Morgunblaðið - 17.07.1974, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 17.07.1974, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. JULÍ 1974 Attræður í daa: Johan Ronning forstjóri I dag, 17. júlf, verður Johan Rönning áttræöur. Hann er fædd- ur I Hadsel í Vesterálen í Norður- Noregi árið 1894, þriðji í röð sjö systkina. Snemma beindist hugur Rönn- ings að tækninni og ungur að árum hóf hann nám f rafvirkjun og starfaði hjá hinu þekkta fyrir- tæki Elektrisk Bureau í Osló, en það kom í hlut þessa fyrirtækis að afgreiða rafvélar og búnað í Elliðaárstöðina og var það hlut- verk Rönnings, þá aðeins 26 ára að aldri, að annast þessa verk- framkvæmd. En það var fyrsta dag janúar 1921 að Rönning fyrst steig á íslenzka grund. Verk þetta leysti hann af hendi með ágætum og fór aftur til Noregs 12. ágúst 1922. Ekki hafði Rönning dvalið lengi í Noregi, er hann hugði á fram- haldsnám og fór því til Þýzka- lands og brautskráðist þaðan frá tækniskóla sem rafmagnstækni- fræðingur. Svo er það vegna tilmæla Stein- grfms Jónssonar, fyrrum raf- magnsstjóra, að Rönning kemur aftur til tslands 2. nóvember 1926 og tekur upp störf hér að nýju, þá sem verkstjóri í fyrirtæki Júlíus- ar Björnssonar, rafvirkjameist- ara. En árið 1933 er Rönning orð- inn svo mikill Islendingur, að hann gerist rfkisborgari og setur á stofn sitt eigið fyrirtæki. Þetta fyrirtæki verður brátt eitt hið stærsta sinnar tegundar og tekur stóran þátt í allri uppbygg- ingu næstu þrjá áratugina. En 1961 er verktakastarfseminni hætt og rekstur fyrirtækisins breytt í umboðs og heildverzlun með rafmagnsvörur. Af þessu má sjá, að Rönning er óumdeilanlega einn af brautryðj- endum rafmagnsmála hér á landi, enda haft með að gera mjög marg- ar og mikilvægar framkvæmdir á þessu sviði. Sem rafvirkjameistari hefur Rönning brautskráð á sjötta tug sveina, sem allflestir starfa áfram við rafvirkjun. Á ferðum sfnum um landið heillaðist hann af fegurð þess og gerðist því snemma félagi í mörgum félögum m.a. Ferða- félagi Islands, Jöklafélaginu og Skíðafélagi Reykjavíkur og var í stjórn þess sfðastnefnda fyrstu ár- in. Samt á hann sér aðra íþrótt, sem er öllum öðrum fremri, það eru laxveiðar, en þá íþrótt iðkar hann af slfkri snilld, að fáir leika það eftir. Rönning hafa verið falin mörg • trúnaðarstörf innan sinna sam- taka m.a. setið f stjórn Félags rafverktaka og er nú formaður í stjórn Rafvirkjadeildar samein- aðra verktaka. Þrátt fyrir sérgrein okkar í notkun fornafna, þá höfum við alltaf kallað þig Rönning, ekki Jóhann. Ég get ekki skýrt þetta með öðru en því, að það eru marg- ir Jóhannar en aðeins einn Rönn- ing. Eg óska þér og fjölskyldu þinni til hamingju með þennan merkis- dag. Jón Magnússon. ★ Þeim, sem vilja samfagna Rönning á þessum merka degi, skal á það bent, að hann og kona hans frú Svava hafa opið hús í Domus Medica milli kl. 5 og 7 f dag. í nokkur ár voru skrif- stofur fslenzku flugfélag- anna gegnt hvor annarri við Vester Farimagsgade. Skrifstofa Flugfélags ís- lands að no. 1 og skrifstofa Loftleiða að no. 4. Þessi skipan