Skrá yfir vita og sjómerki á Íslandi - 01.12.1931, Blaðsíða 14

Skrá yfir vita og sjómerki á Íslandi - 01.12.1931, Blaðsíða 14
14 c. BREIÐAVÍK Lendingin er vestur og niður undan bænum. —--------- Norðan til í Breiðuvík er lendingin Fjarðarhorn, stefna SA. Lendingin er talin ágæt í austan og norðan átt, eða þegar sjór er af norðri. Innsiglingarmiðið er: stór, hlaðin varða í steypt dökklitað merki á kletti i fjörunni. e. SELLÁTRANES Leiðarmerkin eru 2 hvítmáluð viðarmerki, sem sjást af stór- skipaleið þegar farið er um fjörðinn. 55. SLÉTTUHREPPUR a. HESTEYRI Bezta lendingin er um 200 m., fyrir innan loftskeytastöðina. í lendingunni er sandur og möl. Alltaf er hægt að lenda, en bezt þegar hásjávað er. h. SÆBÓL í AÐALVÍK í lendingunni er sandur, en hnullungsgrjót til beggja hliða. Klöpp er framan við vörina. Engin leiðarmerki. Lendingin er allgóð þegar brimlaust er, betri um flóð. c. LÁTUR í AÐALVÍK Innri lendingin er um miðja húsaþyrpingu. Grjót er ofan við lágfjöruborð, annars sléttur sandur. Lendingin er góð um flóð, en um fjöru er slæmt að lenda vegna útgrynnis. Lendingin er ófær i stórbrimi af vestri. d. LÁTUR í AÐALVÍIv Neslendingin (innri lendingin) er vestar en hin (c.). Hún er austan við 3. hús talið frá vestasta húsinu við sjóinn. Lendingin er talin góð, betri um flóð en um fjöru og bezt um hálffallinn sjó. Grjót er i lendingunni og er hún talin ófær í stórbrimi af vestri. e. ATLASTAÐIR í FLJÓTAVÍK Lendingin er í Atlastaðahlíð innan við Kögur. í lendingunni er grjótkambur frá flæðarmáli upp að grasi. Hún er góð um flóð, slæm um fjöru, en ófær sem neyðarlending. f. REKAVÍK VII) HORN Lendingin er beint niður undan bænum. 1 lendingunni er slórgert malargrjót, en hún getur orðið nokkuð sandborin eftir

x

Skrá yfir vita og sjómerki á Íslandi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skrá yfir vita og sjómerki á Íslandi
https://timarit.is/publication/1730

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.