Tíminn - 29.09.1937, Page 1

Tíminn - 29.09.1937, Page 1
og tnnljeimta ^afnaeott. )Ö eímt 2353 - Pó»ib6lf 9Ö) <&jaíbbagi biafistns (i I Iftnt At(cagaiitro f00*0» 7 ((. XXI. ár. Reykjavík, 29. sept. 1937. 42. blað Rýrnun tollanna Hér í blaðinu hefir verið á það bent nokkrum sinnum, hversu tolltekjur ríkisins hafa farið minnkandi á síðustu ár- um, annars vegar vegna þess að aukizt hefir framleiðsla toll- skyldra iðnaðarvara í landinu, hinsvegar og sérstaklega vegna 1 1 þess, hve innflutningur frá út- j löndum hefir verið takmarkað- j ur af gjaldeyrisástæðum. I ýtarlegri grein hér í blað- j inu um verðtollinn og vörutoll- inn, voru birtar tölur, er sýna j hvernig þessir tveir tekjustofn- ar hafa reynzt fyrr og síðar, og j var þá jafnframt gerð grein ; fyrir uppruna þessara tekju- j stofna eða lagasetningar um þá, og rakin saga hennar. í sambandi við innflutnings- takmarkanimar er ástæða jtil að undirstrika enn einu sinni þá staðreynd, að takmörkun innflutningsins kemur alveg sórstaklega niður á verðtoUs- j skyldum vörum. Innflutningur verðtollsvara hefir því minnk- að hlutfallslega miklu meira en innflutningurinn í heild. Samkvæmt athugun, sem nú er nýlokið fyrir árið 1986, hefir innflutningur verðtollsskyldra vara á því ári ekki numið nema 71/2 milljón króna, af 42M; millj. kr. innflutningi alls. Mörg ár hefir vefnaðarvaa- an ein (að meðtöldum tilbún- um fatnaði) numið þessari upp- hæð og raunar miklu meira. Árið 1928 var t. d. flutt inn verðtollsskyld vefnaðarvara fyrir ca. 9 milljónir, árið 1925 fyrir ca. 10 milljónir 0g árið 1930 fyrir ca. 11 milljónir kr. En síðastl. ár námu allar inn- fluttar verðtollsskyldar vörur, eins og áður er sagt, ekki nema ca. 71/2 millj kr. Hið svokallaða „viðskipta- gjald“, sem lögfest var á þingi 1935, nær til ýmsra fleiri vara en verðtollurinn. Þó nemur inn- flutningur þeirra vara, sem „viðskiptagjald" leggst á, ekki nema ca. 18 milljónum króna af 42^ millj. kr. heildarinn- flutningi ársins 1936. Kemur það af því, að ýmsar helztu neyzlu- og framleiðsluvörur voru í lögum undanþegnar „viðL skiptagjaldi“. Á yfirstandandi ári (1937) lítur út fyrir að innflutningur- inn (í krónum talinn) muni aukast nokkuð frá því sem hann var árið 1936. Af þeim á- stæðum þarf þó ekki að búast við, að verðtollstekjur ríkisins hækki, sem neinu nemur á þessu ári. Því að innflutningur verðtollsvara er sízt meiri en 1936, jafnvel minni en áður að vörumagni. Hækkun heildar- innflutningsins nú í ár liggur að sumu Jeyti í verðhækkun og aðsumu leyti í auknum fram- leiðsluvöruinnflutningi vegna síldarútgerðarinnar og síldar- iðnaðarins. En sá innflutning- Míkilsverðf&r viftnisburðttr „Svo lengi lem höfða- tölureglunni er tylgt við úthlutunlna, má búast við að skammtur kaup- mannaverzlananna minki árlegaw“ (Björn Ólafs- son stórkauprftaður í Morgunblaðinu.). Þessi eftirtektarverðu um- mæli standa í viðtali við Björn Ólafsson stórkaupmann, sem Mbl. birtir nýlega. En Björn Ól- afsson á, eins og kunnugt er, sæti í innflutnings- og gjald- eyrisnefnd af kaupmanna hálfu. Og Bjöm Ólafsson segir það þar sem sína skoðun, að ef „höfðatölureglunni" verði áfram fylgt 'við úthlutun gjaldeyris- leyfa, muni vöt'uinnfluningur kaupmanna smátt og