Skrá yfir vita og sjómerki á Íslandi - 01.12.1931, Síða 13
Lendingar- og Ieiðarmerki.
21. NESHREPPUR UTAN ENNIS
a. KROSSAVlK
Stefna lendingarinnar er í vestur. Lendingin er um 750 m. í
vestur frá Sandi. Leiðarmerkin eru 2 Ijós, grænt og hvítt. Græna
ljósiS er á staur upp undan miðri lendingunni, hvíta ljósið á
járnstöng á suðurenda norðurhafnargarðsins. Þeim skal halda
saman þar til komið er i hafnarmynnið, en á þessari leiS er
Miðvíkurboði, sem getur verið hættulegur og leiðin því vand-
farin ókunnugum. í lendingunni er sandur, og er hún talin góð
um hálffallinn sjó og ágæt um flóð. Fyrir framan lendinguna er
sandrif, lítt fært um stórstraumsfjöru þegar vont er í sjó.
b. SANDUR
Lendingin er undir háum bökkum við þorpið og stefnir i S.
MiSiS er austurendi Búrfells (Matarfells) i Bakkabæ, sem stend-
ur um 15 m. frá bakkabrún. í lendingunni er sandur. Gerðaboði
er vinstra megin, en Miðvíkurboði hægra megin, þegar farið er
upp i leguna. Þegar lent er, eru Úrar vinstra megin, en höfði
hægra megin. Lendingin er oftast talin góð, nema um stór-
straumsflæði.
c. KEFLAVÍK
Stefna lendingarinnar er i suður, grjótlending, lítið notuð.
LeiSarmerki eru engin.
d. RIF
Lendingin er um 50 m. i SA frá Rifsbæiuun og stefnir í suð-
ur. Lendingarmerkin eru hesthús norðarlega á Rifstúninu i
hjall við lendinguna (merkin óglögg). Oft notuð sem neyðar-
lcnding. Lendingin er góð, sérstaklega nm flóð, en vandratað
fyrir ókunnuga. Blindsker á hægri hönd, þegar farið er inn, og
eyrar á vinstri.
36. RAUÐASANDSHREPPUR
(Leiðréttingar).
a. KEFLAVÍK
Lendingin Stöð er niður undan hænum Keflavík i stefnu N.—