Morgunblaðið - 11.11.2021, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. NÓVEMBER 2021 5
Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt kynningarbréf með
rökstuðningi um færni viðkomandi til að gegna embættinu.
Nánari upplýsingar veita Guðmundur Árnason ráðuneytisstjóri
og Guðrún Ögmundsdóttir skrifstofustjóri. Sótt er um embættið
á starfatorg.is þar sem er að finna frekari upplýsingar.
Umsóknarfrestur er til og með 18. nóvember nk.
— HÆFNISKRÖFUR
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi, meistarapróf eða
sambærilegt nám skilyrði;
• Yfirsýn og þekking á þáttum sem hafa áhrif þróun
vinnumarkaðar og samspili hans og almennrar efnahags-
og samfélagsþróunar;
• Þekking og reynsla af starfsemi ríkisins eða hliðstæðri starfsemi
er kostur;
• Árangursrík reynsla af stefnumótun, stjórnun og umbótavinnu
stórra skiplagsheilda er skilyrði;
• Greiningarhæfni og stefnumiðuð nálgun á viðfangsefnin;
• Staðfesta og sannfærandi samskiptahæfni ásamt
forystuhæfileikum, getu og vilja til að hvetja aðra til árangurs.
• Færni til tjáningar í ræðu og riti á íslensku og ensku er nauðsynleg.
Skrifstofustjóri KMR þarf að hafa skýra framtíðarsýn og góða þekkingu
á þeim þáttum sem hafa áhrif á þróun vinnumarkaðsins og samspili
hans og almennrar efnahagsþróunar. Hann hefur frumkvæði, metnað
og seiglu til að sýna árangur og hrinda verkefnum í framkvæmd.
KMR fer með vinnuveitendahlutverk fyrir ríkið í heild og er leiðandi
við mótun mannauðs- og kjarastefnu fyrir ríkið og stofnanir þess og
fylgir framkvæmd hennar eftir. Rúmlega 18 þúsund manns starfa hjá
ríkinu í rúmlega 160 stofnunum.
Hlutverk KMR er að stuðla að framþróun í starfsumhverfi hjá ríkinu
og að styrkja forsendur þess að veitt sé skilvirk og vönduð opinber
þjónusta. Lögð er áhersla á að greina tækifæri til að efla mannauð og
stjórnun og innleiða umbætur í allri starfsemi ríkisins.
Eitt helsta verkefnið framundan er að mæta framtíðaráskorunum
og móta sýn um ríkið sem vinnuveitanda. Markmiðið er að ríkið sé
eftirsóknarverður og framsækinn vinnustað.
Fjármála- og efnahagsráðuneytið leitar að öflugum
stjórnanda í embætti skrifstofustjóra kjara-
og mannauðssýslu ríkisins (KMR).
Viltu móta
vinnuveitandahlutverk
ríkisins?