Tíminn - 14.06.1941, Síða 2

Tíminn - 14.06.1941, Síða 2
258 TfMKVN, iaMgardagimn 14. |úní 1941 65. blað Tveim ikipnm bjargað Mor^miMaðið f | árreiti n ^anef nd ‘gímirm LMugurdaginn 14. júnt Bessasfaðir Það má telja fullráðið, að Bessastaðir á Álftanesi, eitt- hvert sögufrægasta höfuðból landsins, verður aðsetursstaður ríkisstjóra og síðar forseta, þegar íslenzka lýðveldið hefir verið stofnað formlega. Mikill meirihluti þingmanna hefir veitt ríkisstjórninni heimild til að kaupa Bessastaði í þessu skyni. Með þessari ráðstöfun er stig- ið merkilegt spor. Það er hafizt handa um að tengja saman for- tíð og framtíð á þann hátt, að weita sögufrægum höfuðbólum á ný þann virðingarsess, sem þau hafa áður skipað. Það er hafizt handa um að láta hina dreifðu byggð landsins endur- heimta þá aðstöðu í þessum efnum, sem hún hefir verið svift ranglega á mestu niðurlæging- artímum þjóðarinnar. Steinkaldir efnishyggjumenn kunna að segja, að slíkt sé ein- skis virði. En reynslan hefir sýnt, að þegar miklar hættur steðja að þjóðerninu, eru tengslin við fortíðina ein örugg- asta stoðin. Þess vegna halda allar þjóðræknar þjóðir sögu- stöðum sínum í heiðri. Má í þeim efnum minna á þá helgi, sem hvílir yfir Dybböl í hugum dönsku þjóðarinnar. Danir biðu þar einn mesta ósigur sinn fyrir tæpum 80 árum. En þeir fengu ekki andúð á staðnum vegna ó- sigursins. Ósigurinn var þeim hvatning til aukins starfs og dáða. Dybböl var sameiginlegt tákn um ósigurinn og hina nýju sókn. En þótt þessu sé sleppt og eingöngu sé litið á málið frá sjónarhæð efnishyggjunnar, eru Bessastaðir ákjósanlegur aðset- ursstaður fyrir æðsta mann landsins. Þar er mikill og vand- aður húsakostur. Fjarlægðin frá höfuðborginni er ekki meiri en sem svarar því, að staðurinn væri í úthverfi, ef um stórborg væri að ræða. Embættisrekstur ríkisstjóra eða forseta verður naumast það mikill, að þessi fjarlægð valdi erfiðleikum. Hins vegar losnar hann við eril og ónæði bæjarlífsins. í Reykja- vík er heldur ekki völ á húsi, sem hæfilegt er til forsetabú- staðar, er hefði reynzt ódýrara. Skipulag bæjarins hefir heldur ekki verið miðuð við það, að slíku húsi væri komið fyrir á stað, sem sómasamlegur mætti teljast, ef höfð eru til hliðsjón- ar erlend fordæmi. I. Síðara hluta vetrar 1940—41 var unnið að því, að bjarga tveim erlendum skipum, sem strandað höfðu í Vestur- Skaftafellssýslu. Það tókst aö bjarga báðum skipunum. Fyrir öðru björgunarstarfinu stóðu þrír ungir Skaftfellingar, tveir synir Lárusar í Klaustri, Július og Siggeir, og systurson Lárus- ar, Sigfús bóndi á Geirlandi. Þeir fengu með sér úr Reykjavik Markús ívarsson vélfræðing, Fyrir hinni björguninni stóð Pálmi Loftsson, forstjóri Skipa- útgerðar ríkisins. Sagan um það hversu tókst að bjarga þess- um tveim skipum, undir hinum erfiðustu kringumstæðum, er til mikils sóma þeim, sem að verk- inu standa, og til hvatningar öðrum mönnum um það, hversu mannshöndin og mannvitið geta stjórnað óstýrilátum öfl- um náttúrunnar. II. Milli jóla og nýárs í vetur strandaði á Meðallandsfjöru brezkt skip, nálega nýtt, talið vera um 800 smálestir að stærð. Mannbjörg varð af skipinu, en