Þjóðviljinn - 26.03.1938, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 26.03.1938, Blaðsíða 4
afs I\íy/a T5io aa Lloyds í London Framúrskarandi skemtileg og fróðleg miynd sem á mjög áhrifamikinn hátt, sýnir æsku- og uppvaxtarár vinh anna, Horatio Nelsons, sjó- hetjunnar og Jónatans Blake forstjóra Lloyds of London. Aðalhlutverkin leika: MADELEINE CARROLL og TYRONE POVERS. Leikíél. ReykjaTftnr .,Skírn sem segir sexw gama,nleikur í 3 þáttum eftir Oskar Braaten. SÝNING A MORGUN KL. 8. Aðgöngumiðar seldir frá, kl. 4 til 7 í dag og eftir kl. 1 á morgun. Þýskar sígarettur Lloyd 10 stykkja pk. 70 aura. Fást í verslunum. þJÓÐVILIINN Or borglnn! Næturvörður er í Reykjavíkur- og Iðunnar- apóteki. Næturlæknir Halldór Stefánsson, Ránar- götu 12, sími 2234. Útvarpið í dag 8.45 Dönskukensla. 10.00 Veðurfregnir. 12,00 Hádegisútvarp. 15.00 Veðurfregnir. 18.45 Þýskukensla. 19.10 Veðurfregnir. 19.20 Þingfréttir. 19.40 Auglýsingar. 20.00 Fréttir. 20.15 Leikrit: »Borið á ,borð fyr- ir tvo«, eftir Sacha Guitry. (Leikstj.: Lárus Sigurbjörns- son). 20.55 Strok-kvartett. útvarpsins laikur. 21.20 Útvarpskórinn syngur. 21.45 Danslög, 24.00 Dagskrárlok. Aðalfundur Reykjavíkurdeildar Kommún- istaflokksins verður haldinn á mánudag kl. 8J í Alþýðuhúsinu (gengið inn frá Hverfisgötu). Fé lagar verða að sýna skírteini við innganginn. Skipafréttir Gullfoss og Brúarfoss eru í Kaupmannahöfn. Goðafoss er á leið til Austfjarða oig útlanda, Selfoss er á útleið, Lyra fór í gær. Bílslys 1 fyrrinótt lenti bifreið út af Hafnarf j:arðarveginum og skemdist mjög, 1 henni voru tveir unglingspiltar og báðir ölv- aðir. Sluppu þeir svo til ómeidd- ir. — Leikfél. Reykjavíkur sýnir á morgun bráðskemti- legan gamanleik sem heitir »Skírn, sem segir sex«. — Frum- sýning var síðastliðinn fimtudag og var leiknum afar vel tekið. Dómur um leikinn birtist hér í blaðinu sáðar. IíliYKJAVÍKURANNALL H.F. líevyan „Fornar fli&“ verður leikin á mánudags- kvöld kl. 8 stundvíslega í Iðnc 15. SÝNING. Aðgöngumiðar seldir eftir kl. 4—7 í dag, kl. 4—7 á morg- un og eftir kl. 1 á mánudag. Frá kl. 3 daginn, sem leikið er verður venjulegt leikhús- verð. Áhugalið Þjóðviljaus kemur saman í dag kl. 5 á Vatnsstíg 3, efstu hæð. Mætið öll. kemmtikvöld. heldur Veoturbæjarsellan í kvöld klukkan 9 á Vatnsstíg 3. Til skemtunar verður: 1. Sjálfvalið efni (H. Ottósson.) 2. Upplestur 3. Happdrætti, o. fl. Aðgangur kostar 1,50 kr., kaffi innfalið. Allir velkomnir. NEFNDIN. í. R. fer í skíðaferð að Kolviðar- hóli, kl. 8i og 9 í fyrramálið frá Söluturninum. Farseðlar seldir í Stálhúsgögn, Laugaveg 11. Einn- ig verður farið kl. lý í dag, ef' næg þátttaka fæst. Þátttöku parf að tilkijmm fyrir kl. 12 í dag'. Kvikmyndir frá Iiína. sýnir Ölafur Ólafsson í húsi K. F. U. M. við Amtmannsstíg, sunnudaginn 27. rnars kl. 8i siðdegis. Aðgöngumiðar á kr. 1,00 seldir hjá Eymundsen og Ramma versluninni Laugaveg 1 og við innganginn,. Barnasýning síðar. Gamla l?>io % Fjörugir hveitibrauðs- dagar Afar fyndin mynd og sér staklega lærdómsrík fyrir nýgift hjón. Myndin gerist á vetrarskemtistöðum í Sviss. Aðalhlutverkið leikur kátasta stúlka heimsins ANNY ONDRA. Skemmtikvöl d heldur Vesturbæjarsellan í kvöld kl. 9 á Vatnsstíg 3. Félag- ar f jölmennið og takið með ykk- ur gesti. Allir velkominir. Ólafur Ólafsson kristniboði sýnir á mprgun kvikmynd frá Kína í K.F.U.M.- húsinu við Amtmannsstíg. Svlar gera ráðstafanir vegna yí*irv«fandi keppu. Sænski fjármálaráðherrann dr. Emil Wiigfors hefir nýlega verið á ferð í Noregi. Birtu norsk blöð viðtöl við hann með- an hann dvaldist þar, og segir bann meðal annars að sænska stjórnin sé að gera ýmsar ráð- stafanir til þess að vera við því búin að hagsældartímabil það sem undanfarið hefir ríkt í at- vinnu- og viðskiftalífi landsins kunni nú að vera á enda. Hann segir að síðastliðið ár hafi ýmis- legt gerst sem hendi til þess að kreppa kunni að vera í aðsigi. Til þess að mæta slíkum. erfið- leikum segir hann að stjórnin hafi látið gera ýmsar kreppu- ráðstafanir og muni í apríl-mán- uði n. k. leggja tillögur sínar fyr ir Ríkisþingið. (F.