Tíminn - 28.09.1929, Síða 1

Tíminn - 28.09.1929, Síða 1
^ ©jaíbferf og afgtei&slumaftur Cimans er H.annneig þ o r s t e i n s öóiiir, Sambanösijástiui. Eeyfjarrif. ^fgtsi&síct Cimans er i Samban&síjúsinu. (Ðpin öaglega 9—(2 f. 4. Sínti ^90. Xm. ár. Framtíð Mentaskól&ns ■ og rektorsembættið L Mbl. 24. þ. m. telur, að varnir bresti af hálfu Tímans fyrir liönd núverandi landstjómar, út j af vali rektorsins við Mentaskól- ann. Tíminn gat þess, að kerínar- amir mundu að vísu vera dugandi menn, hver í sínum verkahring og að um þessa ákvörðun hefðu mjög miklu ráðið örðugleikar á, að gera upp á milli kennaranna, er fimm þeiiTa tóku að metast um verð- leikana og þóttust allir hver öðr- um snjallari og betur hæfir til starfsins. — Hinsvegar fór því mjög fjarri að þetta væri tal- in einkaástæðan fyrir þessari ákvörðun ráðherrans. Og úr því að Mbl. telur að varnir bresti og eigi liggi fyrir nægilegar ástæð- ur, verður ekki komist hjá að skygnast nokkru dýpra í málið. II. Af öllum hinum margvíslegu þjóðheillamálum, sem núverandi kenslumálaráðherra hefir látið til sín taka, munu fá mál vera hon- um jafnhugarhaldin sem kenslu- málin; enda hefir hann, auk stj ómmál astarfanna, haft kenslu og skólastjóm að lífstarfi og sam- ið frumlegar og merkar kenslu- bækur. Áður en hann tók við stjómarstörfum var skólamála- barátta hans og Framsóknar bundin við alþýðuskólana og við hagnýtaframhaldsmentun og stúd- entafræðslu norðanlands. Yanst nokkuð á í þessum málum þrátt fyrir megna andstöðu og fjand- skap helstu manna Ihaldsins (J. Þorl. og Laugaskóli, B. Líndal og framhaldsnámið á Akureyri, mót- staðan gegn umbótum Eiðaskóla, Herdísarskóla á Staðarfelli o. s. frv.). Eftir að ráðherrann tók við yfirstjórn kenslumálanna lét hann það verða eitt af fyrstu verkum sínum, að kynna sér ástandið í Mentaskólanum. Hefir hann síðan, gegn andstöðu og illkvitni íhalds- manna, unnið að þeim umbótum á húsnæði skólans, annari aðstöðu hans og starfsháttum, sem hann hefir mátt við koma. III. Skólamálabaráttan, sem að framan getur, vottar, að fésýslu- menn og burgeisar innan Ihalds- floklcsins hafa, — eins og sam- kepnismenn og auðhyggjandi víð- ar um heim — verið mótfallnir hagnýtri alþýðufræðslu. Eina skólamálaviðleitni þessara manna hefir verið sú að gera menta- skólanám að einskonar sérhlunn- indum höfuðstaðarbúa, troða böm- um sínum inn í skólann og opna þeim greiða leið til embættisnám3. Nú hefði mátt vænta þess, að Ihaldsmenn hefðu látið sér ant um þennan skóla. Undir hollustu- háttum hans og starfi áttu þeir heilbrigði bama sinna, menningar- þroska þeirra og framtíðarvonir. En hver varð svo raunin á, þeg- ar kenslumálaráðherrann tók að kynna sér ástand skólans? Hún var í stuttu máli sú, að skólinn hafði verið hörmulega vanræktur á allar lundir, húsakynni, aðbúð nemenda og aðstaða skólans öll svo, að hann bar á sér, utan og innan, kennimörk rótgróinnar fyr- irlitningar sérhyggjunnar fyrir málstað æskunnar og framtíðar þjóðarinnar. Húsið var að utan stórlega van- hirt og óásjálegt, þak nálega sundurbrunnið af ryði. Gólf og stigar hússins sumstaðar nær sundurtroðið. Kenslustofurnar sumar mintu á illa bættar flíkur, með fjórum mismunandi litum. Öll umgengni hússins í samsvör- un við aðbúnaðinn. Einskis hafði verið gætt, nema að troða inn í skólann fleiri og fleiri nemendum, svo að bekkjunum hafði fjölgað úr 6 í 13, hver smuga var full og húsnæði fyrir kenslustofur leigt úti í bæ. Miðstöð hafði ný- lega verið sett í húsið, en loft- ræsla engin. Kent var í glugga- lausu og loftræslulausu fjósi bak við skólann. Nemendur