smátt fara minnkandi. En í hverju er svo þessi „höfðatöluregla11 fólgin? Hún er í því fólgin að kaup- félögin fái að flytja inn vörur í hlutfalli við félagsmannatölu sína, þannig að ef félagsmönn- um þeirra fjölgar, vaxi hluti þeirra af innflutningnum en hluti .kaupmanna minnki. En þetta þýðir raunverulega það, að neytendur varanna megi ráða því sjálfir, hvor t þeir vilja heldur verzla hjá kaupmanni eða gerast félagsmenn í kaup- félagi og kaupa þannig inn nauðsynjar sínar sjálfir. Með öðrum orðum; „Höfða- tölureglan er sama sem sjálfs- ákvörðunarróttur neytendannfl, um verzlun sína. Hún byggist, eins og Björn Ólafsson segir í Mbl. „á starfsreglum nefndar- innar, sem fjánnálaráðherra hefir sett“. Og þessi regla er auðvitað algerlega sjálfsögð, svo framarlega, sem ekki á að nota innflutningshöftin til að banna mönnum að flytja við- skipti sín frá kaupmönnum og ganga í kaupfélög. Gamla Mbl.-reglan að miða eingöngu við fyrri innflutning, myndi auk þess þýða það, að engin 'nýj kaupmannsverzlun með erlend- ar vörur gæti risið upp í land- inu, nema með því að kaupa vörur af öðrum eldri verzlun- um. En yfirlýsingin, sem Björn Ólafsson gefur í þessu sam- bandi er mjög eftirtektarverð. Hann segir það sem sína skoðun, að höfðatölureglan muni minnka innflutning kaup- manna ár frá ári. ur hækkar ekki verðtollstekj- urnar. Þetta eru staðreyndir, sem æskilegt er, að sem flestir- geri sér grein fyrir. Og það er al- menn staðreynd, að takmörkun innflutningsins á hverjum tíma, svo framarlega sem hún er á viti byggð, hlýtur alltaf að koma niður á tollvörum og hafa það í för með sér, að ríkið verður að gera breytingar á tekjustofnum sínum, annað- hvort að hækka gömlu tekju- stofnana eða finna aðra nýja — eða fara báðar leiðirnar að einhverju leyti, eftir því sem heppilegast þykir. En þar með lýsir hann yfir því sem sinni skoðun, að óskir almennings miði í þá átt að hætta viðskiptum við kaup- menn. M. ö. 0., að straumur viðskiptanna hverfi smátt og smátt, ef almenningur fær að ráða, frá kaupmönnunum yfir til kaupfélaganna. Þessi skoðun Bjöms Ólafs- sonar er vafalaust alveg hár- 1 rétt. . i Skilningur almennings á gildi samvinnunnar fer vaxandi Ór frá ári. Og þó að kaupmanna- i verzlanir leggist kannske aldrei ; með öllu niður, á þeim vafa- 1 laust eftir að fækka stórkost- 1 lega í náinni framtíð. Það er hin eðlilega þróun. j Og það er vel farið, að einn af bezt menntuðu mönnum kaup- I mannastéttarinnar skuli hafa I gert sér grein fyrir þeirrí stað- ! reynd. i A víðavangi Sænsk vinsemd. Samband sænsku samvinnu- félaganna, Kooperativa För- bundet, hefir í nokkur undan- farin ár veitt nokkrum ungum samvinnumönnum frá Dan- mörku, Finnlandi og Noregi styrk til vetrardvalar í Jakobs- bergs lýðháskóla, sem er skammt frá Stokkhólmi. Sam- bandið styrkir þenna skóla all- mikið og er þar kennt meira um samvinnumál og almenn fé- lagsmál, heldur en í öðrum lýð- háskólum. Skólastjórinn, er heit ir Karl Petander og er þekktur hagfræðingur og samvinnumað- ur, hefir ritað doktorsritgerð um samvinnuna sem fjármála- stefnu. Nú hefir sambandið, K. F., ákveðið að veita einnig ein- um íslendingi styrk til dvalar í skóla þessum. Styrkurinn er kr. 600 og er það nægilegt fyrir