Morgunblaðið - 15.04.1971, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. APRÍL 19*71
11
70 ára i dag:
Óskar Gíslason
ljósmyndari
í>að er fátt annað en silfur-
grátt hárið, sem gefur aldur
Óskars Gíslasonar til kynna. f>ó
á hann að baki sjötíu ár, og það
eru ekki sjötíu atburðasnauð
því hann hefur hrærzt í hring
iðu mikilia atburða allt sitt líf.
Þessi greinarstúfur á ekki að
verða nein drög að ævisögu.
Samt er ekki unnt að komast
hjá þvi að minnast nokkurra
atriða úr starfsævi Óskars. Ung
ur ákvað hann að velja sér ljós
myndaiðnina, eða ljósmyndalist-
ina eins og meira réttnefni er,
að ævistarfi. Hann vildi skrá
atburði líðandi stundar og sam-
tíðarmenn sina á spjöld sögunn
ar með tækni nýs tíma.
Senn er hálf öld liðin síðan
Óskar lauk námi í Ijósmyndun
og alla tíð síðan hefur hann ver-
ið titlaður Ijósmyndari. Þann
titil ber hann vissulega með
heiðri og sóma. Hann hefur ver-
ið trúr þeirri köllun sinni að
auðga spjöld sögunnar, en svo
hlálega hafa örlögin farið að
ráði sínu að hans mun ekki fyrst
og frernst verða minnzt sem Ijós-
myndara, því hann leit hálfsyst-
ur ljósmyndalistarinnar, kvik-
myndalistina, fljótt hýru auga
og helgaði henni krafta sína
mörg beztu starfsár sín.
Ljósmyndin getur lýst atburð
um og fólki á snilldarlegan hátt
og í henni speglast mann-
leg gleði og sorg sé rétt á málum
haldið. En hún sýnir aðeins
augnabliksbrot þess sem var og
er, þar sem kvikmyndalistin
varðveitir atburði í heild, að
draganda, viðbrögð og afleiðing
ar.
Þó grunar mig að þessi tján-
ingarmunur sé ekki aðalástæð-
an til þess að Óskar fór að fást
við kvikmyndagerð fyrir al-
vöru á fimmta áratugi ærvi sinn-
ar og aldarinnar, eftir að hafa
um alllangt skeið sýslað með
kvikmyndavélar, heldur hafi
það ráðið að hann fann að þar
var eitthvað nýtt, forvitnilegt
og hieillandi á ferð — ævintýrið.
Svo mikið er vist að Óskar
Gíslason gerðist ásamt Lofti
heitnum Guðmundssjmi aðal-
frumherji íslenzkrar kvik-
myndagerðar, og gerði það svo
hressilega, að enn ber hann höf-
uð og herðar yfir aðra landa
sína á því sviði.
Ég held að varla nokkur mað-
ur geri sér nú grein fyrir þvi,
hve mikinn kjark þurfti á þeim
árum til þess að leggja út í
kvikmyndagerð hérlendis í svo
stórum stíl, sem Óskar gerði, að
leggja aleigu sína í svo algera
nýjung. Tæknin var frumstæð á
okkar mælikvarða, engin að-
staða í landinu til þess að vinna
myndirnar, efni dýrt og markað-
ur litffl. Ef til vffl á ekki að
nefna þetta kjark, heldur of-
dirfsku ævintýramannsins. En
Óskar lét erfiðleikana ekki
aftra sér. Hann lét sér ekki
nægja að vera hlutlaus áhorf-
andi með vél fyrir auga, heldur
réðst hann í það stórræði að
hefja framleiðslu leikinna
mynda, kom upp vísi að kvik-
myndaveri í Reykjavtk og gerði
margar myndir með fjölda is-
lenzkra leikara. En» í dag hef-
ur enginn annar íslendingur ráð
ist i slíkt stórræði í kvikmynda-
gerð.
Ekki lét Óskar heldur sitt eft
ir liggja í gerð frétta- og
heimildarmynda, og nægir 1 þvi
sambandi að nefna eina mynd
hans af því tagi og þá frægustu,
myndina um björgunarafrekið
við Látrabjarg. Björgunin var
mikið þrekvirki, en það er
myndin einnig, þótt á annan
hátt sé. Það þarf vist töluvert
til að þeir hæli mönnum annað
eins og þeir hafa hælt Óskari
fjæir kjark hans og frammistöðu
í þvf máli, karlarnir fyrir vest-
an, sem unnu afrekið mikla við
Látrabjarg og unnu með Óskari
við gerð myndarinnar. VSst er
um það, að ekki heldur á þvi
sviði hefur nokkur annar Is-
lendingur komizt enn með tæm-
ar, þar sem Óskar hafði þá hæl-
ana.
