Morgunblaðið - 20.03.1969, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 20.03.1969, Blaðsíða 28
Bezta auglýsingablaöið AUGLYSINGAR SÍMI SS*4*SO FIMMTUDAGUK 20. MARZ 1969 Mokveiði loðnubáta MOKVEIÐI var hjá loðnubátum í fyrrinótt og bárust alls á land 9.227 lestir á verstöðum allt frá Vestmannaeyjum til Akraness. Mest barst til Reykjavíkur, 2900 lestir, og til Keflavíkur, 1500 lestir. I gær var enn mikil veiði og voru skipin þegar farin að til- kynna komu sína tii verstöðv- anna. Til Sandgerðis bárust alls 582 lestir af þremur bátum og var hinn hæsti, Jón Garðar, með 279 lestir. f Hafnarfirði var landað 1210 lestum af fjórum bátum. Eldborg kom með 350 lestir, Héðinn með 347, Bjarmi II með 131 og Fífill með 310 lestir. Smygl tíl fongo í Hegn- ingorhúsinu? FANGAVERÐIR í Hegningar- húsinu við Skólavörðustíg urðu í gærkvöldi varir við eitthvert „annarlegt ástand“, eins og Valdimar Guðmunds- son, yfirfangavörður, komst að orði við Mbl. í gærkvöldi, í einum klefa hússins, sem í voru fjórir menn. Grunur leik ur á að um smygl inn í húsið^ sé að ræða, en svo sem getið ( er í Mbl. á öðrum stað, var t tilraun til stroks gerð í fyrri-; nótt. Til þess að ganga úr skugga ( um, hvað um væri að vera, varð að flytja tvo af þessum fjórum í Síðumúla, en þeir' eru allir refsifangar. Fanga- I verðimir báðu um lögreglu- ( aðstoð í gærkvöldi, en frekari, frétta af atburðum þar var ekki unnt að fá í gærkvöldi.! Telpo fyrir bifreið SJÖ ára gömul telpa varð fyrir bifreið á mótum Hlíðarvegar og Grænutungu í Kópavogi kl. 17.03 í gær. Telpan, sem var á reið- hjóli kom suður Grænutungu skalj utan í bifrei'ðina skrámað- ist á fæti og var flutt i Slysa- varðstofuna. Að lok'nni rann- sókn þar, fékk hún að fara heim. Suður- og Suðvesturland Til Reykjavíkur komu 12 bát- ar með 2900 lestir. Óskar Hall- dórsson með 323 lestir, Fylkir með 255 lestir, Hannes Hafstein með 226 lestir, Þorsteinn með 149 lestir, Þórður Jónasson með 240 lestir, Ólafur Magnússon með 207 lestir, Reykjaborg með 310 lestir, Gullver með 226 lestir, Birtingur með 278 lestir, Gísli Árni með 325 lestir, Vigri með 150 lestir og Ögri með 150 lestir. Til Vestmannaeyja bárust alls 1198 lestir. Þessir bátar lönduðu alls 9 að tölu: ísleifur VE 129 lestir, Gjafar 80, ísleifur IV 109 lestir, Bergur 141 lest, Gullver 127 lestir, Halkion 208 lestir, Ófeigur II 83 lestir, Örfirisey 270 og Viðey 50 lestir. Á Akranesi var landað 1050 lestum af 5 bátum. Jörundur II kom með 206 lestir, Ólafur Sig- urðsson 150, Höfrungur III með 280, Óskar Magnússon 300, Har- aldur 150. f gær voru allir Akra- nessbátar, sem loðnuveiðar stunda úti og var búizt við þeim inn með kvöldinu. Til Keflavíkur bárust 1500 lest Framhald á bls. 27 ■- * & Blíðviðri var í Reykjavík í gær og engu líkara en komið væri vor. Litli anginn skemmti sér kon- unglega við að gefa „brabra“. — Ljósm. Ól. K. M. Bandaríski fldttamaðurinn — snýr oftur tíl síns heimn Leitaði hér hælis í janúar 1968, þar eð hann átti að fara til Víetnam — Gaf sig fram við sendiráðið sl. mánudag urflugvelli sæi um flutning hans vestur. Rolvaag, sendiherra, vísaði á Cdr. Rusch, blaðafulltrúa varn- arliðsins, um frekari upplýsing- ar. Rusoh tjáði Morgunblaðinu, að Noell yrði fluttur vestur þá Framhald á bls. 27 Fór nustur nð nthugn duflið SÉRFRÆÐINGUR frá Land- helgisgæzlunni fór austur til Seyðisfjarðar til þess að athuga tundurdufl það, sem þar rak á land og gera það óvirkt. Fór sér- fræðingurinn austur í gær. Dufl- ið liggur í stórgrýtkurð í flæðar- málinu. BANDARÍSKI hermaðurinn Ge- orge Markham Noell, sem leit- aði hælis á íslandi í janúarlok 1968 sem pólitískur flóttamaður, sneri sér til bandaríska sendi- ráðsins sl. mánudag og óskaði Vntnið heil- \ næmt n ný Borgarlæknisembættið telur | nú óhætt að Reykvíkingar, drekki Gvendarbrunnavatn og að vatnsbólið sé nú komið í 1 eðlilegt horf. Þurfa menn því I ekki lengur að sjóða drykkjar ( vatn. eftir að vera fluttur heim aftur. Noell, sem er kvæntur islenzkri konu, ákvað að flýja til íslands frá herbúðum sínum í Kalifom- íu, þar