Morgunblaðið - 11.02.2022, Page 20
Svo kom upp stórt verkefni hjá mér samhliða borgarstjórn-
arvinnunni og brúðkaupsundirbúningnum þannig að við höfð-
um mun naumari tíma en lagt var upp með og þá þurfti maður
bara að aðlaga sig og láta af svona ónauðsynlegri kröfunum
eins og að vera í mínu besta formi og fleira slíkt sem hefur
meira að gera með hégómann en eitthvað bitastætt. Heilt yfir
var þessi reynsla bara enn meiri sönnun þess að ég væri með
réttan mann mér við hlið. Því þetta reynir klárlega á sam-
skiptin í sambandinu, en þrátt fyrir nauman tíma, yfirvofandi
takmarkanir og mikið stress unnum við mjög vel saman að
þessu og allt gekk snurðulaust fyrir sig. Ég er enn í dag að
furða mig á því hversu vel þetta heppnaðist, satt best að
segja.“
Hvernig gengur að vera framakona, mamma og eiginkona?
„Ég myndi segja að fyrsta reglan í þessu væri að taka ófull-
komnleikann í sátt, bæði í sjálfum sér og umhverfi sínu. Ég
eignaðist hann Villa minn frekar ung eða tvítug og var mjög
æst í að sýna öllum að þetta myndi sko ekkert hægja á mér. Ég
fór í algjöran yfirsnúning til að sanna þetta, hóf fullt nám
ásamt því að vinna um helgar og sinna heimilisvaktinni. Fyrir
vikið var ég ekki lengi að keyra mig í kaf, sem endaði með því
að ég þurfti að hætta í Háskóla Íslands og minnka mikið við
mig vinnu á meðan ég náði mér á strik aftur. Þetta er ein sú
mikilvægasta og besta lífsreynsla sem ég hef lent í, því þetta
breytti viðhorfinu mínu alveg, en ég held því fram að því fyrr
sem maður lendir í því að missa allt niður um sig á lífsleiðinni
því betra. Þetta eru svo dýrmætar lexíur út í lífið.
Ég sneri alveg við blaðinu og fór að æfa mig stíft í því að
sýna sjálfri mér mildi og skilning, sem og að vera meðvituð um
og passa upp á jarðtenginguna. Það er svo oft þannig að við
berum okkur saman við hugmyndir annarra um árangur og
farsæld í þeirra lífi þegar sannleikurinn er sá að við erum öll
mjög mismunandi og það starf, áhugamál eða fjölskyldu-
mynstur sem veitir einhverjum einum lífsfyllingu er ekki endi-
lega uppbyggilegt eða ánægjulegt fyrir mig og öfugt. Þess
vegna er best að spegla sig sem minnst í öðrum heldur reyna
að venja sig á að hugsa: Hvað finnst þér gefandi og skemmti-
legt að taka þér fyrir hendur? Hvað telur þú vera þroskandi
reynslu fyrir þitt lífsferðalag? Síðast en ekki síst: hvaða hvers-
dagslegi hlutur eða upplifun gleður þig? Þegar maður er kom-
inn með þetta nokkurn vegin á hreint verður verkefnalistinn
aðeins einfaldari finnst mér. Af því að þá er maður að setja
áherslu á sínar eigin þarfir, ekki hugmyndir okkar um það sem
okkur finnst við eiga að vilja og þurfa. Það er fullkomlega of-
metið að eltast við að ná einhverjum óljósum virðingarstalli í
samfélaginu og fullkomlega vanmetið að rækta tengslin við
umhverfi sitt, sína nánustu og sjálfan sig. Það síðarnefnda er
hornsteinn hamingjunnar ólíkt því fyrrnefnda.“
Hversdagslegu hlutirnir sem gleðja mest
Ragnhildur er fús til þess að læra eitthvað nýtt reglulega og
rannsaka erfiðar spurningar.
