Nýja dagblaðið - 18.04.1934, Blaðsíða 4

Nýja dagblaðið - 18.04.1934, Blaðsíða 4
4 W Ý J A DAGBLAÐIÐ Barnadagurinn Það er orðinn siður í all- mörgum löndum að halda há- tíðlegan svokallaðan barnadag. Sá dagur er sérstaklega helg- aður börnunum, eins og nafn- ið ber með sér. Þá eru haldnar skemmtanir fyrir börnin, þar sem þau skemmta svo að segja eingöngu sjálf. 1 Stokkhólmi hefir sá er þetta ritar, verið viðstaddur hátíðahöld á bamadegi, en þar er bamadagurinn á haustin. Hátíðahöldin byrja kl. 1. Bömin safnast saman í stóra hópa, sum eru klædd þjóðbún- ingum gömlum og nýjum, og önnur allskonar skrípabúning- um með sterkum litum. Þau skipa sér í skrúðgöngu. Fyrst gengur hljómsveit skipuð 400 drengjum. Síðan koma hinir hóparnir á eftir, sumir gang- andi, aðrir ríðandi og enn aðr- ir í hestvögnum. öll þessi fylking gengur síðan um bæ- inn með söng og hljóðfæra- slætti. Þegar þau hafa gengið um nokkurn hluta bæjarins, safnast þau saman á íþrótta- vellinum, Stadion. Þar fara aðal-hátíðahöldin fram. Söng- flokkarnir syngja, lúðraflokk- arnir leika og íþróttaflokkar sýna. Um kvöldið eru tilkomu- miklar flugeldasýningar úti á Leginum, og loks skemmtir fullorðna fólkið sér við dans, í stærstu samkomusölum bæjar- ins, langt fram á nótt. Bamadagurinn er þar einn mesti hátíðisdagur ársins. Á morgun er bamadagurinn hér í Reykjavík. Það er sum- ardagurinn fyrsti, sem alltaf hefir raunar verið barnadagur. En hér er nú meira gert til þess að gera daginn hátíðleg- an fyrir bömin en áður hefir verið. Mikið fé safnast á bamadögunum, en það fer til styrktar fátækum börnum, til þess að gera þeim lífið léttara og skemmtilegra. Bálför Finns Jónssonar Framh. af 3. síðu. staðan um rannsóknir hans var hér bezt og dönsk tunga marg- faldaði lærisveinahópinn. Og þó var oft tvíátta þar sem hann stóð. Um miðbik æfi hans stóð sem hæst baráttan milli íslendinga og Dana um sjálfstæðismálin. Það var ekki heiglum hent að vera Islending- ur í hóp stúdenta og danskur embættismaður í senn — og halda þó virðingu sinni óskertri. Minning hans þarf þess ekki með, að ég segi, að hann hafi ætíð haft á réttu að standa, enda kemur mér það ekki í hug. Hann var bardagamaður, þunghöggur og stórhöggur, og stökk hvorki hæð sína í loft upp né tólf álnir áfram. En hann stóð af sér öll veður eins og klettur. Og svo lýkur æfi, að íslendingar og Danir bera það báðir jafnt, án þess að koma deilur í hug, að hann hafi verið ágætur sonur íslands og fóstursonur Danmerkur. Þrek. og afkastamaður getur haldið virðingu sinni, hvemig sem haldið er á málum, en Finnur Jónsson hélt líka vin- sældum, þó hann byggi á veðramótum, — og þá ekki sízt hinnar ungu kynslóðar. Síðasta verlt, sem hann ætlaði sér, áð- ur en hann féll í valinn, var að tala fyrir íslenzkum stúdent- um, en nú fylgja þeir honum í þess stað til hinnztu hvíldar þakklátum huga. Af drengskap hans og mami- dómi óx virðingin og vinsæld- irnar. Hann var látlaus í fram- göngu og lítillátur í umgengni. Hann þurfti ekki að hreykja sér frekar en Öræfajökull. Hann var traustur og öruggur í rás eins og skriðjökull, skýr og hygginn, þó hann færi um dimmviðu dróttkvæðanna, drengur góður og batnandi. Að honum er mikil eftirsjá fyrir samlanda hans og ættmenni. En minningin um haxm vekur meir stolt en grát. Finnur Jónsson dó svo að kalla í fullu fjöri, þrátt fyrir háan aldur. Það var gott, að hann hreppti skjótan dauðdaga, og þurfti ekki að lifa óstarf- hæfur. Slík örlög hefði hann borið illa. Hann