Fréttablaðið - 21.02.2023, Blaðsíða 9
Hallgrímur
Óskarsson
verkfræðingur og
formaður stjórnar
Carbon Iceland
Deilur um ástæður hlýnunar jarðar
eru að mestu hljóðnaðar. Hópar
hafa færst nær því að vera sammála
um rót vandans og lagt trúnað á
niðurstöður vísindamanna. Að
meginástæðan sé of mikil losun
gróðurhúsalofttegunda í andrúms
loftið, nokkuð sem við mannfólk
getum haft heilmikil áhrif á. En þótt
við f lest séum orðin sammála um
ástæður vandans þá er farið að loga
í gamla deilubálinu að nýju þegar
rætt er um hvaða lausnir eigi að
velja til að leysa loftslagsvandann.
Margar lausnir eru nefndar, margir
hafa á þeim miklar skoðanir en
merkilega fáir virðast tala út frá ráð
leggingum vísindafólks um hvaða
lausnir séu heppilegastar þegar
heildarmyndin er skoðuð.
Lausnir út frá smekk?
Á að hætta notkun jarðefna
eldsneytis, auka framleiðslu á
grænni orku, framleiða grænt
eldsneyti fyrir skip, f lug og önnur
samgöngu tæki, minnka losun og
neyslu, aðhyllast óbreytta land
notkun, taka upp kolefnisskatta,
auka getu náttúrunnar til að fanga
CO2 úr andrúmslofti, endurheimta
votlendi, hætta notkun plasts, o.fl.?
Allt gagnlegar tillögur en svo mikið
er deilt um hverjar skuli valdar að
deilurnar sjálfar eru orðnar helsti
þröskuldurinn í að leysa loftslags
mál.
Umræðan er oft þannig að ef ein
hver mælir með einni lausn þá er
algengt að viðkomandi tali hinar
lausnirnar niður. Sá sem vill leggja
áherslu á að minnka losun talar oft
gegn nýjum grænum orkukostum.
Sá sem vill leysa vandann með því
að gróðursetja tré gæti er allt eins
líklegur til að vera á móti endur
heimt votlendis. Og þeir sem vilja
ástunda landvernd vilja fyrst og
fremst samdrátt í neyslu.
Brotavísindi
Ofangreindar lausnir gera allar heil
mikið gagn í loftslagsmálum, sam
kvæmt vísindum, en duga ekki einar
og sér til að leysa loftslagsvandann.
Að draga úr losun hefur jákvæð
áhrif skv. vísindum en dugar ekki
til að leysa loftslagsvandann. Alveg
eins og við vitum að það er ekki nóg
að treysta bara á eitt bætiefni eins
og lýsi til að verða hraustur. Það
hjálpar en það þarf meira til, ýmis
önnur bætiefni, hreyfingu og aðra
þætti. Margir falla í keimlíka gildru
þegar lausnir í loftslagsmálum eru
ræddar. Það má kalla það brotavís
indi þegar því er haldið fram að ein
tiltekin hugmynd, sem gerir gagn
skv. vísindum, geti leyst loftslags
mál ein og sér, þegar vísindin segja
á sama tíma að sú aðferð leysi aðeins
brot af vandamálinu. Yfir þennan
þröskuld þurfum við öll að stíga,
að viðurkenna að þó að ein tiltekin
lausn geri gagn þá leysir hún ekki
loftslagsvandann, ein og sér. Til þess
þurfi að velja margar ólíkar lausnir.
Viljum við raunverulega leysa lofts
lagsvandann eða erum við aðeins á
höttunum eftir okkar lausn sem
hentar okkar hugmyndafræði?
Náttúrusinnar og tæknisinnar
Skipta má fólki sem er áhugasamt
um loftslagsmál gróflega séð í tvo
hópa, náttúrusinna og tæknisinna
(í bók Charles Mann nefndir „prop
hets“ og „wizards“). Hópar með
sama markmið en vilja fara að því
mjög ólíkar leiðir.
Náttúrusinnar vilja minnka
neyslu og draga úr losun og þar
með draga úr orkuþörf. Vilja endur
hugsa okkar daglega líf og taka upp
breytta neyslu og lifnaðarhætti
með því að stefna að samdrætti
í ef nahagsker f um (economic
degrowth). Tæknisinnar vilja hins
vegar taka eins hröð skref áfram og
hægt er og nota til þess tæknilegar
lausnir sem leyst geta loftslagsvand
ann. Vilja nota orku til að minnka
CO2 úr andrúmslofti og skipta út
jarðefnaeldsneyti fyrir grænt elds
neyti. Með einföldum hætti eru
þessir tveir hópar eins og vörn og
sókn í sama liði nema hvað að hér
er erfitt að fá vörnina til að vinna
með sókninni og öfugt.
