Þjóðúlfur - 01.11.1946, Blaðsíða 2

Þjóðúlfur - 01.11.1946, Blaðsíða 2
Á. því herrans (óhappa) ári 1929*skeðu ýmis undur og stormerki bæði a himni,jörðu og íslandi. 1 himni var Neptún í krabba- merkinu og sólin í öðru húsi og þotti það ills viti einkum fyrir þann drottins dag 26. apríl, Enda fór svo að þá kom Einar Eafn Hlíðdal í heiminn, sem þjófur á nóttu Telja fróðir menn að með því hafi plágan hin síðasta og mesta hafizt. Hrengur þessi óx nú og óx sem illgresi í vætutíð, öllúm til sárrar hrell- ingar og forundr- unar. Hann ólst upp á Ströndum, lifði þar a slori og soðningu með bræðingi út á, en at þo aldrei þorsk sökum óbeitar á því að óta með- bræður sína.Brátt rak þo að því að Strandamenn yrðu uppiskroppa með soðninguna og bræðin^inn og fór hann þa asamt farfuglunum suður, Strandamönnum til ósegjanlegs lóttis en Öllum Reykvíkingum til angurs og armæðu Svo einn hráslagalegan haustdag opinberað- ist drottinn honum og kvað hann til þess kjörinn að bjarga G.R. uppúr forardýkjum afturhalds og fasisma."Hellelúja", sagði Elíðdal og fór í skólann, lengi vel var hann þó aðeins talinn til minni spámann- anna. En allt í einu uttutnaði hans andans fyrirferð, blós sig út og belgdi, sem hani á haug og brátt rak að því að engum varð vært £ námunda við hann, öðrum en þeim sem ódauninn þoldu. Svo sem Sverrir Guðm. o.fl. af sama sauðahúsi. Andlega hefur Einar Rafn aldrei verið heilsuhraustur, enda fór svo að sjúkdómur sá er bolsje- vismi nefnist olli þar innanmeinum og bólgum. Út á við lýsti sjúkdómurinn sór aðallega í heiftarlegum niðurgangi ýmissa það tekizt heldur vel þratt fyrir odaun þann, sem af þessu leggur. En öllum skol- anum til ósegjanlegs harms hefur þessi maður náð tökum a ritnefnd og Þjóðolfi, enda er Þjóðólfur nu orðinn næturgagn það, sem hann hrúgar andlegum afurðizm sínum í. •Þrátt fyrir alþjóðalöggjöf um eiturgas- hernað hefur pólitíska andfýlu 0g ódaun mikinn lagt úr báðum endum Einars Hlíðdal og leggur enn þann dag í dag. f sumar óx Einar um tvo þuml. sletta og þóttist þa orðinn svo stór að hann gæti farið að flengja l.bekk. utan hans allra hjartkærustu, sem hann aðeins vill klappa. á aðal- fundinum síðasta tok hann sór síðan vönd í hönd og reiddi hátt til höggs og hugði að grátur og gnístran tanna myndi af þeir. hljótast. En hinum nýja Heródesi tókst ekki að framkvæma fyrirætlun sína, .vöndurinn var rifinn úr höndum hans og lát- inn ríða á kengbogið bak hans sjálfs. Varð hann að lokum sá eini sem hafði ástæðu til grats og fyrirbæna. En drottinn guð(þ.e.a. s.Sv. Guðm.) í hæstum hæðum kom þá hlp.up- andi og "reddaði situationinni" svo hann afram mætti gegna sinni köllun 0g útbreiða fagnaðarerindi Marxismans. Var nú hin göt - uga mannsmynd E.H. bætt og blasin á ný og betur en áður, svo að hann fyllti út í ritstjórasætið 0g flæddi yfir báðar bríkur.. Er hann hinn pattaralegasti á að sjá, en ærið þunnt er innihaldið búkvindur þeirra Sv. og sálufólaga að viðbættri kjölfestu kommúnistanna. Er þessari grein aðallega ætlað að vera sa títuprjonn, sem borar gat á blöðruna, þá skulu menn varaðir við að - hætta ser of nalægt, er hun springur,sökum andlegra eiturefna^og varð serstaklega með pestar þeirrar, sem fullvissa er að liggja að fara svo ekki sykti ut fra ser, hefur muni í loftinu næstu mínúturnar. En þó að þo Frh. á bls. 3.

x

Þjóðúlfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðúlfur
https://timarit.is/publication/1792

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.