annars þótti óálitlegt að tak- ast mætti að bjarga skipinu. Það var rekið langt upp á fjörur og útgrynni mikið. Bretar vildu, sem von var, bjarga skipinu og séndu snemma í janúar eftir- litsmann á strandstaðinn. Fóru með honum, þegar í hina fyrstu ferð, þeir þrír menn, sem seinna stóðu fyrir björguninni, þeir Júlíus og Siggeir í Klaustri og Sigfús á Geirlandi. Skipið hall- aðist þá mikið, var mjög sokk- ið í sand og fullt af sjó. Björg- uðu þeir félagar lauslegu verð- mæti- úr skipinu, loftskeyta- stöðinni, siglingaáhöldum og Bessastöðum, hafa ekkert haft við það að athuga! . Þeir munu margir, sem ein- mitt telja það auka gildi Bessa- staða sem forsetaseturs, að þar bjuggu áður helztu umboðs- menn hins erlenda valds. Það ætti að minna vel á sigurinn, sem unnizt hefir, að hafa æðsta valdamann hins íslenzka lýð- veldis á sama stað. Ósigrunum og kúguninni megum við aldrei gleyma, því að það tvennt sýn- ir bezt, hvers virði sigurinn og frelsið er. Þess vegna fer vel á því, að dvalarstaður hins æðsta valdamanns minni okkur jafnt á sigurinn og ósigurinn, á frelsið og kúgunina, á það, sem hefir unnizt, og á það, sem getur komið, ef við vanrækjum að gæta vel frelsisins og köllum yfir okkur svipaða áþján og hér var, þegar danskir hirðstjórar bjuggu á Bessastöðum. Þ. Þ. fleiri dýrum, en léttum hlutum. Skaftfellingarnir töldu aö hugsanlegt væri að bjarga mætti skipinu, með þeirri að- ferð, sem Bjarni Runólfsson í Hólmi hafði fundið upp, þegar þýzkur togari var tekinn út af söndunum, með því að leggja vírstrengi að akkerum út við yzta stórstraumsfjöruborð, láta vindur skipsins taka í strengina með stórstraumsfjöru, setja vél skipsins á hreyfingu, svo að skrúfan gæti sópað sandinum frá skipinu og myndað rennu gegnum flæðarmálið, sem skipið rynni eftir, jafnframt því sem það hreyfðist af því að vind- urnar störfuðu að akkeris- strengjunum. Enski eftirlits- maðurinn fól þeim Skaftfell- ingunum að reyna þessa nýstár- legu björgunaraðferð, og heim- ilaði þeim í því skyni 2000 kr. til íramkvæmda. Fyrsti vand- inn í þeim efnum var að fá véldælu, til að tæma sjóinn úr skipinu og gera við lekastaði til bráðabirgða. Júlíus og Sigfús fóru nú til Reykjavíkur með hið bjargaða verðmæti úr skip- inu, og til að fá véldælu leigða. Það gekk erfiðlega, en að lokum lánaði Hamar dælu fyrir til- stilli hins brezka eftirlits- manns. Fóru þeir félagar með dæluna austur og á strandstað- inn. En þegar til kom reyndist hún ófullnægjandi. Nú voru góð ráð dýr. Sneru þeir Klaust- urfrændur sér þá til Reykja- víkurbæjar um leyfi til að fá lánaða góða dælu, en Valgeir Björnsson verkfræðingur synj- aði þeirri beiðni þverlega. Ekki létu þeir Skaftfellingar hug- fallast við þetta. Þeir sneru sér til forstöðumanns vélsmiðjunn- ar Héðins, Markúsar ívarsson- ar. Er hann, sem kunnugt er, maður hugkvæmur í bezta lagi, og einhver bezti stuðningsmað- ur íslenzkrar listar. Tók Mark- ús vel þessari málaleitun og gerðist fjórði aðili í björgunar- starfseminni. Fékk hann lán- aðar tvær véldælur hjá danska firmanu Höjgaard & Schults. Kom Markús sjálfur austur og vann af alefli að björgunarmál- inu. Voru dælurnar