urðu að geyma vosklæði sín inni í kenslu- stofunum, því að hvergi var nein fatageymsla né ræstingarherbergi, salemi og handlaugar ónógar. — Eltki höfðu kennaramir verið kröfuharðari fyrir sína eigin hönd en nemenda sinna, því í kennarastofunni, þar sem þeir urðu að taka handlaugar, var engin skólpræsla, heldur notuðust þeir við blikkfötu! Aðstaða skól- ans hið ytra var í samsvörun við annað ástand hans. Landrými var ekkert nema hallfleytt skólalóðin við fjölfarna götu, óhentug til leika og íþróttaiðkana. Á bak við skólann er mjög þröng lóð og olíuskúrar bygðir fast upp að lóðarmörkum. Þessi merki skóli bar þannig rík merki andlegrar deyfðar, óhugkvæmni og hirðuleysis um andle'ga og líkamlega velferð þeirra æskumanna, sem eiga að sækja þroska sinn í skólann til þess síðar að eiga forustu í vel- ferðarmálum og mentun þjóðar- innar. íþróttaaðstaðan var engin, nema leikfimiskenslan, sem mjög hæfur maður hafði með höndum, en sem var slælega sótt, vegna eðlilegrar deyfðar. ítroðningur í skólann og ítroðningur ákveðins þekkingarforða í nemendur skól- ans var hin eina sjáanlega við- leitni forráðamanna skólans. Enda mun hann hið innra hafa biðið nokkurt tjón af slíkum aðbúnaði. Allmikið hefir borið á því, að nemendur skólans hlytu heilsu- brest. Mælt er, að sorgleg óregla hafi náð að festa rætur hjá sum- um æskumönnum skólans, vegna skorts á íþróttaaðstöðu, félágslífi og sjálfstæðrí mentavinnu. Loks má í þessu sambandi nefna skróp- vottorðin, sem lengi hafa tíðkast í skólanum og sem hafa verið mjög misnotuð á siðspillandi hátt. Mun Pálmi rektor Hannesson hafa í hyggju að taka gersamlega fyr- ir þann óvanda, Loks má benda á þann þátt í vanrækslu skólans af hálfu for- ráðamanna hans og höfuðnotenda, sem lengst mun verða í minnum hafður. Mannvinur einn og menta- frömuður, Charles Kelsall að nafni, breskur að ætt, gaf skólanum fyrir um tveimur mannsöldrum síðan bókasafnið „lþöku“. Er það sérstök bygging, smekkleg hið ytra, reist á lóð skólans. Þessi stofnun hefir ekki einungis verið Reykjavík, 28. september 1929. 60. blað. algerlega vanhirt, heldur hafa nemendur skóians beinlínis verið sviftir réttindunum til notanna af þessari gjöf hins breska mannvin- ar, sem átti í þeirra garð svo hlýja hugsun og frjóa. Aðalsal hússins, þar sem bækurnar voru geymdar, hefir verið lokað með járnhurð eins og fangelsi um ná- lega tvo mannsaldra! Nemendur skólans fengu að hafa aðgang og not af lítilli hornstoíu, þar sem þeir geymdu dálítið bókasafn, er þeir komu sér upp af eigin ram- leik! Uppi á loftinu voru, í lítilli súðarkompu, geymdar Þjóðvina- félagsbækur. Eru þar með upp talin not hússins! Yerður með saiuti sagt, að í meðferðinni á þessari merku gjöf hafi náð lengst og verið á allan hátt sví- virðilegust vanræksla fyrverandi stjórna, aðainotenda skólans, rekt- ora hans og kennara á öllum liag skóians, og jafnframt tómlæti þeirra um málstað og þroskunar- skiiyrði þeirra æskumanna, sem áttu þessa gjöf og jafnframt rétt- inn til fullra nota hennar. IV. Umbætur þær, sem þegar hafa verið gerðar á skólanum, hafa ekki vakið neina ánægju hjá íhaldsmönnum eða blöðum þeirra. Þvert á móti hafa þær sætt mót- spyrnu, tómlæti og spotti úr þeirri átt. Sérstaklega spottuðust Ihalds- menn að því, að kenslumálaráð- herrann lét dæla hreinu lofti inn í kenslustofur skólans og létti af nemendum og kennurum þeim óhugnaði, að geyma misjafnlega lireinar yfirhafnir og vosklæði inni í upphituðum og yfirfyltum kenslustofum. Surnarið 1928 hlutu kenslustofurnar á neðstu hæð hússins aðgerð, ásamt gólfum og stigum. Og á efsta