Rit Mógilsár - 01.01.2022, Side 4

Rit Mógilsár - 01.01.2022, Side 4
6 Rit Mógilsár Rit Mógilsár 7 seytlar út í vatnið, en í afar litlum mæli (Karen E Burr o.fl., 2001). Í þessu riti er vísað til þessa fyrirbæris sem náttúrulegs jónaleka. Ef frumuhimnur eru hins vegar skemmdar, eykst leiðnin í vatninu verulega því efnainnihald frumnanna lekur út. Á þessu byggist jónalekaprófið (SEL, Shoot Electrolyte Leakage) sem notað er til að mæla frostþol. Það getur með öðrum orðum mælt jónaleka frumna fyrir og eftir frystingu plöntuvefs og er í raun mælikvarði á skaðann sem hefur orðið á frumhimnum við frystinguna (H.M. Mckay, 1992). Aðferðinni er lýst hér að neðan. 2. mynd. Ískristallamyndun milli frumuveggja rýfur frumur. Mynd aðlöguð frá Wayne L. Handlos (2022). Framleiðendur skógarplantna senda sýni til frostþols- prófana seint á haustin og fram í desember, þegar verulega er farið að kólna í veðri. Sökum þess að plöntur missa frostþol við hækkandi hita (1. mynd) verður að passa að sýni fari strax í kæli og séu ekki lengi á leiðinni á þann stað þar sem unnið er úr þeim (G. Richard Strimbeck o.fl., 2007). Velja ætti plöntur í sýnin sem eru lýsandi fyrir plöntuhollið í heild, ekki lægstu plönturnar eða þær hæstu, heldur plöntur af meðalhæð. Sýnin eru sett í plastploka og merkt með tegundaheiti, kvæmi og sáningartíma. Komi sýni inn á fimmtudegi eða föstudegi má búast við að niðurstaða liggi fyrir seinnipartinn á þriðjudegi. Undirbúningur sýna Í hvert frostþolspróf þarf 30 plöntur sem skipt er í tvo hluta. Helmingur plantnanna er frystur, hinn helm- ing urinn þjónar hlutverki viðmiðs og er ekki frystur. Efstu 4 cm topp sprotans eru klipptir af. Notuð er flísa- töng til þess halda utan um þrjá toppsprota og skola þá, fyrst með því að dýfa þeim þrisvar í krana vatn, en síðan þrisvar í afjónað vatn. Eftir skolun eru 3 sprotar settir í plastflösku með skrúftappa sem þolir bæði suðu og frost, alls 5 flöskur fyrir hvorn hluta, fryst og ófryst. Verklýsing jónalekaprófs Framsetning niðurstaðna Ferill frystingar Plöntusýnin eru fryst niður í -25°C. Frystikistan er látin vera í 4°C þegar sýnin eru sett í. Hitinn lækkar á þremur klst. niður í 0°C. Síðan lækkar hitinn á fimm klst. niður í -3. Eftir það lækkar hitastigið um tvær gráður á klst. niður í -25°C. Þegar því hitastigi er náð er kistan látin halda því í tvær klst. til þess að tryggja að plöntu- sýnin frjósi örugglega niður í markmiðshitastig. Þá er hitastigið látið síga upp um tvær gráður á klst. þangað til 4°C er náð aftur. Plöntusýni til viðmiðunar eru látin bíða við fjórar gráður í þessar 36 klst. sem frystiferlið tekur. Mæling á leiðni Eftir frystingu er 40 ml af afjónuðu vatni bætt í allar flöskur, bæði frystra sýna og ófrystra, og þeim komið fyrir í hristara. Hristarinn er látinn ganga í 20-24 klst. Eftir það er leiðni í sýnunum mæld og skráð (fyrir suðu). Þegar leiðni er mæld á að hrista sýnið í flösk- unni og hella vökvanum af í hreint tilraunaglas. Þá er nemi á leiðnimælinum skolaður í afjónuðu vatni og það látið drjúpa af honum. Síðustu