látnar starfa dag og nótt, þar til skip- ið var þurausið eftir þrjá sólar- hringa. Síðan var mikil og erfið vinna við að rétta skipið við, svo að það hallaðist ekki, og að halda því uppréttu meðan verið var að koma akkerum og vírum út fyrir allar sandeyrar, eins og fjara verður mest. En það verk varð ekki unnið nema í logni og ládeyðu. Leið nú alllöng stund, svo að austanveður hindruðu framkvæmdir. Þá kom skip- stjórinn af hinu strandaða skipi austur, og hafði með sér Sigfús Vigfússon Siggeir Lárusson vanan íslenzkan björgunar- mann, sem hafði áður fyr unnið með Bjarna í Hólmi við að ná út fyrsta skipinu, sem raun- verulega var siglt út af sönd- unum. Urðu þessir aðkomu- menn brátt á öndverðum meið við Skaftfellingana og töldu framkvæmanlegt að koma skip- (Framh. á 3. siðu) Morgunblaðið hefir nýverið ’ d.eilt á fjárveitinganefnd og tel- ur, að hún beri ábyrgð á því, að fjárlög verða með tekjuhalla árið 1942. Hér er um meirihátt- ar rangfærslu að ræða og ástæða til að rétt sé sagt frá því máli. Sá maður, sem undirbýr fjár- lagafrumvarpið er vitaskuld fjármálaráðherrann. Allir, sem þekkja Jakob Möller vita, að hann er skýr maður og tölu- glöggur. Hann lagði að sjálf- sögðu grundvöllinn að fjárlög- unum með frv. sínu. Formaður fjárveitinganefnd- ar er Pétur Ottesen. Hann er annar elzti þingmaður, sem nú á sæti á Alþingi. Enginn nú- verandi þingmaður hefir jafn- cft átt sæti í fjárveitinganefnd. Það er ekki sagt til að halla á nokkurn af fylgismönnum Mbl. á þingi þó sagt sé, að Pétur Ottesen nýtur einna mest trausts af þeim öllum, fyrir ráð- deild og búhyggindi í meðferð á ríkisfé. Ráðdeild Péturs og margra annarra samflokks- manna hans í fjárveitinga- nefnd er kunn á því, að þeir hafa jafnt Framsóknarmönn- um gert sitt ítrasta til að af- greiða gætileg fjárlög, þó að þeir væru í stjórnarandstöðu. Það má þess vegna geta nærri, hvort þeir Sjálfstæðismenn, sem hafa sýnt gætni. og var- færni í fjárveitinganefnd, þeg- ar andstæðingur fór með yfir- stjórn fjármálanna, muni hafa haft meiri hneigð til óhæfilegr- ar eyðslu þegar þeirra eigin flokkur ber ábyrgð á fjármála- stjórninni. Um Emil Jónsson er það að segja, að hann er miklu betur uppalinn um meðferð fjármála heldur en flestir leið- togar í Alþýðuflokknum, frá því að hann var í bæjarstjórn í Hafnarfirði á erfiðum tímum. Hefir hann jafnan reynzt mjög nýtur maður í fjárveitinga'- nefnd. Um Framsóknarmenn- ina vil ég segja það eitt, að þeir hafa langa æfingu við að styðja ríkisstjórn að gætilegri meðferð fjárlaga, og er svo enn. Stóðu þeir og flestir Framsóknarmenn mjög eindregið að því, að halda hinni gömlu aðferð við með- ferð fjárlaga. Et Mbl. vill leita að ástæðum fyrir háum fjárlögum, verður að leita annars staðar en að vanmætti fjárveitinganefndar. Ég hygg, að enginn, sem til þekkir, muni neita því, að bæði formaðurinn og einstakir nefndarmenn lögðu sig fram um að stilla hóf um fjárveitingar, en verða þó við sanngjörnum lóskum þingmanna. Sáust þess merki við 3. umræðu, áð þing- menn vildu miklu meiri fjár- eyðslu heldur en nefndin, og kom fram fjöldi tillagna í þá átt. Stóðu 10 þingmenn að einni. En