dvöl þar vetrarlangt. Skólinn byrjar 1. nóv. og stendur til aprílloka. Umsóknir, ásamt upp- lýsingum um nám og meðmæli sendist fyrir 1. okt. til Guðlaugs Rósinkranz, Ásvallagötu 58, Reykjavík. Stjórnvizka Morgunblaðsins. Morgunbl. er sýnilega býsna órótt út af því að samkomu- lagsumleitanir milli Framsókn- arflokksins og Alþýðuflokksins skuli standa fyrir dyrum. Rétt væri þó fyrir aðstandendur blaðsins, að reyna að stiHa hræðslu sína, meðan enn er allt óséð um, hvem árangur þessar samkomulagsumleitanir bera. í öngum sínum reynir Mbl. að hugga sig við þá kenningu, að ef Framsóknarflokkurinn og Alþýðuflokkurinn gangi nú til samstarfs, hljóti annarhvor þeirra að svíkja stefnu sína! Því að flokkarnir hafi fyrir kosningar í vor verið ósammála um, hvort rétt værí að beita þjóðnýtingu í útgerð, og hafi hvor um sig haldið sínum mál- stað fram í kosningunum. Eftir þessari kenningu er með öllu ómögulegt að mynda stjórn nú hér á landi, nema þvi aðeins að einhver flokkur svíki stefnu sínaj MiUi allra flokk- stofnandi og fyrv. skólastjóri héraðsskólans á Núpi í Dýra- firði átti 75 ára afmæli 27. þ. m. Sbr. grein eftir Guðlaug Rósinkranz á öðrum stað í blaðinu. (Höggmynd eftir Krist- inn Pétursson). anna eru meiri og minni ágrein. ingsatriði. Ef t. d. Framsóknar- menn og Sjálfstæðismenn mynduðu stjórn, hlytu aðrir hvorir að svíkja stefnu sína. Og samsteypustjórnir gætu þá yfirleitt hvergi orðið til, nema einhver flokkur sviki sltefnu sína. Þau fara þá að verða nokkuð mörg „stefnusvikin" í heiminum nú upp á síðkastið. Til þess eru raunar miklar líkur, að Mbl. sé eitt um svona stjórnvizku. En Það er svo sem í samræmi við annan íhalds- „moral“, að allt samkomulag hljóti að byggjast á „svikum“! Þegar íháldið bíður ósigur. Þegar íhaldsflokkurinn beið sinn fyrsta kosningaósigur ár- ið 1927, heimtaði hann, að kjör- dæmaskipuninni yrði breytt með nýrri stjómarskrá. Árið 1933 var svo stjórnarskránni breytt og íhaldið fékk að nokkru leyti vilja sinn. Nýja stjórnarskráin er því ekki nema rúmlega þriggja ára gömul. En nú hefir íhaldið á ný beðið mikinn kosningaósig- ur. Og þá er ekki að sökum að spyrja. Nú heimtar það nýja stjómarskrá og nýja k j ördæmaskipun. Er þörf á nýrri stjórnarskrá? Það virðist raunar vera býsna hlálegt, ef nú ætti að þurfa að rjúka til og breyta stjórnarskránni, meðan hún enn er ekki nema á fjórða ári. St j ómarskrárbrey ting kostar heldur enga smáræðisfyrir- höfn. Ef hún t. d. væri sam- þykkt á þingi í vetur, þyrftu að fara fram kosningar hennar vegna næsta sumar. Hið ný- kjörna Alþingi yrði þvínæst að koma saman og greiða um hana atkvæði á ný, því að engin stjórnarskrá er lögleg nema hún hafi verið samþykkt á tveim þingum í röð með kosn- ingum á milli. En ekki nóg með það. Ef Alþingi eftir kosning- ar 1938 samþykkti endanlega breytingarnar, yrðu enn að fara fram nýjar kosningar til þess að þingið yrði skipað sam- kvæmt hinni nýju stjómarskrá. Löggjafinn hefir á sínum tíma með þessu fyrirkomulagi gert stjórnarskrárbreytingar miklu erfiðari en aðrar laga- breytingar. Og það er vegna þess, að menn hafa löngum álitið það hina mestu óhæfu og þjóðfélaginu hættulegt að hrófla við sjálfri stjórnarskrá ríkisins oftar en brýnustu nauðsyn