Þegar fylkingarnar tvær keppast
við að ná fram sínum sjónarmiðum
geta þær misst af heildarmyndinni.
Loftslagsvandinn er ekki eins og
samkvæmisleikur þar sem hægt er
að velja lausnir eftir smekk eða trú,
heldur þurfum við að skoða lausnir
út frá því hvað vísindin segja og fara
svo öll í sameiginlegt allsherjará
tak þar sem allar gagnlegar lausnir
þurfa að komast í framkvæmd og
það hratt. Við höfum einfaldlega
ekki tíma til að handvelja uppá
haldslausnina eins og konfektmola
því áhrif loftslagsvandans eru að
skella á mjög hratt, bæði með bein
um afleiðingum svo ekki sé minnst
á óbeinar hliðarafleiðingar eins og
aukningu smitsjúkdóma.
Að gera bæði
Það er ekki valkvætt hvort við drög
um úr losun eða bindum losun sem
þegar er komin út í andrúmsloftið.
Og ekki valkvætt hvort við fjár
mögnum orkuskipti í samgöngum,
endurheimtum votlendi eða gróð
ursetjum tré. Við þurfum að gera
næstum allt, ekki bara að einblína
á þær lausnir sem henta hugmynda
fræði hvers og eins.
Það gengur ekki að halda einung
is á lofti því sjónarmiði að vernda
beri land og hafna á grundvelli þess
lausnum í loftslagsmálum. Takist
ekki að leysa loftslagsvandann mun
hækkun hitastigs á jörðinni leiða
til mestu landbreytinga sem við
höfum séð á okkar tímum. Að vilja
vernda land en að kalla með því
fram mestu landbreytingar okkar
tíma er mögulega svipað eins og að
skjóta sig í fótinn. Verndun lands
er mikilvæg en má ekki koma í veg
fyrir að hægt sé að leysa loftslags
vandann.
Að draga úr losun er ekki nóg
sem eina lausnin til að stóla á, en er
mjög mikilvæg sem hluti af heildar
lausninni. Það er nánast útilokað að
draga nægilega hratt úr losun til að
Gerum
bæði
stöðva hlýnun jarðar í tæka tíð. Til
þess þyrfti að taka upp algjörlega
nýja lifnaðarhætti, sumpart svip
aða því sem tíðkuðust á 18. eða 19.
öld. Óháð því hvort það sé æskilegt
eða geranlegt, er tíminn einfaldlega
ekki til staðar. Það er mikilvægt að
dregið sé úr losun, eins mikið og
eins hratt og mögulegt er, en fleiri
lausna verður að leita.
Hrein orka og samningar
Ísland framleiðir mikið af hreinni
orku, og nefna sumir þann kost að
hraða á baráttunni í loftslagsmálum
með því að færa orku frá stórum
notendum yfir í aðra nýtingu.
En slík orka er samningsbundin,
mestan part til langs tíma og ber
að virða gerða samninga. Allt tal,
sem af og til dúkkar upp hér á landi,
um að það sé léttleikandi hægt að
aftengja orku frá samningsbundn
um aðila og tengja eitthvert annað
er fullkomlega óraunhæft og skaðar
á endanum orðspor Íslands.
Að auki eru stór iðnfyrirtæki
hér á landi hratt að vinna sig í átt
að mengunarhlutleysi. Það mun
hraða verulega á orkuskiptum hér á
landi með því að CO2 sé ekki lengur
hleypt út í andrúmsloftið, heldur sé
fangað og nýtt til að framleiða grænt
eldsneyti (t.d. á fiskiskipaflotann), í
stað innflutts jarðefnaeldsneytis.
Þjóðarorkusátt og
orkusjálfstæði Íslands
Það má hins vegar byrja að ræða
hugmyndir í átt að eins konar þjóð
arorkusátt sem gæti falist í því að
gera tímabundna stefnubreytingu
í orkumálum þjóðarinnar um að
hluti af nýrri orku sem komi inn í
kerfin hér á landi fari að verulegum
hluta í orkuskipti. Nýlegar Evrópu
reglugerðir, sem eru í innleiðingu
á Íslandi nú, opna nefnilega á að
tímabundnar heimildir séu settar
til slíks. Ríkisvaldið gæti þannig
tryggt að sett markmið um orku
skipti náist, með því að skilyrða
leyfi til nýrrar orkuöflunar því að
ný orka rati að hluta í orkuskipti.