fjárveitinganefnd hafði for- ustu um að stöðva þessa upp- lausn og tókst það að mestu með hjálp margra annarra þingmanna, sem voru orðnir vanir samheldni í þeim efnum frá undangengnum árum. Ég vil nú benda Mbl. á nokk- ur atriði, sem sýna, hve ósann- gjarnt er að saka fjárvéitinga- nefnd fyrir alla eyðslu. Fyrst og fremst sættir enginn fjár- málaráðherra sig við, að nefnd- in umturni frumvarpi hans og geri hann ómerkan orða sinna. Næst koma lög, sem Alþingi samþykkir. Eftir að atvinnu- rekendur höfðu samið við verkamenn um kauphækkun og fulla dýrtíðaruppbót, lét þingið eftir kröfu um fulla dýrtíðar- uppbót til starfsmanna lands- ins. Á þann hátt bættust við 2 miljóna útgjöld. Á sama hátt lagði stjórnin til, að hækka tolla á ýmsum nauðsynjavörum til að minnka dýrtíðina, og nemur það ríkissjóð einni miljón kr. Alþýðuflokksmenn höfðu ná- lega fengið samþykkt lög um byggingu sjómannaskóla, og skyldi fyrsta greiðsla vera 300 þús. kr. Atvinnumálaráðherra stöðvaði að vísu þetta mál, af því að það var lítt undirbúið, en lagði til að hærri heimild væri sett á fjárlög. Þá kom frá for- ustumönnujm búnaðarmáiannia krafa um mikla hækkun til ný- býla og varð Alþingi að nokkru leyti við þeim óskum. Mér þykir ósennilegt að Mbl. ætlist til, að íjárveitinganefnd geri ríkisstjórnina ómerka að tillögum sínum, eða stöðva lög- gjöf eins og dýrtíðaruppbót- ina og hækkun tolla. Slík mál koma ekki einu sinni til um- ræðu í fjárveitinganefnd. Þingið hefir að vísu sam- þykkt mikil útgjöld, og gert það vitandi vits. En þingið er smækkuð mynd af allri þjóð- inni. Enn halda flestir íslend- ingar, að þeir hafi miklu rýmri fjárhag en áður og lifa sam- kvæmt því. Gróðahyggjan fer eins og skæður hitasóttarfar- aldur um landið og kemur víða við. Fleiri orsakir liggja til þess að þingið samþykkir mikil út- gjöld. En ábyrgðin á eyðslu þingsins er að minnstu leyti á fjárveitinganefnd. Þvert á móti hefir hún þrætt hinn erfiða veg, að hindra það að hitasótt hinna óvissu og ótryggu fjármála næði undirtökum á öllum fjárveit- ingum Alþingis. J. J. Bjarul Asgeirsson, alþm.: Frá Jökulijörðum og Djúpi Valið á Bessastöðum sem for- setasetri hefir mætt furðuleg- um andblæstri hjá ýmsum mönnum innan Sjálfstæðis-. flokksins, Hér skal ekki reynt að leita hinna raunverulegu orsaka, heldur aðeins rætt um þá mótbáru, sem þeir hafa hampað opinberlega. Hún er sú, að danskir valdamenn hafi setið langdvölum á Bessastöð- um og að það hafi unnið staðn- um slíka óhelgi, að hann sé ó- hafandi sem forsetasetur. Forsætisráðherra svaraði þessu rækilega í þingræðu fyrir nokkru. Ef þessi röksemd væri rétt, væru allir helztu sögu- staðir landsins vanhelgir, Þing- vellir, Skálholt, Hólar o. s. frv. Á öllum þessum stöðum hefir þjóðin meira og minna mætt yfirtroðslum erlends valds. En einna sterkust ítök hefir hin erlenda kúgun þó átt á þeim stað, þar sem nú er stjórnar- setur íslands. Þar átti danska einokunarverzlunin eitthvert helzta vígið. Þar braut það á bak aftur einn mesta eða mesta dugnaðarmann endurreisnar- baráttunnar, Skúla fógeta. Þar var íslenzk tunga komin í mesta hættu. Þar mættu sjálfstæðis- garpar 19. aldarinnar