Morgunblaðið - 25.08.2022, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. ÁGÚST 2022 7
Matvælaráðuneytið
Embætti skrifstofustjóra fjármála
í matvælaráðuneyti
Hvaða kröfur gerum við?
• Færni í að skapa liðsheild á vinnustað og leiða fólk til árangurs.
• Samskiptafærni, jákvætt og lausnamiðað viðhorf, þjónustulund
og metnaður.
• Meistarapróf á háskólastigi sem nýtist í starfi.
• Árangursrík reynsla af stefnumótun, áætlanagerð og rekstri.
• Farsæl reynsla af fjármálastjórnun, reikningshaldi ogmannaforráðum.
• Reynsla af því að stýra fjölbreyttum hópi sérfræðinga.
• Reynsla af verkefnastjórnun og teymisvinnu.
• Góð færni í íslensku í ræðu og riti.
• Þekking og reynsla á sviði opinberrar stjórnsýslu er kostur.
• Þekking á Oracle-kerfi ríkisins (Orra) er kostur.
Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um. Umsókn skal skilað
á postur@mar.is.
Umsókn skal fylgja ítarleg starfsferilskrá og stutt kynningarbréf
á íslensku um ástæðu umsóknar auk upplýsinga um árangur sem
viðkomandi hefur náð í starfi og telur að nýtist í embættið.
Hæfnisnefnd skipuð af matvælaráðherra metur hæfni umsækjenda
samkvæmt reglum nr. 393/2012 og skilar greinargerð til ráðherra.
Umsóknarfrestur er til fimmtudagsins 8. september næstkomandi.
Nánari upplýsingar um embættið veitirBenedikt Árnason ráðuneytis-
stjóri í gegnum netfangið postur@mar.is.
Matvælaráðuneytið er öflugt ráðuneyti þar sem málaflokkar
sjávarútvegs, landbúnaðar og matvæla mætast auk landgræðslu og
skógræktar. Mikil áhersla er lögð á sjálfbærni, jöfnuð og nýsköpun.
Á skrifstofu fjármála er góð liðsheild starfsmanna sem vinnur að
rekstri og mannauðsmálum ráðuneytisins. Hlutverk skrifstofu fjár-
mála er að styðja við innra starf ráðuneytisins og þróun þess í nánu
samstarfi við yfirstjórn.
Við leitum að leiðtoga sem getur stutt við starfsfólkið okkar í þeim
verkefnum sem eru framundan. Við viljum ráða til starfa einstakling
sem þrífst á krefjandi verkefnum, skynjar tækfærin í samfélaginu,
getur haldið utan um mannauðinn okkar og hefur reynslu af því að
skapa liðsheild. Innsýn, þekking eða reynsla af rekstri, fjármálum og
mannauðsmálum er nauðsynleg.
Skrifstofustjóri stýrir starfsemi skrifstofunnar, annast rekstur og
fjármálastjórn ráðuneytisins, hefur umsjón með fjárlagagerð og
hefur eftirlit með rekstri undirstofnana. Mannauðsmálin skipta
einnigmiklumáli en þar viljum við vera í fararbroddi og þarf skrifstofa
fjármála að styðja við aðrar einingar ráðuneytisins ímannauðsmálum.
Skrifstofan annast rekstur ráðuneytisins, innkaup, skiptingu á
fjárhagsramma ásamt framkvæmd og eftirfylgni fjárlaga. Þá fer hún
einnig með mannauðsmál, innra eftirlit, stoðþjónustu og áætlana-
gerð. Skrifstofan samræmir framsetningu stefnumörkunar ráðu-
neytisins á þeimmálefnasviðum og í þeim málaflokkum sem hún ber
ábyrgð á. Hún hefur umsjón með fjárveitingum til málaflokka sem
ráðuneytið ber ábyrgð á og hefur eftirlit með stofnunum ráðuneytis-
ins ásamt stefnumótun og árangursstjórnun er þeim viðkemur.
Skrifstofustjóri leiðir samstarf við aðrar skrifstofur, önnur ráðuneyti
og Alþingi.