sem hann bjóst við að verða sendur til Víetnam. Dóms málaráðuneytið veitti honum landvistarleyfi af fjölskyldu- ástæðum. Noell var fluttur vest- ur um haf í gær. Morgunblaðið átti tal við Karl Rolvaag, sendiherra Bandarikj- anna, í gærdag. Staðfesti sendi- herrann, að Noell hafi komið til sendiráðsins síðdegis sl. mánu- dag og óskað eftir því að verða fluttur heim aftur. Sendiherr- ann tók fram, að Noell hafði kom ið í sendiráðið af frjálsum vilja. Hefði sendiráðið orðið við beiðni hans og varnarliðið á Keflavík- Stöðvuöu flóttann á síðustu stundu Heildarboifiskaflinn 33,812 lestir Á ELLEFTU stundu komu fangaverðir við Hegningar- húsið á Skólavörðustíg í veg fyrir, að einum fanganna tæk- jst að „saga sig“ út úr klefa sínum. „Honum brá heldur illilega, þegar ég tók í sagar- blaðið á móti honum“ sagði Valdimar Guðmundsson, yfir- fangavörður, við Morgunblað- ig í gær. Ekki hefur fanginn viljað láta uppi, hvernig hann komst yfir járnsagar- blaðið en hann var fluttur í fangageymslu lögreglunnar við Síðumúla meðan gert var við gluggann á klefanum. Fangaverðirnir voru á eftir- litsgöngu umhverfis Hegning- arhúsið, þegar þeir urðu varir við flóttatilraunina en nokk- ur brögð eru að því, að fólk fari inn í Hegningarhússgarð- inn og vilji hafa samband við þá, sem inni sitja. —- þrátt fyrir nœr mánaðar sjómanna- verkfall — Crindavík hœsta verstöðin HEILDARBOLFISKAFLINN á svæðinu frá Hornafirði til Stykk Lshólms var hinn 15. marz orðinn 33.812 lestir, en var í fyrra til mánaðamóta marz-april 35.090 lestir eða aðeins 1.278 lestum meiri en nú. Þá verður og að taka tillit til þess að auk styttri veiðitíma nú var um það bil mánaðarverkfall meðal sjómanna á þessari vertíð, sem nú stendur yfir. Mest hefur borizt á land í Grindavík 4.426 lestir. Aflinn skiptist þannig niður á verstöðvar: Hornafjörður 1078 lestir i 97 sjóferðum, Vestmanna- eyjar 3.395 lestir í 382 sjófer'ðum, Stokkseyri 474 lestir í 52 sjóferð um, Eyrarbakki 386 lestir í 47 sjóferðum, Þorlákshöfn 1559 lest- ir í 134 sjóferðum, Grindavík 4.426 lestir í 468 sjóferðum, Sand gerði 1.823 lestir í um það bil 200 sjóferðum, Keflavík 2.147 Íestir í 280 sjóferðum, Vogar 422 lestir í 45 sjóferðum, Hafnarfjörður 697 lestir í 78 sjóferðum, Reykja- vík 667 lestir í 70 sjóferðum, Akranes 593 lestir í 65 sjóferð- um, Rif, Hellissandi 493 lestir í 72 sjóferðum, Ólafsvík 728 lestir í 117 sjóferðum, Grundarfjörður 271 lest í 70 sjófer'ðum og Stykk ishólmur 38 lestir í 6 sjóferðum. Mestur hefur aflinn verið hlut- fallslega á línu. Alls höfðu 8 bátar náð 200 lesta markinu hinn 15. marz. Hæsti báturinn er Sæbjörg VE með 280 lestir, þá Geirfugl frá Grindavík með 260 lestir og þriðji Huginn með 253 lestir. Aðrir, sem náð hafa 200 lesta markinu eru: Albert úr Grinda- vík með 240 lestir, Þórkatla II. með 214 lestir, Sæunn með 209 lestir, Þorlákur með 209 lestir og Andvari með 203 lestir. Fyrstu 2 mánu’ði ársins var bol fiskaflinn orðinn 14.614 lestir, en á hálfum mánuði eða til 15. marz bættust við 19.198 lestir. Dómur í máli Cunnars V. Frederiksen: Hlaut 16 ára fangelsi I SAKADÓMI Reykjavíkur var í gær kveffinn upp dómur í máli því, sem ákæruvaldið höfðaði gegn Gunnari Viggó Frederik- sen, fyrrv. flugstjóra, fyrir mann dráp. Gunnar var dæmdur í 16 ára fangelsi og til að greiða all- an kostnað sakarinnar. Dómsorð er svohljóðandi: „Ákærði, Gunnar Viggó Fred- eriksen, sæti famgelsi í 16 ár. Gæzluvarðihaldsvist áikærða síð an 9. maí 1968 komi með fullri dagatölu refsingu hans til frá- dráttar. í Ákærði greiði allan kostnað sakarinnar, þar með taiin saik- sóknaralaun til ríkissjóðs, kr. 80.000.00, svo og málsvarnarlaium og réttarigæzlulaun skipaðs verj- anda síns, Raignars Jónssonar, hæstaréttarlögmanns, kr. 80.000.- 00. Dómi þessum Skal fullnægja með aðför að lögium". I forsendum dómsins segir m. a. á þessa leið: „Með framlburðum ákærðs og vitna, svo og öðrum gögnuim málsins, sem rafcin hafa verið í fyrri köfiuim dómsins, er sannað Framhald á bls. 27

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.