Eggertssonar, messukaffi í
lokin.
SELTJARNARNESKIRKJA | Fræðslumorg-
unn kl. 10. Að fyrirgefa og verða fyrirgefið. Sr.
Sigrún Óskarsdóttir fangaprestur talar.
Lettmessa og sunnudagaskóli kl. 11. Sr. Bjarni
Þór Bjarnason þjónar. Friðrik Vignir Stefánsson
er organisti. Félagar úr Kammerkórnum syngja.
Kaffiveitingar og samfélag eftir athöfn í safn-
aðarheimilinu. Kyrrðarstund miðvikudag kl.
12.
SEYÐISFJARÐARKIRKJA | Sunnudagaskóli
kl. 11. Það má mæta í búningum og bangsar
eru velkomnir. Biblíusaga og mikill söngur.
Kaka, djús og litamyndir í safnaðarheimili eftir
stundina.
Allra heilagra messa kl. 20. Kveikt á kertum í
minningu látinna ástvina. Kór Seyðisfjarðar-
kirkju leiðir almennan safnaðarsöng. Kórstjóri
og organisti er Rusa Petriashvili. Fermingar-
börn þjóna í stundinni. Prestur er Sigríður Rún
Tryggvadóttir og meðhjálpari er Jóhann Grétar
Einarsson. Aðalfundur Seyðisfjarðarsóknar 2.
nóvember kl. 18.
VALLANESKIRKJA | Sunnudaginn kl. 20:
Ljósastund í tengslum við Daga myrkurs á
Austurlandi. Allra heilagra messa. Við minn-
umst látinna ástvina og tendrum ljós í þakk-
argjörð, bæn og minningu. Prestur er Þorgeir
Arason. Organisti er Torvald Gjerde. Kór Valla-
ness og Þingmúla syngur. Kaffisopi í lokin.
VÍDALÍNSKIRKJA | Hátíðarguðsþjónusta í
minningu sr. Braga Friðrikssonar kl. 11. Hilmar
Ingólfsson og Hrannar Bragi Eyjólfsson flytja
ávörp. Sr. Jóna Hrönn Bolladóttir og fv. sam-
starfsprestar sr. Braga þjóna. Kór Vídalíns-
kirkju syngur, stjórnandi er Jóhann Baldvins-
son. Atli Guðlaugsson og Öyvind Lapin Larsen
leika á trompet og sr. Henning Emil Magnús-
son á bassa. Kaffisamsæti eftir athöfn.
Sunnudagaskóli í Urriðaholtsskóla kl. 10 og kl.
11 í Vídalínskirkju. Biblíusögur, brúðuleikhús
og söngur.
VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði | Sunnu-
dagaskóli kl. 10. Fjölbreytt og fjörug stund í
umsjá Benna og Helgu. Fjölskylduhátíð kl. 11.
Barnakór kirkjunnar syngur undir stjórn Sveins
Arnars organista og sóknarprestur þjónar.
Vöfflukaffi í safnaðarheimilinu eftir stundina.
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Hjallakirkja í Kópavogi.
Nú eru kosningar til
Alþingis afstaðnar og
sitt sýndist hverjum
varðandi framboðslista
flokkanna og stefnu-
mál. Margir hallast að
persónukjöri og kalla
eftir að frambjóðendur
til Alþingis þekki vel til
landsmálanna og hvar
að kreppir í reynd.
Næsta skrefið er að
koma saman samstæðri og öflugri
ríkisstjórn, land og þjóð þarf á því að
halda, því mörg og krefjandi verkefni
bíða víða úrlausnar.
Flestir landsmenn vilja halda í
óskert sjálfstæði og óskert afnot af
auðlindum okkar og að landið verði
ekki opnað upp á gátt. Kalla jafn-
framt eftir stöðugleika og afkomu-
jöfnuði, trausti og öryggi, toppheil-
brigðiskerfi og virkum forvörnum,
fjölbreyttri menntun og nýsköpun,
betra aðhaldi víða í kerfinu, meiri
framsýni og öflugri stjórnsýslu. Ef
þessir þættir eru ekki í góðum farvegi
kallar það á minna öryggi, hag-
sveiflur, losarahátt í rekstr-
arumhverfinu o.fl.
Hér eru víðtæk tækifæri á ýmsum
sviðum í okkar gjöfula landi ef rétt er
á málum haldið og áræði til þarfra
verka. Ríkisstjórnin hefur staðið sig
með ágætum á ýmsum sviðum við
krefjandi aðstæður, en mörg þörf
verkefni/mál bíða úrlausnar. Sem bet-
ur fer fóru viss óheillafrumvörp ekki í
gegn á síðasta þingi. Heilbrigðiskerfið
og fleiri faghópar hafa jafnframt stað-
ið sig vel í Covid-faraldrinum, en veir-
an er skæð sem fyrr og fullrar að-
gæslu því áfram þörf. Hundruð
milljarða hafa verið sett í rekstrarum-
hverfið o.fl. vegna Covid-faraldursins.
Spurning hvort huga hefði þurft bet-
ur að vissum þáttum í því sambandi,
t.d. varðandi rekstur sem stóð illa fyr-
ir Covid? Það kemur að því að greiða
þarf þessi útgjöld, væntanlega með
hærri sköttum hér og þar. Meðallaun
og meðalskuldir segja ekki nema
hálfa söguna um afkomu og greiðslu-
þunga hjá almennu launafólki.