droparnir eru teknir af nemanum með pappírsþurrku. Honum er svo dýft í sýnið og hann hreyfður til, til þess að útiloka að loftbólur inni í nemanum hafi áhrif á mælinguna. Bíða skal þangað til gildið á mælinum er stöðugt. Gildið á að lesa af í µS (míkrósímens). Vökvanum er svo hellt aftur í plastflöskuna og henni lokað. Neminn er skolaður á ný áður en honum er dýft í nýtt sýni sem hellt er í hreint glas, skolað upp úr afjónuðu vatni. Því næst eru sýnin soðin í átóklafa til þess að sprengja allar frumur í plöntusýnunum og fá út heildar leiðni (eftir suðu). Áður en sýnum er komið fyrir í átó klafanum er skrúftappi losaður um hálfan hring svo glösin afmyndist ekki í suðunni. Sýnin eru soðin við 120°C í 15 mín. Þegar sýnin hafa kólnað niður í stofuhita má mæla leiðni aftur með sama hætti og lýst er áður. Útreikningar niðurstaðna Við útreikninga eru notaðar þrjár jöfnur, sjá jöfnur 1-3 aðlagaðar frá Lindström og fl. (2014). Hlutfallslegur jónaleki frystra plantna er reiknaður með því að deila leiðni eftir suðu upp í leiðni sem fékkst úr sýninu fyrir suðu (jafna 1). Þar sem komið hefur í ljós mögulegur náttúrulegur jónaleki frá plöntum, verður að einangra þá tölu frá heildarleiðnitölu eftir frystingu (jafna 2). Síðan er náttúrulegi jónalekinn dreginn frá heildarjónaleka eftir frystinguna (jafna 3). Ef munurinn á þessum gildum liggur á bilinu 0%- 4% teljast plönturnar vera komnar með frostþol og hæfar til langrar vetrargeymslu. En því hærri sem jónalekinn er eftir frystinguna, því meira hefur sýnið skemmst og frostþolið er takmarkaðra. (1) SEL-25 (2) SEL viðmið (3) SEL mismunur SEL-25 - SEL viðmið Viðmið Fryst í -25°C RC RC Sýni Leiðnitala Viðmið Sýni Leiðnitala -25 Skade Tegund: nr Fyrir suðu Eftir suðu (%) nr Fyrir suðu Eftir suðu (%) index Sitkagreni 1 15 554 2,707581 6 16 416 3,846154 1,138573 Tumastaðir 2 12 382 3,141361 7 17 445 3,820225 0,678863 3 18 608 2,960526 8 26 493 5,273834 2,313307 4 14 422 3,317536 9 22 551 3,99274 0,675205 5 15 461 3,253796 10 25 450 5,555556 2,301759 Meðaltal 14,8 485,4 3,07616 21,2 471 4,497702 1,421542 SEL viðmið SEL -25 SEL - mism. Meðaltal hlutfallslegs jónaleka hjá frystum plöntum Mismunur meðaltala er minni en 4% og því telst frostþoli náð Meðaltal hlutfallslegs jónaleka hjá ófrystu viðmiði 3. mynd. Dæmi um framsetningu niðurstaðna úr frostþolsprófunum Niðurstöðum er skilað í Excel-skjali til framleiðanda (3. mynd) þar sem kemur fram heiti og kvæmi tegundar innar sem um ræðir, auk tölulegra gilda fyrir hverja endurtekningu sýna. Ef mikill breytileiki reynist koma fram milli endurtekninga er ástæða til þess að vera á varðbergi með niðurstöðurnar. Ef SEL-mism. er meira en 4% hefur sýnið ekki náð frostþoli. Fái framleiðandi þá niðurstöðu úr prófinu verður yfirleitt að bíða með pökkun í 2-4 vikur og endurtaka frostþolspróf þangað til þau gefa grænt ljós á frystingu.

x

Rit Mógilsár

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rit Mógilsár
https://timarit.is/publication/1563

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.