Árbók Reykjavíkurborgar - 01.12.1992, Síða 17
1
MANNFJÖLDINN
Inngangur
Tölur yfir mannfjöldann eru að venju úr Þjóðskrá Hagstofu íslands og eru þær
miðaðar við búsetu 1. desember ár hvert. Hagstofan birtir í janúar
bráðabirgðatölur mannfjöldans. Þær tölur eru notaðar við þá greiningu
mannfjöldans, sem hér er birt. Endanlegar tölur, sem birtar eru í júní, eru
notaðar í öðrum tölulegum upplýsingum.
Endanlegar tölur um mannfjöldann eru frábrugðnar bráðabirgðatölunum að
því leyti, að sveitarstjórnir hafa í millitíðinni sent til Hagstofunnar upplýsingar
um vantalið eða oftalið fólk í sveitafélögunum og þeir, sem voru óstaðsettir í
upphaflegu skránni, hafa verið skráðir í tilgreindu sveitarfélagi.
Sem dæmi um mismun á bráðabirgðatölum og endanlegum tölum má nefna,
að 1. desember 1991 voru íbúar Reykjavíkur taldir 99.653, en reyndust 30
færri, þegar endanlegar tölur voru birtar, eða 99.623.
Eins og getið er í upphafi eru mannfjöldatölur miðaðar við 1. desember og
hefur verið svo frá 1910. Rökin fyrir því, að þessi tímasetning var tekin upp,
voru þau, að talið var, að þann dag mundi vera almennust heimavera á
landinu. Þær forsendur eru nú varla fyrir hendi lengur, en það auðveldar allan
samanburð að halda þeirri dagsetningu þótt aðrar þjóðir á Norðurlöndum
miði fólksfjölda á Islandi við áramót. Ein undantekning er frá þeirri reglu a ð
miða fólksfjölda á Islandi við 1. desember. Hún er, að við gerð endanlegra
talna mannfjöldans hefur börnum, sem fædd eru í desember verið fundinn
staður í manntali.
Á þessum áratug hefur það einkennt fjölgun landsmanna, að hún hefur mestöll
orðið á höfuðborgarsvæðinu (Reykjavík, Kópavogur, Seltjarnarnes,
Bessastaðahreppur, Garðabær, Hafnarfjörður, Mosfellsbær, Kjalarneshreppur
og Kjósarhreppur) og Suðurnesjum. Á undanförnum 5 árum, 1987-1991,
hefur íbúum á Höfuðborgarsvæði fjölgað um 8.3%, en heildarfjölgun
landsmanna á sama tímabili var 4.9%. Mannfjöldinn óx um 2.4% á
höfuðborgarsvæðinu árið 1991 og um 1% á Suðurnesjum.
í Reykjavik fjölgaði fólki á síðasta ári um 2.054, eða 2%. Það er meiri
fjölgun en hefur verið hér undanfarin 2 ár. í öðrum sveitarfélögum á
höfuðborgarsvæðinu fjölgaði um 3%. í Bessastaðahreppi fjölgaði um 5.2%,
2.8% í Mosfellsbæ, 3.1% í Hafnarfirði og 3% í Kópavogi. Fjölgun í Garðabæ
var 3.5% og á Seltjarnarnesi tæplega 2%.