Morgunblaðið - 13.07.1978, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 13.07.1978, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. JÚLÍ 1978 25 Á tímabilinu 1905—1940, lögðu Norðmenn litla áherslu á landvarnir, og fylgdust ekki nægilega vel með þróuninni á sviði hermála. Afleiðingarnar urðu þær að þegar Þjóðverjar réðust á landið 1940 var lítið um varnir. Höfðu Norðmenn þá nær enga skriðdreka, né flugher, en Þjóðverjar höfðu hvort tveggja i ríkum mæli. Þrátt fyrir þetta tókst norska hernum að halda uppi vörnum í tvo mánuði. Einnig tókst hernum að hindra það að Þjóðverjar næðu norsku konungsfjölskyldunni og ríkis- stjórn landsins. Tókst konungi og stjórn að flýja til Englands. Sem æðsti maður norska hers- ins og þjóðhöfðingi, eggjaði konungur landsmenn sína til að halda áfram baráttunni, bæði utan lands og innan. í útlegðinni í Englandi, varð hann sam- einingartákn þeirra sem vildu berjast fyrir frelsi lýðs og lands, og við heimkomuna árið 1945 varð hann til að tendra gleði frelsisunnandi Norðmanna. Á stríðsárunum höfðu norskir hermenn aðsetur á Bretlands- eyjum, og gerðu þaðan strand- högg á stöðvar Þjóðverja í Noregi. Einnig tókst Norðmönn- um að koma á fót skæruliða- sveitum víðsvegar í Noregi, og unnu þær Þjóðverjum talsvert tjón, einkum undir stríðslokin. Árið 1949 gengu Norðmenn í varnarbandalagið NATO, enda þótti mörgum Norðmanninum sem útþenslustefna Rússa í A-Evrópu gæfi ástæðu til auk- innar varnarsamstöðu vest- rænna lýðræðisþjóða. Mikill meirihluti norsku þjóðarinnar er fylgjandi varnarsamstarfi þessu, og telur að öryggi þjóðar- innar og frelsi sé best tryggt með sterkum landvörnum. Það er staðreynd að síðustu 350 árin hefur norski herinn marga hildi háð og oft varið land af miklú kappi. Þegar farið hafa saman góð vopn og sterk- ur baráttuvilji, hefir stríðsgæf- an reynst hliðholl. Lélegar varnir og lítill baráttuvilji bjóða hinsvegar hættunni heim. með ósigra og ófrelsi í för með sér. Þetta hafa Norðmenn lært af reynslunni og þeir hafa lært það að með vopnum skal land verja. Bridge Umsjón ARNÓR RAGNARSSON Bikarkeppni B.S.Í. og aðal- fundur B.R. Bridgefélag Re.vkjavíkur gef- ur öllum þátttakendum í Bikar- keppni Bridgesambands Islands kost á aðstöðu til að ljúka leikjum sínum í Domus Medica laugardaginn 15. júlí kl. 12.30. Er þetta fyrst og fremst hugsað sem þjónusta við félags- menn en fyrst aðstaðan verður fyrir hendi er sjálfsagt að gefa einnig öðrum kost á að notfæra sér hana. Bikarkeppnin er skemmtileg útsláttarkeppni og var endur- vakin í fyrra eftir nokkurra ára hlé. Þá útvegaði félagið sams konar aðstöðu og nú er engri sveit frá félaginu tókst að komast í úrslit. Sigurvegari varð sveit Ármanns J. Lárussonar frá Bridgefélagi Kópavogs og 48 tornium af áburði og fræi dreift DOUGLAS ÁBURÐARVÉL Landgræðslunnar var að sá í Mývatnsöræíin í fyrradag og var dreift alls yfir daginn 48 tonnum af áhurði og fræi. í samtali við Harald Snæhólm flugstjóra, sem vann við dreif- inguna í gær, er reiknað með vikutörn í áburðarflugi á Mývatnssvæðinu og þar í kring. Haraldur kvað gufusvæðið í Gjástykki hafa gefið svolítið í þegar líða tók á daginn því gufumökkur hefði verið heldur meiri. b.vggja sig upp andlega. Maðurinn í dag er friðvana. Hann er alltaf að leita að friði. Hann heldur að friðurinn finnist í brennivínsflösk- unni, jafnvel á botni hennar, þessvegna er hún tæmd í botn, en þar er ekkert að finna nema timburmenn og hausverk, og svo samvískubit ef samviskan er þá í skorðum. Margur leitar langt að því, sem liggur hendi nærri. Þetta sungum við í æsku í staðinn fyrir bibbidi babbidi bú nútímans. Ef