andaðist í önd- vegi eins og fornkonungur. Hann vildi ekki láta grafa sig að kirkjulegum sið. Sumir mundu hafa kosið að hann væri heygður að fomum sið. En sjálfur hefir hann ákveðið, að jarðnezkar leyfar hans skyldu brenndar — og er sá siður elzt- ur. Það skortir aðeins á vík- ingaskipið, sem sigli við stinn- ingsbyr, brennandi, með lík hans í lyftingu, út á hið mikla haf, sem út við sjóndeildar- hringinn rennur saman við himininn. Ég flyt hér þjóðarþökk fyr- ir hið mikla æfistarf Finns Jónssonar. Ég flyt ekkju hans, sem hefir staðið við hlið hans og hjálpað honum af ást og dug um langa æfi, hjartans þakkir og ættmennum hans samúðarkveðju frá íslandi. Guð blessi minningu svo ágæts manns. Annáll Hjónabaud. í gær voru gefin saman af sr. Bjarna Jónssyni ungfrú Ólöf Valdemarsdóttir verzl- unarmær og Bergur Jónsson alþm. Skipafréttir. Gullfoss er í Kaup- mannaJiöfn. Goðafoss fer vestur og norður i kvöld. Brúarfoss er í Stykkishólmi. Dettifoss er á leið til Hull frá Vestmannaeyjum. l.agarfoss fcr frá Iíaupmannahöfn i gærmorgun á leiíktil Austfjarða. Selfoss fór frá Leith í gærkvöldi á leið til Vestm.eyja. Meyjaskemman verður leikin á morgun kl. 8. Ágóðinn af sýning- unni rennur til Bamavinafélags- ins Sumargjöf. Aðgöngumiðar verða seldir í Iðnó í dag frá kl. 4—7. Lá viS slysi. í gær um kl. 9 var flutningabifreiðin RE 767 frá Hallgrími Benediktssyni að fara inn Laugaveginn og ók heldur hægt. þegar hún kom á móts við llyerfisgötu 93, hljóp litill dreng- ur frá syðri gangstéttinni og út á götuna og fram fyrir bifreiðina. Bifreiðastjóranum tókst með mesta snarræði að beina bifreið- inni til hliðar, rann hún upp á gangstéttina á glugga á bakarí- inu og braut hann. Annað slys varð ekki, og er það talið snai'- ræði bifreiðarstjórans að þakka. Skuggsjá eftir Krishnamurti er nvkomin út. Eru það allt ræður e.ftir Krishnamurti. Sumarfagnaður Ármanns verður í kvöld kl. 10 síðd. í Iðnó. — Á dansleiknum spila 2 velþekktar 5 manna hljómsveitir. Er önnur þeirra hin velþekkta hljómsveit Aage Loranze. þarf ekki að efa, að þarna verður bæði fjörugt og fjölmennt eins og ávallt er á Ár- mannsskemmtunum. Úr Ólafsfirði 17/4. Vélbáturinn Ari sökk hér á bátalegunni kl. að ganga 10 i gærkvöldi, í stór- viðri og miklu brimi. — FÚ. Nazistar spéhræddir. þýzka stjómin hefir sent stjórninni í Tékkóslóvakiu orðsendingu út skopmyndum af þýzkum stjórn- málamönnum, sem birzt hafa í tjekkneskum blöðum og þýzka stjórnin telur mjög illgimislegar. Segir í orðsendingunni, að myndir Förin til eldstöðvanna Framh. af 1. síðu. izt í aðaltjaldinu við jökul- röndina allan tímann. Náðum við til aðaltjaldsins seint á sunnudag. 1 gær drógum við farangur okkar svo langt niður er færi leyfði, og náðum til Núpsstaðar kl. 20 um kvöldið. 1 dag er Hannes bóndi á Núpsstað að sækja farangur okkar á hestum. Nánari frásögn um legu gos- stöðvanna verður að bíða unz við komum til Reykjavíkur og höfum unnið úr miðunum okk- ar og athugunum“. Lárus Jóhannesson dæmdur í Hæstarétti Lárus Jóhannesson var í fyrradag dæmdur í Hæstarétti fyrir ólöglegan innflutning á- fengis. Var undirréttardómur- inn staðfestur og Lárus dæmd- ur í 200 kr. sekt eða 12 daga einfalt fangelsi. — Er þá þessu „prufu“-máli Lárusar lokið. Sakamálsrannsókn Framh. af 1. síðu. ans, Guðmundi Guðmundssyni og aðstoðargjaldkerunum Stein. grími Bjömssyni og Sigurði Sigurðssyni. Málshöfðunin er fyrirskipuð samkvæmt 13. kap. (um afbrot 1 embættisfærslu) og 26. kap. (um svik) hinnaal- mennu