Rauði fáninn - 01.05.1924, Blaðsíða 1

Rauði fáninn - 01.05.1924, Blaðsíða 1
Öreigar í öllum löndum sameinist! Raudi fáninn Útgefandi: „Samband Ungra Kommunista“ (Deild úr „Iníernationale Ungi-a Kommunista“) I. árg. Reykjayík, maí 1924 1. tbl. Til ungra alþýðumanna. 19. og 20. öldin eru merkilegt tímabil í sögunni, timabil stóriðnað- ai’ins. Eftir því sem framleiðslutœkin urðu stærri og auðvænni, safnað- ist vinnukraftur og auðmagn í færri og færri hendur. Samskonar þró- un átti sér auðvitað stað í verslunarmálunum. Arangurinn varð sá, að þjóðfélagið skiftist í tvær stéttir, stétt þeirra manna sem áttu fram- leiðslulækin — borgarastéttina og stétt hinnar vinnandi alþýðu. Atvinnu- málin komust að vísu í hendur fárra manna, en borgarastéttin var öll b'undin hagsmunaböndum, og varð að mestu leyti viljalaust verkfæri í hendi þeirra. Atvinnurekendur réðu með öllu kjörum verkalýðsins, þeir urðu að þiggja í auðmýkt sinn ákveðinn skamt, hæfilegan til að vinnukraftur þeirra gæti verið boðleg vara. pað sem hinn vísindalegi socialismi — Kommunisminn liafði sagt fyi’ir rættist. Auðvaldið kollsilgdi sjálft sig og gat ekki lengur unnið hlutverlc sitt af hendi, þ. e. veitt öllum alnxenningi nægilegt lifsviðxxr- væri til að geta haldið lífi og heilsu. En sanxvinnan við borgarana hafði bundið embættismenn verlcalýðsins ýnxsum hagsmuixaböndum hinni ríkj- andi stétt. Verkalýðurinn hafði sofið. peir sem skildu x’ás viðbui’ðanna, komnxunistarnir, voru eins og hrópandi rödd í eyðimörkinni. Einungis í Rússlandi vai’ð verkalýðnum þess auðið, að leysa það ldutverk af hendi, sem sagan hefir ætlað honum. Oti í heimi nálgast nú byltingin óðfluga. Öll líkindi ex’u til þess, að nýtt fjárhagslegt hrun sé á leiðinni í Mið-Evrópu. Verkalýðurinn hefir nú þunga reynslu að bald sér í þessum löndum. Sigur verkalýðs- ins i pýskalandi, er sigur verkalýðsins í Evrópu. Áður en varir, geta þeir tímar nálgast, að hinar vinnandi stéttir þessa lands, vei’kaixxenix og bændur, verði neyddar til að taka völdin í sínar hendur. Ef vér fljótum sofandi að feigðai’ósi, ber rás viðburðanna oss að ofurliði, vér verðum undir i bai’áttunni og vöknum við vond- an di’aum. Vér verðum að vei’a vakandi þegar sagan kallar oss að skapa komm- unistiskt þjóðfélag. Til þess að vera hlutverkinu vaxnir, þurfum vér trausta forustu, öflug samtök, glöggan skilning á því senx er að gerast og starf án afláts. Hlutverk æskulýðsins meðal alþýðunnar er að eggja til framsókn- ar og að sjá um, að flokkar alþýðunnar hafi ekki svefnró eitt augnablik. „Rauði fáninn“ á að vei’a málgagn ungi’a alþýðumanna. Miðstjórn „Samb. Ungra Kommúnista". Fyrsti nxaí er dagur verkamanna unx allan hinn mentaða heim. Á þessum degi fyrir 35 árum, sama ár og hið svonefnda 2. Intenxationale var stofnað, gengu verkamenn fyrsta sinni kröfugöngu fyrir löggilding' átta stunda vinnutínxa. Síðan hafa þeir haldið uppteknum hætti og 1. maí er nú löngu orðinn sjálfsagður og ákveðinn frídagur hinna vinnandi þræla auðvaldsins. 1 flestum löndunx hafa vei’kamenn fengið þessari kröfu sinni framgengt, en þó ekki alstaðar. par sem kröfunni hefir verið full- uægt, lxalda verkamenn daginn há- tiðlegan í minningu þess, og krefjast þess jafnframt, að þessi sigur þeiiTa verði ekki aftur af þeini tekinn. Og reynslan hefir sýnt, að þessi síðasta krafa var heldur ekki ástæðulaus. Fyrri hluta siðastliðins veti-ar kom auðvaldið þýska fram með laga- frumvarp í ríkisþinginu, scm mælti svo fyrir, að átta stunda vinnutími skyldi numinn úr lögunx þar í landi. pá, sem svo oft áður, sýndu social- demokratar (jafnaðarmenn) að þeir hafa svikið stefnuskrá sína hina fornu og verkalýðinn í heild sinni, að þeir eru orðnir leiguþý auðvalds- ins og hægri hönd þess i baráttunni gegn verkalýðnum. Til þess að blekkja vex'kalýðinn mótmæltu þeir i fyrstu frumvarpi þessu, en ekki leið á löngu áður en móðurinn rann af þeinx og þeir komu nxeð breytiixgai’- tillögu, sem sá svo uixx, að átta stunda vinnutíminn skyldi haldast senx meg- inregla, en þó væri auðvaldinu heim- ilt að láta vinna lengur ef þuiTa þætti. Kommúnistarnir voru þeir einu er mótmæltu þessu grimuklædda af- námi átta stunda vinnutímans og sýndu með því, sem endranær, að þeir eru eini flokkurinn sem ber

x

Rauði fáninn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Rauði fáninn
https://timarit.is/publication/333

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.