Þegar sjónvarpið tók til
starfa var Óskar Ghslason ráð-
inn til þess að setja á stofn
framköllunardeild kvikmynda
deildar þess og við hana hefur
hann starfað siðan, og einnig
ljósmyndað fyrir sjónvarpið. Ég
sagði í upphafi að það væri fátt
annað en silfurgrátt hárið, sem
gæfi til kynna að Óskar væri
orðinn sjötugur. Það er ekki al-
veg rétt. Hin dæmafáa rósemi
hans og æðruleysi, hin einstaka
lipurð hans og kurteisi í sam-
skiptum við annað fólk, er að-
alsmerki roskins manns, sem
siglt hefur krappan sjó á at-
burðaríkri ævi og er sáttur við
Guð og menn. Og vissulega hef-
ur Óskar oft þurft á æðruleysi
siínu að halda frumbýlingsár
sjónvarpsins. Þeim manni, sem á
þeim árum hefur aldrei látið sér
um munn fara styggðaryrði um
náungann, er ekki fisjað saman.
Ég held ég hljóti að mæla fyr-
ir munn allra samstarfsmanna
Óskars við sjónvarpið, þegar ég
þakka honum einstaka viðkynn
ingu og óska honum og
Ingibjörgu konu hans bjartrar
framtíðar.
Magnús Bjarnfreðsson.
Óskar Gíslason ljósmyndari
er sjötugur í dag. Hann hefur
unnið að ljósmyndun i hartnær
hálfa öld, og þótt hann hefði
ekkert annað starfað á þeim
tíma myndu ljósmyndir hans ein
ar nægja til þess að skipa hon-
um í háan sess meðal þeirra sem
skráð hafa sögu lands og þjóð-
ar á þessum mikla umbrotatíma.
Hann hefur hins vegar ekki
látið þar við sitja, þvi hann er
sá núlifandi Islendingur, sem
hæst ber í sögu kvikmyndagerð-
ar hérlendis.
Við, sem nú störfum við kvik-
myndagerð, getum vart gert
okkur í hugarlund það áræði og
þann dugnað sem þurfti til þess
að vinna það brautryðjenda-
starf sem Óskar og Loftur heit-
inn Guðmundsson unnu, þegar
þeir hófu upp úr stríðinu gerð
fyrstu íslenzku talmyndanna og
réðu fjölda leikara til starfa.
Loftur reisti kvikmyndabyggð
uppi við Meðalfeilsvatn og
Óskar kom upp kvikmyndaveri
Reykjavtik. Næstu árin fram-
leiddi Óskar margar leiknar
myndir, bæði svart-hvitar og í
litum, og enn sem komið er hef-
ur enginn fetað i fótspor hams
hérlendis i þeim efnum.
Þótt Óskar legði mikla
áherzlu á gerð leikinna mynda
var honum ekki siður ljóst gildi
heimildarmynda. Okkur þykir
nú næsta sjálfsagt að sjá að
kvöldi fréttamyndir af atburð
um dagsins, en á árum stðarj
heimsstjmjaldarinnar var við-
horfið annað. Þá var engin að-
staða til framköllunar á kvik-
mjmdafilm'uim, hvað þá kiippimg-
ar, til hériendis. Þegar lýðveld-
ið var stofnað 1944 tók Óskar
mjmdir hátiðadagana, framkall-
aði þær heima hjá sér um nætur
og klippti þær til og tveim dög-
um eftir hátíðahöldin gátu
Reykvikingar séð þau í kvik-
myndahúsunum.
Árið 1948 gérði Óskar ein-
hverja merkustu heimildar-
mynd sem enn hefur verið gerð
hérlendis, Björgunarafrekið við
Látrabjarg. Erfiðleikamir, sem
við var að etja við gerð þeirr-
ar mjmdar, hefðu reynzt hverj-
um meðal manni óyfirstiganleg-
ir, en Óskar sigraðist á þeim
með hjálp þeirra, sem unnu hið
mikla afrek við Bjargið.
