Morgunblaðið - 22.08.1971, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 22.08.1971, Blaðsíða 1
32 SÍÐUR OG LESBÓK 187. tbl. 58. árg. SUNNTJDAGUR 22. ÁGUST 1971 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Kyrrt í Prag — á innrásarafmælinu samkundum. Erfitt var að átta sig á, hvort þátttaka var með- al þorra almennings, enda mik- ill fjöldi erlendra ferðamanna í Prag og margir höfuðborgarbú- ar héldu út í sveit í blíðviðrinu, en í morgun, þegar árrisulir bæjarbúar komu á fætur höfðu blómsveigar verið lagðir á leiði Jan Palachs í Prag. Þekktur en ónafngreindur and- stæðingur innrásarinnar var inntur eftir þvi, hvernig hann hygðist minnast dagsins. Hann svaraði: „Með því að reyna að hugsa ekki.“ Prag, 21. ágúst. — AP I AP-FRÉTTUM frá Prag segir, að svo virðist sem stjórnvöld og almenningur ætii að leggja sig í líma til að forðast átök og óeirðir í dag, en þrjú ár eru nú liðin frá því herir fimm Varsjárbandalagsríkja gerðu innrásina i landið. Ávarpi var dreift frá óleyfi- legum samtökum, þar sem hvatt var til að menn sýndu andstöðu sína með því að vera sem minnst á ferli út á við, fara ekki á krár óg taka ekki þátt í neinum gleði- Nixon hittir Hirohito Anchorage, Tókíó, San Clemente, 21. ágúst. NTB — AP RICHARD Nixon, Bandaríkjafor seti, ætlar að fara til Anchorage Þessa mynd tók Kristinn Benediktsson ljósmyndari Mbi. er hann var á ferð með hjálparsveit skáta í Hat'narfirði, en sveitin var á æfingum á Falljöklinum, sem er við lónið á leiðinni inn í Þórsmörk. Æfingin stóð í 4 daga og var lögð áherzla á björgunaraðgerðir á jöklum og úr sprungum. — Blaða- maður myrtur VARSJÁ 21. ágúst — AP. Jan Gerhard, þekktur pólskur blaðamaður, sem var áður er- lendur fréttaskrifari utan Pól- lands, fannst myrtur í íbúð sinni í Varsjá á föstudagskvöld, að því er pólska fréttastofan PAP sagði. Gerhard var aðalritstjóri „For- um“, sem er vikurit, er prentar þýddar greinar úr helztu blöð- um í Vestur- og Austur-Evrópu. Hann var einnig varaþingmaður. Lögreglan rannsakar nú málið. Japanir hækka ekki gengið í Alaska og iiitta þar Hirohito Japanskeisara þann 26. scptern- ber n.k., cn þann dag millilenðir Japanskeisara í Anchorage á leið til Evrópu. Forsetafrú Bandarikj anna verður með eiginmanni sín um. Nixon tilkynnti þetta í morg un og kvaðst hugsa gott til að eiga tal við Hirohito. Þessi fund ur miili þjóðhöl’ðingja Japans og Bandarikjanna verður sá fyrsti í sögunni, og gefa má þess að Jap anskeisari hefur ekki fyrr farið í slíka utanlandsreisu sem stendur fyrir dyi'um hjá Hirohito. Fréttir um fyrirætlun Nixons forseta komu á óvart og embætt ismenn í Anchorage, þar á með ai borgarstjórinn, kvaðst ekki hafa vitað um hana fyrr en Bandaríkjaforseti greindi frá þessu sjálfur. Sérfræðingar og fréttamenn setja fund þeirra í samband við efnahagsráðstafanir Nixons, sem m.a. hafa haft við- tæk áhrif á stöðu japanska yens- Fárviðri í Sydney SYDNEY 21. ágúst — AP. Mikið fárveður gekk yfir Sydney í Ástralíu aðfararnótt laugar- Gjaldeyrisviðskipti hef jast * á morgun - Ovissa um þróun mála New York, Tókíó, London og Brússel, 21. ágúst. AP-NTB KUSUKE Kashiwagi, sérleg- «r efnahagsmálaráðunautur Japansstjórnar, sem nú er í Washington til viðræðna við bandaríska ráðamenn, sagði á fundi með fréttamönnum í dag, að það væri stefna japönsku stjórnarinnar að hækka ekki