lofti var gerð kenslustofa á náttúrugripasafni skóíans. Handlaugar voru settar í húsið fyrir nemendur og salern- um fjölgað. Broslegt og minnis- stætt atvik má það teljast í allri tregðu og mótþróasögu íhalds- manna gegn umbótum skólans, að yfirvöld bæjarins gerðu beinlínis tilraun að dreita nemendur skól- ans inni með því að neita um leyfi til þess að breiltka um helm- ing skúr, sem fyrir var á bakhlið skólans, svo þar yrði komið fyrir nauðsynlegum salernum. Varð að beita ríkisvaldi, til þess að fá framgengt þessari umbót! Þetta viðvik íhaldsmanna ætti að geta orðið minnisstætt, eigi síður en för Kjartans Ólafssonar að Laug- um og því síður frægilegt, sem nemendur skólans höfðu vissulega ekkert til saka unnið! Undanfarnar vikur hefir verið unnið að viðgerð sltólans innan- húss, auk þess sem hann hefir hlotið nauðsynlega málningu og viðgerð hið ytra. Verða nú og settar upp nokkrar heimavistir fyrir utanbæjamemendur. Bóka- safnið íþaka hlýtur gagngerða umbót og verður tekið til fullra nota fyrir bókasafnsvinnu og sjálfstæðar námsiðkanir nemenda. Auk þessa hefir kenslumálaráð- herrann gert sér far um að bæta aðstöðu skólans til íþróttaiðkana. Hefir með stuðningi góðra manna tekist að glæða íþróttalífið að nokkrum mun. Hefir það komið í ljós, að nemendur skólans hefir hvorki skort vilja né atorku til þess að stunda íþróttir, er þeim voru leiðir opnaðar til slíkra iðk- ana. — En málaleitanir kenslu- málastjómarinnar um aðstöðu- bætur skólans og aukið landrými, hafa mætt sömu fyrirlitningu hjá íhaldsmönnum í bæjarstjóm eins og allar aðrar umbætur á þessari stórmerku mentastofnun sem þeir þykjast elska af öllu hjarta! Enn má geta þess, að núver- andi kenslumálaráðherra hefir tekið upp þann hátt að gefa nem- endum kost á að kynnast nokkuð náttúrunni sjálfri af eigin sjón og reynd undir handleiðslu og með leiðbeiningmn kennara síns. Hafa verið farnar stuttar ferðir út úr bænum. Og á síðastl. vori fóru þeir af 5. bekkjar nemendum skólans, er til þess höfðu ástæður, austur í Hornafjörð ásamt tveim- ur kennurum og dvöldu þar nokkra daga. Voru þeir fluttir báðar leiðir á varðskipunum í eftirlitsferðum skipanna austur um iand. Höf. Mbl.-greinarinnar 19. þ. m. spyr, hvort unt sé að hugsa sér „svívirðilegri aðferð við gamla og merka mentastofn- un?“ Telur hann „hryllilegt að hugsa út í, hver áhrif þessar ógeðslegu aðfarir muni hafa á sálarlíf hinnar uppvaxandi kyn- slóðar“! Höf. væntir auðsæilega að nemendum skólans verði talin trú um, að ráðherrann hafi í ein- hverjum mjög illum og sálarspill- andi tilgangi gefið þeim kost á að kynnast þannig náttúrunni, þar sem hún er einna fegurst og stórbrotnust á landi hér. — En flestir aðrir en þessi siðferðilega blindaði höfundur munu hyggja,að slík för og slík kynni við náttúru landsins muni fremur hafa göfg- andi og þroskandi áhrif á sálar- líf æskumanna. V. Ástandi skólarís hefir nú verið lýst nokkuð hér að framan og mun alþýðu manna virðast að um- bóta hafi verið þörf og að ráð- stafanir kenslumálaráðh. hafi ver- ið reistar á gildum ástæðum. En hver verður svo aðstaða kennaranna, sem sóttu um rekt- ors-embættið eða annara fyrir þerri-a hönd, að taka upp þykkju út af því, að kenslumálaráðherr- ann hefir ekki kosið, að gera upp á milli þeirra, né fela neinum þeirra forstöðu skólans? Hafa þeir ekki setið mjög lengi í þessari stofnun eins og hrömandi hrófi, horft upp á niðurlægingu henn- ai’ og unnið störf sín við versn- andi skilyrði án þess að hreyfa legg eða lið til að fá kjör skól- ans og aðstöðu bætta? Verður þessi staðreynd því furðulegri, sem það