Morgunblaðið - 03.07.1974, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 03.07.1974, Blaðsíða 1
28 SIÐUR 113. tbl. 61. árg. MIÐVIKUDAGUR 3. jULl 1974 Prentsmiöja Morgunblaðsins. ÞJOÐARSORG ÍARGENTÍNU □-----------------------□ Sjá einnig á bls. 13. □ ---------------------- □ Buenos Airez, 2. júlí, AP, NTB. DJtJP og almenn sorg ríkti f Argentfnu í dag, er fram fór fyrri hluti útfarar Juans Perons, for- seta landsins, sem lézt f gær, 78 ára að aldri. Gffurlegur mann- fjöldi fylgdi hinum látna þjóð- höfðingja sfnum um götur höfuð- borgarinnar, Buenos Airez, yfir hið sögulega torg, Plaza de Mayo, til dómkirkju, þar sem fram fór kveðjuathöfn — og sfðan til þing- hússins, þar sem kista hins látna mun liggja á viðhafnarbörum til morguns, er hann verður jarð- settur. Kista forsetans var flutt á fall- byssuvagni, sveipuð dúk í argentínsku fánalitunum, bláu og hvítu. Rauðklædd riddarasveit reið á undan vagninum en næst á eftir honum ók bifreið Isabelu, ekkju Perons, sem nú hefur tekið við embætti forseta. Átta þúsund hermenn stóðu vörð meðfram leiðinni, sem farin var. Þúsundir manna fylgdust með athöfninni. Lét fólk sorg sína óspart í Ijós, grét og stráði blómum yfir kistuna með hrópum Framhald á bls. 16 Samþykkt NA-Atlantshafefískveiðinefndarinnan Tillit tekið til hefð- bundinnar hlutdeildar Ósló, 21, júlf NTB 1 LOK ársfundar Norðaustur Atlantshafsfiskveiðinefndarinn- ar f Bonn f dag var samþykkt — gegn atkvæðum lslendinga einna — ályktun, þar sem segir, að frá næsta ári að telja skuli við kvóta- skiptingu tekið „tilhlýðilegt tillit til hefðbundinnar hlutdeildar einstakra rfkja f sildveiðum. Þar er einnig tekið fram, að f framtfð- inni skuli miðað við setningu heildarkvóta sem hafi f för með sér hraða uppbyggingu sfldar- stofnanna. Með þessari ályktun er komið til móts við sjónarmið Norðmanna og Pólverja, sem í marz sl. mót- mæltu heildarveiðikvótanum fyrir tímabilið 1. júlí 1974 til 30. júní 1975. Töldu þessi ríki heildarveiðikvótann, 488 þús lestir, of ríflegan fyrir stofnana og jafnframt töldu þau ekki nægi- legt tillit til sögulegrar hlut- deildar einstakra ríkja í veiðun- um. Norðmenn töldu t.d. sinn hlut of lítinn, 109.000 lestir og ákvað norska fiskimálaráðuneytið síðar, að hann skyldi vera 120.000 lestir. □ Mynd þessi af forseta Bandarfkjanna, Richard Nixon, og Leonid Brezhnev leiðtoga sovézka kommúnistaflokksins var tekin sl. sunnudag, er þeir skegg- ræddu heimsmálin I bústað Brezhnevs í orlofsbænum Yalta við Svartahaf. Samkomulag í Moskvu? Nixon boðar nýjan fund með Brezhnev að ári Moskvu, 2. júlí AP — NTB. Leonid Brezhnev, leiðtogi sovézka kommúnistaflokksins upplýsti f kvöld, að hann og Richard Nixon, forseti Bandarfkjanna, hefðu komizt að samkomulagi um að takmarka framleiðslu gagn- flaugakerfa og draga úr neðan- jarðartilraunum með kjarnorku- vopn. Sömuleiðis hefðu þeir orðið á eitt sáttir um að gera nýjar tilraunir til að takmarka birgðir kjarnorkuvopna. Brezhnev upplýsti þetta í ræðu, sem hann hélt í kvöldverðarboði Bandaríkjaforseta í Moskvu en áður hafði Nixon boðað í sjón- varpsræðu, að þeir mundu hittast aftur að ári. Af ræðu hans drógu stjórnmálafréttaritarar þá álykt- un, að ekki hefði náðst samkomu- lag um ofangreind atriði. Ræðan var býsna almenns eðlis, fjallaði um samningaviðræðurnar vítt og breitt og sagði Nixon þar, að stjórnir Bandaríkjanna og Sovét- ríkjanna hefðu horfið frá átökum til samninga og væru nú að læra hina erfiðu samningalist. Ræðu Nixons var sjónvarpað beint frá Kreml en meðan á við- Framhald á bls. 16 Stefnubreyting Rússa í Caracas: Samkeppni við Kínverja um fylgi þriðja heimsins Rússar snúast gegn eftirliti FORMAÐUR kfnversku sendi- nefndarinnar á hafréttarráðstefn- unni f Caracas f Venezuela flutti stefnuræðu stjórnar sinnar f gær og notaði tækifæri til harðorðra, pólitfskra árása á