gengi yensins þrátt fyrir efnahagsráðstaf- anir Nixons Bandaríkjafor- seta og engin áform væru um sJíka hækkun í framtíðinni. Sem kunnugt er hefur verið lagt mjög hart að Japönum að hækka gengið gagnvart dollaran um. Kashawagi sagöi við frétta- menn að efnahagsráðstafanirnar væru djarfar og stefndu að því að hleypa nýju blóði í bandarískt efnahagslíf. Hann sagði að Jap- anir væru óánægðir með 10% aukatollinn á innfluttum vörum og væntu þess að hann yrði af- numinn hið fyrsta. Talið er, að gjaldeyrisviðskipti hefjist almennt á nýjan leik í Evrópu á morgun, mánu- dag, en mikil óvissa rikir um hvað muni gerast. Ýmsir eru þeirrar skoðunar að viðskiptin verði með eðlilegum hætti, aðrir óttast algert öngþveiti. EBE-lönd in náðu ekki samkomulagi um að láta gjaldmiðla sína fljóta sam- eiginlega innan ákveðins ramma gagnvart Bandaríkjadollara, en Bretar og ítalir sögðu í dag að hugsanlegt væri að löndin létu dollarann fljóta innan vissra tak marka á peningamörkuðum sin- um, en að hin opinbera skráning 2,40 dollax-ar fyrir pundið og 625 lírur í dollara giltu áfram. Frakk ar hafa tilkynnt að tvöfalt kerfi muni gilda í Frakklandi, 5,55 frankar í dollaranum i sambandi við útflutning og innflutning, en að öðru leyti verði dollaranum leýft að fljóta og gengi hans á- kveðið eftir framboði og eftir- spurn. Pierre Trudeau, forsætisráð- herra Kanada sagði í sjónvarps- ávarpi til kanadisku þjóðarinnar, að þúsundir Kandamanna myndu missa atvinnu ef Kanada yrði ekki undanþegið 10% innflutn- ingstollinum. Danska stjórnin skýrði frá því í dag, að gengi dönsku krónunn- ar gagnvart dollaranum yrði ó- Framh. á bls. 31 dags og niiina elztu menn ekki slikt veðnr. Þök flugu af húsum, rúður brotnuðu og rafmagn fór af útborgum í nokkra klukku- tima. Mikil úrkoma fylgdi þessu aftakaveðri. Engin slys nmnu liafa orðið á mönnum. Ky aftur í framboð Hæstiréttur breytti úrskurði sínum Saigon, 21. ágúst. — AP-NTB HÆSTIRÉTTUR S-Víetnam breytti í dag óvænt úrskurði sínum varðandi framhoð Kys varaforseta í forsetakosning- unum sem fram eiga að fara 3. októher n.k. Lýsti hæsti- réttur því að framboð Kys væri lögmætt og að nafn hans skyldi sett á kjörseðilinn. Hæstiréttur hafði áður, 6. ágúst, kveðið úr um að fram- boð Kys fullnægði ekki sett- um rcglum. Ákvörðun hæstaréttar kom mjög á óvart, en talið er að það hafi verið Thieu forseti, sem skipaði réttinum að breyta úr- skurðinum, eftir að hershöfðing- inn Minh dró framboð sitt til baka í gær. Vitað er að Ells- worth Bunker, sendiherra Bandaríkjanna i Saigon, hefur lagt hart að Thieu í máli þessu og heimildir herma að hann hafi afhent forsetanum harðorða orð- sendingu frá Nixon Bandarikja- forseta þess efnis að ef Thieu forseti yrði einn í framboði, yrði nær ógerlegt að fá Banda- rikjaþing til að halda áfram efnahags- og hernaðaraðstoð við S-Víetnam og að háværar radd- ir myndu verða uppi um að kalla bandarískt herlið heim frá S-Víetnam. Heimildir i Saigon segja að Bunker sendiherra hafi átt marga fundi með Ky og Thieu og hafi sagt Thieu að hann hefði gengið of langt i þvi að útiloka Ky frá framboði. Þá er sagt að Bunker hafi fullvissað Ky um að Bandaríkjastjórn myndi teija framboð hans jafn mikilvægt og íramboð Thieus. Dkki var vitað er Mbl. fór í prentun hver Framh. á bis. 31

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.