er alkunnugt, að mikill meirihluti af kennaraliði skólans hefir í stjórnmálaskcðunum stað- ið nærri fyrri valdhöfum og hefði mátt ætla, að þunt hefði orðið móðureyra íhaldsráðherranna fyr- ir réttmætu kvaki þeirra manna, sem hafa haft veg og vanda at því, að sjá starfi skólans borgið á undanförnum árum. Og af hverju skyldi slík deyfð og óhug- kvæmni stafa öðra en þeirri rót- grónu skólastefnu, að leggja meginkapp á ítroðning stremb- ins fróðleiks og mikillar bókvísi, en láta sig Jitlu sldfta um líkams- heill nemenda, íþróttir þeirra, fé- lagslíf, 'heimilisanda, sjálfstæðar námsiðkanir 0. s. frv. —- Mun því engan, sem þekkir skoðanir núv. kenslumálaráðherra, furða á því, að hann hefir fremur kosið að taka ungan mann með nýjum stefnumiðum í þessum efnum, heldur en að velja á milli manna, sem í afstöðu sinni til hnignunar skólans hafa allir tekið örlögum hans með sama langlundargeði, sömu rósemi og deyfð. Ihaldsmenn hafa i þessum um- ræðum kallað skólann „hjartfólgn- ustu mentastofnun þjóðarinnar“. Framanskráð lýsing og hnignun- arsaga skólans vottar, hversu heitt þeir hafa elskað hann! Er það miklu meira en meðaldirfska og ósvífni, er þeir menn bera sér slík orð í munn um þessa stofnun, meðan smán þeirra af ræktarleysi og áníðslu á skólanum og nemend- um hans, brennur þeim heitast á baki. Mætti þykja líklegra, að þeir menn, sem hafa hlotið sameigin- lega óvirðingu af þessu máli, sæju sóma sinn í, að tala sem fæst um skólann og þær umbætur, sem nú- verandi stjórn hefir beitt sér fyr- ir og mun beita sér fyrir í náinni framtíð. VI. Íhaldsblöðin hafa lagt út í það, sem kenslumálaráðherrann kaus að láta ógert: — að gera upp á milli kennaranna, sem keptu um rektorsembættið. En í fumi sínu brjóta þau gegn þeim málstað, er þau þykjast halda fram um gild- ar reglur við skipun í slík em- bætti. Samkvæmt reglunni um verðleika embættisaldursins, að öðru jöfnu, hefði settur rektor átt að koma fyrst til greina. En í dálkum íhaldsblaðanna fer á ann- an veg. Jón Ófeigsson er þar tek- inn fram yfir aðra kennara skól- ans og fært það til gildis, að hann hafi átt mikinn þátt í samningu orðabókar, samið kenslubækur og ferðast erlendis til þess að kynna sér skólaskipun. En þótt engar brigður séu bornar á dugn- að Jóns Ófeigssonar 0g hæfileika til kenslustarfa og til þess að setja saman téðar bækur, þá sjá allir heilvita menn að slíkt vottar á engan hátt irni hæfileika hana til þess að stjóraa skóla. Um hugkvæmd J. Ó. fyrir hönd skóla síns má geta þess, að hann mun fyrst háfa vaknað verulega til skilnings á því, að eitthvað væri að, er hann hafði heimsótt sams- konar skóla erlendis og uppgötv- að, samkvæmt eigin umsögn, að einungis einn af 25 skólum var lakar útbúinn, en hinir allir betri. Þá má geta þess um J. Ó. að hann mun hafa verið fast fylgj- andi þeirri stefnu, að skapa hér einskonar „aristokratiskan", o bekkja samfeldan skóla með þungri latínu frá byrjun. En þar sem slík skólastefna brýtur mjög bág við vaxandi viðleitni menta- málafrömuða nútímans, að færa skólana úr viðjum hinna dauðu mála og auka lífrænar nútíma- mentir, þá munu þessar skoðanir J. Ó. ekki hafa þótt þess eðhs, að þær mæltu með honum sem rektor við Mentaskólann. Annars vill Tíminn ekki metast á um kennara skólans, en unna þeim saimmælis eins og jafnan áður. En blöð Ihaldsins hafa gert sig ber að óheilindum og ósmekk- vísi, er þau hafa þannig tekið einn kennarann upp á arma sina og sparkað um leið í alla hina, eftir sínum litla mætti. vn. I Mbl. 24. þ. m. er því haldið

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.