stórveldin og þó sérstaklega á Sovétrfkin, að þvf er fram kom f fréttum frá AP og NTB. Fulltrúinn, Chai Shu-fan, sagði, að stjórnir stórveldanna tveggja sem ættu f margháttuðum erfið- leikum heima fyrir, bæru ábyrgð á þeirri ólgu, sem f heiminum væri, — en bætti þvf við, að þeir dagar væru liðnir, er þau hefðu getað hagað sér eins og þeim sýndist „og vonandi koma þeir aldrei aftur“, sagði hann. Chai Shu-fan sagði að stórveld- in beittu hugtakinu „frelsi á haf- inu“ til þess að ógna öðrum lönd- um og talaði um að „stórveldi, sem veifaði fána sósfalismans, væri sérstaklega slæmt með þetta — þetta ríki hefði tekið í arf þá kennisetningu, að sá sem stjórnaði heimshöfunum, stjórnaði heiminum og því teygði það sig í allar áttir og smeygði sér inn f hverja smugu — og með blíðmælgi og vináttuhjali tryggði það sér not af höfnum hinna ýmsu strandríkja. Þá stefnu- breytingu Sovétríkjanna að taka undir kröfuna um 200 mflna efna- hagslögsögu í grundvallaratriðum — að vissum silyrðum uppfylltum — kvað fuíltrúinn til þess eins að koma sér í mjúkinn hjá ríkjum þriðja heimsins, en samtimis reyndu þau að ná í sinn hlut af þeim afla sem ríkin gætu sjálf ekki veitt. Loks ítrekaði full- trúinn stuðning Kfnverja við 200 mflna efnahagslögsögu og að strandrfki hefðu fulla stjórn á umferð um sund, er lægju innan landhelgi þeirra. Nokkru áður en síðdegis- fundurinn í Caracas hófst í gær, þar sem kínverski fulltrúinn hélt ræðu sína, hafði Morgunblaðið samband við íslenzku sendinefnd- ina á hafréttarráðstefnunni og kom fram f samtali við Má Elís- son, fiskimálastjóra, að sinna- skipti Sovétmanna væru m.a. rakin til baráttu þeirra við Kfn- verja um hylli ríkja þriðja heims- ins. Már sagði, að vissulega væri þessi afstöðubreyting Sovétríkj- anna mikilvæg en þó væri bezt að taka henni með nokkrum fyrir- vara, því að eftir væri að leysa úr ýmsum hnútum, sem henni væru samfara; þau settu ýmis skilyrði fyrir viðurkenningu 200 mílna efnahagslögsögu, m.a., að þá yrði viðurkenndur réttur fjarlægra Framhald á bls. 16 Genf, 2. júlí. NTB — AP. RtJSSAR sögðu f dag, að þeir mundu ekki fallast á eftirlit á staðnum með hugsanlegum samn- ingi um bann við kjarnorkutil- raunum neðanjarðar. Aðalfulltrúi Sovétrfkjanna á af- vopnunarráðstefnunni f Genf, Alexei A. Roshchin, sagði f upp- hafi sumarfunda, að slfkt eftirlit væri ónauðsynlegt. Hann ftrekaði fyrri yfirlýsingar Sovétrfkjanna um að bráða- birgðabann við meiriháttar kjarnorkutilraunum neðanjarðar verði að vera tengt tfmaáætlun, sem miði að banni við öllum til- raunasprengingum. Bæði Roshchin og bandarfski fulltrúinn, Joseph Martin, sögðu, að toppfundur Nixons forseta og Leonid Brezhnevs flokksleiðtoga hefði verið mjög mikilvægur. Martin talaði um sögulegan topp- fund og kvaðst vona, að hann gæti skýrt ráðstefnunni frá nýjum af- vopnunarráðstöfunum áður en langt um liði. Margir fundarmenn sögðu síð- an, að þeir hefðu vonazt eftir ein- hverju í dag um neðanjarðartil- raunir frá toppfundinum f Moskvu. En þeir sögðu, að viðræð- urnar virtust hafa lent í einhverj- um ógöngum. Roshchin hvatti til stuðnings við tillögur Sovétríkjanna um bann við öllum kemiskum vopn- um. Bandaríkin eru andvíg sov- ézku tillögunni af ótta við, að Sov- étríkin fallist ekki á nauðsynlegt eftirlit. Hann sagði, að Rússar mundu staðfesta á þessu ári samninginn um bann við líffræði- legum vopnum. Sadat heim frá Sofíu Sofiu, 2. júlí. AP í DAG lauk þriggja daga opin- berri heimsókn forseta Egypta- lands, Anwars Sadats, í Búfgaríu. I veizluræðum lýstu hann og gest- gjafi hans Todor Zhivkov, forseti þvi yfir, að sameiginlegt markmið þeirra væri að berjast gegn heimsveldastefnu, Zionisma og árásarstefnu. Fátt annað var upp gefið um viðræður þeirra en að heimsóknin markaði þáttaskil í samvinnu þeirra.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.