Fréttabréf Stómasamtakanna - 01.11.1981, Blaðsíða 1
SAMTÖKIN
FRETT flBREF
1. tbl. 1. árqangur Nóv. 1981
INNGANGUR
16. okt. 1980 voru Stómasamtökin formlega stofnuð.
Árið 1977 hafði hópur áhugafólks bundist samtökum að
vinna að málefnum stómafólks og hefur þetta áhuga-
fólk unnið mjög þýðingarmikið brautryðjendastarf sem
varð kveikjan að stofnun félagsins.
Með þessu fréttabréfi hefst nýr þáttur i starfsem-
inni. Tilgangurinn er m.a. að flytja fróðleik og
fréttir af okkar málum og að upplýsingar berist til
allra sem óska að fylgjast með, hvar sem þeir eru bú-
settir á landinu.
Hér á landi munu hafa verið framkvæmdar yfir 20
stómaaðgerðir á árinu 1980. Ekki höfum við tölu yfir
fjölda stómaþega hér á landi en þeir munu vera um
150-200 talsins.
Á hirfum Norðurlöndunum munu vera um 10-15 þúsund
stómaþegar i hverju landi og á Bretlandi um 127 þús.
Skiptingin milli tegunda aðgerða mun vera ca. 65-70%
colostomy, 15-20% iliostomy og 10% urostomy og annað.
Þvi miður virðist erfitt að ná til þeirra sem geng-
.ist hafa undir stómaaðgerðir hér á landi. Er nú svo
komið að við höfum nær enga vitneskju um nöfn þeirra
sem genqist hafa undir þessar aðgerðir fra miðju ári
1979.
Við vitum þýðingu þess að fá miðlað af reynslu
þeirra sem gengið hafa i gegnum slika aðgeró.
Við heitum á alla sem áhuga hafa á þessum málum að
stuöla að þvi að sem flestir gerist félagar i Stóma-
samtökunum.