„Sérstaklega ef það er góður málstaður að baki. Mér finnst
mjög spennandi að fá eitthvert krefjandi vandamál í hendurnar
og finna sniðugar lausnir. Ég hef gaman af því að tala við fólk,
kynnast því og þeirra heimsýn, en heilt yfir þykir mér bara
mjög gefandi að vera fólki innan handar og styðja við það á
sinni lífsleið. Hversdagslegir hlutir sem veita mér ánægju eru
til dæmis göngutúrar með hundinn, eftirréttir og að elda og
borða með fjölskyldunni. Þá er bara galdurinn að reyna að
finna einhverja vinnu eða verkefni þar sem ég fæ að færa þetta
í nyt og svo forgangsraða tíma fyrir hversdagslegu hlutina sem
gleðja.“
Það skiptir hana miklu máli að láta ekki verkefnin stjórna líf-
inu.
„Áður fyrr var ég alltaf að skammast í sjálfri mér þegar
heimilið var í einhverri óreiðu og bauð ekki fólki heim nema allt
væri frágengið og hreint. Núna fær draslið mitt að safnast upp í
friði fyrir mér ef ég hef ekki tíma eða orku til að gera eitthvað í
því. Það er líka gott að muna að það eru gæðin en ekki magnið
sem skiptir máli. Þetta á líka við samveruna með börnunum.
Þegar það kemur tímabil þar sem maður er endalaust á hlaup-
um, þá bara passa gæði samverustundanna frekar.
Mamma kenndi mér líka helling af góðum ráðum en rauði
þráðurinn í þeim er bara úthýsing. Ekki reyna að baka allt
sjálf; bara kaupa köku í Krónunni fyrir skólaskemmtunina.
Sleppa einhverjum stórum kostnaðarlið og kaupa frekar létt-
þrif í eitt skipti í staðinn. Stundum er bara best að taka allt al-
menna óhreina tauið, setja það í svartan ruslapoka og borga
nokkra þúsundkalla fyrir þvott og fá þetta allt straujað og sam-
anbrotið til baka. Ég hef lengst af verið í námi og því
námsmannablönk og verið treg til að nýta mér þetta en núna
þegar maður er kominn í vinnu geri ég þetta óspart. Annað,
sem ég lærði af pabba, er um leið og maður kemur heim úr
vinnunni að skipta úr betri fötunum yfir í heimafötin. Það fer
betur með flíkurnar auk þess sem þær endast lengur hreinar.“
Virði manneskjunnar kemur ekki úr vinnunni
Að mati Ragnhildar Öldu erum við aldrei of oft áminnt um
hvaðan virði okkar sem manneskjur kemur.
„Virði okkar verður ekki verðlagt út frá stöðu, stétt eða
menntun og virði okkar er ekki bundið í þeim áföngum sem við
ljúkum, plönum eða verkefnum sem við tökum að okkur eða þá
hlutunum sem við umkringjum okkur með. Virði okkar stendur
óháð þessu. Það er þjónusta okkar við aðra, sama hversu lítil-
fjörleg hún kann að vera, skilningurinn, góðmennskan og hlýj-
an sem reynist oft sú þúfa er veltir þyngsta hlassinu. Ég held að
það sé mikilvægt að muna það.
