Morgunblaðið - 29.07.1960, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 29.07.1960, Blaðsíða 20
Norðurlandaráð sjá bls 11. JWíifptttM&MIS 170. tbl. — Föstudagur 29. júlí 1960 Íbróttasíðan er á bls. 18. Sólfaxi með tisk til Hollands; ntaði tonn af kola - en fdr þd \ SÓLFAXI flaug í gærkveldi í annað sinn með fiskfarm til Hollands. Að þessu sinni var helmingur farmsins hrað- frystar rækjur, hitt var lax og sólkoli, en enginn humar eins og síðast. Flugvélin var ekki fullhlaðin óg vantaði um eitt tonn upp á þar eð ekki tókst að fá nægilegt magn af sólkola með skömm- um fyrirvara. 40—50 kaupendur. Það er Loftur Jónsson, sem stóð fyrir þessari ferð, sem hinni fyrri — og var flogið til Amster. dam eins og áður. Loftur er þar ytra við annan mann og mun !hann sjá um dreifingu farmsins, sem seldur er til einstakra veit- inga- og gistihúsa, en nokkuð magn af fyrsta farminum fór líka til fisksala. Hefur Loftur fengið inni í frystigeymslu skammt frá flug- vellinum í Amsterdam og þar ■geymir han rækjuna. Þangar er allur farmurinn fluttur úr flug- vélínni, ferfl.i fiskurinn ettur í smáfiskkassa og síðan ekið til kaupendanna, sem eru 40—50 tals ins. Þar á meðal eru st»rstu hó- telin í Amsterdam. Trúðu varla. , Mjög vel líkaði kaupendunum við gæði fisksins, sem fluttur var í fyrstu ferðinnii Og þeir trúðu vart, að fiskurinn hefði komið flugleiðis frá íslandi, fannst það fjarstæðukennt, fyrr en fiskurinn var fluttur til þeirra — og þeir sáu hann með eigin augum. Luku allir upp einum munni um það,. að hér væri um fyrsta flokks vöru að ræða, sagði Kjartan Blöndal, einn af samverkamönnum Lofts, er Mbl. átti tai við hann í gær. Reynslan af fyrstu ferðinni var sú, að megináherzluna bæri að leggja á laxflutninga. Þess vegna var allt annað látið mæta af- gangi og nú voru með Sólfaxa 2,3 tonn af laxi. Af því var 1,7 tonn frystur lax, sem að visu er ekki í jafnháu verði. En hann var all- ur mjög stór, yfirleitt þetta 4— 10 kg. og bætir það mikið úr skák, því stór lax er í mjög háu verði hvarvetna á meginlandinu. Af hraðfrystu rækjunni voru 3 tonn frá Guðmundi & Jóhanni á ísafirði. Jóhann var á flugvellin- um, þegar Sólfaxi fór í gær, og sagði, að nú væru þeir Guðmund- ur búnir með alla rækjuna frá síðustu vertíð. Salan í Hollandi hefði gengið mjög vel og þarna viriist um góðan markað að ræða. Aðeins sólkoli Enginn humar var fluttur með þessari ferð. Það mun ekki hafa borgað sig síðast vegna þess hve humarinn er dýr hér. En eitt tonn af sólkola fór með Sólfaxa og áttu þau í rauninni að vera tvö. En fyrirvarinn var mjög stuttur. Það var í fyrradag, að skeyti barst frá Amsterdam um að flugvélin mætti koma sl. nótt. Bátur var þá í skyndi sendur til veiða frá Eyjum. Lagði hann upp í Þorlákshöfn síðdegis í gær, en aflinn reyndist minni en vænzt hafði verið. Ekki vannst tími til að skrapa saman það sem á vant- Framhald á bls. 19. Á þingi Norðurlandaráðsins. — Ólafur Thors, forsætisráð- lierra Islands, ræðir við Arne Skaug, verzlunarmálaráðherra Noregs. Skaug er gagnmenntaður maður og hefur ætíð verið íslendingum haukur í horni. Kafbáturinn bandarískur Stundar hafrannsóknir EINS og Morgunblaðið skýrði