Austurglugginn


Austurglugginn - 05.03.2009, Side 11

Austurglugginn - 05.03.2009, Side 11
 Fimmtudagur 5 . mars AUSTUR · GLUGGINN 11 Á öl lum tímum er bæði nauðsyn- legt og skyn- samlegt fyrir alla að staldra við og setja sér markmið fyrir komandi framtíð. Þetta á alls ekki einungis við um áramót, þegar fólk gjarnan stígur á stokk og setur sér háleit markmið fyrir árið, um persónulegan árangur í m.a. að taka sig nú á í ræktinni, aukna útivist og að ná betri árangri í vinnu eða íþróttum. Vissulega er öll mark- miðasetning af hinu góða en hvernig er staðan á áramótaheitunum núna þegar komið er fram yfir miðjan febrúar? Eða vorum við kannski ekki alveg búin að ákveða eða útfæra þau vel, hvað þá að setja þau á blað með mælanlegum viðmiðunum? Framtíðarsýn á Austurlandi: Nú eru að ganga yfir land vort og þjóð miklir umbrotatímar í efnahagslegu sem og í atvinnulegu tilliti, sem vissulega eiga sér skýrskotun í alþjóðlega heims- kreppu sem hefur þó ólíkar birting- armyndir á milli landa og heimsálfa. Það væri nú að æra óstöðugan að ætla að fara að skrifa meira um “kreppuna” svokölluðu, enda dynja þau ósköp yfir okkur í nær öllum fréttatímum og í fréttaskýringarþáttum þar að auki og sýnist nú sitt hverjum um það hverju er að kenna og hverjar séu orsakir eða afleiðingar einstakra vandamála. En hvernig sem staðan er í einstökum málum eða málaflokkum, nú um stundir, þá mun það í öllu tilliti hjálpa okkur öllum út úr vandanum að hafa sem skýrasta framtíðarsýn fyrir okkur sjálf og um leið fyrir okkar nánasta umhverfi þ.e. einstök sveitarfélög og líka fyrir ALLT Austurland í heild sinni, sem auðvitað á alltaf að líta á sem eitt samfélag. Að baki eru miklir uppgangstímar á Austurlandi með einum mestu fram- kvæmdum Íslandssögunnar a.m.k. til þessa, með virkjana- og stóriðjufram- kvæmdum og öllum þeim afleiddu störfum og þjónustu sem henni fylgdi bæði á meðan á framkvæmdunum stóð og einnig varanlegri uppbygg- ingu, sem enn er ekki að öllu leyti komin til framkvæmda ennþá. Það hafa allir séð og fundið, sem það hafa viljað á annað borð, hvað þetta hefur þýtt fyrir mest allan landsfjórð- unginn hér á Austurlandi, nema þá ef vera skildi afar illa upplýstur núver- andi umhverfisráðherra, sem von- andi er bara tímabundið í sínu vinstri- græna sæti. Þetta ætti reyndar ekki að koma svo mjög á óvart, þar sem oddviti þessar- ar sömu hreyfingar í NA-kjördæmi, staðfesti á framboðsfundi í Egilsbúð fyrir síðustu alþingiskosningar að hans vinstri-græna hreyfing væri á móti allri slíkri atvinnuuppbyggingu, sem skapaði svo mörg góð störf, eins og reyndar svo fjölmörgu öðru. Það þarf vissulega að hugsa um allt hitt líka, þ.e. að huga að nýsköpun í atvinnulífi, og styðja við sprotafyr- irtæki stór og smá, hjálpa góðum hug- myndum að vaxa og alls ekki hafa öll eggin í sömu körfunni. Fjölbreyttar undirstöður og margskonar atvinnu- starfsemi. Þess vegna höfum við hér á Austurlandi, sem og annarsstaðar á landinu, t.d. starfsemi: Þróunarfélag Austurlands, Þekkingasetur, Námsver, Búland, Vaxtasamninga, Markaðsstofu Austurlands, verkefna- stjóra fyrir einstök uppbyggingaverk- efni og atvinnuþróunarfulltrúa, og margt fleira í þeim dúr, þar sem unnið er þarft og gott starf, sem m.a. miðar að því að styðja við góðar hugmyndir og koma þeim á réttan rekspöl. Undirritaður telur það vera einn af mestu styrkleikum Austurlands, við núverandi aðstæður í þjóðfélaginu og í samfélagi þjóða, að hafa á sínu svæði fjölbreytta og styrka gjaldeyr- isskapandi framleiðslu- og útflutn- ingsvæna atvinnuvegi, þar sem fremst fara m.a. sjávarútvegur, stóriðja og annar iðnaður, landbúnaður, og fjöl- breytt verslun og þjónusta. Þá er ferðaþjónusta, í allri sinni mynd, að verða á stærri atvinnugrein hér á Austurlandi. Vissulega skipta einnig máli sam- félagslegir grunnþættir svo sem góð heilbrigðisþjónusta og menntakerfi á sem flestum stigum, sem hefur störf fyrir háskólamenntað og annað sérfræðimenntað fagfólk á ýmsum sviðum. Allt leggst þetta á eitt til þess að byggja upp og halda við góðu og farsælu samfélagi á Austurlandi þar sem eitt styður við annað. …ógnanir: En það eru vissulega ýmsar ógnanir sem að steðja um þessar mundir sem ekki verður horft framhjá. Má þar fyrst nefna að á sama tíma að miklum framkvæmdum hér á Austurlandi er að ljúka, sem í