Þegar Félag kvikmyndagerð-
armanna var stofnað árið 1966
gerðist Óskar einn af stofnend-
um þess og hefur átt sæti í
stjóm þess frá upphafi og er
f jmsti og eini heiðursfélagi þess.
Við þessi tímamót í lífi hans flyt
ég honum fjmir hönd Félags
kvikmyndagerðarmanna þakk-
læti fyrir hið mikla og óeigin-
gjarna brautryðjendastarf hans
og árna honum allra heffla
á ævikvöldinu.
Þórarinn Guðnason,
form. Félags
kvikmyndagerðarmanna.
Nauðungaruppboð
Að kröfu innheimtumanns ríkissjóðs verður veðskuldabréf að
fjárhasð kr. 150 þús. útgefið 3. des. 1970 með veði í mb.
Glað I.S. 101 og húseigninni Völusteinsstræti 9 í Bolungar-
vík selt á opinberu uppboði í dómssalnum að Strandgötu 31
í Hafnarfirði föstudaginn 23. apríl n.k. kl. 13,30.
Greiðsla fari fram við hamarshögg.
Sýslumaðurinn í Gulibringu- og Kjósarsýslu 14. apríl 1971 e.u.
Steingrímur Gautur Kristjánsson.
Dömur
líkamsræbt
Líkamsrækt og megrun fyrir konur
á öllum aldri.
Nýr 3ja vikna kúr að hefjast.
4 tímar á viku. Morgun- dag- og kvöldtímar.
Nokkur pláss laus tvisvar í vikuflokkunum.
Þær dömur sem hafa skrifað sig á biðlista,
vinsamlegast hafið samband við skólann
sem fyrst.
Innritun og upplýsingar í síma 83730.
Jazzballettskóli BÁRU
Stigahlíð 45, Suðurveri.
Verzlunin Gull & Silfur við Laugaveg. Inni í verzlnninni sjást
bræðurnir Sigurður (til vinstri) og Magnús Steinþórssynir.
(Ljósm. Mbl. Kr. Ben.)
Smíða eftir hug-
myndum kaupenda
Ný gullsmíðaverzlun við
Laugaveg
Laugardaginn 3. þessa niánað-
ar var opnuð ný gullsmíðaverzl
un að Laugavegi 35, þar sem
verzlunin Kápan var til húsa
um margra ára skeið. Nýja verzl
unin ber nafnið „Gull & silfur,"
og reka hana bræðurnir Sigurð
ur og Magnús Steinþórssynir.
Er Sigurður útlærður gullsmíða
meistari, en Magnús við nám
hjá hontim.
Bræðurnir Sigurður og
Magnús hafa ferðazt um Evrópu
og safnað sér umboðum fyrir er
lendar gullsmíðavörur, meðal
annars fyrir Uppsalasilfur. Eiga
þeir ekki langt að sækja gáf-
una, því faðir þeirra er Stein-
þór Sæmundsson gullsmiður,
annar eiganffl verzlananna
Steinþór og Jóhannes að Lauga-
vegi 30 og Austurstræti 17.
Ný þjónusta verður tekin upp
hjá Gulli & silfri, en hún er sú'
að vinna eftir hugmyndum vænt
anlegra kaupienda. Geta kaup-
endur komið tii gullsmiðanna
með hugmjmdir eða skissur og
fengið gerðar vinnuteikningar.
Smíða brasðurnir síðan gripinn
og taka ljósmynd af hon-
um, er á að gilda sem
trygging fyrir því að
um algjöra frumsmíði sé að
ræða, og að ekki verði smíðaður
annar gripur eftir teikningunni,
Á öllum smíðagripum þeirra
bræðra, verður auk þess að
minnsta kosti eins árs ábyTgð.
Atvinn urekend ur
Ungur maður, sem lýkur prófi í lögfræði í maí næstkomandi,
óskar eftir atvinnu. Margt getur komið til greina.
Tilboð óskast send Morgunblaðinu fyrir 23. þ.m. merkt:
„7226".
BIFVÉLAVIRKJAR
' óskast strax. Góð vinnuskilyrði.
STILLING HF.,
Skeifan 11 — Sími 31340.
Blaðburðar- iélk óskast i eftirtalin hverfi:
Talið við afgreiðsluna í sínta 10100 Suðurlands- braut Hátún