Nesfréttir - 01.08.2021, Page 4
4 Nesfrétt ir
Fjölþætt heilsuefling 65+ á
Seltjarnarnarnesi hefur gengið vel
Verkefnið Fjölþætt heilsuefling 65+leið að
farsælum efri árum hefur staðið yfir í allt sumar
hér á Seltjarnarnesi og gengið virkilega vel en um
er að ræða samstarfsverkefni Seljarnarnesbæjar
og Janusar heilsueflingar.
Innleiðingin sem hófst í byrjun sumars gekk mjög
vel, bæði mælingar á hópnum sem framkvæmdar
voru í íþróttahúsinu sem og þjálfunin. Skráðir
þátttakendur í sumar voru 53 talsins, 38 konur og
15 karlar. Hver þátttakandi fékk sína niðurstöðu
eftir mælingarnar og umfjöllun um hvað þær þýða
auk þess sem blóðmælingar eru framkvæmdar í
samvinnu við Hannes Hrafnkelsson, heimilislækni
á Seltjarnarnesi. Skipulagðar æfingar með þjálfara
hafa verið þrisvar sinnum í viku auk þess sem hver
og einn fékk sitt æfingaplan til sex mánaða að vinna
með sjálfur þess utan.
Þjálfunin sjálf hefur annars vegar verið
sameiginleg utanhúss á Valhúsahæðinni á
mánudögum og hins vegar styrktarþjálfunin í
World Class á þriðjudögum og fimmtudögum. Á
öðrum dögum hafa þátttakendur séð um að fylgja
settri áætlun um sjálfstæða þjálfun, annað hvort
með því að nýta sér Heilsu-App Janusar eða fylgja
fyrrnefndu heimablaði.
Það er ánægjulegt hversu vel heilsueflingin
hefur gengið sem án efa skilar sér í aukinni orku
og bættri líðan þátttakenda.
Upphitun og liðleikaæfingar á Valhúsarhæðinni.
Styrktarþjálfun í World Class tvisvar sinnum
í viku.
Fjölbreyttar mælingar framkvæmdar í
íþróttahúsinu.
Skráning í mataráskrift er hafin!
Skráning fer fram á www.skolamatur.is
Netfang: skolamatur@skolamatur.is I Sími 420-2500
@skolamatur skolamatur_ehf