Morgunblaðið - 13.07.1978, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 13.07.1978, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. JÚLÍ 1978 — Herða ákvæði Framhald af bls. 1 manna þótt tilgangur laganna væri sá að vernda bandarískan fiskiðnað og hieypa í hann nýju lífi. Sovézk og kóresk fiskvinnslufyr- irtæki hafa þegar sent bandaríska verzlunarráðuneytinu umsókn um að fá að vinna úr um 80.000 lestum fisks sem bandarískir fiskimenn hafa veitt undan norðvesturströnd Bandaríkjanna á Kyrrahafi. — SAS-afsláttur Framhald af bls. 1 hljóta samþykki viðkomandi ríkis- stjórna en áætlað er að allt að 100.000 farþegar muni notfæra sér þau. Brezki viðskiptaráðherrann Ed- mund Dell ákvað í dag að aftur- kalla heimild flugfélagsins British Caledonian til að fljúga til borga á Norðurlöndum frá Gatwick-flug- velli við London þar sem ríkis- stjórnir Norðurlandanna hafa ekki veitt leyfi sitt fyrir því flugi. — Frakki Framhald af bls. 1 að í hópi 604 sovézkra borgara sem búsettir væru í París væru 60 njósnarar, sem talið væri að hefðu hlotið þjálfun sína í sérstökum njósnaskóla sovézku hernaðar- leyniþjónustunnar. — 300 látnir... Framhald af bls. 1 V-Þjóðverjar, HoHgndingar og Frakkar sendu þegar 1 gær flug- vélar með stóran hóp lækna og hjúkrunarliðs til aö aðstoða Spán- verja við að hlynna þeim sem komust lífs af og til að flytja þá sem ferðafærir voru á sérstök sjúkrahús ætluð brunasjúklingum í heimalöndum þeirra. Mjög erfitt er að bera kennsl á lík þeirra sem fórust og jafnvel einnig suma þeirra sem komust lífs af, svo illa voru þeir útleiknir. Þeir, sem þarna fórust voru flestir skemmtiferðamenn frá Þýzka- landi, Frakklandi og Hollandi en einnig Bretar og Spánverjar. Er talið að einhverja þeirra verði að jarðsetja án þess að kennsl verði borin á þá. Margir þeirra sem fórust voru börn en einnig hafa mörg börn verið skilin eftir foreldralaus í þessum harmleik. Lítil þýzk stúlka gaf sig fram við hjálparsveitirnar í gær þegar eldhafið geisaði. Hún hafði farið að kaupa ís handa sér og foreldr- um sínum og hafði það bjargað lífi hennar en foreldrarnir fórust. — Umboð mitt... Framhald af bls. 36 Benedikt Urondal sagoi í gær að hann gerði sér vonir um jákvæð svör frá báðum flokkunum. Hann var spurður að því hvernig hann myndi haga viðræðunum í því tilfelli og sagði hann að venjan hefði verið að ræða fyrst einu sinni við hvorn flokk sérstaklega og síðan yrðu sameiginlegar við- ræður. „Ég get vel hugsað mér að hafa þann háttinn á,“ sagði Benedikt. Um þann möguleika að Alþýðubandalagið hafnaði viðræð- um vegna aðildar Sjálfstæðis- flokksins sagði Benedikt: „Það er sjálfsagt heila málið að þeir geri þetta atriði upp við sig. Ég vil ekkert segja neitt um það fyrr en ég þá stend andspænis því. En það umboð sem ég hef frá flokksstjórninni má segja að takmarkist við það sem ég er nú að gera.