Föðuramma mín var táknmynd þessa. Hún var heimavinn-
andi húsmóðir og saumakona sem var hvorki sprengmenntuð
né með margra blaðsíðna ferilskrá en naut ótrúlega mikillar
virðingar í bænum sínum. Flestir þekktu ömmu og áttu sínar
sögur af henni. Sögurnar voru ýmist af því þegar fólk var að
láta sauma eða laga einhverjar flíkur hjá henni og þótti svo
vænt um tímann sinn með ömmu, en hún hafði einstakt lag á því
að draga fram það besta í manni og hjálpa manni að sjá fram úr
vandamálunum þegar maður hafði gert einhverja skyssu. Aðra
hafði amma haft í fæði heilu sumrin eða svo gott sem tekið í
fóstur í mislangan tíma, hún hafði greinilega líka hlaupið marg-
oft til að létta undir með fólkinu í bænum þegar eitthvað kom
upp á, einnig var hún þekkt fyrir að baka fyrir fjöldann allan af
veislum hjá fólki. Amma hafði markverð áhrif á líf fjölda fólks
með þessari umhyggjusemi sinni, sem henni fannst svo hvers-
dagsleg, en hún var líka handviss um að þetta væri lykillinn að
langlífi sínu. Allt þetta fólk og umstang. – Það og að kunna að
hlæja að sjálfum sér og skyssunum sínum og alls ekki taka sig
of alvarlega, þetta fannst henni mjög mikilvægt. Ég reyni að
hafa þetta alltaf bak við eyrað en Alda amma er klárlega stór
fyrirmynd í mínu lífi.“
Þær voru mun háðari því að eiginmaðurinn væri ekki fífl
Þegar málefni femínisma ber á góma og stöðu konunnar, þar
sem við margar þekkjum það að vera aldar upp í miðri bylting-
unni, hæfar til vinnu en ekki eins góðar í hjónabandi, segist hún
tengja við það.
„Ég tengi vel við þetta en mamma er gallharður femínisti og
ól okkur systkinin þannig upp. Hún var sjálf alin upp af ein-
stæðri móður sem var algjört hörkutól og var í tveimur vinnum
til að sjá fyrir heimilinu. Konur af þeirra kynslóðum voru auð-
vitað mun háðari því að eiginmaðurinn væri ekki fífl því annars
var mikil hætta á að þær sætu uppi allslausar með skuldir eigin-
mannanna, börnin mestmegnis á sinni könnu, minni daggæslu
og tekjumöguleika. Ég held að erfiðleikar þessara kynslóða
kvenna lifi enn í þjóðarsálinni því samfélagið kennir konum
Ragnhildur og Einar giftu sig í fyrrasumar, viku eftir að allar
sóttvarnatakmarkanir voru felldar úr gildi, á einum mesta
sólardegi sumarsins.
Kynntist eiginmanninum
á versta kvöldi ársins
Ástalíf Ragnhildar Öldu Maríu Vilhjálmsdóttur gekk svo brösulega áður en hún kynntist Einari Friðrikssyni
að hún ákvað að hefja leit að sálfræðingi og setja á blað allt sem hún vildi og vildi ekki hjá maka. Að sjálfsögðu
fann hún þá Einar, enda er Ragnhildur Alda hugrökk, fylgin sér og mjög skemmtileg.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
Þ
rátt fyrir ungan aldur er Ragnhildur Alda
María Vilhjálmsdóttir, fyrsti varaborgar-
fulltrúi Sjálfstæðisflokksins, hafsjór af upp-
lýsingum sem hægt er að hafa að leiðarljósi í
lífinu.
Hún er með B.Sc.-gráðu í sálfræði úr Há-
skóla Íslands og M.Sc. í þjónustustjórnun við
sama skóla sem hún nýtir óspart í vinnunni í
dag.
„Þetta var býsna strembinn vetur að því leyti að það var
margt að gerast í borgarstjórn á sama tíma og kórónuveiran er
búin að vera víða. Þessi yfirvofandi hætta á að lenda í sóttkví
eða einangrun hefur gert manni erfiðara fyrir en ella við að
sinna grasrótarstarfinu. Við sluppum að vísu alveg ótrúlega vel
síðastliðin tvö ár þar til núna í janúar þegar allt heimilið lagðist
undir ómíkron og varð að heljarinnar flensubæli í tæpan mán-
uð. Þetta var eins og boðhlaup hérna; fyrst fékk Einar vírusinn
og fimm dögum síðar tók ég við keflinu og fimm dögum síðar
slóst Vilhjálmur sonur minn í hóp smitaðra. Við fórum því varla
út í tæpan mánuð!“
Þarna varð mér ljóst að þetta væri mjög áreiðanlegur maður
Ragnhildur Alda og Einar kynntust á gamlárskvöld fyrir
nokkrum árum.
