S.M.S. blaðið - 08.12.1941, Síða 1
S. M. S. BLAÐIÐ
(ASAFN
Gefið út af:
’ í *' J
Starfsmannafélagi Siglufjarðarbæjar.
1. árgangur
Mánudaginn 8. desember 1941
1. tölublað
Starfsmannafélag /
Siáufjarðar.
Starfsmannafélag Siglufjarðar-
bæjar var endanlega stofnað 11.
janúar s. 1. og telur nú um 30
meðlimi. Félag þetta er hagsmuna-
félag allra fastra starfsmanna bæj-
arins og vinnur að bættum launa-
og ráðningakjörum meðlima sinna,
jafnframt því, sem það vill auka
samhug og samstarf bæjarstarfs-
mannanna á öllum sviðum. Þau
mál, sem félagið hefur helzt látið
tilsín takayfir liðinn starfstíma eru:
Að dýrtíðaruppbót yrði greidd á
laun opinberra starfsmanna, að
persónufrádrátturinn til skatts, yrði
hækkaður. Tekið þátt í undbún-
ingi að stofnun Bandalags opin-
berra starfsmanna og nú síðast
sent bæjarstjórn Siglufjarðar til-
lögur um laun og kjör starfs-
manna bæjarins. Þykir rétt að
birta hér helztu tillögurnar.
Launin takizt eftir launaflokki og fari hækkandi árlega fyrstu 6
starfsárin og ákveðast þannig. (Grunnkaup pr. máðuð).
Launafl. 1. ár. 2. ár. 3. ár. 4. ár. 5. ár. 6. ár. 7. ár.
1. 475.00 490. oo 505.oo 520.oo 535.00 550.oo 570.oo
2. 425.oo 435.oo 450.oo 465.oo 480.oo 495.oo 510.oo
3. 375.00 385.oo 395.00 405.oo 420.OO 435.00 450. oo
4. 350.oo 360.oo 370.oo 380.oo 390.OO 405.oo 420.oo
5. 275.00 280.oo 290.OO 300.oo 310.oo 320.OO 330.oo
6. 150.oo I6O.00 170. oo I8O.00 190.oo 200.OO 210.oo
Skipun starfsmanna í launaflokka Ákvæðisvinna.
er þessi: Laun sótara: Kr. 150.oo pr. mán-
1. fl. Bæjargjaldkeri.
2. - Aðalbókari hafnarsjóðs, hafn-
arvörður, yfirlögregluþjónn,
verkstj. við raflagnir bæjar-
ins og vélstjórar við rafstöð-
ina.
3. fl. Skrifstofumenn á bæjarskrif-
stofunni, vatnsveitustjóri,
byggingarfulltrúi, innheimtu-
maður rafveitunnar, aðstoðar-
hafnarvörður, forstjóri vinnu-
miðlunarskrifstoíunnar.
4. fl. Lögregluþjónar, kúabússtjóri.
5. fl. Skrifstofustúlkur á bæjarskrif-
stofunni, ráðskona og gjald-
keri sjúkrahússins.
6. fl. Afgreiðslustúlkur í mjólkur-
búð.
Laun bókavarðar skulu fyrst um
sinn vera kr. 335.oo pr. mánuð.
uð, þó ekki minna en kr. 1.50 pr.
skorstein.
Eldfæraskoðun: kr. 500.oo pr. ár
Laun sorphreinsara kr. 7000.OO
pr. ár.
Staðaruppbót kennara við barna-
skólann kr. 350.OO á ári sem grunn-
kaup.
Þá er gert ráð fyrir því í tillög-
um þessum, að ráðskona sjúkra-
hússins hafi frítt fæði og húsnæði.
Að hafnarverðir, lögreglumenn og
vatnsveitumenn við höfnina hafi
fría einkennisbúninga og að sumar-
leyfi sé þrjárBvikur. Þess skal getið
hér, að við samningu þessara til-
lagna var höfð til hliðsjónar launa-
kjaraskrá Reykjavíkurbæjar svo og
launakjör starfsmanna ísafjarðar og
Hafnarfjarðar. Ef litið er með sann-
girni á tillögur þessar þá dylst
engum, að Starfsmannafélagið hef-
ur stillt tillögum sínum í hóf, enda
vænta líka meðlimir þess af bæjar-
stjórn, að hún Ieiðrétti það ósam-
ræmi, sem verið hefur á launa-
greiðslum starfsmanna þessa bæjar,
borið saman við launagreiðslur
starfsmanaa hjá öðrum bæjarfélög-
um.
í blaðinu Mjölnir, sem út kom
22. nóv. s. 1. birtist svæsin árásar-
grein á Starfsmannafélagið. Grein
sú mun vekja hryggð meðal
þeirra manna, sem hafa trúað því,
að blað þetta væri hið rétta leiðar-
ljós á leiðinni til farsællrar afkomu
Það væri hægt að álykta, að grein
Mjölnis væri gömul Iexía úr mál-
gögnum svartasta afturhalds at-
vinnurekendavaldsins, þegar þeir
litu á verkafólk sem dauðar vélar,
og verkamönnum var torveldað
á alla lund að bindast samtökum
sín á milli, til þess að rétta hlut
sinn. Nú er þetta komið úr móð,
Mjölnir, og þótt þú hafir sýnt það
eftir þinni beztu getu, að þú viljir
taka upp gamla móðinn, þá mun
öllum finnast hann svo fráhrindandi,
að allir munu láta þig einan um
hann.
Þá er það eftirtektarvert, að er-
indi, sem bæjarstjórn berast eru
komin til umræðu í pólitísku blaði,
áður en nefndin hefur afgreitt það.
Sannleikurinn er því sá, að Mjölnir
hefur illa af stað farið.
Kennararnir
og S. M. S.
í 24. tbl. Mjölnis frá 22. nóv. er
eftirtektarverð grein, er höf. nefnir
•Illa af stað farið« og er nafnið
táknrænt fyrir frumhlaup höfundar,
og lýsir mun betur málefnaflutn-
ingi hans en hinu, sem hann deilir
á. Fjallar grein þessi um Starfs-
mannafélag Siglufjarðar og við-