“ Benedikt var spurður um þá möguleika aðra sem Alþýðuflokk- urinn hefði til myndunar meiri- hlutastjórnar; þ.e. viðreisnar- stjórn og stjórn Alþýðuflokks, Alþýðubandalags og Framsóknar- flokks. Benedikt kvaðst aðeins geta ítrekað þann eindregna vilja Alþýðuflokksins að mynduð yrði samstjórn Alþýðuflokks, Alþýðu- bandalags og Sjálfstæðisflokks. Varðandi samstjórn Alþýðuflokks og Sjálfstæðisflokks kvaðst hann telja hana „óraunhæfan mögu- leika" þar sem sú stjórn hefði ákaflega litla möguleika til að koma á þeirri samstöðu og því samkomulagi sem nauðsynlegt væri til kjarasáttmála. Þá var Benedikt spurður um viðhorf hans til minnihlutastjórn- ar Alþýðuflokks og Alþýðubanda- lags og kvaðst hann telja það beinlínis nauðsynlegt að mynduð verði meirihlutastjórn og mætti líta á samþykkt Alþýðuflokksins um nýsköpunarstjórn meðal ann- ars sem svar við hugmyndum um minnihlutastjórn. „Það var ekki tekið vel í þá hugmynd en við höfum hins vegar ekki útilokað hana. Og reyndar má segja að við höfum ekki útilokað neinn mögu- leika," sagði Benedikt. „Okkar afstaða hefur komið skýrt fram,“ sagði Lúðvík Jóseps- son í samtali við Mbl. í gærkvöldi. „Við munum hins vegar fjalla um bréf Benedikts í fyrramálið og ég get ekki sagt neitt til um það nú hvernig því verður svarað." Þegar Mbl. spurði Lúðvík álits á þeirri ákvörðun forseta Islands að fela Benedikt Gröndal að hafa forystu um viðræður stjórnmála- flokka sagði hann: „Ég hef ekkert við hana að athuga. Ég tel alveg víst að forsetinn hafi valið Bene- dikt vegna þess að Sjálfstæðis- flokkurinn hafi mælt með því. Annars hefði stærsti flokkurinn orðið fyrir valinu fyrst, síðan sá næststærsti og síðan sá þriðji. Ég tel víst að Sjálfstæðisflokkurinn hafi ekki viljaö hafa forystuna og því bent á Alþýðuflokkinn." Mbl. spurði Geir Hallgrímsson í tilefni af framangreindum um- mælum Lúðvíks Jósepssonar hvort það væri rétt að Sjálfstæðis- flokkurinn hefði bent á Alþýðu- flokkinn til að hafa forystu um stjórnarmyndunarviðræður. „Ég hef engar athugasemdir að gera varðandi þá ákvörðun forseta íslands að fela Benedikt Gröndal formanni Alþýðuflokksins tilraun- ir til stjórnarmyndunar við þessar aðstæður. Sjálfstæðisflokkurinn hefur ekki bent á neinn sérstakan aðila til að hefja tilraunir til stjórnar- myndunar að þessu sinni." Og spurningu um það hvort Sjálf- stæðisflokkurinn hefði hafnað forystu á slíkum viðræðum svaraði Geir: „Það komst ekki á dagskrá að svara slíkri spurningu. Að öðru leyti eru viðræður mínar eins og viðræður forystu- manna annarra flokka við forseta íslands trúnaðarmál eins og vera ber. Meðan forystumenn annarra flokka vilja virða þennan trúnað um eigin viðræður er ástæðulaust fyrir þá að draga ákveðnar ályktanir varðandi viðræður mín- ar við forseta Islands." „Við Framsóknarmenn bíðum bara og sjáum til hvort óskað verður eftir þátttöku okkar í stjórnarmyndunarviðræðum,“ sagði Steingrímur Hermannsson ritari Framsóknarflokksins í sam- tali við Mbl. í gær. Þegar Mbl. leitaði álits hans á þeirri ákvörðun forsetans að fela Benedikt forystu um viðræður flokkanna sagði Steingrímur: „Persónulega hélt ég nú að hann myndi fyrst tala við Geir Hallgrímsson sem þá myndi ef til vill benda á Benedikt. Án þess að ég viti neitt til þess að það hafi gerzt þá vil ég ekki gagnrýna þessa ákvörðun forsetans á neinn hátt.