öllu venjulegu árferði hefði kallað á samdrátt og aðlögun að nýjum við- miðum, eftir uppgang til margra ára, þá skellur á efnahagslegt óveður sem ekki sér fyrir endann á og gerir annars óumflýjanlega aðlögun á svæðinu að hruni á sumum sviðum og svæðum, með gjaldþrotum og atvinnuleysi í mun meira mæli en við höfum áður séð á þessum slóðum. Þá er það með öllu ótækt, óþolandi og ólíðandi, við þessar erfiðu aðstæður að enn sé alið á gamaldags hrepparíg og metingi á milli svæða á Austurlandi, sem gerir það að verkum að allt of mikill tími og orka fer til spillis í heild. Það ætti að vera umhugsunarefni fyrir alla íbúa á Austurlandi að nú er tími samstarfs og sameininga, tími til þess að byggja upp á nýjum gildum, með góða reynslu að vopni. Það ætti að vera meira virði fyrir íbúa á Austurlandi að hafa fjölbreytta þjónustu og góð lífsgæði í sínum landshluta, heldur en í hvað byggða- kjarna sú þjónusta eða afþreying er nákvæmlega staðsett eða veitt, því við getum alls ekki haft allt af öllu á hverjum stað. Fleiri ógnanir mætti eflaust nefna, er að okkur snúa, en það er okkar að snúa ógnunum í tækifæri til úrlausnar, enda er það svo miklu skemmtilegra að líta á málin með þeim hætti. ... tækifæri: Það gæti verið stærsta verkefnið að snúa vörn í sókn og ógn- unum í tækifæri til framtíðar. Við þurfum öll, hvar sem við stöndum í hinu daglega lífi, að stíga aðeins út úr okkar daglega ramma og horfa á málin utan frá og reyna að sjá tæki- færi til breytinga. Tækifæri til þess að setja okkur ný markmið og við- mið í lífinu. Sjá með raunsönnum hætti hvar við erum í dag og hver hin raunverulega staða er en það sem skiptir mestu máli er að ákveða hvert við ætlum að stefna og hvernig við ætlum að komast þangað. Ég óska okkur öllum góðrar ferðar í þeirri löngu vegferð sem framundan er til framtíðar. Höfundur er fyrst og fremst íbúi á Austurlandi. Samfélagsspegill Austurgluggans Framtíðarsýn á Austurlandi - ógnanir og tækifæri Valdimar O. Hermannsson skrifar: Um þarsíðustu helgi fór fram eitt stærsta mót ársins í hópfim- leikum barna og unglinga. Mótið var haldið á Selfossi. Auður Vala Gunnarsdóttir yfirþjálfari segir sex efstu liðin á mótinu hafa fengið keppnisrétt á Íslandsmeistaramóti sem fram fer helgina 18.-19. apríl. Þessi sömu lið munu svo færast upp í Meistaradeild og keppa í Team- Gym reglum. Á Team Gym- mótum hafa liðin möguleika á að keppa um sæti á Norðurlandamóti og Evrópumóti. Fimleikadeild Hattar sendi 51 keppanda á mótið og kepptu þeir í þremur flokkum. Þrír hópar kepptu í barnaflokki (9-12 ára). Þetta voru tvö stúlknalið (T1 og T2) en besti árangur þeirra var hjá T1; 7. sæti á dýnu og T2; 7. sæti í gólfæfingum. Einn drengja- hópur keppti fyrir hönd Hattar og var þetta eini drengjahópurinn á mótinu og stóð hann sig mjög vel. Í aldursflokki 12-15 ára var Höttur með tvö lið; blandað lið og T5. Í blandaða liðinu voru 2 drengir í liðinu ásamt stúlkum. Þeim gekk mjög vel og þeirra besti árangur var 8. sæti í gólfæfingum. T5 stóð sig mjög vel og vann frækilegan sigur. Þessi hópur varð í 1. sæti á dýnu og trampólíni, lenti í 2. sæti í gólfæfingum og í samanlagðri einkunn urðu stúlkurnar í fyrsta sæti og því unglingameistarar í sínum aldurshópi. Aðstaða til vansa Elsti hópurinn á mótinu, sem samanstendur af stúlkum 15-18 ára (T6), urðu unglingameistarar á dýnu, náðu 2. sæti á trampólíni og í samanlagðri einkunn urðu þær í 4 sæti. Í haust unnu þessar sömu stúlkur til bronsverðlauna í sam- anlagðri einkunn á Haustmóti FSÍ en á mótinu um helgina voru fleiri lið að keppa og mótið sterkara. T5 og T6 náðu þeim frábæra árangri að komast inn á Íslandsmót þar sem sex sterkustu lið landsins keppa um Íslandsmeistaratitilinn. Að sögn Auðar Völu hefur ekki verið tekin ákvörðun um hvort þessi lið taki þátt í því móti, þar sem liðin þurfa þá að keppa í Team reglum á næsta ári og hafa tækifæri á að vinna sér inn keppnisrétt á stærri mót erlendis. Ástæðan fyrir þessu er aðstöðuleysi og skortur á áhöldum. Fimleikadeild Hattar þyrfti þá að fjárfesta í fleiri áhöldum þar sem aðstaðan býður ekki upp á að æfa samkvæmt þeim kröfum sem Team Gym-reglurnar setja. Íslandsmót barna og unglinga í hópfimleikum á Selfossi Magnaður árangur hjá Fimleikadeild Hattar

x

Austurglugginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.