Morgunblaðið - 17.07.1974, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. JULI 1974
3
Þjóðhátíð Snæfell-
inga og Hnappdæla
um næstu helgi
Skátarnir vinna með
margvíslegu móti að
fegrun og uppbygg-
ingu staðarins. Hér
sést hinn kunni
skátaforingi frá
Akureyri, Tryggvi
Þorsteinsson,
gróðursetja blóm
ásamt tveimur
skátastúlkum frá
Akureyri. — Ljósm.
Mbl. — sh.
LANDNÁM
skátanna
að
Úlfljóts-
vatni:
Rækta upp landið og
bæta náttúruspjöll
MEÐAL dagskrárliða á lands-
móti skáta, sem haldið er að
Ulfljótsvatni þessa dagana, er
liður, sem nefnist LANDNAM.
Er þar um að ræða landgræðslu
og uppbyggingarstörf við Ulf-
ljótsvatn og er þátttaka f þessu
starfi liður f einstaklings- og
flokkakeppni skátanna.
LANDNAMIÐ hófst á mánu-
daginn og var þá hafizt handa
um að bæta náttúruspjöll og
reyna að rækta upp landið.
Fjölda margir skátar hófu að
bera túnþökur upp að
háspennulfnumastri, sem
stendur f hlfð Ulfljótsvatns-
fells, og var svæðið f kringum
mastrið þakið, svo að þar er nú
myndarlegur túnblettur.
Landsvirkjun lagði til þök-
urnar, en skátarnir sáu um
lagningu þeirra.
Þá var einnig f arið í að ganga
frá flögum f hlíðinni og annars
staðar við mótssvæðið og undir-
búa undir sáningu. Verður sáð í
þau strax að mótinu loknu.
Einnig á að skera niður rofa-
börð og mynda betri halla, sem
hægt verður að sá f þannig að
hefta megi landrof af völdum
uppblásturs.
„Þetta starf hefur gengið
ákaflega vel,“ sagði Bergur
Jónsson mótsstjóri í samtali við
Morgunblaðið, ,,og það hefur
verið ákaflega ánægjulegt að
fylgjast með, hvernig þessu
verki hefur miðað áfram.“
I gær voru m.a. á dagskrá
bílferðir í Þjórsárdal, hringinn
kringum Þingvallavatn og
hringferð á Selfoss, Eyrar-
bakka og Hveragerði. Sú ferð
var tengd heimsóknum í ýmis
atvinnufyrirtæki. Var aðsóknin
svo gífurleg að þeirri ferð, að
þegar mörg hundruð skátar
voru búnir að láta skrá sig í
hana varð að loka fyrir frekari
þátttöku, þar sem ekki var unnt
að flytja stærri hóp.
I dag, miðvikudag, er m.a á
dagskrá heimsókn ýmissa boðs-
gesta. Eru í þeim hópi forseti
íslands, borgarstjórinn í
Reykjavík, gamlir skátaforingj-
ar, sveitarstjórnir f nágranna-
byggðum Ulfljótsvatns og ýms-
ir aðrir aðilar, sem lagt hafa
skátunum lið á einn eða annan
hátt. I dag lýkur einnig keppni
sex skátaflokka í landskeppn-
inni „Skátaflokkur 1100“ og í
kvöld verður einn helzti varð-
eldur mótsins. Á föstudaginn er
sérstakur heimsóknardagur
fyrir ljósálfa og ylfinga og á
laugardag er almennur heim-
sóknardagur. Mótinu lýkur á
sunnudag.
ÞJOÐHATlÐ Snæfellinga og
Hnappdæla verður haldin á Búð-
um á Snæfellsnesi n.k. laugardag
og sunnudag, 20. og 21. júlf. Verið
er að leggja sfðustu hönd á undir-
búning allan og búizt við þvf, að
gestir verði 1500—3000 talsins að
sögn þjóðhátfðarnefndar.
Samband ungmennafélaga og
kvenfélaga í sýslunni sér um allar
veitingar og hefur bækistöð sfna á
Hótel Búðum ásamt lögreglu,
sjúkraliði og öðru starfsliði.
Veitingar verða þó ekki seldar í
hótelinu heldur f skúrum, sem
komið verður fyrir á hátíðar-
svæðinu.
Dagskráin hefst á laugardaginn
klukkan 16, en þá verður hátíðin
sett af formanni þjóðhátíðar-
nefndar, Árna Emilssyni. Fjöl-
Sumarnámskeið
lýðháskólans
í dag kemur f Skálholt hópur
danskra lýðháskólakennara. Gest-
ir þessir eru þrjátíu talsins og
munu þeir dvelja á skólanum eina
viku.
Þetta er fyrsta meiri háttar
heimsóknin, sem Lýðháskólinn í
Skálholti fær frá systurskólum
sínum austan Islands ála. Sú
hefur frá upphafi verið von for-
ráðamanna skólans, að stofnunin
yrði í nokkrum mæli miðstöð
norrænna menningartengsla, er
fram lið.u stundir. Nú er sú starf-
semi hafin og er það nokkurt
Framhald á bls. 16
Skálholtshátíð á sunnudag
breytt dagskrá verður á laugar-
daginn og lýkur henni með dans-
leik, sem haldinn verður undir
berum himni. Á sunnudaginn
hefjast hátíðarhöldin klukkan 14
með guðsþjónustu, sem sr. Rögn-
valdur Finnbogason á Staðarstað
annast, kirkjukórar víðs vegar af
Snæfellsnesi syngja. Dagskráin er
einnig fjölbreytt þennan dag. öll
meðferð áfengis er bönnuð og
væntir þjóðhátíðarnefnd þess, að
skemmtunin fari jafn vel fram og
þjóðhátíðir annars staðar á
landinu.