Þetta myndi hraða mjög á orku
sjálfstæði Íslands sem er mikilvægt
svo að Ísland þurfi ekki að vera
háð öðrum um orku á skip, f lug og
önnur samgöngutæki. Þjóðarorku
sátt gæti með þessum hætti verið sú
leið sem ólíkir hópar geta sameinast
um og gæti sett Ísland í fremstu röð í
baráttunni í loftslagsmálum.
Er „NIMBY-ismi“ þröskuldurinn
í loftslagsmálum?
Við þurfum að vara okkur á NIMBY
isma (Not in My Back Yard) sem
segir: Ég styð allar lausnir í lofts
lagsmálum, bara ekki ef þær eru
settar upp í minni heimasveit. Hvers
konar umhverfisvernd er það? Er
það ásættanlegt að sjá nokkrar
vindmyllur í fjarska og eiga þá séns
að sigra í loftslagsbaráttunni? Eða
er þægindatilfinning okkar Vestur
landabúa orðin svo sjálfsögð að við
teljum okkur geta komist hjá því að
hafa gagnlegar lausnir í loftslags
málum í okkar eigin umhverfi?
Hér ræður hvort við hugsum
þröngt um okkar eigin hag eða
hvort í okkur búi sannur vilji til
að taka þátt í loftslagsbaráttu með
okkur öll í huga. Erum við í menn
ingarbaráttu („culture war“) eða
erum við í loftslagsbaráttu? Menn
ingar og hugmyndafræðileg átök,
undir merkjum loftslagsbaráttu,
munu að öllum líkindum ekki ná að
gera mikið gagn í loftslagsmálum á
endanum.
Við getum horft á vindmyllu með
tvennum hætti. Litið á hana sem
járnhlut sem skyggir á útsýni (við
horf sem hverfist um okkar eigið
sjálf). Við getum líka horft á vind
myllu og sagt, vertu velkomin því
þú ert raunveruleg hjálp sem telur
í loftslagsbaráttunni.
Enginn ein hugmyndafræði
mun sigra
Fyrsta bylgjan í umhverfismálum
(seint á síðustu öld) snerist um
vernd á umhverfi. Önnur bylgjan
(sem við erum í nú) snýst um
aðgerðir þjóðríkja til að ná tökum
á loftslagsvandanum. Gagn er í
báðum leiðum en meira þarf til, því
vandinn er það stór. Þriðja bylgjan
í umhverfismálum (sem nú er rétt
að hefjast) mun hins vegar snúast
um að velja fjárfestingar og sam
hæfðar lausnir til að leysa loftslags
vandann. Eitt dæmi um þessa þriðju
bylgju, er nýleg ákvörðun norska
olíusjóðsins um að stefna að því
að losa sig við fjárfestingar í fyrir
tækjum sem taka ekki fullan þátt
í loftslagsbaráttunni. Og allt í einu
eru ólíklegustu fyrirtæki farin að
halda fundi og tala um hvernig þau
geta lagt lið í baráttunni. Hreyfiafl
peninga er mikið og gaman að sjá
þegar það afl er nýtt til góðs.
Það er nefnilega engin ein hug
myndafræði sem mun draga okkur
út úr loftslagskrísunni. Það mun
enginn geta sagt eftir 25 ár: Ég sagði
ykkur það, mín lausn reyndist best.
Hvorki náttúrusinni né tæknisinni.
Þegar Covidfaraldurinn stóð yfir
fylgdum við ráðleggingum vís
indamanna sem sögðu: Það þarf að
nota allar lausnir ef við ætlum að
ná árangri. Við þurfum að gera slíkt
hið sama í loftslagsmálum, hlusta á
ráðleggingar vísindamanna og velja
þær lausnir sem skila árangri, ekki
bara þær sem okkur þykja róman
tískar og fallegar. Í nýlegri grein í
Guardian („No miracles needed“)
kemur fram að allar lausnir séu til
staðar nú þegar til að leysa loftslags
vandann (vindorka, jarðvarmaorka,
vatnsaf lsorka, sólarorka o.f l.), að
við þurfum bara að fara að hefjast
handa og hætta óþarfa deilum um
lausnir. Og að nota alla hreina orku
sem er möguleg. Við þurfum að
hugsa vandann út fyrir okkar eigin
hugmyndafræði og takast í hendur,
bæði náttúrusinnar og tæknisinn
ar og segja: Við erum í sama liði,
höfum sama markmið. Nýtum allar
lausnir sem virka. Bæði minnka
losun og fanga losun. Við þurfum
að gera bæði. n
Er þægindatilfinning
okkar Vesturlandabúa
orðin svo sjálfsögð að
við teljum okkur geta
komist hjá því að hafa
gagnlegar lausnir í
loftslagsmálum í okkar
eigin umhverfi?
Fréttablaðið skoðun 921. Febrúar 2023
ÞRIðJuDAGuR