Skrá yfir vita og sjómerki á Íslandi - 01.12.1931, Blaðsíða 15
15
stórbrim. Lendingin er miður góð, ef nokkuð er í sjó, sérstak-
lega í norðanátt. Jafngott er að lenda um flóð og um fjöru.
g. HORN í HORNVÍK
Lendingin er beint niður undan Hornbænum. Grjót og klapp-
ir. Um fjöru eru grynningar á leiðinni, yfirleitt er lendingin
miður góð.
h. HÖFN í HORNVÍIv
Lendingin er norðanhalt við hvitt pakkhús á sjávarbakkan-
um. Stefna VNV. í flæðarmáli er sandur, en malargrjót fyrir of-
an. Á leiðinni eru klappir og sker, sem flýtur yfir um flóð, en
eru þurr um fjöru. Lendingin er talin heldur góð, betri um flóð.
Sem neyðarlending er notuð önnur lending nokkru innar,
undir kletti sem kallaður er Hamar. Þar er sléttur sandur og eng-
in sker á leiðinni.
92. BORGARFJARÐARHREPPUR
a. NJARÐVÍK
Lendingin er í suðurhorni Njarðvikur, beint út af Króks-
bakkabænum, sunnan Njarðvíkurár. Lendingin liggur i vestur.
Leiðarmerki eru engin. Lendingin er talin miður góð, kvikan
venjulega minnst um fjöru. Sandfjara.
b. GEITAVÍK
Lendingin er suður af Geitavikurbæmim, syðst í sandfjör-
unni fyrir vikurbotninum. Liggur í suðvestur. Sandfjara, en
grunnt um fjöru. Leiðarmerki eru engin. Blindsker eru í leið-
inni, og inn um mjótt sund að fara, sem ekki er fært ókunnugum.
Lendingin er talin miður góð, en betri um hálffallinn sjó.
c. BAKKAGERÐISÞORP (Vogur)
Lendingin er vogur, sem skerst inn í Kiðubjörg sunnan við
fíakkagerði. Á bakkanum upp af vognum standa fiskhús. Lend-
ingin liggur í suðvestur. Klapparbotn. Leiðarmerki eru engin.
í miðjum vognum er boði, um 5 m. frá steyptu bryggjunni. Lend-
ingin talin miður góð.
d. BAKKAGERÐISÞORP (Bakkafjara eða Eyrarfjara)
Lendingin er sunnan Bakkaár fram af verzlunarhúsinu
Bakkaeyri. Liggur í vestur. í lendingunni er grjót og klappir.
Leiðarmerki eru engin. Fram af lendingu er stórt sker, Ársker,
sem er i kafi um háflæði. Leiðin liggur sunnan skersins, en var-