mestri mótstöðu. Enn hefir Reykjavík ekki losnað til fullnustu við hin dönsku áhrif. Eitt enn: Stjórnarráð íslands hefir síðan sjálfstæðið var end- urheimt, verið í húsi, sem einu sinni var danskt fangelsi. Og þeir, sem hrópa nú hæst gegn NIÐURLAG. Skammt frá Laugabóli er stórbýlið Múli. Þar bjó fram um síðustu aldamót tengdasonur Jóns á Laugabóli, Kristján Þor- láksson. Nú býr þar tengdason- ur Kristjáns, Sturlaugur Ein- arsson og kona hans, Guðrún, og virðist því, sem sú jörð ætli að ganga í kvenlegginn. Krist- ján heitinn var mikill búhöld- ur og athafnamaður og vann Múlann upp og hefir því starfi verið fram haldið af börnum hans og tengdasyni og er hann nú prýðileg jörð og vel setin. Voru þeir mágarnir, Þórður á Laugabóli og Kristján í Múla, einhverjir aflahæstu formenn þar um slóðir á sínum tíma — auk búskaparins. Einn son og annan sonarson Jóns heitins á Laugabóli auðn- aðist mér að heimsækja. En sonur hans er Halldór bóndi á Rauðamýri, inn af ísafjarðar- djúpi. Halldór er nú 83 ára gamall og hefir verið bóndi um sextíu ára skeið. Hann stóð við slátt, er við komum til hans, teinréttur ennþá og eldfjörugur. Hann nam ungur búfræði í Noregi og varð fyrstur manna þar um slóðir til að hefja jarð- yrkjustörf með nýjum aðferð- um og breiða út frá sér kunn- áttu á jarðyrkjustörfum með hestaverkfærum. Hann er ung- ur í anda, þótt aldurinn sé hár, fullur af áhuga og starfslöng- un. Jörðin Rauðamýri er ein af beztu jörðum sveitarinnar. Ræktunarskilyrði mikil, engjar góðar og laxveiði nokkur. Sonur Halldórs og sonarsonur Jóns gamla á Laugabóli er svo Jón bóndi Fj ajldal á Melgraseyri. En Melgraseyri liggur við ísa- fjarðardjúp nokkru innar en Kaldalön. Jón hefir nú búið að Melgraseyri full 30 ár. Hann tók jörðina í niðurníðslu, eins og margar jarðir voru á þeim árum. Hann hefir nú sléttað allt túnið og stóraukið með út- græðslú og nýrækt, og byggt úr steini mikið og vandað íbúðar- hús, hlöðu, fjós, fjárhús og áburðargeymslu, allt í einni hvirfingu, vandað og svo smekklega fyrirkomið, að unun er á að líta. En skemmst af að segja, að Melgraseyri er nú eitt hið fegursta býli, sem ég hefi séð á landinu, frá hvaða hlið, sem á er litið. Jón er norskur búfræðingur eins og faðir hans og ágætur jarðyrkjumaður og garðyrkju. Ræktar hann þarna venjulega um 100 tunnur af kartöflum, feikn af rabarbara og öðrum garðávöxtum. Þá hef- ir og verið byggt í landi hans nýbýli, mjög snoturt, sem hann hefir aðstoðað við. Hann er mik- ill áhuga- og framfaramaður og athafnamikill í öllum félags- málum bænda. Þá vil ég í sambandi við Mel- graseyri nefna býli, sem um stórhuga framkvæmdir og snyrtimennsku minnir mjög á hana, en.