Heimdallur - 01.08.1940, Blaðsíða 1

Heimdallur - 01.08.1940, Blaðsíða 1
 Útgefandi: Heimdallur, Félag ungra Sjálfstæðismanna I. tbl. — Reykjavík ágúst 1940 Ávarp. Fyrir 10 árum hóf fyrsta blað ungra Sjálfstæðis- manna, „Heimdallur“, göngu sína. Það var heitið eftir samnefndu félagi ungra Sjálfstæðismanna í Reykjavík, en þeir voru útgefendur blaðsins. Blaðinu Heimdalli var í upphafi ætlað sérstætt verkefni. Það átti að vera baráttu- vopn æskunnar í Reykjavík við kosningar til bæjarstjórn- ar, sem þá voru að fara í hönd, en unga kynslóðin hafði í'engið fulltrúa úr sínum hópi inn á framboðslista Sjálf- stæðismanna, og hún vildi fylkja sér um kosningu hans með öllum ráðum. Eftir kosningarnar hélt „Heimdallur“ áfram að koma út í nokkur ár, og gat sér góðan orðstír sem eitt djarfasta stjórnmálablað í landinu. Nú hefur „Heimdallur“ göngu sína á ný. Blaðið er enn heitið eftir útgefanda þess, félagi ungra Sjálfstæðis- manna í Reykjavík. Og þessu blaði er ætlað sérstætt verkefni. Öllum er Ijóst, að þjóðlífi Iselndinga stafar hætta af því ástandi, sem nú ríkir í landinu. Lif lítillar þjóðar er viðkvæmt fyrir snertingu framandi afla, sem eru komin í nábýli við það. Blaðinu Heimdalli er nú ætlað að vera vettvangur æsk- unnar til varnar i þessum efnum. Því er ætlað að glæða og efla tilfinningu, trú og traust á framtíð íslenzks þjóð- lífs. Það er trú Heimdellinga, að aldrei hafi verið þess meiri þörf en nú, að æska landsins legði ötula rækt við gæzlu þess þjóðlega arfs, sem henni hefir fallið i skaut. Blaðið mun koma út öðru hvoru, eftir þvi sem þörf krefur. Það væntir þess, að almenningur taki þvi vel. Það treystir því, að ungir Sjálfstæðismenn taki þvi fagn- andi. I stjórn Heimdallar, Guðm. Guðmundsson, gjaldkeri. Einar Ingimundarson. ívar Guðmundsson. Jóhann Hafstein, form. Lúðvík Hjálmtýsson. Eggert Jónsson. Jón G. Halldórsson, ritari. Bjarni Björnsson. Óttarr Möller. Gróandi þjóðlíf. Rétturinn til lands og lífs: „Landið er fagurt og frítt, og fannhvítir jöklanna tindar.“ En hverjir eiga þetta land? Fyrir meira en þúsund árum var það numið af mönnurn, sem freist- uðu þess að leita út yfir Islands- ála á litlum opnum skipum með fjölskyldulið og búslóð í stormafylgd úthafsins, fremur en þola ofríki og kúgun í því landi, er þeir höfðu byggt. ísland var landnemanum fyriheit frelsis! Landnemarnir íslenzku slógu eign sinni á landið — helguðu sér það milli fjalls og fjöru. Og menning síðari tíma hefir hik- laust viðurkennt rétt þeirra til þess. Réttarvitund þjóðanna hefir löngu hafið þær rún- ir upp úr rökkri efasemdanna, að fólk, sem byggir kröfur sín- ar til lands á óvéfengjanlegri töku (occupatio), á rétt til lands- ins. Og nú byggja niðjar land- nemanna þetta sama land. Vér höfum hlotið „— Island í arf, og útsæ í vöggugjöf“! En höfum vér þá rétt til þess að lifa í þessu landi — sjálf- stæðu þjóðlífi, óáreittir af öðr- um ? „Þú skalt ekki mann deyða!“ Þetta eru gömul orð, en þó hafa, síðan þau voru töluð, kynslóðir hnígið í valinn fyrir sverði drep- andans. Samt er það svo, að ekkert ríki, sem á nokkuð skylt við menningu, mannúð og mennt- un, er til í dag, sem ekki viður- kennir þetta boðorð sem rétt, em ekki verndar líf einstaklinga sinna í skjóli réttarvitundar þjóðarinnar, og leggur þyngstu refsingu við, ef fjöregg einstak- linganna er skert eða skemmt. Ef ekki Dauðinn tekur lífið á eðlilegan hátt, er það réttleysið, sem rænir því. Þessar staðrevndir ná út yfir líf einstaklinganna, og gilda jafnt um líf hinna einstöku þjóða. Eins og þú og ég eigum rétt á okkar lífi, eins á íslenzlc þjóð rétt til lífs. Undir væng friðargyðjunnar er réttur ríkjanna, hinna ein- stöku þjóða, til lands og lífs, blómlegur kvistur, sem dafnar í ljósi réttlætis og mannúðar. En þegar skuggi styrjaldar breiðist yfir láð og lög, getur þessi kvistur þá þolað hið hel- þrungna myrkur ? Áhrif styrjaldarinnar: Reynslan hefir þegar sýnt, það sem af er yfirstandandi styrj öld, að réttur smáþjóðanna til lands og lifs hefir ekki getað staðið af sér hið mikla hregg- veður hildarleiks stórveldanna. Oss Islendinga mátti gruna það strax, þegar styrjöldin hófst, fyrir um það bil ári síð- an, að hún gæti falið í skauti sér margvíslegan voða fyrir þá máttarlitlu, þá máttarminnstu. Aðeins boðarnir af hinum miklu átökum gátu verið hættu- legir hinni litlu þjóð. En þess mun hafa verið vænzt, jafnt af íslendingum sem öðrum smáþjóðum, að þessir hoðar brytu þó aldrei inn yfir landamærin. En vonir margra, einstaklinga og þjóða, hafa vænghrotnað á þessu síð- asta ári. Grænir akrar og sáin tún hlutlausra, friðelskandi þjóða, liafa á augabragði *

x

Heimdallur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimdallur
https://timarit.is/publication/1807

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.