til vill er þarna kjarni málsins þegar allt kemur til alls. 1 Bók Bókanna standa þessi orð: Minn frið GEF ég yður ... og þó eru menn að kaupa sér frið sem er ekkert annað en ófriður, bæði á heimilum og annarsstaðar, og endar með upplausn og einhverju verra. Minn frið gef ég yður. Það er eins og menn vilji ekkert fá gefins í dag. Heldur kaupa og nógu dýrt.. . það sýnir reynslan. En hvernig væri nú að fara að taka alvöru lífsins með í dæmið og frið þann og fögnuð sem enginn getur frá manni tekið? Ég var um daginn í Vatnaskógi á kristilegu móti. Þar var fallegur og elskulegur unglingaskari sem söng guði lof og dýrð og ÞAKK- AÐI hans gjafir. Það var gaman að sjá ljómann í andlitunum. Þar var einnig ellin með en hún var svo glöð, söng með og tók þátt í þakkaróönum og þar hefði engum dottið í hug að syngja þennan sultarsöng, sem eru upphafsorð þessara hugleiðinga. Allir eru að gera það gott — nema ÉG. ekki skrimt, þá er aðalatriðið að fá meira í eyðsluna og ekki borgar sig að leggja inn á banka, segir hin ráma rödd og þó vill hún fá lán í bönkunum sem enginn vill leggja inn í, svona einfalt er þetta allt. Og svo kémur þakkaróður nútím- ans sunginn við öll tækifæri í tíma og ótíma: Allir eru að gera það gott — nema ég. — Og svo er eitt. Staðreyndirnar tala sínu máli. Ágirnd vex með eyri hverjum en ekki ÁNÆGJA að sama skapi. Og það gerir lítið til þótt líkaminn fái sína útreið í þessu velmegunar- kapphlaupi með vökum, áfengis- drykkju, eiturlyfjum og öðru sem kryddar Hfið í leitinni — hinni eilífu leit að því að hafa það BETRA en hinn. Horfa alltaf á náungann og stynja: Allir eru að gera það gott. Og þá kemur upp þessi hugsun. Hvað er eiginlega fólgið í því að hafa það gott? Hvernig skilgreina menn það orðtak? Ekki er fólkið ánægðara en þegar ég var barn að aldri, en þá þakkaði maður fyrir þegar gömul kona rétti að manni grá- fíkju eða sveskju og var jafnvel til með að kyssa hana í staðinn. En nú eru allir að gera það gott — nema ég — þakklætið er orðið á annan veg og allir sem stjórna hafa ekki vit á því hvað þeir eru að gera og svona syngja hinar rámu raddir í kór. Það er líka ekkert áhlaupaverk að stjórna þjóð sem hefir ekkert á nösunum annað en krónugleraugun og gleymir sjálfri sér í uppbyggingu heimsins verðmæta í stað þess að hafa B.R.-menn fullan hug á að ná titlinum Bikarmeistarar 1978. Enda var þetta í fyrsta sinn um margra ára skeið, sem meiriháttar titill hafnar ekki hjá sveit innan félagsins. Og að sjálfsögðu eru áhorfendur velkomnir. Aðalfundur BR verður hald- inn þriðjudaginn 18. júlí kl. 20.30 á sama stað. Verða þá afhent verðlaun fyrir allar keppnir vetrarins og stjórnarkjör. Auk þess verða rædd þau mál, sem ástæða þykir til að mati fundarmanna. Á fundinum verða einnig afhentir síðustu bronsstigamiðar starfs- ársins og eru félagsmenn sér- staklega beðnir að láta ekki hjá líða að skrá stig sín hjá meistarastiganefnd B.S.I. þar sem ný skrá á að koma út í sumarlok. Sumarspila- mennska Asanna í Kópavogi Spilað var í tveimur riðlum í sumarspilamennskunni sl. mánudag. Úrslit urðu þessi: A-riðill: Sigfús Þórðarson — Vilhjálmur Pálsson 203 Óli Már Guðmundsson — Þórarinn Sigþórsson 193 Jón Hilmarsson — Oddur Hjaltason 187 B-riðilh Sigurður Sigurjónsson — Trausti Finnbogason 181 Hrólfur Hjaltason — Baldur Kristjánsson 178 Þorlákur Jónsson — Haukur Ingason 173 Erla Jónsdóttir — Gunnar Þorkelsson 173 Meðalskor var 165. Að venju verður spilað á mánudaginn í Félagsheimili Kfipavogs. Allir eru velkomnir meðan húsrúm leyfir. ’ - •» - LAUGAVEGI47, BANKASTRÆTI 7

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.