“ „Við vitum,“ sagði Steingrímur, „að Alþýðuflokkurinn leggur áherzlu á nýsköpunarstjórn og okkur skilzt að Alþýðubandalagið sé ekki samþykkt slíkri ríkis- stjórn. Þá stendur Alþýðuflokkur- inn frammi fyrir því hvort hann vill tala við Sjálfstæðisflokkinn um viðreisnarstjórn eða fara í viðræður við Alþýðubandalagið og okkur. Við tökum bara lífinu með ró á meðan," sagði Steingrímur Her- mannsson. Þingflokkur Alþ^ðuflokksins kom saman kl. 17 í gær og næsti fundur er ákveðinn klukkan 18 í dag. Bréf Benedikts fékkst ekki í gærkvöldi og kvaðst hann hafa óskað eftir því að nákvæmt efni þess yrði ekki látið uppi fyrr en klukkan 18 í dag. — Boða stöðvun Framhald af bls. 36 spurður hvort algjör eining hefði verið á fundinum og hann svaraði: „Það er ekkert til að vera ósam- mála um, því að það er einfaldlega ekki hægt að reka húsin eins og ástandið er nú,“ svaraði hann. Frystihúsamenn á Suðurnesjum boðuðu svipaðar aðgerðir í fyrra en minna varð þá úr stöðvun húsanna en yfirlýsingar gáfu til kynna. — Hlunnindastríð Framhald af bls. 36 leggja ekki að nýju fyrr en á þriðjudagsmorgnum. Nú hefur hins vegar dregið til tíðinda á nýjan leik. Lax- veiðibændur hafa netabændur enn sterklega grunaða um ólöglegar netaveiðar á laxi. Þetta hefur leitt til þess að Landhelgisgæzlan hefur haft afskipti af málinu og m.a. hefur flugvél Landhelgisgæzlunnar iðulega flogið yfir botn Húna- flóa, einnig þyrlan og einn daginn var varðskip komið inn í botn flóans, þar sem varð- skipsmenn fóru í gúmbátum milli netalagnanna til að kanna veiðina. Margir netabænda telja Landhelgisgæzluna hafa tekið þarna afstöðu með öðrum deiluaðilanum, jafnframt því sem þeir saka Landhelgisgæzl- una um að hafa skaðað stórlega hiunnindi sín varðandi æður og sel, sem hafi styggzt við þessi læti, t.d. hafi æðarfuglinn flogið af hreiðrum. Fulltrúi sýslumanns í Húna- vatnssýslu var einnig á Hvammstanga í gær til að rannsaka kæru veiðivarðar á tvo menn fyrir að hafa í hótunum við sig og hafa síðan hleypt úr dekkjum bifreiðar hans, er hann vildi kanna hvort allt væri með felidu um neta- lagnirnar. Tveir rannsóknar- lögreglumenn frá Rannsóknar- lögreglu ríkisins voru kvaddir norður vegna máls þessa eftir því sem Morgunblaðið hefur fregnað. — Fékk fjárstyrk Framhald af bls. 36 krónur. Samkvæmt meðalgengi á hverjum tíma, þegar fjár- munirnir hafa borizt er þessi fjárhæð í íslenzkum krónum 7.752.400 krónur. Þar fyrir utan hefur norska A-pressan greitt pappírsskuld Alþýðublaðsins við norskt pappírsfyrirtæki að upp- hæð 150 þúsund norskar krónur, sem er jafngildi 7,2 milljóna króna. Samtals er því styrkur- inn frá Norðurlöndum rétt tæplega 15 milljónir króna. Éins og fram kom í Morgun- blaðinu í gær átti Morgunblaðið viðtöl við talsmenn norrænu jafnaðarmannaflokkanna um styrkveitingar flokka þeirra til íslenzkra jafnaðarmanna. Þar var birt talan rétt tæplega 20 milljónir króna, sem staðfest hafði verið. Sá reikningur byggðist á því, að reiknað var með gengi gjaldmiölanna í dag, en þær greiðslur, sem Alþýðu- flokkurinn hefur fengið inn á norræna styrktarsjóðinn í Landsbankanum, voru yfir- færðar á þeim tíma, sem greiðslurnar komu. Síðan hafa orðið gengisbreytingar. í viðtölum Morgunblaðsins við t.d. Sven Dahlin, sem er framkvæmdastjóri sambands norrænna jafnaðarmanna- flokka, sendu Svíar þrisvar 40 þúsund krónur. Alþýðuflokkur- inn segir hins vegar að Sviarnir hafi tvisvar sinnum sent 40 þúsund sænskar krónur og einu sinni 50 '4 þúsund. Ejner Hovgaard Christiansen, fram- kvæmdastjóri danska jafnaðar- mannaflokksins, segir hins vegar að Danirnir hafi tvisvar til þrisvar sent 20 þúsund krónur danskar, en Álþýðu- flokkurinn hefur aðeins mót- tekið eina 20 þúsund króna sendingu. Er þá óljóst, hvað orðið hefur um eina til tvær 20 þúsund króna sendingar. Þá hefur