ber til. Jón Sigurðs- son og samverkamenn hans hafa áreiðanlega ekki gert ráð fyrir því, að hér myndu verða til stórir landsmálaflokkar, sem heimtuðu stjórnarbreyt- ingu í hverf sinn, sem þeir biðu kosningaósigur! Það er heldur ekki svo, að núgildandi stjórnarskrá væri sett í andstöðu við Sjálfstæðis- flokkinn árið 1933. Núverandi formaður flokksins, Ólafur Thors, vann að því að setja saman breytingarnar, áður en 1 þær voru bornar fram í þing- ' inu, og flokkurinn greiddi at- kvæði með þeim. Nú á þessi sama stjórnar- skrá, sem allur Sjálfstæðisflokk urinn greiddi atkvæði með árið 1933, að vera orðin „lýðræðis- fjandsamlegt“ plagg, sem nauðsyn ber til að eyðileggja. Frh. á 4. síðu. Utan úr heimi Þriðjudaginn 14. þ. m„ kl. hálffjögur að morgni, andaðist öldunguriim Thomas G. Masa- ryk, fyrrv. forseti Tékko-Slov- akíu. Auk nánustii skyldmenna hans, stóðu við banabeðinn tveir tignustu menn landsins. Það voru ríkisforsetinn núverandi, dr. Benes, og forsætisráðherr- ann, dr. Hodza. Það hefir verið sagt um Ma- zaryk, að hann hafi verið „gáf- aðasti maður Evrópu“ á sínum tíma. Víst er það, að æfi hans var óvenjuleg og afrek hans fá- gæt. Hann var fæddur 7. marz 1850 og varð því rúmlega 87 ára gamall. Foreldrar hans voru umkomulítið alþýðufólk, og vann faðir hans fyrir sér sem ökumaður hjá ríkri fjölskyldu. En það er talið, að móðirin hafi verið óvenju vel gefin kona. Tomas Mazaryk vai’ snemma bókhneigður og næmur. Hann var einn þeirra, sem munnmæli herma að lært hafi orðabœkur utan að. Það varð þó að ráði, að hann skyldi læra smíði og byrjaði hann á því námi. En þetta breyttist og Mazaryk gekk menntaveginn. Hann gerð- ist íræðimaður og rithöfundur um heimspekUeg og þjóðfélags- leg mál. Hann var skipaður pró- fessor við háskólann í Prag, sem nú er höfuðborg Tékko- Slovakíu. Og landar hans sendu hann á ríkisþingið í Vínarborg. Þá var keisaradæmið „Aust- urríki og Ungverjaland“ enn eitt af stórveldum álfunnar. öldungurinn Franz Joseph, sem næstsíðastur var í hásætinu, réði yfir rúmlega 50 milljónum manna á ca. 670 þús. kmp landsvæði. En keisaradæmið austurríska stóð á veikum fót- um, því að þar bjó ekki ein þjóð, ‘heldur margar sundur- þykkar. Þjóðverjarnir í Aust- urríki voru frá fornu fari yfir- þjóðin. En suður á Dónárslétt- um bjuggu Ungverjar, við Ad- ríahaf Serbar 0g Króatar, í austurhluta landsins Rúmenar, í Tyrol Italir, í Galiziu Pólverj- ar og Slovakar og í Bæheimi Tékkar. Ríkinu var haldið saman með harðri hendi og glöggar gætur gefnar að fram- ferði hinna einstöku þjóð- flokka. Sjálfstæðisbarátta Tékka og þjóðernisvitund er engan veg- inn ný. Ein höfuðþjóðhetja þeirra er siðabótarmaðurinn Jó- hann Huss, sem brenndur var á kirkjuþingi í Konstanz Við Bodenvatn árið 1415. Eftir dauða hans gerðu Tékkar upp- reisn, sem bæði var trúarlegs og þjóðernislegs uppruna. Á staðnum þar sem Huss var brenndur, stendur nú steinn (der Hussenstein) til minning- ar um hann. Á dánardægri Huss ár hvert, eru þar æfinlega tékkneskir pílagrímar saman komnir. Á ríkisþinginu í Wien gerð- ist Mazaryk þegar einn af ör- uggustu talsmönnum hinna undirokuðu þjóðflokka og þá um leið einn harðvítugasti and-

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.