SKÁLHOLTSHÁTÍÐIN
verður haldin n.k. sunnu-
dag, 21. júlí, og hefst kl.
13.30 með klukknahring-
ingu og messu. Biskup Is-
lands, herra Sigurbjörn
Einarsson, og séra
Guðmundur ÓIi Ólason
þjóna fyrir altari, séra
Valdimar Eylands dr.
theol. prédikar. Með-
hjálpari verður Björn
Erlendsson. Skálholts-
kórinn syngur, forsöngvar-
ar verða Ingvar Þórðarson
og Sigurður Erlendsson.
Jón Sigurðsson og Sæbjörn
Jónsson leika á trompet og
Árni Arinbjarnarson á
orgel. Söngstjóri verður
Haukur Guðlaugsson.
Samkoma verður í
kirkjunni kl. 16.30 og verö-
ur leikin tónlist eftir Pál
Isólfsson og Sigurð Einars-
son. Þórarinn Þórarinsson
skólastjóri flytur ræðu og
séra Sigurður Sigurðarson
les úr ritningunni og flytur
bæn.
Ferðir verða frá
Umferðarmiðstöðinni í
Skálholt kl. 11 á sunnudag
og aftur til Reykjavikur kl.
18.
Þjóðhátíðarhelgi
í Hafnarfirði...
Hús Bjarna riddara
opnað á laugardag
Um næstu helgi halda Hafn-
firðingar þjóðhátíð sína. Laugar-
daginn 20. júlí n.k. verður opnuð
yfirlitssýning hafnfirzkra málara
í Iðnskóla Hafnarfjarðar. Munu
13 hafnfirzkir málarar sýna verk
sín þar. Verður sú sýning opnuð
kl. 14,00.
Hús Bjarna riddara Sívertsen
verður opnað kl. 16,00 sama dag
svo og sýning í sjóminjum í
Brydehúsi og gömlu slökkvistöð-
inni. Hús Bjarna hefur nú verið
endurbyggt og gert úr garði eins
og menn telja, að það hafi litið út,
er Bjarni riddari Sívertsen bjó
þar. Húsið verður búið húsgögn-
um og munum úr búi Bjarna. —
Við opnun hússins munu Gunnar
Ágústsson hafnarstjóri, Þór
Magnússon þjóðminjavörður og
Kristinn Ö. Guðmundsson bæjar-
stjóri flytja ávörp. Lúðrasveit
Hafnarfjarðar mun leika fyrir
utan húsið.
Aðal hátíðisdagurinn verður
sunnudaginn 21. júlí. Þá munu
skátar flagga á hamrinum kl. 9,00.
Kl. 9,30 hefst guðsþjónusta í
Hafnarfjarðarkirkju og mun síra
Garðar Þorsteinsson prófastur
Seðlaveski
í óskilum
SEÐLAVESKI með 5.500 krón-
um var skilið eftir f afgreiðslu
Tryggingastofnunar rfkisins
sfðari hluta dags sl. miðviku-
dag. Eigandi veskisins getur
vitjað þess f sfmaafgreiðslu
Tryggingastofnunarinnar, geti
hann gefið nákvæma lýsingu á
veskinu.
prédika. Vígsla heiðursmerkis
sjómanna, sem staðsett er við
Strandgötu, fer fram kl. 10,00.
Forseti bæjarstjórnar, Stefán
Jónsson, flytur ræðu. Rannveig
Vigfúsdóttir afhjúpar minnis-
merkið, Ingveldur Hjaltested
syngur einsöng. Karlakórinn
Þrestir og Lúðrasveit Hafnar-
fjarðar leika og syngja við
heiðursmerkið. Heiðursmerkið er
hannað af Þorkeli Guðmundssyni
innanhússarkitekt.
Minnismerki Arnar Arnarsonar
á homi Austurgötu og Strandgötu
verður vígt kl. 11,00. Vígsluræðu
flytur Jóhann Gunnar Ólafsson
fyrrv. bæjarfógeti. Sigurveig
Hanna Eiríksdóttir ies úr ljóðum
skáldsins. Karlakórinn Þrestir
syngur við minnismerkið og
Lúðrasveit Hafnarf jarðar leikur.
Safnazt verður saman í Hellis-
gerði kl. 13,30 og leikur Lúðra-
sveit Hafnarfjarðar þar í hálfa
klukkustund. Formaður þjóð-
hátíðarnefndar Hafnarfjarðar,
Hrafnkell Ásgeirsson, setur hátíð-
ina kl. 2. Fríkirkjuprestur, síra
Guðmundur Öskar Ólafsson, flyt-
ur hugvekju. Karlakórinn Þrestir
syngur sálma á undan og eftir
ræðu síra Guðmundar.
Gengið verður f skrúðgöngu frá
Hellisgerði að Hörðuvöllum og
hefst dagskráin þar kl. 15,00.
Aðalræðu hátíðarinnar flytur
Kristinn 0. Guðmundsson bæjar-
stjóri. Ester Kláusdóttir flytúr
hátíðarljóð samið af Magnúsi
Jónssyni kennara. Inga María
Eyjólfsdóttir syngur einsöng.
Fimleikafélagið Björk sýnir
fimleika og keppt verður í víða-
vangshlaupi. Sérstök skemmti-
atriði verða fyrir börn, leikþáttur
og fleira. Karlakórinn Þrestir og
Lúðrasveit Hafnarfjarðar munu
syngja og leika á Hörðuvöllum og
Framhald á bls. 16