Alþýðuflokkurinn aldrei fengið eyri frá finnskum jafn- aðarmönnum. Samkvæmt upplýsingum Snorra Jónssonar, varaforseta Alþýðusambands Islands, hefur Alþýðusambandið fengið fjár- styrk frá samtökum opinberra starfsmanna í Finnlandi. Þessi fjárstyrkur var greiddur á árinu 1977 og hafa þeir fjármunir legið á gjaldeyrisreikningi í Landsbanka íslands. Kvaðst Snorri ekki muna, hve há fjárhæðin var. Þá kvaðst Snorri jafnframt hafa hugboð um að einhverjar peningagreiðslur væru á leiðinni til Alþýðusam- bandsins frá hinum Norður- löndunum, en formlega kvaðst hann ekki hafa fengið neina tilkynningu um það. Morgunblaðið spurði Snorra, hvort það væri möguleiki að Alþýðusambandið hefði fengið þessa peninga vegna mis- skilnings, þar sem Alþýðusam- böndin og jafnaðarmanna- flokkarnir væru svo miklu nátengdari á hinum Norður- löndunum en hérlendis. Það kvaðst Snorri ekki telja, pening- arnir frá Finnum hefðu verið sendir á nafn, fyrir þá hefði verið kvittað og fyrir þá þakkað. Jafnframt hefði verið tilkynnt um það áður að þessir peningar myndu koma. Snorri kvað það hafa verið ákvörðun stjórnar sambandsins í Finnlandi að afhenda þessa peninga til AlþýðUsambandsins. Þessi fjár- styrkur hafi verið á dagskrá þar um leið og fjárstyrkur til Alþýðuflokksins og þeir síðan fylgzt að. Þó taldi Snorri Jónsson útilokað að Alþýðusam- bandið hefði tekið við fjárstyrk, sem ætlaður var Alþýðuflokkn- um. „Ég fullyrði," sagði Snorri, „að það eru engir peningar í geymslu hjá Alþýðusamband- inu, sem ætlaðir voru Alþýðu- flokknum." Peningarnir, sem sendir voru Alþýðusambandinu, voru heldur ekki frá flokknum heldur frá verkalýðssamband- inu í Finnlandi. Snorri Jónsson kvað þetta vera eina fjár- stuðninginn, sem ASI hefði fengið erlendis frá og lægi hann óhreyfður á banka. — Þorskveiði- bann Framhald af bls. 2 samþykkis ráðuneytisins ef þeir vilja breyta þeim. Á þeim tíma, sem fiskiskip mega ekki stunda þorskveiðar, má hlut- deild þorsks í heildarafla hverrar veiðiferðar ekki nema meira en 15%. Þorskafli undir þeim mörk- um skoðast sem iöglegur aukaafli, en fari þorskafli fram úr 15%> af heildarafla verður það, sem um- fram er, gert upptækt samkvæmt lögum um upptöku ólöglegs sjáv- arafla. Þá segir í reglugerðinni að komi fiskiskip að landi á tímabili því, sem þorskveiðar eru bannaðar og hlutfall þorsks í aflanum reynist hærra en 15%> skal litið svo á, að um ólöglegan afla sé að ræða og hann gerður upptækur, nema í ljós komi að veiðar hafi ekki verið stundaðar á þeim tíma, sem þorskveiðar eru óheimilar. Sama gildi komi fiskiskip að landi eftir lok tímabilsins hafi afli að ein- hverju leyti fengist á tímabilinu. — Islenzk síld Framhald af bls. 36 tunnur með „seígum pækli“. Hina gölluðu síld segðu kaupendur vera frá fjölmörgum söltunarstöðvum á íslandi. Gunnar sagði að í tilefni af þessum kvörtunum hefði Síldarút- vegsnefnd óskað eftir því við Framleiðslueftirlit sjávarafurða að forstjóri þess, Jóhann Guðmundsson, og Ásgrímur Krist- jánsson yfirsíldarmatsmaður hjá Framleiðslueftirlitinu færu til Finnlands til að kanna þetta mál nánar og Framleiðslueftirlitið hefði orðið við þessari ósk Síldar- útvegsnefndar. Jafnframt hefði Síldarútvegsnefnd sent erlendan fagmann, sem reynslu hefur af því að lagfæra síld með „seigum pækli", með fulltrúum Fram- leiðslueftirlitsins. „Oll söltuö síld sem