frá 19. júlí sl., sáu íslenzkir sjó- menn kafbát á siglingu á Húnaflóa föstudaginn 15. júlí, en dag- inn eftir, laugardaginn 16. júlí, hafði varðskipið Ægir séð kafbát á siglingu djúpt austur af Grímsey. Sá kafbátur var bandarískur og hafði þjóðfána sinn við hún. Nú er komið á daginn að hér er um sama kafbát að ræða og er hann óvopnaður og hefur í sumar stundað hafrannnsóknir í Norður-Atlantshafi. Um ferðir kafbáts- ins á Húnaflóa segir Þjóðviljinn m. a. í gær; að hann „hafði uppi bandarískan fána“. Þegar Morgunblaðið skýrði frá ferðum kafbátsins í síðustu viku, Svölnhreiður með ófrjóum eggjum FREGNIR hafa borizt um að tandsvala hafi gert sér hreiður að Svínafelli í Öræfum hjá Þorsteini Jóhannssyni bónda. Það er ekki einsdæmi að landsvala verpi hér á landi, 1 sagði dr. Finnur Guðmunds- son Mbl. í gær. Þær koma hingað í stórum hópum á vor- in. Á árunum milli 1920—’30, er hér voru hlýindi mikil, verptu þær oft. f aðeins einu tilfelli er vitað um það með fullri vissu, að svöluungar hafi komið úr hreiðrum þeirra hér. Var það á árunum ’20— 30, austur á Efri Steinsmýri i Meðallandi. Hálfdán Björnsson á Kvi- ikerjum hefur skoðað eggin i hreiðrinu á Svinafelli í Ör- jefum. Er það efst í votheys- turni, erfitt að komast að þvi að sögn, en Hálfdán á Kví- skerjum hefur skoðað eggin og telur hann fullvíst að þau séu ófrjó. Geta má þess, sagði dr. Finnur að hér í Reykjavík fannst einu sinni svöluhreiður í gömlu Gasstöðinni, snemma * þessari öld. minntist Þjóðviljinn ekki á hann og hefur ekki gert fyrr en í gær, þ. e. a. s. ekki fyrr en blaðið hef ur fengið fulla vitneskju um, að hér hafi verið á ferð bandarískur, en ekki rússneskur kafbátur. í meira en viku hefur Þjóðvilj- inn því ekki þorað að minnast á þessa frétt af ótta við þann mögu leika að kafbáturinn hafi verið rússneskt njósnaskip. í gær fjall- ar Þjóðviljinn svo um málið með brigzlyrðum. Samkvæmt lögum eru rann- sóknarskip undanþegin því að til kynna um siglingu sína, og er það skýringin á því, hvérs vegna ekki var tilkynnt fyrirfram um ferðir þessa óvopnaða hafrann- sóknarskips. Um mál betta er nánar fjallað í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu, sem Morg- unblaðinu barst í gær og er svo- bljóðandi: 1) Hinn 14. apríl þ. á. var í Was- hington birt opinber frétta- tilkynning á þessa leið: „í næsta mánuði hefst haf- rannsóknarferð kabátsins „Archerfish um Atlantshaf og Kyrrahaf og tekur um tvö ár. í maíbyrjun fer kafbáturinn til New London til eftirlits og þjálfunar áhafnar, og síðar í sama mánuði hefst rannsókn. arferðin, en í henni taka marg ir vísindamenn þátt á vegum hafrannsóknastofu flotans í Washington . . . Kafbáturinn „Aroherfish“ fór hafrann- sóknaferð árið 1958, og líkist hún að nokkru leyti þessar'i ferð en var miklu styttri. I þeirri ferð kom kafbáturinn við í ýmsum höfnum Suður- Ameríku“. 2) Umræddur kafbátur, sem er óvopnaður, hefur nú í sumar, verið að rannsóknum í Norð- ur-Atlantshafi. 