„Eins og flestir einhleypingar þekkja vel, þá er vart til verra
kvöld til að kynnast einhverjum. Hann mætti í gamlárspartí til
vinar míns í fylgd með öðrum sameiginlegum vinum okkar. Ég
kynnti mig fyrir honum og svo töluðum við ekkert meira saman
fyrr en við vorum bæði farin úr partíinu, en þá rekst ég aftur á
hann á Ljómanum, sem var einu sinni árlegt áramótaball á Sel-
tjarnarnesi. Þar var hann einhvern veginn alltaf mér í augsýn.
Að lokum gaf ég mig á tal við hann, sem endar svo þannig að við
dönsum og spjöllum allt kvöldið eins og aldagamlir vinir. Hann
sagði mér seinna meir að þetta hefði verið hans leið til að reyna
við mig, sem sagt að passa að vera alltaf nálægt mér, sem svín-
virkar greinilega því ég hélt að ég hefði verið forsprakkinn að
þessu öllu saman. Svo var óskað eftir mér í eftirpartí þannig að
ég fór á barinn og keypti rútu af bjór til að taka með og fyrir-
skipaði nýja vini mínum „að passa bjórinn sama hvað!“ á meðan
ég fyndi leigubíl. Hann passaði bjórinn það vel að enginn í eft-
irpartíinu komst í hann nema við tvö og svo tók hann jafnvel
það sem var eftir af bjórrútunni heim úr partíinu. Þarna varð
mér ljóst að þetta væri mjög áreiðanlegur maður.“
Ástalífið ekki upp á marga fiska áður
Annars hafði ástalífið gengið mjög brösulega hjá Ragnhildi
Öldu áður en hún kynntist Einari að hennar sögn.
„Svo brösulega jafnvel að rétt fyrir þessi örlagaríku áramót
fór ég í mikla naflaskoðun og settist niður til að gera tvennt: Í
fyrsta lagi hefja leit að sálfræðingi til að ræða um orsakir og
lausnir við þessu afleita gengi í makaleit. Í öðru lagi gera mjög
hreinskilinn og raunsæjan lista um hvaða eiginleikar væru
nauðsynlegir í fari maka miðað við reynslu úr fyrri samböndum
sem og sambúðum með vinum og hvaða eiginleikar væru óvið-
unandi. Til að nefna eitthvað þótti mér til dæmis nauðsynlegt í
fari maka að vera umhyggjusamur, fyndinn, með góð gildi,
hundavinur og hreinlátur en taldi líka upp sértækari atriði eins
og að finnast ég vera fyndin, vera ævintýragjarn og hafa gaman
af sögulegum staðreyndum í ferðalögum, bíómyndum og þátt-
um og hámáhorfi almennt. Eiginleikar sem slógu menn af borð-
inu voru að vera sem dæmi öfundsjúkur, stjórnsamur, þrjósk-
ur, hrokafullur, snobbaður eða lélegur liðsmaður. Slíkum
mönnum myndi bara líða mjög illa með mér. Mikilvægast var
náttúrlega að makinn myndi bæta einhverju jákvæðu við dýna-
míska dúóið sem ég og Villi einkasonurinn vorum, annars væri
þetta bara tilgangslaust.“
Einar uppfyllti öll framangreind skilyrði og hefur verið frá-
bær bónusfaðir fyrir son hennar.
Lærði á harkalegan hátt að fullkomnun virkar ekki
Parið gifti sig síðasta sumar, viku eftir að allar sóttvarna-
takmarkanir voru felldar úr gildi á einum mesta sólardegi sum-
arsins.
Hvernig var að plana brúðkaup? „Það er þokkaleg áskorun
almennt, hvað þá þegar það er engin leið að vita hvort allt fari í
vaskinn vegna kórónuveirutakmarkana eða ekki.
20 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. FEBRÚAR 2022