hegningarlaga. þesssar séu runnar undan rifjum Gvðinga, Marxista og annara flóttamanna frá þýzkalandi, og er tékkneska stjórnin beðin um að hlutast til um að slíkar skopmynd- ir verði ekki birtar framvegis. FÚ. I Sumargjafir I Ávaxtastell 4.50. Ávaxta- skálar 2.00. Kaffistell fyr- ir 12, 28,00. Kökudiskar 1.00. Silfurplett matskeið- ar, gafflar og kökugafflar, ávaxtahnífar, 6 stk., 8.00. Bollabakkar, blómstur- pottar, ryðfríir borðhnífar, 6 stk. í kassa 10.50. Skeið- ar og gafflar, krómhúðað, 1.50. Bónkústar, alumini- um búsáhöld allskonar. — Sig. Kjartansson Laugaveg 41. Sími 3830. Hjá lögreglunni eru i óskilum reiðhjól, skíðasleð- ar, úr, veski o. íl. Það sem ekki geng" ur út verður selt á uppboði bráðlega. Sumargjafir Allskonar barnaleikföng og boltar. Fermingargjafir og ýmsar tækifæriagjafir er bezt að kaupa í Amatörverzlun Þ. Þorleifssonar Austurstræti 6 Sími 4683 • Ódýrn $ aug-lýsing;8 rnar. Tveir gamlir rykfrakkar á fremur stóran rnann til sölu mjög ódýrt. Uppl. Bárug. 7, efstu hæð, kl. 8—9 á kvöldin. Nitrophoska IG, algildur á- burður, handhægasti áburður- inn við alla nýrækt, garðrækt og að auka sprettu. Kaupfélag Reykjavíkur. Ágætar gulrófur, kryddsíld, saltsíld, súr hvalur og súr sviðasulta. Kjötbúð Reykjavík- ur, Sími 4769,_______________ Nýtt eykarskrifborð og 4 stólar til sölu með tækifæris- verði á Lindargötu 8 E. Nokkrar húseignir til sölu Lítil útborgun. Til viðtals á Baldursgötu 16, uppi, kl. 1—2 og 6—7 daglega. Sig. Guð- mundsson.______________ Ilmvötn, hárvötn og hrein- lætisvörur fjölbreytt úrval hjá ______Kaupfélagi Reykjavikur. Svefnherbergishúsgögn til sölu fyrir nál. hálfvirði. Sími 4118.____________________- Einn tvísettur klæðaskápur selst afar ódýrt ef keyptur er strax. A. v. á. eða sími 2773. Essexbifreið til sölu. A. v. á. Sel heimfluttan húsdýraá- burð. Valdemar Jónsson Hverf- isgötu 41. SPAÐKJÖT af úrvalsdilkum alltaf fyrir- liggjandi. S, í. S. — Simi 1080. Land undir sumarbústaði fæst til leigu. Nógur hverahiti og ágæt skilyrði til allskonar ræktunar. Uppl. hjá Jóni Jóns- syni frá Laug, Laugaveg 40. Fyrir sumar- dagínn fyrsta höfum við á boðstólum: Norðlenzkt dilkakjöt, Rjúpur, Hangikjöt af Hólsfjöllum og ótal margt fleira. Húsnæði Herbergi til leigu nú þegar eða 14. maí fyrir einhleypa. Uppl. í síma 2898 milli 7—8. Ungur maður í fastri stöðu óskar eftir herbergi 1. maí. Gott væri að einhver herberg- isgögn fylgdu. Tilboð merkt „Ungkarl“, sendist Nýja dag- blaðinu. Kjötverzlnnin Herðubreíð (í ísh. Herðubreið) Fríkirkjuveg 7. Sími 4565. SjálfsM atuinia 8 kr. daglaun er hægt að hafa við saum og sölu á á- teiknuðum útsaum. Vinnusýn- ishorn send hvert sem er. Haandgemingshuset Aalborg, Danmark. Ollnm sem halda samkomur, er nauð- synlegt að láta Nýja dagbl. vita um það. „t dag“-dálk blaðsins líta allir til að vita hvað helzt er til skemmtunar þann og þann daginn. Sólrík íbúð til leigu, 3—5 herbergi 14. maí. Tilboð sendist á skrifstofu blaðsins merkt MCMXXXIV. Herbergi til leigu á bezta stað í miðbænum. Aðeins reglu- samir og umgengnisgóðir menn koma til greina. A. v. á. 2 einhleypir menn óska eftir herbergi, sem næst miðbænum. Helzt aðgang að síma. A. v. á. Tilkynningar Ég þvæ loft og laga garðinn þinn, ef lætur þú mig vita það í tíma. 3—1—8—3 er, góði minn, sem þér mun reynast bezt að hringja í síma. Biðjið um Kristján í síma 3154 eða 3183. Ágætt fæði kr. 60 á mánuði. Lindargötu 8 E.

x

Nýja dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.