flutt er út frá Islandi er skoðuð og samþykkt sem samningshæf vara af Fram- leiðslueftirliti sjávarafurða, áður en lestun fer fram, auk þess sem kaupendur hafa samkvæmt samningum við Síldarútvegsnefnd rétt til þess að hafa eigin skoðunarmenn viðstadda skoðun Framleiðslueftirlitsins. í öllum samingum Síldarútvegsnefndar er skýrt tekið fram, að endanleg yfirtaka skuli fara fram á Islandi fyrir afskipun og að íslendingar beri enga ábyrgð á gæðum síldar- innar eftir að hún er komin í hendur kaupenda. Áður en Finnlandssíldin var flutt út lágu fyrir vottorð frá Framleiðslueftirlitinu og yfirtöku- manni kaupenda, þar sem staðfest var að öll síldin væri samningshæf vara,“ sagði Gunnar. Hann sagði, að þrátt fyrir þá staðreynd að allt hefði verið í lagi með síldina er hún fór frá Islandi hefði Síldarútvegsnefnd talið ástæðu til þess að kanna nánar hvað komið hefði fyrir í Finnlandi, „Því að okkur er ekki sama um hvernig farið er með síld frá okkur eftir aö hún kemur á markaðinn. Mál þetta er ennþá furðulegra vegna þess að bæði fyrirtækin hafa verzlað með saltaða síld í marga áratugi." Hinn 20. júní s.l. hringdu fulltrúar Framleiðslueftirlitsins og SÚN frá Finnlandi og skýrðu þá m.a. frá því að síldin hjá þessum tveimur fyrirtækjum væri geymd við alltof hátt hitastig eða 10—14 gr. C. — Kuldalesrar Framhald af bls. 1 frá Carter forseta til Brezhnevs forseta Sovétríkjanna vegna rétt- arhaldanna yfir andófsmönnunum tveimur sem nú fara fram þar í landi. Að loknum fundi sínum í dag lýstu báðir ráðherrarnir yfir því að það væri eindreginn ásetningur þeirra að ná samkomulagi um þessi mál. Er fréttamenn spurðu Gromyko um réttarhöldin í landi hans svaraði hann því til að hann vildi ekki ræða þau mál og var greinilega pirraður. „Hafið þið skilið það?“ bætti hann við. — Grimmilegur Framhald af bls. 1 leyniþjónustunnar CIA. í réttar- höldunum í gær var Shcharansky sakaður um að hafa komið til Toths upplýsingum um geimrann- sóknir Sovétríkjanna, félagsmál og dularsálfræði. Er réttarsalurinn í máli Shcharansky var á ný opnaður var móður hans ekki heimilað að fara þangað inn en bróður hans á hinn bóginn hleypt inn. Móðir Shcharanskys, Ida Milgrom, sjötug að aldri, sagði erlendum fréttamönnum, sem ekki fengu heldur að fara í réttarsalinn, að hún hefði ekki fengið að heyra son sinn eða sjá frá því hann var handtekinn fyrir 16 mánuðum. Gamla konan var skjálfandi og grátandi þegar hún talaði við fréttamennina og bætti því við að hún hafi að vissu leyti hlakkað til réttarhaldanna vegna þess hún hefði haldið að hún fengi þá að sjá son sinn en nú væri henni meinað það. „Þetta er grimmdar- legt lögbrot, sadismi," sagði hún. — Ráðinn nýr Framhald af bls. 3. innar, vissi stofnunin ekkert um þessa ráðningu nýs aðstoðar- manns forstjóra fyrr en bréf barst frá ráðuneytinu þess efnis, og ekkert hafði verið fjallað um nauðsyn á slíkri ráðningu fyrir- fram innan stofnunarinnar. Már Elísson, formaður stjó.nar Hafrannsóknastofnunar, sagði í samtali við Mbl. í gær, að bréf ráðuneytisins varðandi þessa ráðningu hefði verið rætt á stjórnarfundi Hafrannsókna- stofnunarinnar í gær og þar ákveðið að svara bréfi ráðuneytis- ins, en um efni svarbréfsins vildi hann ekki tjá sig þar eð það hefði enn ekki borizt ráðuneytinu eða ráðherra.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.