Morgunblaðið - 13.07.1978, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 13.07.1978, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. JÚLÍ 1978 Tískusýning í kvöld kl. 21.30. Módelsamtökin sýna dömusumarkápur, jakka og hatta frá Bernhard Laxdal. Auk þess sumarherra- fatnaö frá Sævari Ólafssyni. Jónas Þórir leikur á orgeliö. Frumsýnir nýja ógleymanlega bandaríska kvik- mynd meö úrvals leikurum Síöustu Hamsngjudagar Blaðaummæli: „Fagurlega gerð mynd og frábærlega vel leikin af Peter Falk og Jill Clayburgh." St. Louis Globe Democrat. „Peter Falk er alveg einstakur og Jill Clayburgh er ein besta leikkona Bandaríkjanna. Saman eru þau óvenjulega áhrifamiklir samleikarar. Ágætur leikur þeirra hefur myndina á æðra svið.“ KABC-TV. „Viðkvæmur heillandi leikur af hálfu Peters Falk og Jill Clayburgh." Newsday. „Peter Falk .. er afburöasnjall í þessari mynd.“ N.E.A. íslenzkur texti. Sýnd kl. 5, 7 og 9. Sumarsýning í Norræna húsinu Það er orðinn fastur liður í starfsemi Norræna hússins að efna til sumarsýningar á ís- lenskri list og gefa ferðamönn- um þannig tækifæri til að kynnast myndlist Islendinga. Ekki man ég, hvað þessar sýningar eru orðnar margar, en þær hafa verið mjög misjafnar að gæðum eins og gengur með samsýningar, en ég held, að þær hafi samt gert sitt gagn, og án efa hafa útlendingar, sem séð hafa þessar sýningar, fengið aðrar hugmyndir en eftir að hafa heimsótt söfnin í Reykja- vík, sem ekki eru orðin svo fá: Listasafn íslands, Safn Einars Jónssonar, Kjarvalssal, Safn Ásgríms Jónssonar, að ógleymdu Ásmundarsafni. Þess- ar stofnanir eru allar opnar yfir sumarið, en margir listamenn hafa enga eða litla von til að koma verkum sínum fyrir al- menningssjónir á þessum tíma. Því er það mikill fengur fyrir listamenn að geta sýnt verk sín á sumarsýningu Norræna húss- ins. Ég hef talið hér upp fjölda listasafna í ekki stærri borg en Reykjavík er. Ásgrímssafn er eitt þeira, það vekur því nokkra eftirtekt, að hluti þess safns skuli vera á sumarsýningu Norræna hússins, þegar fjöl- margir listamenn, sem ekki hafa einkasafn í eigu þjóðarinnar, verða að sitja heima með sín verk. Til að forðast allan mis- skilning vil ég taka það fram, að ég er mikill aðdáandi Ásgríms Jónssonar, þegar honum tekst best. En þetta finnst mér vafasöm ráðsmennska, sem ég get ekki þagað yfir. Það er sjálfsagt að senda sýningar á verkum Ásgríms Jónssonar út á No. 70. eftir Sverri Ilaraldsson No. 3. eftir Ásgrím Jónsson landsbyggðina og kynna þannig þennan stórkostlega brautryðj- anda í íslenskri list, en að flytja verk meistarans ofan af Berg- staðastræti og út í Vatnsmýrina finnst mér jaðra við ósmekkvísi. Og þar verða menn að borga kr. 400 fyrir að skoða sína eigin e*gn, gjöf Ásgríms til þjóðarinn- ar. Þeir Sverrir Haraldsson og Bragi Ásgeirsson sýna ásamt Ásgrími á þessari sýningu. Af þessari upptalningu geta menn séð, að mjög ólíkir listamenn eru hér á ferð. Það hefur því verið erfitt að fá gott samræmi í heildarsvip þessarar sýningar, en hins vegar spannar hún nokkuð breitt svið. Nú er það ætíð álitamál, hvernig