Morgunblaðið - 16.12.2021, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 16.12.2021, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. DESEMBER 2021 3 2019-2022 Meðal verkefna er að þróa tækni og aðferðir sem miða að því að hægt verði að fanga koltvísýring frá rafgreiningu súráls, að fylgja eftir kolefnisáætlun ISAL og taka þátt í ýmsum skyldum verkefnum innan fyrirtækisins. Viðkomandi mun starfa með fjöl- breyttum hópi innlendra og erlendra sérfræðinga í Straumsvík og innan Rio Tinto að því að minnka losun og auka bindingu kolefnis. ISAL stefnir á að verða fyrsta álverið í heiminum til að fanga og binda varanlegan hluta af þeirri losun kol- efnis sem verður við rafgreiningu súráls. Frá árinu 1990 hefur heildar- losun ISAL dregist saman um 50% á sama tíma og framleiðslan hefur tvöfaldast. Þrátt fyrir að vera með eina lægstu losun sem þekkist í áliðnaði í heim- inum ætlum við að gera enn betur. ISAL stefnir að því að verða kolefnis- hlutlaust fyrir árið 2040 í samræmi við markmið Íslands í loftslagsmálum. Rio Tinto og Carbfix hafa nýlega undirritað viljayfirlýsingu um sam- starf á þessu sviði og meðal verkefna viðkomandi er að fylgja eftir mark- miðum samstarfsins. Einstakt tækifæri til að hafa raunveruleg áhrif í loftslagsmálum Rio Tinto á Íslandi óskar eftir að ráða metnaðarfullan og fram- sækinn einstakling til að vinna að kolefnisjöfnun fyrirtækisins en markmiðið er kolefnishlutleysi fyrir árið 2040. Menntunar- og hæfniskröfur: • Háskólamenntun sem nýtist í starfi • Reynsla af verkefnastjórnun, rannsóknum, tækniþróun og umbótastarfi er kostur • Lausnamiðaður, sjálfstæður og drífandi einstaklingur • Faglegur metnaður, frumkvæði og skipulagshæfni • Góð tungumálaþekking og hæfni til að tjá sig í ræðu og riti Umsóknarfrestur er til og með 4. janúar 2022. Umsókn óskast fyllt út á riotinto.is, henni þarf að fylgja ferilskrá og kynningarbréf.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.