húsnæðismálanna hélzt enn um sinn eftir að stjórn og verkefni voru sameinuð um áramótin síðastliðin. I síðustu viku fluttist svo starfsemin að Vester Farimagsgade 1. Stutt var að flytja, aðeins þvert yfir 5 Vilhjálmur Guðmundsson Flugfélögin flytja sam- an í Höfn götuna, og á myndinni sjást starfsmenn félaganna flytja skilti Loftleiða að hinni sameiginlegu skrif- stofu, þar sem nafn Flug- félagsins, eða Icelandair eins og félagið heitir er- lendis, var fyrir. Forstjóri íslenzku flug- félaganna í Danmörku og hinnar sameiginlegu skrif- stofu að Vester Farimags- gade 1 er Vilhjálmur Guð- mundsson og aðstoðarfor- stjóri Milton Lundgren. Sigling um 1 safjarðardjúp, heimsóttar eyjarnar nafnfrægu Æðey og Vigur og fleiri markverðir staðir. Ferðir á landi til næstu héraða, Bilferðir um Skaga- fjörð, ferðir til Siglu fjarðar og þaðan um Ólafsfjörð, Ólafs fjarðarmúla, Dalvík og Árskógsströnd til Akureyrar. Hofuðsfaður Norðurlands. Kynnisferðir um gjörvalla Eyja- fjarðarsýslu og til nærliggjandi byggða. i Vaglaskógur og Goðafoss prýða 1 leiðina til Mývatnssygitar. ! mm' ramfarhöfn \húsavík iSWíí, Á Nýtt og glæsilegt hótel. Þaðan eru skipulagðar ferðir og steínsnar til Ásbyrgis Hljóðakletta, Detti- foss, Mývatnssveitar, Námaskarðs og Tjörness. ÍSAFJÖRÐUR; ’v ÞINGEYRl PATREKSFJÖRÐUR^ L Hér er látrabjarg J skammt undan og \ auðvelt er að ferðast * til næstu fjarða. >: _ wí ÞÓRSHÖFN ■ ; ’ ■' ■: ' :■:•■ neskaupstaður ■ Höfuðborgín sjálf. Hér er miðstöð lands- manna fyrír list og mennt, stjórn, verziun og mannleg viðskípti. Hóðan ferðast menn á Þingvöll, til Hvera- gerðis, Gullfoss og Geysis eða annað, sem hugurinn leítar. Áætfunarferðir bíf- reíða tíl nærlíggjandi fjarða. Fljótsdals- hérað, Lögurinn og Hallormsstaðaskagur Innan seilingar. ' i t \ á REYKJAVIK FAGURHÓLl Ferðir i þjöðgarðinn að Skaftafelii, Öraefa- sveit og sjáið jafn- framt Breiðamerkur- sand og Jökulsárlón. Skipulagðar kynnísferðír á landí og á sjó. Gott hótel. y Merklíegt sædýrasafn. Og auðvjtað gldstöðvarnar, sama hvar ferðirt hefst. Sé Isafirði sieppt kostar hringur- inn kr. 6.080. Allir venjutegir afstættir eru veíttír af þessu fargjaidi, fyrir hjón, fjötskyldur, hópa o. s. frv. Kynnið yður hinar tfðu ferðir, sem skipulagðar eru frá flestum lendingarstöðum Fiugfélagsins til nærliggjandi byggða og eftirsóttustu ferðamannastaða. Stærrl áætlun en nokkru slnnl — allt með Fokker skrúfuþotum. Frekarl upplýsingar veita umboðsmenn, ferðaskrifstof- urnarog skrifstofur flugfélaganna. Áætlunarflug Flugfélagsins tryggir fljóta, þægilega og ódýra ferð, og tækifæri til að leita þangað sem veðriö er bezt. í sumar fljúgum við 109 áætlunarferðir í viku milli Reykja- víkur og 13 ákvörðunarstaða um land ailt. Og til þess að tengja einstaka landshluta betur saman höfum við tekið upp hringfiug. Hringfiug okkar umhverfis landið með áætl- unarferðum er sérstakt ferðatilboð til yðar. Fyrir kr. 7.630 getið þér ferðast hringinn Reykjavík — ísafjörður — Akur- eyri — Egilsstaðir —- Hornafjörður — Reykjavik. Það er

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.