sýningar eiga að vera saman settar. Ég legg því engan dóm á það atriði, en ég held að réttast sé að líta á þessa sýningu þannig, að hver listamaður sé skoðaður fyrir sig. Ásgrímur Jónsson á þarna 22 vatnslitamyndir, sem allar eru gamlir kunningjar. Val á þess- um verkum, sem komið hefur verið fyrir í innri sal hússins, er að mínum dómi ekki nægilega vandað. Þarna eru gullfallegar myndir, sem eru með því besta, er Ásgrímur hefur gert í vatns- litum, en fáir eða engir aðrir íslenskir listamenn hafa náð þeim árangri, sem Ásgrímur hefur í meðferð vatnslita. Ég bendi á nokkur verk máli mínu til stuðnings: No. 1, 3, 6, 9, 11 og 15, og að lokum tvær frábærar myndir, no. 20 og 21. Það hefur verið borið mikið lof á Ásgrím Jónsson fyrir vatns- litamyndir hans, og á hann það sannarlega skilið, en hánn var eins og allir aðrir miklir lista- menn, dálítið mistækur, og það' kemur greinilega fram í þessu úrvali úr safni hans. Þetta er Urslit kosn- ingagetraun- ar RKÍ NIÐURSTÖÐUR í kosningaget- raun Rauða kross íslands liggja nú fyrir. Alls seldust 20.646 miðar á kr. 500 stykkið eða fyrir samtals kr. 10.323.000.-. Vinningsupphæðin er því kr. 2.064.600.-. I Hjálparsjóð Rauða kross íslands renna kr. 2.7 millj. Sá sjóður er til taks þcgar þörf er skjótrar aðstoðar vegna hörm- unga hér á landi eða crlendis. Fulltrúi borgarfógeta fylgdist með móttöku getraunastampa alls staðar að af landinu, vinnu við að finna rcttar lausnir og útdrátt vinningsmiða. Svo fór að enginn hafði allar tölur réttar, en leikurinn ólst, sem kunnugt er, í því að geta upp á þingmannatölu flokkanna að lokn- um kosningum. 108 manns skiluðu spám með fjórum réttum tölum af sex. Samkvæmt skilmálum getraun- arinnar skiptist því vinningsupp- hæðin milli 50 hinna 108.,Komu því kr. 41.292.- í hlut hvers. Rauði kross Islands færir öllum þakkir, sem tóku þátt í getraun- inni, hinum fjölmörgu sjálfboða- liðum sem þátt áttu í framkvæmd hennar og öllum sem studdu hana með ráðum og dáð. Vinningsnúmer 127,6205,8507, 14242, 14328, 15117, 33402,35401, 37936, 39938, 40116, 44314, 44590, 44940, 49740, 51718, 66305, 69416, 72099,73442, 73799, 76103, 77953, 81911. 108024, 108570, 110430, 110817, 110818, 111026, 115408, 115469, 122629, 122249, 123305, 125518. 128109, 139107, 139607, 140994, 142008, 142807, 143436, 143567, 143643, 143699, 144929, 147127, 147179, 147253. Nær fullgengið frá dvalarheim- ili aldraðra á Stykkishólmi Stykkishólmi, 9. júlí. NÚ ER verið að leggja seinustu hönd á Dvalarheimili aldraðra í Stykkishólmi en margir biða eftir plássi þar. Þar verður dvalarrými fyrir 16 manns, og mun þegar vera fullskipað eða allt að því. Er þess vænst að ekki líði langt áðúr en rekstur heimilisins hefst. Er þarna mjög góð og hentug aðstaða fyrir vistmenn og möguleikar svo að stækka þegar lengra líður og þörfin eykst. Lionsklúbbur Stykkishólms keypti nýlega næsta hús víð heimilið og gaf því þetta litla hús og lóðina í kring en einmitt á þeim stað munu verða mestu möguleikar á til stækkunar heimilisins. — Fréttaritari.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.