það er-jörðin Skála- vík við Mjóafjörð, sem liggur inn af Djúpinu, nokkru sunnar. Þar býr bóndi, er Ólafur heitir Ólafsson. Er hann fyrirmyndar bóndi um allar framkvæmdir og umgengni. Tún er þar bæði mikið og grasgefið, jarðarhús öll nýgerð og vönduð rafstöð til ljósa og suðu og á öllum framkvæmdum og umhirðu er snyrtimennska svo af ber. Auk þessara tveggja nýju höfuðbóla, sem ég hefi nú drepið á, vil ég minnast á eitt enn, sem virtist vel á vegi að rísa úr moldu. En það var býli fylgdarmannsins okkar, Páls Pálssonar. Páll er uppalinn í Vatnsfirði, hjá föður sínum, sr. Páli Ólafssyni. Hann nam bú- fræði og gerðist bústjóri föður síns, síðari ár hans. Þá var hann um tíma bóndi á Vatnsfirði, er brauðið var á milli presta, en varð svo að víkja, er það var veitt á ný. Þá flutti hann sig um set og stökk á næstu þúfu, en það var jörðin Þúfur, skammt frá prestssetrinu. Þúf- ur voru þá álitnar rýrðarkot og lítt eftirsóknarvert. Nú hefir það tekið þeim stakkaskiptum, að það ber um 400 fjár, auk nauðsynlegra nautgripa og hesta. Að vísu keypti Páll ann- að kot álíka, sem var að fara í eyði og lagði við. En svo er breytingin orðin mikil á kotinu, að næst er að skipta um nafn og nefna það Sléttu. Nú er kom- ið þarna mikið og rénnslétt tún og hafði þó margar dag- sláttur undir í nýrækt, þegar við komum þar. Öll jarðarhús hefir hann orðið að reisa að nýju og þar á meðal mjög snot- urt og vandað íbúðarhús úr steini. Geng ég þess ekki dul- inn, að ef Páli endist aldur og heilsa, þá muni hann reisa þarna veglegt höfuðból úr þessu niðurnídda koti. Það er annars einkennilegt um þá bræður, sonu séra Páls í Vatnsfirði, hversu þeir hafa verið tryggir við torfuna. Af sex bræðrunum gerðust fimm bændur, þar af fjórir í nágrenninu. Ég heim- sótti einn þeirra, auk Páls, Sig- urð bónda á Nauteyri. Hann er búfræðingur eins og Páll bróð- ir hans. Mér virtist Nauteyri ekki meir en miðlungs jörð, en prýðilega setin. Sigurður hefir lengst af verið einyrki og að mestu sjálfur byggt upp öll hús jarðarinnar úr steinsteypu og hin vönduðustu. Sléttað túnið og stórbætt og var aðdáanlegt að sjá, hve miklu hann hefir afkastað. Þeir báðir eru bjart- sýnir búmenn og æðrulausir. Dáðist ég einkum að því um Pál, að hitta þar búmann, sem ekki kunni að berja sér. Hann var alveg laus við þann sið margra bænda, að gera lítið úr bújörð sinni eða stækka fyrir sér örðugleikana. Hann trúir á mátt moldarinnar og farsæld landbúnaðarins og verður að trú sinni, eins og flestum. Inn af Djúpinu liggur hið fornfræga höfuðból, Vatnsfjörð- ur, bújörð mikil og hlunninda, enda þótti þar löngum gott til fanga. Undir Vatnsfjörð liggur Borgareyjan nokkru framar í Djúpinu og er hún hið mesta gersemi. Þar er æðarvarp mik- ið, selveiði, heyskapur og haga- ganga á vetrum. Á Vatnsfirði býr séra Þorsteinn Jóhanneson, prófastur, miklu myndarbúi. Nokkru sunnar en Vatns- fjörður liggur Reykjarfjörður, einnig fornt stórbýli og vel set- ið. Þar býr Salvar Ólafsson, bróðir Ólafs í Skálavík. Er hann búfræðingur og bóndi góður. Undir Reykjafjörðinn hefir leg- ið Reykjanesið, sem frægt er fyrir hina miklu jarðhita og saltvinnslu, sem þar var stund- uð til forna. Nú hefir Reykja- nesið verið selt undan jörðinni og tekið til annarrar notkunar og er nú vel á vegi að verða allra merkilegasti staðurinn við Djúpið. Þar hefir Kaupfélag ís- firðinga nú komið upp garð- yrkjustöð með miklum gróður- húsum við jarðhitann, og úti- ræktun eftir því sem land leyf- ir. Ræktunarskilyrði eru þarna ekki góð. Landið er grýtt og gróðurlítið og auk þess næsta

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.