Morgunblaðið - 13.07.1978, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 13.07.1978, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. JULI 1978 Unimetric Sandpiper 2500 VHF bátatalstöð • 14 rásir • 25 wött. • Innbyggt kallkerfi. • Greinilegt rásaleturborö. • Fjöldi annarra eiginleika. Unimetric Sea Hawk VHF bátatalstöð • 12 rásir. • 25 wött. • Upplýst rásaleturborð. • Fjöldi annarra eiginleika. 13,70 kr. Framhald af bls. 3. viku fyrirvara. Nýja verðiö var ákveðið af oddamanni og fulltrú- um seljenda í Yfirnefndinni, en fulltrúar kaupenda tóku hins vegar ekki þátt í atkvæðagreiðslu. I yfirnefndinni áttu sæti: Ólafur Davíðsson sem var oddamaður, Kristján Ragnarsson og Ingólfur Ingólfsson af hálfu seljenda og Guðmundur Kr. Jónsson og Jón Reynir Magnússon af hálfu kaupenda. — Bið jum ekki um forréttindi... Framhald af bls. 18 spillir fyrir, því að þessi fatnaður er stundum fluttur inn um milliliði t.d. í Englandi sem þýðir að hann lendir ekki alltaf í þeim tollflokki sem hann Frábær reynsla og bandarísk gæðaframleiðsla tryggir góð kaup. Sérlega hagstætt verð. Heildsala — smásala TYSGOTU 1 SÍMI-10450 PÚSTHÓLF-1071 REYKJAVÍK - ICELAND — Stjórnar- myndun Framhald af bls. 18 að hefjá viðræður milli stjórn- málaflokka um myndun meiri- hlutastjórnar. Svöruðu nú for- menn Alþýðubandalags, Alþyðu- flokks og Samtaka frjálslyndra og vinstri manna allir jákvætt mála- leitan formanr.s Framsóknar- flokksins um stjornarmyndunar- viðræður. Hinn 30. júlí var við- ræðunefndum flokkanna síðan skipt í undirnefndir og var mikið ræðzt við næstu daga. Á síðasta degi júlímánaðar fór strax að brydda á aö um verulegan ágreining væri að ræða innan flokkanna og Þjóðviljinn kvað Gylfa Þ. Gíslason ekki „tilbúinn til þeirrar heilshugar samstöðu um vinstri málefni, sem ein væri forsenda vinstri ríkisstjórnar". Hinn 10. ágúst sagði Ólafur Jóhannesson, formaður Fram- sóknarflokksins, að línur myndu skýrast þá um helgina, en þetta var á laugardegi. Hinn 12. ágúst kom síðan á daginn, að tilraunin hefði mistekizt og að ekki yrði af myndun nýrrar ríkisstjórnar vinstri flokkanna. Flokkarnir voru eftir þetta ekki sammála um hver hefðU'Verið ágreiningsatriðin. Ólafur Jóhannesson tilkynnti forseta Islands þessi málalok hinn 13. ágúst og óskaði forsetinn þá eftir þvi að Ólafur kannaði aðra möguleika á stjórnarmyndun. Settust viðræðunefndir Sjálfstæð- isflokks og Framsóknarflokks síð- an að samningaborði árdegis hinn 14. ágúst og hinn 20. ágúst segir Morgunblaðið að margt bendi til að samkomulag um myndun ríkis- stjórnar sé ekki langt undan og hinn 21. ágúst heimilar flokksráð Sj álfstæðisflokksins stj órnarsam- starf við Framsóknarflokkinn að áskildu samþykki þingflokks hans. Hinn 24. ágúst eru viðræðurnar komnar á það stig að fundir standa fram á nótt og sunnudag- inn 25. ágúst segir í Morgunblað- inu að viðræður snúist um verka- skiptingu ráðherra. Þriðjudaginn 28. ágúst gekk síðan Ólafur Jóhannesson á fund forseta Is- lands og tilkynnti honum að samkomulag hefði orðið um stjórnarmyndun milli Framsókn- arflokks og Sjálfstæðisflokks und- ir forystú Sjálfstæðisflokks. Tók ráðuneyti Geirs Hallgrímssonar við þennan dag. Unimetric 1080 VHF bátatalstöðvar • 108 rása. • Upplýst rásaletur- • 25 wött. borö. • Tölvulykilborð. • Fjöldi annarra eigin- • Innbyggt kallkerfi. leika. • Sérbyggt símtæki. 