Ú.) Vieky Banm. Helena Wíllfuer 79 Morguninn eftir vaknaði hann við glatt, sólskin, og úrið sýndi honum að talsvert var ájiðið morguns. Hann klæddi sig í snatri og bjóst til morgunveróar, en varð litið niður í garðinn og breytti um áætlun, — hann gekk ósjálfrátt sömu leiðina og, daginn áður. Þegar komið var niður að neðsta hjallanumi blasti haf- ið við honum, kyrt, og nú miklu stærra en kvöldið áð- ur. Heill floti af fiskibátum, með glampandi sól á seglunum, var á útleið. Það var f jara. Flúðirnar lágu þurrar, langt úti sást hnita. úr báru, en inni viö ströndinja var logn. Eitthvað var á hreyfingu milli klettanna, Ambrosi- us settist á steinbekkinn, og er hann, hafði horft nógu lengi, þekti hann aftur fólkið frá því kvöldinu áður. Drengurinn var nakinn, og kolbrúnn af sólbruna. Ým- ist hreykti hann sér upp á steinana eða hann hvarf út í bárurnar. Hlátur og gleðilæti bárust til Ambro- siusar. Nanna var engiu síðri. Þó að hún væri í sundbol, — eða, einmitt, þess vegna, — kom hún hon- um einkennilega kunnuglega fyrir sjónir. Hún valdi sér hæst,u steinana, og stakk sér á höfuðið hvað eftir annað. Ambrosius fékk óstjórnlega löngun til að fara sjálfur í sjóinn, en| þegar hann ætlaöi að fara að sækja sér sundbol, sá hann að leikfélagarnir komu hlaupandi upp f jöruna. Þegar komið var upp á gras- ið varð úr þessu ákaft kapphlaup, og loks hurfu þau hlæjandi inn í baðskálann. Hann settist niður aftur, altekin af löngun til að kynnast þessari konu. Nokkrum mínútum síðar kom, drengurinn út úr baðskálanum í dökkbláum léreftsfötum með ilskó á berum fótunum, Hárið lá slétt og rennblautt fram á ennið, og höfuðlagið sást greinilega, —það var óvenju- lega fagurt og reglulegt. Amhrosius tók eftir þessu öllu saman, þegar drengurinn kom upp á hjallann til hans, nam staðar og fór að athuga hann. Ambrosius brosti dálítið feimnislega en aðlaðandi, og drengurinn kom til ha,ns án, þess að hafa af honum augun. »Þú talar kannske þýsku líka,«, sagði hann feimnis- laust, og kom alveg til Amibrosiusar. »Já, drengur minn«, sagði Ambrosius og þótti vænt um að hann sagði þit. Drengurinn benti meci brúnum vísifingrinum á augu hans. »Ef ég má fá að sjá gegnum' svarta gluggann þinn, þá skal óg sýna þér krossfiskinn minn«, sagði hann eftirvæntingar- fullur. »Þa.ð mátt þú«, sagði Ambrosius, og tók af sér gler- augun, og umhverfið varð samstiundis grátt: og svip- la,ust. »0, það var ekki rnikið gaman, — þaö er miklu meira gaman að smásjjánni. Þakk fyrir. En nú skal ég sýna þér krossfiskinn minn«. Litla, hrúna hendin hvarf í vasann og kom þaðan aftur með gegnþurran krossfisk og sýndi Ambrosiusi eins og þetta væri ger- semi hin mesta. »Nei, sko t.il! Þetta var fallegur krossfiskur. En hvað heitir þú«. »Tint.in — annars heiti ég eiginlega Valentin«. »Valentin? Getur það verið? Þá erum við nafnar, — það var gamanK<. »Já, það er gott að heita Valentín, segir Malí. Ef maður heitir Valentin verður m&öur duglegur, segir Mah. Ert þú cluglegur?« . »Sæmilega, Valentin, sæmilega —« Ambrosius brasti og fylgdi litlu, brúnu hendinni eftir með aug- unum, — hún hvarf aftur niður í buxnavasann með kroesfiskinn. »Kantu að synda?« »Eg held að ég kunni það ennþá. Ég er búinn ad vera lengi veikur«. »Veikur? Þá ættirðu að fá þér glas af meðalinu hennar Malí, það gerir alla hrausta. Viltu koma og baða þig með okkur seinna í dag?« »Nei —« »:Af hverju ekki?« »Ég þori það ekki almennilega«. »Þorirðu það ekki? Ertu hræddur við að fara út í«, spurði Tintin alvarlega, og notaði sömu uppeldisað- ferðirnar og Malí beitti gegn honum. Ambrosius hló. Hann skemti sér prýðilega með þessum nýja kunn- ingja. »Þarna kemur Malí«, hrópaði Tintin. Aínhrosius stóð á fætur, og konan kom til þeirra. Hún var klædd í iátlausan léreftskjól úr saraa dökkbláa efninu og föt drengsins voru úr. Hárið lá þungt og vott niður yfir

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.