3) Skv. alþjóðareglum, hefur ríkisstjórn Islands enga ástæðu til athugasemda út af ferðum fyrrnefnds kafbáts, sem sést hefur við strendur landsins nokkrum sinnum nú að undanförnu. Utanríkisráðuneytið, Reykjavík, 28. júlí 1960". Sfld í gærkvö'ldi FRÉTTARITAEAR Mbl. á Seyðisfirði og í Neskaupstað símuðu í gærkvöldi, að þang- að hafi komið skip með síld til bræðslu. Á báðum stöðum voru þrær síldarverksmiðj- anna fullar orðnar. Á Seyðis- firði hefir verið saltað í um 300 tunnur og er hin eina söltunarstöð þar, Ströndin, þá búin að salta í um 1500 tunn- ur. — 1 gær bárust um 5500 mál til Seyðisfjarðar, en um 4000 mál til Neskaupstaðar frá 11 skipum. Fréttaritararnir sögðu þau tíð- indi af miðunum, að í gærkvöldi hefðu skip kastað út af Norðfjarð arhorni og eins í Reyðarfjarðar- dýpi. Var um klukkan 9 kunnugt um fjögur skip sem tilkynnt höfðu komu sína til Norðfjarðar með síld til söltunar. Á þessu svæði hafði allur þorri flotans verið, að sögn fréttaritaranna. 76 sldp með eínka- levfi á nafni í SÍÐASTA Lögbirtingi er tilk. frá skipaskoðunarstjóra um það að nú séu 76 skip sem hafi einka- rétt á nöfnum sínum. Þetta þýðir ekki það, að önnur skip, sem nú heita sömu nöfnum og þau sem um ræðir í tilk. skipa- skoðunarstjóra, verði að breyta um nafn. En verði á þeim eig- endaskipti, þá: verða nýir eigend ur að skipta um nafn. Ný skip má ekki skíra einkaleyfisnöfnum. Ungur maöur sak- aður um kynvillu ÁKÆRUR út af kynvillu eru til allrar hamingju fátíðar hér á landi. Nú hefur þó slíkt mál komið til kasta rannsókn- arlögreglunnar hér í Reykja- vík. Átti þetta sér stað hér í bænum fyrir skcmmstu. Það var fyrir nokkrum kvöldum laust eftir miðnætti, að ungur maður gaf sig á tal við 15—16 ára pilt. Kvaðst maðurinn vera ókunnugur í höfuðborginni og bað hann piltinn vísa sér leið á gisti- hús. Varð pilturinn við þess- ari ósk mannsins. A Lokaði að sér Þeir höfðu skammt farið, í bjartri sumarnóttinni, er þeir komu að húsi einu sem maðurinn allt í einu sagðist kannast við. — Jú hér býr kynningi minn. Bað hann piltinn að fylgja sér inn. Bauð hann síðan piltinum inn í herbergi þar í íbúð einni. Þar tók maðurinn upp úr vasa sínum lykil og lokaði forstofuhurðinni. Komst pilturinn fljótt að því að hér var ekki um að ræða neinn utanbæjarmann, heldur sjálfan húsráðandann í þessari íbúð. ★ Bauð áfengi og peninga Maðurinn fór nú að gefa sig að piltinum unga bauð honum hressingu og smá færði slg uppá skaftið við hann, uni hann bauð honum sælgæti, áfengi og peninga ef hann vildi þýðast sig. Pilturinn brást illa við og krafðist útgöngu án tafa. Vildi maðurinn enn reyna að blíðka hann með gjöfum og vinahót- um. En allt kom fyrir ekki, enda mun piltinum hafa verið ljós tilgangurinn. Ekki kom þó til neinna átaka milli hans og mannsins er hann fór út úr herberginu. Sem fyrr greinir hefur rann- sóknarlögreglan þetta mál til at- hugunar. Maðurinn hefur ekki neitað framburði pilsins um sam skipti þeirra þessa nótt, en hann kvaðst hafa verið mjög ölvaður og’ lítt muna. Maður þessi sem er nær þrí- tugu er heimilisfaðir. RaJarstöðvum lokað ÁKVEÐIÐ hefur verið að hætta að nota ratsjártæki stöðvanna að Látrum og Höfn í Hornafirði, Munu stöðvarnar í Sandgerði og á Langanesi annast alla ratsjár- gæzlu. 'Engin ákvörðun hefur verið gerð um framtíð stöðvanna að Látrum og Höfn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.