3 CHAmU mim mxi* Mest seldu talstöðvar á íslandi Til notkunar í báta, bíla og á heimilum. Allir fylgihlutar ávallt fyrirliggjandi. Beriö saman verð og gæði. ætti raunverulega að vera. Norður- löndin og Bretland settu sérstakan kvóta um innflutning á fatnaöi til verndar iðnaði í heimalandinu og þar eru líka alls kyns styrkir sem við njótum ekki. Þeir Ásbjörn og Þórhallur nefndu að á fundi sem haldinn var í fyrradag um málefni fataiðnaðarins mættu 35 af þeim 40 aöilum er boðaðir voru og sögðu þeir að m.a. hefði þar komið fram að sænska ríkið leggur fram 25 kr. sænskar á hverja vinnustund í iðnaði og ef einhverju slíku væri til að dreifa hér mætti e.t.v. leysa að nokkru leyti fjármagnsvandræði þessarar iðngreinar. — störfum í fataiðnaði erum ekki að biðja um nein forréttindi eða styrki heldur aöeins jafnrétti á viö keppinauta okkar í nágrannalöndun- um, sögöu þeir Ásbjörn Björnsson og Þórhallur Arason að lokum. — Styrjaldar- ástand Framhald af bls. 16 þeim á sitt vald. CGV sagði hins vegar, að ráöið hefði sannanir fyrir því að mót- mælendur hefðu ekki beitt skot- vopnum og ekki reynt að taka lögreglubúðirnar með áhlaupi. Alls voru 26 handteknir. í Bilbao geisuðu óeirðir í fjóra tíma í gærkvöldi og kveikt var í nokkrum strætisvögnum og verzlunum. Mikil spenna ríkti í Pamplona í dag en annars var ástandið rólegt. — Minning Haraldur Framhald af bls. 26 með það, einnig kunni hann sögu margra bæja aftur í gráa forn- eskju. Kynni okkar Haraldar byrjuðu vorið 1962 er ég og kona mín Sigríður, sem er systir Elínar konu Haraldar, fórum norður til Akur- eyrar. Þegar við stigum út úr rútunni í miðbænum, stóð Harald- ur þar ásamt sonum sínum og tóku þeir svo vingjarnlega á móti okkur að ekki gleymist. Og er heim var komið í Víðimýri til Elínar var sama hlýja viðmót- inu aö mæta þar hjá allri fjöl- skyldunni. Við dvöldum þarna í nokkra daga og á hverjum einasta degi ók Haraldur okkur á ýmsa staði og sýndi okkur og fræddi um ýmislegt sem við höfðum ekki séð né heyrt áður. í áframhaldi af þessu, vil ég bæta því við, að eftir að við höfðum dvalið nokkra daga á þessu góða heimili og notið frábærrar gestrisni og skemmtun- ar, þá bauð Helga móðir Elínar okkur í bíltúr austur á Hólsfjöll. Hafði hún tekið á leigu stóran bíl sem rúmaði alla fjölskylduna og fleiri. Þetta var á sunnudegi, farið snemma af stað, komið víða, veðrið bjart og gott og ferðalagið allt dásamlégt. Oft höfum við Sigríður og Ingimundur komið til Haraldar og Elínar og barna þeirra, gist hjá þeim, ferðast með þeim. Ég hefi hér að framan lýst fyrstu kynnum mínum við Harald og hans fjölskyldu. Nú þegar ég lít til baka aftur í tímann finn ég það að hefði ég ekki kynnst þessari fjölskyldu þá hefði ég tapað stórum kapítula úr æviferli mín- um. Um Harald vil ég segja þetta: Hann var fríður maður, svip- hreinn, í hærra meðallagi á vöxt. Vel greindur og minnugur. Glað- vær, bar með sér ferskan blæ. Greiðvikinn og fús að hjálpa öðrum ef hann gat. í bezta lagi verklaginn, úrræðagóður ferða- maður. Margt fleira gott mætti um Harald segja, en ég læt þetta nægja að sinni. Hinn 28. júní veiktist Haraldur snögglega, var fluttur strax á spítala, lá þar meðvitundarlaus, þar til að hann andaðist að morgni hins 4. júlí s.l. Að endingu vil ég þakka Haraldi og háns fjölskyldu fyrir langa og trygga vináttu sem aldrei bar skugga á. Svo sendum við Sigríður og Ingimundur, Elínu eiginkonu Har- aldar, börnum þeirra, barnabörn- um og Kjartani föður hans okkar beztu samúðarkveðjur. Björn Vigfússon frá Gullberastöðum. — Staksteinar Framhald á bls. 21 ingum, enda birtust par heilsíöur um flokkinn dag eftir dag fyrir utan fjölda kjallaragreina, en at- kvæðin urðu sem fyrr segir um tvöhundruð og áttatíu talsins ... En Dagblaðinu Þykir hóliö gott, Þegar Því er kennt eða Þakkað, að svona fór í kosningunum. Þaö er að Því leyti eins og sextug meykerling, sem sagt er upp í opiö geðið á að geti varla verið meira en fer- tug. Sannleikurinn er sá að menn kunna sáralítil skil að tapi sínu eða sigrum í pólitík, og auð- veldast er að kenna Það einhverjum út í bæ.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.