Uppfærslu/vísitölu verðtryggðra
lána þarf að endurskoða og tryggja
lága vexti til frambúðar. Verðbólgan
er á uppleið, verð á húsnæði, vextir
o.fl., sem var alfarið hafnað sl. vetur
að væri í vændum, sagt bábilja ein.
Þessum þáttum þarf að gefa betri
gaum með skörpum aðgerðum.
Boðaðir eru grænir skattar hér og
þar vegna loftslagsmála, vonandi þá
til verka sem gagnast í reynd.
Innanlandseyðsla í faraldrinum í
stað eyðslu erlendis upp á 300-350
milljarða hefur víða haldið uppi blóm-
legum rekstri, en það lítið rætt í
reynd. Talið er að 150 milljarðar eða
meira skili sér ekki í opinberum gjöld-
um á ári hverju. Á þessu hlýtur að
þurfa að taka og lækka með því al-
menna skatta. Raðað er í störf hjá því
opinbera sem fyrr, en því miður án
betri skilvirkni víða í kerfinu og
óþarfa flækjustiga hér og þar.
Jarðir eru seldar erlendum aðilum
og fleirum sem fyrr án þarfra skilyrða
t.d. ef halda á uppi búsetu í blómleg-
um sveitum. Arðbær og nauðsynleg
fyrirtæki landsmanna, samanber
Landsvirkjun og fleiri einingar, á rík-
ið að halda í að stærstum hluta og
selja ekki einingar nema
þá á raunvirði.
Samið var um stytt-
ingu á vinnutíma sem
ekki var innistæða víða
fyrir til útgjalda- og
mannahalds, t.d. á anna-
sömum vinnustöðum.
Heilbrigðiskerfið er í
vanda af ýmsum ástæð-
um og biðlistar víða
langir. Þessa mikilvægu
starfsemi þarf að efla
með samvinnu ríkisins
og sjálfstæðra rekstrareininga, efl-
ingu hátækni o.fl.
Varðandi eldri borgara, þá liggur
fyrir þörf uppbygging á hjúkr-
unarheimilum og hentugum íbúðum á
hóflegu verði með vissri þjónustu.
Framkvæmdin myndi jafnframt losa
um íbúðir fyrir yngra fólk í upp-
byggðum hverfum. Bæta þarf for-
varnir og heimilisaðstoð hjá eldri
borgurum og lækka skatta við 67 ára
aldur af séreignasparnaði og lífeyri
og hækka lífeyri hjá sterku lífeyr-
issjóðunum og greiðslur frá TR án
skerðinga. Þetta á að sjálfsögðu einn-
ig við um öryrkja. Að þessu þurfa rík-
ið, lífeyrissjóðirnir og sveitarfélögin
að standa.
Eldri námslán þarf að afskrifa í
áföngum eftir 20 ára trygg greiðslu-
skil. Þessi lán fengu enga afskrift/
leiðréttingu eftir hrun, hækkuðu bara
upp úr öllu valdi.
Við eigum öflugan og verðmætan
sjávarútveg og þurfum að efla fisk-
vinnslu innanlands til að halda uppi
framleiðslugæðum og störfum, það
sama er með landbúnað, tækniiðnað
o.fl.
Það er miður ef stór hluti af arði
fyrirtækja hér í eigu erlendra aðila
fer úr landi. Slíkt fyrirkomulag virð-
ist vera að þróast hér í rekstri eins og
víða erlendis, jafnvel með erlendum
láglaunastörfum.
Ferðageirinn á eftir að eflast, en
vonandi ekki með þremur til fjórum
milljónum ferðamanna á ári eins og
sumir kalla eftir, sem land, vegir, inn-
viðir og fleira anna ekki. Leggja frek-
ar áherslu á toppferðaþjónustu eins
og víða er með raunhæfum rekstri og
minni slysatíðni.
Efla þarf eftirlit með nýbyggingum
og víðar vegna galla/leka og heilsu-
skaða, þættir sem kalla auk þess oft á
ómæld útgjöld hjá fólki.
Þörf Sundabraut er ekki á dagskrá
á kostnað borgarlínu, sem óljóst er
með nýtingu á. Reykjanesbrautina,
þjóðbraut við flug, ætti löngu að vera
búið að klára o.fl. álagsvegi.
Varðandi það að rafvæða hér öll
tæki til lands og sjávar, þá þarf sam-
hliða að huga að því að rafmagn getur
dottið út á vissum svæðum til lengri
eða skemmri tíma við náttúruvá.
Hér er margt gert með ágætum,
en það er víða hægt að gera betur og
án tíðra skakkafalla.
Meiri framsýni og
kraft í pólitíkina
Eftir Ómar G.
Jónsson
Ómar G. Jónsson
»Hér eru víðtæk
tækifæri á ýmsum
sviðum í okkar gjöfula
landi ef rétt er á málum
haldið og áræði til
þarfra verka.
Höfundur er fulltrúi/dst.
ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS
HVAR ER
NÆSTA
VERKSTÆÐI?